Morgunblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979 27 Margrét B. Fjeldsted — Minningarorö Dánarfregn Margrétar Fjeldsted, síðast til heimilis að Langholtsvegi 90, Reykjavík, kom vinum hennar ekki á óvart, svo erfið veikindi sem hún hafði átt við að stríða allt frá síðastliðnu sumri. En það er nú einu sinni svo, að því sterkari ítök sem einhver á í manni, því verr gengur að sætta sig við atlögu hins slynga sláttu- manns, jafnvel þó maður viti, að engin önnur lausn er hugsanleg á miklu þrautastríði. Svo fór mér við þessa dánar- fregn. Ég fann þá gerla, að maður kann aldrei að meta til fullnustu góðan vin fyrr en hann er horfinn á braut um hinar dimmu dyr. Undirritaður þekkti ekki Mar- gréti Fjeldsted, eða Grétu eins og hún var jafnan kölluð meðal vina og kunningja, að neinu ráði fyrr en svo atvikaðist, að hann naut gistivináttu hennar og eiginmanns hennar, Daníels Fjeldsted hér- aðslæknis, um vikuskeið síðla árs 1954 á heimili þeirra að Laugavegi 79, Reykjavík. Þessi kynni sviku ekki, þau greyptust í huga og ljóma enn í minningunni. Löngu síðar, nokkru eftir lát Daníels, eða árið 1968, urðum við hjónin þeirrar gleði aðnjótandi, að þær mæðgur, Margrét og Ragnheiður dóttir hennar dvöldu að heimili okkar um þriggja mánaða bil. Að þeirri dvöl lokinni urðu þær mæðgur einhverjar okkar bestu og traustustu vinir. Og hiklaust tel ég Grétu frænku mína í hópi hinna vönduðustu manneskja, er ég hefi nokkru sinni kynnst. Hún hafði einkar heilbrigðar skoðanir á mönnum og málefnum, og hún varðveitti kostgæfilega sveita- manninn í sjálfri sér, þó hlutskipti hennar um árabil yrði það að vera húsfreyja á gestkvæmu heimili í höfuðstaðnum. Því hlutverki mun hún hafa skilað með sóma. Tíðrætt varð Grétu um bernsku- slóðir í Skagafirði og frændlið norður þar. Skagafjörðurinn fagri átti enda alla tíð sterk ítök í henni. Þetta mikla trygglyndi Grétu til bernskustöðvanna var henni sjálfsagður hlutur, því trygglynd- ið var svo sterkur þáttur í fari hennar. Það fundu vinir hennar næsta vei. Og það var bókstaflega eins og henni væri gerður stór greiði, ef litið var inn til hennar, á heimilið friðsæla og fagra þeirra mæðgna. Einn af ánægjulegustu þáttum í skapgerð Grétu frænku minnar, var sá hversu barngóð hún var. Það fundum við hjónin næsta vel í áðurnefndri dvöl hennar hjá okk- ur. Hún varð þá fjarska hrifin af litlum frænda sínum og fékk hann oft „léðan“ inn á herbergi sitt til þess að hjala við hann og gæla. Gréta frænka mín var af góðu bergi brotin. Voru foreldrar henn- ar hjónin Elínborg Björnsdóttir og Bessi Gíslason, fyrrum búendur í Kýrholti Skagafirði. Eru þau bæði látin. Fædd var hún 6. febrúar 1918 og því aðeins rúm- lega sextug, er hún lést 22. nóv- ember þ.á. Þannig urðu aðeins röskir fjórir mánuðir milli þess, að hún og Björn bróðir hennar voru brottkvödd. Guðrún Oddsdóttir Nýjabæ — Minning Margar eru þær minningar, sem koma í hugann, þegar minnst er þessarar greindu, dugmiklu konu, sem borin var til grafar að Prestsbakkakirkju á Síðu 17. nóv. s.l. Alla tíð okkar á Síðunni, árin 1937—63, var hún svo að segja okkar næsti nágranni og náinn vinur. Þá bjó hún í Nýjabæ í Landbroti, eignarjörð sinni, fyrst með foreldrum, síðan með eigin- manni og loks ekkja með syni sínum unz hann tók þar við jörð og búi. Guðrún Oddsdóttir var fædd í Nýjabæ 28. ágúst 1888, var því komin á annað ár hins níunda tugar, er hún lézt í Hrafnistu sunnudaginn 11. nóvember s.l. Foreldrar hennar voru Oddur Bjarnason og Elínborg Ásgríms- dóttir, sem bjuggu í Nýjabæ allan sinn búskap. Móðir Elínborgar var Vilborg Þorsteinsdóttir, Sverris- sonar frá Kroki í Meðallandi. Hann var bróðir Eiríks sýslu- manns í Kollabæ. Koma þar sam- an ættir okkar Guðrúnar Oddsdóttur. Þau- Oddur og Elínborg áttu tvær dætur barna. Vilborg giftist Benedikt Einarssyni. Bjuggu þau í Vík í Mýrdal o.v. Hún lifir enn í hárri elli hér í borg. Guðrún giftist Gísla Sigurðssyni frá Hell- um í Mýrdal og bjuggu þau í Nýjabæ unz Gísli andaðist, mjög um aldur fram, 13. jan. árið 1943. Hann var forsjáll bóndi og hygg- inn og mikill fyrirgreiðslumaður, harmdauði öllum, sem hann þekktu. Þau Guðrún bjuggu góðu búi í Nýjabæ og fór hagur þeirra batnandi eftir því sem árin liðu. Þau eignuðust einn son, Þorstein, sem býr í Nýjabæ, kvæntur