Morgunblaðið - 07.02.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980
23
Eitt grafíkverka Eschers.
Ljósmynd Mbl. Ol.K.M.
Mikið um að vera
á Kjarvalsstöðum
ÞRJÁR listasýningar standa um þessar mundir yfir á
Kjarvalsstöðum, þ.e. sýning á listrænum ljósmyndum eftir
John Chang McCurdy, sem fæddur er i Kóreu, en er nú
bandarískúr ríkisborgari, sýning á eftirprentunum eftir
hollenska grafík listamanninn M.C.Escher, sem lézt fyrir
átta árum síðan og síðan er sýning á bandarískum
veggspjöldum „Poster Art USA“. Auk þessara sýninga
eru í Kjarvalssal málverk og vatnslitamyndir eftir
Jóhannes Kjarval í eigu Reykjavíkurborgar.
Erlendu sýningunum lýkur á af átti list hans erfitt uppdrátt-
sunnudaginn, en verk Kjarvals
verða uppi þar til í endaðan
marz, og eru sýningarnar opnar
daglega frá klukkan 14.00—
ar, en þegar viðurkenningin
kom, kom hún þeim mun ræki-
legar, segir í frétt Kjarvals-
staða.
22.00.
Hollenzki listamaðurinn
Escher lézt árið 1972. Framan
Hann hóf fyrst nám í arki-
tektúr og sér þess merki í list
hans. Síðan sneri hann sér
« f ié í f t_Tl
Ljósmynd Mbl. Ól.K.M.
Verk eftir McCurdy
alfarið að grafíkinni. Nokkuð
algeng gagnrýni' á verk hans
framan af var að þau höfðuðu of
mikið til vitsmuna áhorf-
andans, en væru ekki nógu
almenntlistræn.
Á sýningunni eru 18 eftir-
prentanir af myndum lista-
mannsins, en sýningin kemur
hingað til lands frá hollenska
sendiráðinu í London, fyrir
milligöngu ræðismannsiskrif-
stofu Hollands í Reykjavík.
Ljósmyndarinn McCurdy rek-
ur eigin ljósmyndastofu í New
York. Hann kom fyrst til
Islands í tengslum við heims-
meistaraeinvígið í skák 1972, en
hefur síðan oft ferðast hér um
og tekið myndir. Árangurinn
getur m.a. að líta í myndabók
um Island sem Almenna bóka-
félagið gaf út í fyrra. Á sýning-
unni eru 47 ljósmyndír, þar á
meðal af íslenzkri náttúru, svo
og myndir frá ýmsum stöðum í
veröldinni og eru þær allar til
sölu.
Bildudalur:
Um 100 tonn
af rækju á
land í janúar
Bíldudal. 6. febrúar.
MJÖG þokkaleg raekjuveiði var
hjá bátunum í janúar og komu
alls um 100 tonn af rækju á land
til vinnslu og hefur vinnslan
gengið ágætlega.
Aðeins einn bátur hefur stund-
að veiðar hér að undanförnu, en
það er Frygg frá Tálknafirði. Hún
landaði liðlega hundrað tonnum af
ágætum fiski hér í síðasta mánuði.
Við höfum þó von um betri tíð í
þesum efnum þar sem til stendur
að netabátar frá Patreksfirði
muni leggja upp einhvern afla hér
á næstunni. _ p^jj
Hólmavik:
Aflabrögð
ágæt að
undanförnu
Hólmavík. G. fcbrúar.
TÍÐARFAR hefur verið mjög
gott hér að undanförnu og mjög
snjólétt og hefur verið mjög
greiðfært um allar sveitir það
sem af er vetri.
Þá héldum við okkar árlega
þorrablót hér um síðustu helgi og
tókst hátíðahald allt mjög vel.
Aflabrögð línubátanna hafa
verið ágæt að undanförnu og næg
vinna við vinnslu í landi.
Andrés.
Hrisey: Snæfell inn
með 170—180 tonn
Hrísey, 6. febrúar.
TOGARI okkar Snæfell er vænt-
anlegur hingað í fyrramálið með
170—180 tonn af góðum fiski til
vinnslu, en hann hefur aflað með
ágætum í allan vetur.
Netaveiðibátarnir hafa hins
vegar ekki aflað sem skyldi, en
næg atvinna hefur verið í landi við
fiskverkun eigi að síður.
Okkar árlega þorrablót var
haldið hér um síðustu helgi og var
þátttaka mjög mikil og mál
manna að vel hefði til tekist.
—Fréttaritari.
Heyrnarmælingar á Akureyri
FRÁ og með 1. febrúar sl. hefur
Heilsuverndarstöð Akureyrar tek-
ið að sér eftirtalda þjónustu fyrir
Heyrnar- og talmeinastöð íslands:
INNLENT
1) Heyrnamælingar.
2) Heyrnartækjameðferð t.d.
prófun tækja og leiðbeiningar um
meðferð.
3) Mótatöku af eyrum vegna
heyrnartækja.
4) Sölu rafhlaðna, snúra o.fl.
Ofangreind þjónusta verður
veitt hjá Heyrnardeild Heilsu-
verndarstöðvar Akureyrar alla
þriðjudaga milli kl. 14—16.
(Fréttatilkynning)
Sýnir vatnslitamyndir
Fimmtudaginn 7. febrúar kl. 20.00 opnar Ásgeir Lárusson sýningu á um
30 vatnslitamyndum í Gallerí Suðurgötu 7. Þetta er þriðja einkasýning
Ásgeirs og einnig hefur hann tekið þátt í einni FÍM sýningu. Sýningunni
lýkur sunnudaginn 17. febrúar. Myndin er af listamanninum.
Samanburöur
Lauslegir útreikningar og saman-
burður á verði og byggingartíma,
hefur hvað eftir annað leitt i Ijós
kosti husanna frá Siglufirði. 110mJ
einbýlishús hefur ekki verið dýrara
en 4. herb. íbúð í fjölbýlishúsi.
Gæði
Húseiningar h.f. á Sigiufirði hafa
umfram allt fengið orð fyrir efnis-
gæði og vandaða framleiðslu.
Margvislegar teikningar, sem laga
má að hugmyndum hvers og eins.
ásamt ölium upplýsingum fást í
bókinni ,,Nýtt hús á nokkrum
dögum".
SVARSEÐILL
Vinsamlega sendið
mér eintak
af bókinni, mér að -----------
kostnaðarlausu! Nafn:
Heimilisfang:
Póstnr.:
Ókeypis byggingabók
Ef þú fyllir út svarseðii og sendir
okkur, munum við senda þér
ókeypis eintak af bókinni um hæl.
,,Nýtt hús á nokkrum dögum" er
rúmlega 50 síður i stóru broti, með
48 tiltöguteikningum af einbylis-
húsum, og ýmsum uppiýsingum.
Þú getur einnig fengið eintak með
þvi að hafa samband við söluskrif-
stofu okkar í síma: 15945. í Rvík
HÚSEHMINGAR HF
Sími: