Morgunblaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1980 Hormuz-sund — mikilvægasta en þrengsta olíusiglingaleiðin mínútu. Tveir þriðju allrar þeirrar olíu, sem OPEC-löndin, olíuframleiðsluríkin, selja, fer um sundið, þ.e. meira en helm- ingur þeirrar olíu, sem fer á alþjóðamarkað. Stærstur hluti þessarar olíu fer til Japans og Evrópulanda. Hins vegar eru olíuviðskiptin orðin svo samtengd um allan hinn vestræna heim, að lokun sundsins mundi hafa áhrif um öll lönd og leiða til þess að skömmtunarreglur Alþjóðaorku- stofnunarinnar í París kæmu til framkvæmda. Olíuskorturinn, sem af þessu mundi leiða, yrði meiri en menn hafa nokkru sinni staðið frammi fyrir. Til dæmis má nefna, að þegar samdráttur varð í olíu- framleiðslu írana á síðasta ári, sem var um 5% á heimsmæli- kvarða, tvöfaldaðist olíuverð, áð- ur en markaðurinn komst aftur í jafnvægi. Grófur útreikningur á því, sem kynni að gerast við 30% samdrátt á heimsmælikvarða, bendir til að olíuverð kynni að sjöfaldast og tunnan þá kosta um 200 dollara. Hormuz-sund er eins og öfugt U í laginu og um 100 sjómílna Iangt. I suðri er Oman og norðri íran. Yfirleitt er það nægilega breitt til þess að bæði löndin fái fulla 12 mílna lögsögu og síðan alþjóðasiglingaleið þar á milli. Á einum stað er þó sundið þrengra en 24 sjómílur og þar verður ekki siglt nema í lögsögu annars Hernám Afganistans hefur leitt til þess, að Sovétmenn eru nú aðeins í um það bil 500 km fjarlægð frá Indlandshafi og nálægt Hormuz-sundi — en um það fer mestur hluti olíu verald- arinnar. Sovétmenn eru nú að reyna að styrkja aðstöðu sína á þeim stað, sem er einna við- kvæmastur allra þegar litið er' til orkuöflunar Vesturlanda. Ofangreind orð eru úr ræðu þeirri, sem Jimmy Carter Bandaríkjaforseti flutti undir lok janúar um hag og stöðu þjóðar sinnar. Jafnframt sagði forsetinn, að Bandarikjastjórn ætlaði að beita valdi til að koma í veg f yrir hertöku Persaflóa. í umræðum um Hormuz-sund hefur því verið haldið fram af sumum, að hryðjuverkamenn gætu náð því á vald sitt eða stöðvað siglingar um það. Aðrir hafa sagt, að slíkar vangaveltur ættu við engin rök að styðjast. I ræðu Bandaríkjaforseta lýsir hann þeirri hættu, sem margir herfræðingar telja mun meira áhyggjuefni en aðgerðir hryðju- verkamanna, sem sé að óvinveitt ríki reyni að loka Persaflóa og - eftír Anthony J. Parisi fréttaritara New York Times skipa. Margir sérfræðingar í olíu- málum og hermálum telja hins vegar að slík aðgerð myndi sjálf hafa svo miklar hættur í för með sér, að næsta ólíklegt sé, að nokkur muni þora að ráðast í hana. Þeir segja sem svo, að sundið sé svo mikilvægt, að einungis ríki, sem sé til þess búið að hefja allsherjarstríð mundi þora að stöðva siglingar um það. Hormuz-sund tengir Persaflóa við Indlandshaf. Olíuskip fer um það að meðaltali hverja 21. Skip lesta olíu við Persaflóa. Nýr eigandi Gígju SKIPT hefur verið um eiganda á Hárgreiðslustofunni Gigju, Suð- urveri, Stigahlíð 45. Stofuna átti Guðrún Þorvarðardóttir og rak hún hana í 10 ár. Nú hefur Sólveig Leifsdóttir keypt stofuna og opnað hana aftur eftir endur- bætur. Sólveig tók sveinspróf í hár- greiðslu 7. nóvember 1970. Lærði hún iðnina á Hárgreiðslustofunni Permu og hefur unnið þar af og til síðan. Hún rak hárgreiðslustofu í Vestmannaeyjum 1972—73 eða þar til gosið varð. Sólveig hefur tekið þátt í þrem- ur Islandskeppnum, og síðasta vor varð hún í: 1. sæti í greiðslu í framúrstefnu- stíl 3. sæti í klippingu