Morgunblaðið - 26.01.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
21. tbl. 67. árg. LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sakharov-
vitnaleiðslur í
Amsterdam?
llaaK. Varsjá, Moskvu. Itrrn. 25. janúar. AP.
TVEIR landflótta Sovétmenn, feðgarnir dr. Mikhail og Victor Shtern,
hafa ákveðið að efna til alþjóðlegra vitnaleiðslna í nafni Andrei
Sakharovs, til þess að vekja athygli á þeirri meðferð, sem hann hefur
sætt hjá sovézkum yfirvöldum. Vonast feðgarnir til að vitnaleiðslurn-
ar geti hafist innan fárra vikna í Amsterdam og hefur um 100 manns
verið boðið að taka þátt í þeim.
I hópi þeirra, sem fengið hafa
boð um þátttöku, eru rússneski
rithöfundurinn Alexander Sol-
zhenitzyn, Henry Kissinger fyrr-
um utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, franski heimspekingurinn
Jena-Paul Sartre og bandaríski
rithöfundurinn Saul Bellow. Allir
hafa þessir menn hlotið Nóbels-
verðlaun. Einnig hefur andófs-
manninum Andrei Amalrik, sem
fór frá Sovétríkjunum 1976, verið
boðin þátttaka.
Shtern-feðgar kenna báðir við
háskóla í Hollandi. Annar þeirra
fluttist frá Sovétríkjunum 1975,
en hinn tveim árum síðar. Þeir
sögðu blaðamönnum í dag, að í
Flugræningjar
gefast upp á Kúbu
Atlanta. Ilavana. 25. janúar. AP.
TVEIR flugræningjar, sem fyrr í dag höfðu þvingað
L-1011 þotu í eigu Delta Airlines til þess að lenda á
Kúbu, voru í kvöld yfirbugaðir og teknir í gæzlu
lögreglu, að því er fregnir frá Havana hermdu. Áður
höfðu allir farþegar vélarinnar, 65 að tölu, fengið að
fara ómeiddir frá borði.
Flugvélin var á leið frá borg-
inni Atlanta í Georgíufylki til
New York, þegar ræningjarnir
neyddu flugstjórann til að
breyta um stefnu og fljúga til
Kúbu. Þar kröfðust þeir þess, að
þeim yrði fengin önnur vél, sem
flygi með þá til Irans. Því
höfnuðu yfirvöld á Kúbu, en
orðrómur var lengi dags á kreiki
um að Delta-flugfélagið kynni að
senda flugvél með þá til Teher-
an. Úr því varð þó ekki.
Flugræningjarnir voru
blökkumenn og sögðust tilheyra
samtökum múhameðstrúar-
manna í röðum blökkumanna.
vitnaleiðslunum yrði fjallað ítar-
lega um ævi Sakharovs og starf.
„Takist að þagga niður í manni
sem þessum, missa Vesturlönd
síðustu vonina u'm að einhverju
fáist breytt í Rússlandi," sagði
Vietor Shtern.
Andófsmenn í Póllandi lýstu í
dag yfir samstöðu sinni með
Andrei Sakharov og sögðust
mundu taka þátt í alþjóðlegri
viðleitni til þess að frelsa hann.
Varsjárlögreglan sektaði í dag
þrjá menn, sem sakaðir höfðu
verið um að ganga með merki
andófshreyfinga á sér.
Stjórn Sviss, sem að jafnaði
deilir ekki á önnur ríki, vítti í dag
handtöku Sakharovs. Segir í yfir-
lýsingu svissnesku stjórnarinnar
að aðgerðir Sovétstjórnarinnar
gegn Sakharov' séu í andstöðu við
Helsinki sáttmálann.
Tass-fréttastofan skýrði frá því
í dag, að Sakharov mundi ekki
ákærður fyrir neitt og að honum
mundi heimilað að sinna vísinda-
störfum sínum. „Sakharov var
ekki sendur í útlegð. Hann var
færður út fyrir borgarmörk
Moskvu,“ sagði í fréttaskýringu
Tass í dag.
Ættingjar og nánir vinir Sakh-
arov-hjónanna héldu í dag í bíl
áleiðis til borgarinnar Gorky og
höfðu meðferðis bækur, hlýjan
fatnað og mat handa þeim. Þau
hafast nú við í fjögurra herbergja
ibúð í Gorky, sem er um 400 km
austan við Moskvu. Ókunnug eldri
kona er sögð búa í íbúðinni með
þeim.
S-Afrískir lögreglumenn taka sér stöðu framan við Volkskasbankann í Pretóríu, eftir að þrír
blökkumenn tóku þar 25 gísla og kröfðust þess, að pólitískir fangar yrðu látnir lausir. simamynd ap.
Fjórir láta lífið í skot-
bardaga í Pretóríu
Pretóría, 25. janúar. AP.
