Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 1
48 síður og Lesbók 33. tbl. 67. árg. LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kúbanir æf a árás á Oman Orlando. Florída. 8. fobrúar. AP. FORSETAFRAMBJÓÐANDINN Ronald Reagan segir að kúbansk- ir hermenn sem Rússar styðja virðist vera að æía sig fyrir hugsanlega árás á smáríkið Om- an sem fylgir vesturveldunum að málum tii að reyna að tryggja Rússum fótfestu við Persaflóa. Reagan heldur því einnig fram að Jimmy Carter forseti leyni upplýs- ingum um þetta mál og skoraði á hann í kosningaferðalagi á Florida að segja bandarísku þjóðinni allt af létta. Krabbi er mein i Kina Hong Kon«. 8. fobrúar. AP. Á 45 SEKÚNDNA fresti deyr Kínverji úr krabbameini að því er fréttastofan Nýja Kína skýrði frá í dag, en sjúkdómurinn er þó ekki eins mannskæður og sjúkdómar í öndun- arfærum fólks þar í landi að sögn fréttastof- unnar. Létust yfir 700.000 Kínverjar úr krabba á ári frá 1975 til 1978. Flestir létust úr maga- krabba, eða 160.000 á ári. Úr vélindakrabba létust 150.000 á ári og um 100.000 úr lifrar- krabba, en hlutfallslega færri létust af völdum lungna- krabba, legkrabba, hvítblæði og brjóstkrabba. Hlutfallslega fleiri karlmenn létust af völdum krabbameins en konur. Þá var tíðni dauðs- falla hærri eftir því sem borgir voru stærri. Lungnakrabbi var algengastur í stórborgum, vél- indakrabbi í meðalstórum og smærri borgum, og maga- krabbi var algengastur í dreif- býli. „Það er kominn tími til að Jimmy Carter og ráðunautar hans í utan- ríkismálum hætti tvíræðu tali sínu og segi bandarísku þjóðinni hreinskilnislega hvað Rússar eru raunverulega að aðhafast ásamt kúbönskum leppum sínum í Mið- austurlöndum," sagði Reagan. í Washington sögðu starfsmenn bandaríska utanríkisráðuneytisins að þeir teldu að um 500 Kþbumenn og milli 500 og 1000 sovézkir ráðu- nautar væru í Suður-Jemen, en að þeir vissu ekkert um yfirvofandi sovézka árás. Suður-Jemen er sov- ézkt leppríki í suðausturhorni Arabaskaga og liggur að Oman. Reagan sagði fréttamönnum að hann hefði frétt hjá sérfræðingum í varnarmálum og samkvæmt öðrum leyniþjónustuheimildum að sovézkir ráðunautar þjálfuðu Kúbumenn á Kúbu í meðferð hergagna af sömu gerð og Rússar hefðu sent til Suður-Jemen. Símamynd — AP. Sjálfboðaliðar hjálpa fólki um borð í björgunarbáta á götum Koblenz í Vestur-Þýzkalandi í gærmorgun. Árnar Rín og Mósel flæddu yfir bakka sina á fimmtudag vegna mikillar þíðu, og í gær hækkaði vatn á götum margra borga svo að víða var neyðarástand að skapast. Sjá nánar fréttir á bls. 26. Utanríkisráðherra írans: Kynnum að frelsa gíslana með valdi Washington. London. Teheran. 8. febrúar. AP. SADEGH Ghotbzadeh utanríksiráðherra írans gat þess í viðtali við fréttamann brezku sjónvarpsstöðvarinnar ITN í dag að stjórnvöld í Teheran myndu grípa til valdbeitingar til að frelsa gíslana úr bandariska sendiráðinu. ef þess gerðist á annað borð þörf. Hann sagði hins vegar að ástandið í málum gíslanna væri þess eðlis að þess gerðist ekki þörf að sinni a.m.k. í dag þótti hilla undir lausn í deilu Bandaríkjanna og írans vegna töku bandaríska sendiráðs- ins og gísla í Teheran í haust. Kurt Waldheim framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (Sþ) sagði að gíslarnir yrðu að líkindum lausir úr prísundinni fyrir þingkosningar í íran 7. marz næstkomandi, ef Bani Sadr forseti fengi notað það vald sem honum hefur nýverið áúnnist. Forsetinn væri hlynntur lausn málsins með samningum, en námsmennir'nir sem héldu sendi- ráðinu vildu ekki slaka á kröfum sínum um að fyrrum keisari yrði framseldur til Irans áður en þeir létu gíslana lausa. Waldheim hefur verið í stöðugu sambandi við ráðamenn í Washington og Teher- an í þeim