Morgunblaðið - 16.02.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.02.1980, Blaðsíða 1
44 SÍÐUR OG LESBÓK 39. tbl. 67. árg. LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Hörð átök í Tyrk- landi Ankara. 15. febrúar. AP. SKIPST var á skotum við og við í dag milli tyrk- neskra öryggissveita og hermdarverkamanna, sem hafa komið sér fyrir í fátækrahverfum borgar- innar Izmir við Eyjahaf. Talið er að hér sé um að ræða hluta þeirra, sem flýðu spunaverksmiðju skammt frá borginni í gær, eftir að lögregla og hermenn höfðu beitt skriðdrekum til að yfir- buga verkamenn, sem höfðu verksmiðjuna á valdi sínu. Suleyman Demirel forsætis- ráðherra sendi í dag frá sér harðorða aðvörun til allra starfs- manna í fyrirtækjum í ríkiseigu og sagði m.a. að ríkið gæti ekki alið verstu óvini sína. Öll ríkis- fyrirtæki hafa fengið fyrirmæli um að víkja þegar úr starfi öllu því starfsfólki, sem uppvíst verð- ur að því að liðsinna hermdar- verkamönnum. „Enginn lifir í þús- und ár“ Tító dauðvona Hreinsanir í Póllandi Belcrad. 15. lebrúar. AP. HELDUR bráði af Tító Júgóslav- íuforseta í dag, að því er læknar hans sögðu, en forsetinn er þó enn mjög þungt haldinn. Læknar Títós sendu aðeins frá sér til- kynningu um liðan hans árdegis og var þá sagt, að allt væri gert sem unnt væri til að ná valdi á hjarta- og nýrnasjúkdómum þeim, sem Tító þjáist af. Þrátt fyrir þessar fréttir höfðu júgóslavneskir embættismenn litl- ar vonir um að forsetinn mundi halda lífi. Upplýsingamálaráð- herra landsins, Ismail Bajra, sagði í dag að enginn yrði þúsund ára að aldri og Júgósiavar væru ekki frábrugðnir öðrum í því efni. Víða í Belgrad unnu verkamenn að því í dag að snurfusa svæði sem talin eru koma til greina sem greftrunarstaðir Títós. Hótel í borginni taka nú ekki við pöntun- um nema til einnar nætur í senn og er það talið stafa af því að ráðamenn vilji vera viðbúnir mikl- um fjölda gesta vegna útfarar Títós. Varsjá, 15. febrúar. AP. PIOTR Jaroszewicz forsætisráð- herra Póllands var i dag vikið frá völdum í lok fimm daga þings kommúnistaflokks landsins. Jaro- szewicz hefur verið forsætisráð- herra i 10 ár. Hann hefur setið undir sívaxandi gagnrýni undan- farið vegna efnahagserfiðleika þeirra sem að Pólverjum steðja. Edward Gierek flokksleiðtogi sagði í dag í lok flokksþingsins, að Jaroszewicz, sem nú er sjötugur, hafi óskað eftir því að láta af störfum í ríkisstjórn og fyrir flokkinn. Jaro- szewicz sætti harðri gagnrýni á flokksþinginu, en flutti þó aldrei ræðu sér til varnar. Búizt er við því, að Edward Babiuch, náinn samstarfsmaður Giereks, verði valinn forsætisráð- herra í pólska þinginu á mánudag- inn. Hann hefur verið næstvalda- mesti maðurinn í æðsta ráði pólska kommúnistaflokksins. Þrír aðrir menn voru látnir víkja úr æðsta ráðinu auk Jaroszewicz. Þeirra á meöal er Stefan Olszowski fyrrum utanríkisráðherra Póllands. Efnahagsástandið í Póllandi er nú mjög bágborið og landið gríðarlega skuldugt erlendis. Matvælafram- leiðsla í landinu hefur dregizt saman og sama er að segja um iðnaðarvöru- framleiðslu Pólverja. Mikill halli hefur verið á viðskiptum Pólverja við önnur lönd undanfarin ár. Vopnaðir afganskir uppreisnarmenn á hestum sinum i vesturhluta Afganistans. Uppreisnarmennirnir hafa gætur á landamærum Afganistans og írans í fjallahéruðunum vestast í landinu. þótt þar séu einnig á ferðinni sovézkir herflokkar og sveitir hliðhollar Stjórninni í Kabul. (Símamynd AP) Afganistan: Senda Bandaríkin upp- reisnarmönnum