VOPNUÐ lögregla réðst í
dag inn í banka í Pretóríu
í Suður-Afríku, þar sem
þrír blökkumenn höfðu 25
gísla á valdi sínu og hót-
uðu að ráða þá af dögum
nema tilteknum pólitísk-
um föngum yrði sleppt.
Blökkumennirnir þrír lét-
ust allir í skotbardaga við
lögregluna og sömuleiðis
ein kona í hópi gíslanna.
Átta aðrir gíslar og tveir
lögreglumenn særðust.
Louis le Grange, yfirmaður
lögreglunnar í S-Afríku, sagði í
dag að lögreglan hefði ekki ráðist
inn í bankann fyrr en hryðju-
verkamennirnir hefðu verið byrj-
aðir að skjóta gíslana. Le Grange
sagði, að lögreglan hefði rætt við
hryðjuverkamennina áður en ráð-
ist var til atlögu, en aldrei hefði
komið til mála að semja við þá.
Paul McCartney, fyrrverandi bítill, sést hér í fylgd með
lögreglumönnum eftir að honum hafði verið sleppt úr haldi í Japan
í gær. (símamynd AP)
McCartney var
vísað frá Japan
- engin mál höfðuð gegn honum
Tókíó 25. jan. AP.
PAUL McCartney og föruneyti hans var flutt til Narita flugvallar við
Tókíó í morgun og ákveðið hefur verið af hálfu stjórnvalda að fella
niður allar ákærur á hendur McCartney en hins vegar fær hann
aldregi að koma aftur til Japan. Svo sem margsagt hefur verið frá var
McCartney að koma með hljómsveit sinni Wings til Japan í
hljómleikaferð. en í fórum hans fannst marijuana og var honum þá
varpað í fangelsi, hvar hann hefur nú verið í viku rúma.
— Það magn sem bítillinn fyrrver- úr landi, sem er staðinn að því að
andi var með af marijuana var það koma með eiturlyf til landsins.
mikið að hægt hefði verið að dæma McCartney fór flugleiðis til
hann í 7 ára fangelsi og háa sekt, Amsterdam og mun þar skipta um
að sögn japanskra lögfræðinga. vél og kemur til London i býtið á
laugardagsmorgun. Segjast vinir
Annað fordæmi mun ekki fyrir því hans og ættingjar ætia að taka á
að Japanir láti duga að vísa manni móti honum með viðhöfn.
Verður Bani-
Sadr forseti?
Tchcran. Washington.
25. janúar. AP.
KHOMEINI erkiklerkur í íran.
sem nú liggur í sjúkrahúsi í
Teheran, greiddi í dag atkvæði í
forsetakosningunum í landinu og
skoraði á alla landsmcnn að gera
slíkt hið sama. Að sögn embætt-
ismanna í Teheran gengu kosn-
ingarnar fyrir sig með eðlilegum
hætti víðast hvar í landinu í dag,
en þó er talið, að Kúrdar og
fylgismenn Shariat-Madari ayat-
ollah muni ekki taka þátt í kosn-
ingunum.
Átta frambjóðendur eru í kjöri í
forsetakosningunum, en Bani-Sadr
fjármálaráðherra, sem var utan-
ríkisráðherra til skamms tíma, er
t.alinn langsigurstranglegastur.
Hassan Habibi menntamálaráð-
herra er talinn eiga næstmesta
möguleika á að hljóta kosningu.
Ekki er telið að úrslit muni liggja
fyrir fyrr en á mánudag. Hljóti
enginn frambjóðandi meirihluta at-
kvæða skal kosið milli tveggja efstu
manna í kosningum hinn 8. febrúar.
í Washington létu ráðamenn í dag
í ljós von um að væntanlegur forseti
verði betri samningsaðili varðandi
framsal bandarísku gíslanna í Te-
heran en þeir sem farið hafa með
völd til þessa.
Warren Christopher, aðstoðarut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði í dag, að Panamastjórn hlyti
að fara í einu og öllu eftir eigin
lögum, þegar afstaða yrði tekin til
þess, hvort framselja skuli írans-
keisara fyrrverandi.
Kína fær
beztu kjör
WashinKton. 25. janúar. AP.
FULLTRÚADEILD Banda
ríkjaþings samþykkti í dag
með yfirgnæfandi meirihluta
að veita Alþýðulýðveldinu Kína
svokölluð beztu kjör í viðskipt-
um. sem í framkvæmd þýðir. að
kínverskar vörur verða tollað-
ar í Bandaríkjunum með sama
hætti og vörur frá öðrum
ríkjum. Jafnframt gengur í
gildi viðskiptasamningur
Bandaríkjanna og Kína. sem
undirritaður var i júlí sl. Sov-
étríkin njóta ekki beztu kjara í
Bandaríkjunum.