tilgangi að knýja fram lausn deilunnar um sendiráðið. Yfirvöld í Washington tilkynntu að öllum fyrirhuguðum efnahags- legum refsiaðgerðum gegn íran hefði verið frestað um ófyrirséðan tíma og að reynt yrði frekar að knýja fram lausn deilunnar um sendiráðið eftir diplómatískum leiðum. Segja kunnugir að þessi ákvörðun bendi til þess að eitthvað sé að gerast á bak við tjöldin, þótt formleg ákvörðun um reísiaðgerð- ir hefði að vísu litlu breytt þar sem viðskipti landanna hafa hvort eð er legið að mestu niðri frá töku sendiráðsins. Blað í Kuwait skýrði frá því í dag að lausn deilunnar um sendiráðið væri á næsta leiti. Bakhtiar fyrrum forsætisráð- herra írans sagðist í dag vera að skipuleggja hreyfingu er tæki við völdum í Iran eftir fall Khomeinis. Hann sagði að kjör Bani Sadr sem forseta breytti engu um stjórn mála og Khomeini væri á hraðri niðurleið. Bandaríska utanríkisráðuneytið skýrði frá því í dag að Sovétmenn hefðu upp á síðkastið verið með mikla liðsflutninga til og frá héruðum við landamæri Irans. Ekkert benti þó til þess að Sovét- menn væru að skipuleggja innrás í íran, fyrst og fremst virtist um æfingar að ræða, en vel væri fylgst með þróun mála. Ný borgarastyrjöld vofir yfir Líbanon Beirút, Tel Aviv, 8. febrúar. AP. ÁTÖK blossuðu víða í Líban- on í dag í kjölfar ákvörðunar Sýrlendinga að draga frið- argæzlusveitir sínar frá Beir- út og staðsetja þær í suður- hluta landsins. Féllu a.m.k. átta manns í þessum átökum, og er óttast að ákvörðun Sýrlendinga eigi eftir að kynda undir borgarastyrjöld í landinu. Ezer Weizman varnarmálaráð- herra ísraels varaði Sýrlendinga og Sovétmenn við því að kynda undir ófriði við landamæri ísraels í norðri, ljóst ætti að vera hvernig ísraelar myndu svara fyrir sig. Sagði Weizman að ef til ófriðar drægi væri það að undirlagi Sov- étmanna sem Sýrlendingar gripu til vopna. Sovétmenn þyrftu að mar^gra áliti á ófriði Sýrlendinga og Israela að halda vegna erfið- leika þeirra í sambandi við Afgan- istan. Begin forsætisráðherra hét kristnum hægrisinnum í Líbanon fullum stuðningi ef til ófriðar kæmi milli kristinna manna og bandalags múhameðstrúarmanna og Palestínuskæruliða vegna burtflutnings sýrlenzkra friðar- gæzlusveita frá Beirút. „ísraelar munu ekki sitja auðum höndum verði ráðist á kristna menn í Líbanon,“ sagði Begin. Norður-Kórea og Rúmenía: Neituðu stuðn- ingi við Karmal Moskvu, London, 8. febrúar. AP. FULLTRÚAR Norður-Kóreu og Rúmeníu á ráðstefnu þing- manna frá 12 kommúnistaríkj- um neituðu að eiga aðild að stuðningsyfirlýsingu við stjórn Babraks Karmal forseta Afgan- istans er Sovétmenn settu að völdum eftir byltinguna 27. desember. að því er TASS skýrði frá i dag. Auk Norður-Kóreu og Rúm- eníu hefur Júgóslavía mótmælt innrás Sovétríkjanna í Afganist- an, en meðal ríkjanna sem und- irrituðu stuðningsyfirlýsinguna á ráðstefnunni í Sofía í Búlgaríu voru Kúba, Víetnam og Suður- Jemen. Fregnir frá Kabu! hermdu að leyniskyttur hefðu fellt a.m.k. 40 sovézka hermenn í borginni Tal- oqan í norðurhluta Afganistans síðustu þrjár vikurnar. Einnig að 1.200 aíganskir hermenn í norðurhéruðunum hefðu gerst liðhlaupar. Pravda, málgagn Kommún- istaflokks Sovétríkjanna, sagði í dag að fregnir um mikinn straum afganskra flóttamanna til Pakistans væru tilbúningur. Sagði blaðið að hér væri í raun og veru um afganska hirðingja að ræða, sem jafnan settust að í Pakistan að vetri til. Hermt var hins vegar í Pakistan að komið hefði verið upp búðum fyrir tugþúsundir flóttamanna frá Af- ganistan. Talsmaður utanríkis- ráðuneytisins í Islamabad neit- aði í dag að nokkuð væri hæft í orðrómi um að í bígerð væri að stofna útlagastjórn Afgana í Pakistan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.