Jónínu Jónsdóttur frá Einbúa í Bárðar- dal. Hann hefur mikið bætt ættar- óðal sitt, bæði með byggingum og ræktun, og gegnir ýmsum trúnað- arstörfum fyrir sveitunga sína. Guðrún Oddsdóttir var mikil dugnaðarkona, þegar hún var upp á sitt bezta. Og hún var trúuð kona. Hennar trúarjátning var: Guð hjálpar þeim, sem hjálpar sér sjálfur. Hún gekk í öll verk, bæði utan bæjar og innan og hlífði sér ekki í neinu til að sjá sér og sinum farborða án þess að vera upp á aðra komin. Hún var alltaf frekar veitandi en þiggjandi og tók vel á móti mörgum gestum meðan bær hennar var í þjóðbraut, þegar ferðast var á gamla vísu. Foreldrar Guðrúnar önduðust bæði í Nýjabæ, Oddur, kominn fast að áttræðu, árið 1931 og Elínborg, næstum hálfníræð, árið 1949. Hafði hún þá lengi blind verið en ern að öðru leyti eftir aldri, og minnast má þess að oft var ánægjulegt að skrafa við gömlu konuna í baðstofunni í Nýjabæ. Guðrún í Nýjabæ náði háum aldri, eins og fleiri af ætt hennar. Ekki fór hún varhluta af mótlæti ellinnar, var blind síðustu 5—6 árin, en bar það með biðlund og bjartsýni trúarinnar, þakklát öll- um, sem önnuðust hana og sýndu henni vináttu og kærleika. Blessuð sé minning hennar. G.Br. Af systkinahópnum eru nú á lífi: Haraldur, prófessor í Winni- peg, Kanada og Gísli, búsettur á Sauðárkróki, svo og hálfsystir samfeðra, Elínborg, búsett í Hofs- staðaseli, Skagafirði. Gréta frænka mín hlaut af lífinu þá stóru gjöf að eignast mannvænlega dóttur, sem var henni einkar góð og samhent. Ég vissi að fyrir hana lifði Gréta fyrst og síðast. Það varð hennar mest hamingja að sjá dótturina verða fullþroska konu, sem aldrei gleymdi umhyggjunni fyrir móður sinni og heimilinu þeirra. En hún sýndi þó e.t.v. best hvað í henni bjó, þegar sjúkdómsáfallið hafði dunið yfir móður hennar á liðnu sumri. Nú er þessari farsælu samfylgd þeirra mæðgnanna lokið. Skugg- inn er vissulega stór, sem á hefir fallið. En að baki allra skugga býr ljós og öll él birtir um síðir. Hið bjartsýna lífsviðhorf kristinnar trúar gefur þá dýru von. Sú von mun aldrei bregðast. Að síðustu bið ég Ragnheiði Guðs líknar og styrks á rauna- stund, megi Lausnarans styrka og blessaða hönd leiða hana fram til bjartari tíða. Og frænku mína Grétu kveðjum við hjónin og börnin okkar með miklum söknuði og heilum þökk- um fyrir alla vinsemd í okkar garð, fyrir allar góðu samveru- stundirnar á liðnum árum. Ég vil og þakka henni mikla ræktarsemi við móður mína aldraða, móður- systur sín«. Við biðjum henni svo farar- heilla yfirum mærin miklu. Guð blessi minningu hennar. Stefán Lárusson SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Ég hef glatað friðnum og gleðinni i trúnni á Krist. Ástæðan er ys og þys og annir. Hvernig get ég ratað aftur til Guðs? Þér eruð ekki langt frá guðsríkinu. Vissulega er til vegur aftur til Guðs. Að minnsta kosti hafið þér bent á það, sem olli því, að þér fóruð á mis við hina dýrmætu reynslu í samfélagi við Krist, og það er fyrsta skrefið til að hljóta andlega lækningu. Þér nefnið það „ys og þys og annir“. Þér minnizt þess, að einu sinni týndu Jósef og María Jesú. Þau höfðu farið til Jerúsalem, og þau kynntust líka „ys og þys og önnum". í flýti og fáti yfirgáfu þau Jerúsalem án Jesú. Allt í einu áttuðu þau sig á því, að hann var ekki með þeim. Hvað tóku þau til bragðs? í fyrsta lagi sneru þau við. Þetta er merking þess að gera iðrun. Þér verðið að snúa við og hefja gönguna í gagnstæða átt. Þér hafið farið í burtu frá Kristi. Hverfið aftur, snúið við til hans og beygið holdsins og hjartans kné. Því næst segir frá því, að þau fundu hann einmitt þar, sem þau höfðu týnt honum. Til eru þeir staðir, sem hann getur ekki farið til. Þér hafið farið til þessara staða. Hann bíður þess, að þér komið aftur að þeim vegamótum, þar sem leið yðar lá í burtu frá honum. Hann vill taka í hönd yðar, og þið getið fetað lífsveginn saman á ný. Adam fer fint i veturinn. Þvi nú er hann birgur af glæsilegum hátíöar- og hvunndagsfatnaði. Peysu-, Combi- og Tweedföt i kippum, stakar tweed- og flannelsbuxur, stakir tweed jakkar, vesti og skyrtur. Allt fatnaður „a la Adam", enda flott eftir þvi. Littu inn og kynntu þér málið. T.D. PEYSUFÖTIN. ÍIDIIffl LAUGAVEGI 47 SÍMI17575

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.