og blæstri 3. sæti í samanlögðum stigum. Hún tók þátt í Norðurlanda- keppni í Norrköping í Svíþjóð 11. nóvember síðastliðinn. Þar varð hún Norðurlandameistari í klipp- ingu og blæstri, og í 6. sæti í samanlögðum stigum. Auk Sólveigar starfa á stofunni Anna Linda Aðalgeirsdóttir og Erna Baldursdóttir. Hárgreiðslustofan Gígja verður opin alla virka daga frá 9—6, og laugardaga frá 9—12. Sólveig Leifsdóttir (t.h.) ásamt starfsstúlku. Kúba stendur frammi fyrir „efnahagshruni og gjaldþroti, sem síðar mun leiða til hung- ursneyðar og atvinnuleysis hundruð þúsunda manna“. Þessi ógnvekjandi orð eru ekki höfð eftir neinum heittrúuðum andstæðingi Fidels Castros heldur bróður hans Raul, sem er æðsti maður hermála á Kú- bu. Á þessa leið hefst grein, sem birtist í breska blaðinu Financ- ial Times undir lok janúar. Þar fjallar Hugh O’Shaugnessy blaðamaður um vaxandi efna- hagsvanda þeirra Castro- bræðra. í greininni segir, að svo virðist sem efnahagsógöngurnar hafi magnast vegna andófs- hreyfingar heima fyrir og vand- ræða á alþjóðavettvangi vegna afstöðu kúbanskra stjórnvalda til innrásar Sovétmanna í Af- ganistan. Þegar Raul Castro hafði út- málað hörmungar efnahagslífs- ins lét hann ekki undir höfuð leggjast að ítreka, að marxist- lenínískir stjórnarhættir á eyj- unni og aðstoð erlendis frá, einkum sovésk, myndu gera þjóðinni kleift að komast út úr erfiðleikunum. Ástæðurnar fyrir erfiðleikun- um eru margar t.d. hafa sjúk- dómar herjað á sykur- og tób- aksökrum eyjarinnar. Sykurverð er lágt. Þá viðurkenna stjórn- völd, að ekki sé lengur einungis unnt að skella allri skuldinni á hafnbann Bandaríkjanna, eins og þau hafa löngum gert. Sam- kvæmt ræðu Rauls Castros virð- ist ljóst, að meginvandinn eigi rætur að rekja til þeirra kvilla, sem jafnan sækja að sósíalískum þjóðfélögum, þar sem öll hvatn- ing til afkasta hefur verið kæfð undir járnhæl skrifræðis og áætlana. Raul Castro sagði, að margir þeir, sem störfuðu við landbún- að, skiluðu aðeins 4—6 stunda vinnudegi. Kvóta-kerfið, þar sem hver maður á að skila ákveðnum Efnahagshrun og gjaldþrot yfir- vofandi á Kúbu — segir Raul Castro her- málaráðherra afköstum á dag, væri herfilega misnotað. Menn uppfylltu kvóta sinn tvisvar eða jafnvel þrisvar á einum degi og hvíldu sig síðan í tvo daga. Skömmu eftir þessa ræðu R. Castros, sem flutt var undir lok síðasta árs í borginni Santiago á áusturhluta Kúbu, var samgönguráðherrann rekinn. Almenningssamgöngur í þétt- býli hafa um langan aldur valdið almenningi reiði, þar sem ekki hefur verið unnt að treysta á ferðir strætisvagna og járn- brautalesta. I ræðu sinni vék forsetabróðir- inn einnig að „litlum klíkum menntamanna", sem þættust geta dæmt byltinguna og árang- ur hennar. Á síðari hluta síðasta árs skýrðu erlendir sendiráðs- menn í Havana frá því, að á húsveggi hefðu verið máluð ókvæðisorð í garð Fidels Castr- os. Var þetta síðar staðfest af fréttamönnum, sem eru hlynntir stjórninni. Kúbumenn hafa einng leitað á náðir ýmissa suður-amerískra sendiráða og óskað eftir hæli innan veggja þeirra. Sendiráð Venezuela í Havana hefur einkum orðið fyrir slíkum tilmælum. Á þingi Sameinuðu þjóðanna slóst kúbanski sendiherrann í hóp með Sovétríkjunum og fylgi- ríkjum þeirra innan COMECON, efnahagsbandalagi kommúnista- ríkja, sem Kúba er aðili að, þegar fjallað var um innrásina i Afganistan og greidd atkvæði um hana. Kúbanska ríkisstjórn-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.