Morgunblaðið - 06.02.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980
I
I
I
Óvæntur
stuöningur
við Alþýðu-
bandalagið
Dagblaðiö Vísir segir í
leiðara í gær:
„Takist sú tilraun til
stjórnarmyndunar, sem
Gunnar Thoroddsen,
varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins, stendur nú
að ásamt Framsóknar-
flokknum og Alþýðu-
bandalaginu, verður þaö
sögulegur stjórnmálavið-
burður, sem hafa mun
ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar í íslensku stjórn-
málalífi.
Myndun slíkrar ríkis-
stjórnar væri í fullkom-
inni andstöðu við megin-
þorrann af þingmönnum
Sjálfstæöisflokksins og
yröi því sjálfsagt afdrifa-
ríkasti atburðurinn í þeim
innanflokksdeilum, sem
hrjáð hafa Sjálfstæðis-
flokkinn nú í næstum
heilan áratug. Af henni
mundi leiöa alvarlegan
klofning í Sjálfstæðis-
flokknum, en að sjálf-
sögöu mundi það, hversu
alvarlegur klofningurinn
yrði, ráðast af því, hvort
einhverjir af þingmönn-
um flokksins fylgdu
Gunnari Thoroddsen, og
þá hversu margir.
Að vonum velta margir
því fyrir sér, hvers vegna
til ágreinings hafi þurft
að koma innan Sjálfstæö-
isflokksins um stjórn-
armyndun með Fram-
sóknarflokknum og Al-
þýðubandalaginu. Þar
sem ýmsir áhrifamenn
innan flokksins hafi viljað
halda opnum möguleika
á stjórnarsamstarfi við
Alþýðubandalagið og
jafnvel mælt með því.
Þrátt fyrir þetta mun það
vera staðreynd að flestir
af fyrirsvarsmönnum
Sjálfstæöisflokksins
munu hafa verið komnir
að þeirri niðurstöðu, aö
Sjálfstæðisflokknum yrði
alls ekki stætt á því að
mynda ríkisstjórn með
Alþýðubandalaginu
vegna sterkrar og sívax-
andi andstööu gegn sam-
vinnu við kommúnista
bæði innan þingflokksins
og meðal kjósenda
flokksins, — nema þá
hugsanlega sem neyðar-
úrræði og þá í samstjórn
allra flokka. Hér í Vísi
hefur þráfaldlega verið
mælt með því, að lýðræð-
isflokkarnir reyndu að ná
meö sér samstöðu um
stjórn landsins. Því miður
hafa flokkarnir ekki boriö
gæfu til slíks samstarfs."
Venjulegt
vinstri-
stjórnarkák
Enn segir Vísir:
„Ugglaust mun ýmsum
þykja léttir að því, að
hinni tveggja mánaða
löngu stjórnarkreppu
Ijúki nú loksins, þótt það
veröi meö þeim miklu
átökum, sem horfur eru
á. En hætt er við, að sá
léttir verði skammvinnur.
Samkvæmt því, sem vitn-
ast hefur um efni mál-
efnasamnings hinnar
væntanlegu ríkisstjórnar
Gunnars Thoroddsens
sýnist Ijóst að ekki sé
ætlunin að taka af neinni
alvöru á þeim efnahags-
vanda, sem viö er að
glíma í þjóðfélaginu.
Oráðsían og verðbólgan
munu halda áfram af full-
um krafti. Úrræðin bera
keim af venjulega vinstri
stjórnarkáki, en svo
sannarlega er það eitt-
hvað annað en enn ein
vinstri stjórnin, sem
íslenska þjóðin þarfnast
nú.
Ef kostirnir í stjórn-
armyndunarmálinu eru
nú þeir, hvort mynda eigi
þá ríkisstjórn Gunnars
Thoroddsens, sem hér
hefur veriö um rætt, eöa
utanþingsstjórn, er
tvímælalaust, að utan-
þingsstjórn er heppilegri
kostur. Með myndun
utanþingsstjórnar væri
þó haldið opnum mögu-
leikanum til að mynda
meö eðlilegum hætti
stjórn á vegum þingsins,
þegar öldur heföi lægt og
málefnastaðan skýrst.
Hin ráðgerða ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsens
mun hins vegar ekki einu
sinni geta dáið, hversu
illa sem henni tekst til,
nema meö leyfi Fram-
sóknar og Alþýðubanda-
lagsins, því að frá og með
þeirri stundu, er Gunnar
Thoroddsen og hugsan-
legir liðsmenn hans úr
Sjálfstæðisflokknum
ganga til þessa stjórnar-
samstarfs og brjóta þar
með allar brýr að baki sér
innan síns eigin flokks,
eru þeir orðnir bandingj-
ar í höndum Framsóknar
og Alþýðubandalagsins."
Range Rover
Til sölu er þessi fallega Range Rover bifreiö, árg.
1978. Lítiö ekinn, vel meö farinn dekur bíll.
Á kynningunni eru búlgarskir réttir framreiddir m.a. af þekktum búlgörskum matreiðslumönnum.
IMlgaríukynning- á
Hótel Loftleiðum
BÚLGARÍUKYNNING
heíst að Hótel Loftleiðum
í dag og stendur til 10.
febrúar í Víkingasal.
Þeir sem að Búlgaríu-
kynningunni standa eru
Hótel Loftleiðir, Ferða-
skrifstofa Kjartans
Ilelgasonar og kynn-
ingar- og Ferðamálaráð
Búlgaríu. Þetta er í
fjórða sinn sem Búlgarí-
ukynning fer fram á Hót-
el Loftleiðum en ferðum
íslendinga til Búlgaríu
hefur farið fjöigandi með
hverju ári.
A þessari kynningu eru
búlgarskir réttir fram-
reiddir af þekktum mat-
reiðslumönnum frá hótel-
um í Búlgaríu og öll kvöld
skemmta búlgarskir lista-
menn með þjóðdönsum,
söng, töfrabrögðum, jafn-
vægislist og leikur tríó
fyrir dansi. Matseðlar eru
númeraðir og eru nokkur
númer dregin út á hverju
kvöldi og búlgarskir list-
munir þá í vinninga. Auk
þess verður á sunnudag
dregin út úr númerum
ferð fyrir tvo á baðströnd
í Búlgaríu.
Búlgarskir listamenn koma
fram. m.a. Irina Nikolova og
Ludomir Argirov sem sýna
jafnvægislist.
Qompton Parkinson
D112M to
Frames
D160M to D200L
Frames
D80 to D132M
Frames
D71 Frames
RAFMÓTORAR
Eigum ávallt fyrirliggjandi 1400—2800 sn/mín.
rafmótora.
1ns fasa Vá—4 hö
3ja fasa Vz—25 hö
Útvegum allar fáanlegar geröir og stærðir.
VALD. POULSENf
SUÐURLANDSBRAUT10
SÍMAR: 38520 — 31142.