vopn? Washington, Barogai. Afganistan, 15. febrúar. AP. BANDARÍSKA leyniþjónustan CIA hefur hafið flutninga á léttum handvopnum og vopnum gegn skriðdrekum yfir landamæri Pak- istans tii stuðnings uppreisnar- mönnum i Afganistan, að því er stórblaðið Washington Post telur sig hafa komist að. I frétt blaðsins í dag segir, að Bandaríkin hafi byrj- að vopnaflutninga til uppreisnar- manna skömmu eftir að Sovétríkin gerðu innrás í landið í Iok desem- ber sl. Að sögn Washington Post eru þau vopn, sem hér um ræðir, af sovézkri gerð og líklega fengin úr vopnabúr- um, sem Bandaríkjamenn komust yfir í Víetnam-stríðinu. Engin stað- festing á frétt blaðsins hefur fengizt af opinberri hálfu í Washington, en Sovétmenn hafa lengi sakað Banda- ríkin, Kína, Pakistan og Egyptaland um að senda uppreisnarmönnum vopn. Enn er barizt víða í Afganistan og fréttir bárust í dag af því, að afganskir uppreisnarmenn hefðu fyrr í vikunni ráðist á flokk sovézkra hermanna í norðurhluta landsins og hafi mannfall verið mikið í röðum Sovétmanna. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur samið við ríkis- stjórnina í Pakistan um að veita 26,4 milljón dollara aðstoð við afganska flóttamenn í Pakistan. Talið er að nú séu um 500 þúsund afganskir flótta- menn þar í landi. Barry Schlachter fréttamaður AP dvaldi nýlega þrjá daga á svæðum þeim, sem uppreisnarmenn hafa á valdi sínu í Afganistan. Hann segist SADEGH Ghotbzadeh utanríkisráð- herra írans sagði í dag i París að bandarisku gíslarnir i sendiráðinu í Teheran yrðu ekki látnir lausir fyrr en rannsókn á stjórnarferli fyrrverandi keisara væri lokið. Búizt er við því, að Kurt Waldheim tilkynni seint i kvöld eða i fyrra- málið hverjir hafi verið valdið i rannsóknarnefndina. Sean Macbride, Nóbelsverðlauna- hafi og fyrrum utanríkisráðherra hafa komist á snoðir um það að fréttir af fjöldamorðum afganska hersins og sovéskra ráðgjafa þeirra í þorpinu Kerala skammt frá landa- mærum Pakistans í apríl 1979 séu ekki ýkjur. Schlachter hefur átt viðdvöl við marga þeirra, sem kom- ust lífs af úr hörmungunum í Kerala, og hafa þeir staðfest að mörg hundruð karlmönnum og írlands, sagði í gær að gíslarnir yrðu látnir lausir, þegar rannsókn nefnd- arinnar hæfist. Búizt er við því að Macbride verði einn nefndarmanna og sömuleiðis franski lögfræðingur- inn Edmond Pettiti. Einnig er gert ráð fyrir að fulltrúar Alsír, Bangla- desh og Mexicó verði í nefndinni. Ghotbzadeh utanríkisráðherra hefur sagt að nefndin þurfi 10—14 daga til að ljúka störfum sínum. Reza Pahlavi fyrrum íranskeisari, sem nú er í Panama, er sagður una drengjum í þorpinu hafi verið safnað saman þennan dag og lífið síðan murkað úr þeim með hríðskotabyss- um. Jarðýta kom síðan og gróf lík hinna látnu og hina særðu með. Eitt vitnanna, sem Schlachter ræddi við sagðist hafa heyrt einn hinna særðu hrópa áður en hann var grafinn lifandi: „Við erum lifandi, ekki grafa okkur.“ látnir vikur? sér þar vel með konu sinni og 16 ára dóttur. Bornar hafa verið til baka fréttir um að keisarinn fyrrverandi sé ekki frjáls ferða sinna. Iransstjórn er sögð hafa ráðið sér fyrrverandi forseta hæstaréttar Panama til að vinna að þvi að fá Pahlavi framseldan, en ekkert stjórnmálasamband er miili ríkjanna og framsalslöggjöf í Pan- ama sögð mjög flókin. Stjórn írans hefur frest til 22. marz til að færa fram rök fyrir ósk sinni um framsal keisarans. Verða gíslarnir lausir eftir tvær París, WashinKton. Dublin, 15. febrúar. AP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.