Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR 281. tbl. 66. árg. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Björgunarsveitarmenn hlú að fólkinu m.a. með því að sveipa það teppum og fallhlífum til að halda á þvi hita. Meðal annars má sjá þar sem hlúð er að stúlkunum er lentu í fyrra slysinu, eftir að þær voru bornar út úr þyrluflakinu sem sést í baksýn. Ljósm. Mbl. Ragnar Axelsson Ellefu á sjúkrahús eftir tvö flugslys „Sannfærður um að flestir hefðu farist,44 sagði ljósmyndari Mbl. sem var sjónarvottur að þyrluslysinu ELLEFU MANNS slösuðust í tveimur flugslysum sem urðu með fárra klukkustunda millibili á Mosfellsheiði síðdegis í gær. Fyrra slysið var um kl. 15:20 er flugvél af gerðinni Cessna 172 fórst. Voru í henni flugmaðurinn. sem er franskur, Nýsjálendingur og tvær finnskar stúlkur, sjúkraþjálfarar á Reykjalundi, sem hlutu talsverð meiðsli. Síðara slysið var kl. 19:13 þegar björgunarþyrla frá Varnarliðinu hrapaði. Hafði hún flutt einn hinna slösuðu til Reykjavíkur og var þyrlan nýlögð upp frá slysstaðnum í annað sinn með hina 3 slösuðu úr fyrra slysinu, 2 lækna og fimm manna áhöfn þegar hún hrapaði skyndilega um 200 metra frá fyrri slysstaðnum. Slösuðust allir og hlutu sumir opin beinbrot. Ljósmyndari Morgunblaðsins, Ragnar Axelsson, sem var sjónarvottur að þyrluslysinu segir m.a. í samtali á baksiðu blaðsins: „Það er kraftaverk að ekki fór verr. Þegar ég sá flakið var ég sannfærður um að flestir hefðu farist.“ Um klukkan 15:20 í gærdag var tekið að sakna fjögurra sæta Cessna vélar og heyrðist frá henni neyðarsending um svipað leyti og fór þá flugvél flugmálastjórnar á loft til að finna vélina. Pannst hún skömmu síðar á Mosfellsheiði, skammt sunnan Þingvallavegar- ins ekki langt frá svonefndri Klofningatjörn, en éljagangur var á og myrkur að leggjast yfir. Þyrla frá Varnarliðinu fór á vettvang og flutti flugmanninn til Reykjavíkur. Var þyrlan í æf- ingaflugi er hún var send á slysstaðinn. Varð hún að krækja fyrir él og lenti síðan. Urðu tveir sjúkraliðar úr áhöfn þyrlunnar eftir á slysstað og hlúðu að hinum slösuðu ásamt mönnum frá Flug- björgunarsveitinni og fulltrúum rannsóknarnefndar flugslysa, en stúlkurnar voru fastar í flakinu. Eftir að hafa tekið tvo lækna slysadeildar Borgarspítalans og eldsneyti í Reykjavík hélt þyrlan á slysstaðinn að nýju og var þar um kl. 18:50. Þyrlan lagði upp aftur kl. 19:08 og hafði aðeins flogið örfáar mínútur þegar hún hrapaði. Slös- uðust allir sem í henni voru nokkuð, en mismikið. Sjúkrabílar voru þá sendir á staðinn frá Reykjavík og Hafnarfirði og fóru læknar með þeim til að búa þá slösuðu undir flutningana ásamt björgunarmönnum, en ásamt Flugbjörgunarsveitinni voru nú kallaöar út sveitir Slysavarnarfé- lagsins og Hjálparsveitar skáta. Einn áhafnarmeðlima þyrlunnar var brotinn á hnjám, annar fór úr axlarlið og sá þriðji hlaut minni háttar meiðsli. Varnarliðið gefur ekki upp nöfn þeirra fyrr en náðst hefur í ættingja þeirra í Banda- ríkjunum. Aðrir munu m.a. slas- aðir í baki, einn hlaut höfuðkúpu- brot og meiðsl á auga og nokkrir hryggbrotnir eða með opin bein- brot. Tveir bandarískir piltar sem höfðu verið með þyrlunni sem farþegar í æfingafluginu voru skildir eftir í Reykjavík er hún hélt á slysstaðinn öðru sinni og kváðust þeir í samtali við Mbl. fegnir því að hafa orðið af þeirri ferð. Fleiri björgunardeildir voru kallaðar út auk lögreglunnar á Selfossi. Færð var erfið við slys- staðinn, en hinir slösuðu voru fluttir á sleðum dregnum af vél- sleðum og bílum björgunarsveita í veg fyrir sjúkrabílana sem biðu á Þingvallaveginum. Lögðu fyrstu sjúkrabílarnir af stað um kl. 22 og héldu þeir síðustu frá slysstaðnum um klukkustundu síðar. Aðgerðunum stjórnuðu Valdi- mar Ólafsson yfirflugumferðar- stjóri og Magnús Hallgrímsson varaformaður Flugbjörgunar- sveitarinnar, en einnig voru kall- aðir út menn Hjálparsveitar skáta og Slysavarnafélagsins og tóku Almannavarnir síðan við stjórn- inni og voru hinir slösuðu sendir á Borgarspítala, Landakot og Land- spítala. Sumir björgunarmenn ræddu um þá mildi að ekki kom upp eldur í þyrlunni og heyrðust þá þær raddir, að snjórinn hefði átt sinn þátt í því. Varnarliðið og lögregl- an á Selfossi standa vörð um flökin og hófu íslenskar og banda- rískar rannsóknarnefndir að kanna orsakir slysanna í gær- kvöldi, en þær eru ekki ljósar að svo stöddu. Sjá nánar frásögn og myndir, á baksiðu, bls. 2 og bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.