Morgunblaðið - 24.02.1980, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.02.1980, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980 Listiðn íslenzkra kvenna í aldanna rás hafa íslenzkar konur ástundað hvers konar hannyrðir í hagnýtum og listrænum tilgangi og eiga þar með meginþátt í því, að tengslin við listræna iðju rofnuðu aldrei með ðllu, jafnvel ekki á mestu niðurlægingartímum íslenzku þjóð- arinnar. íslenzka ullin hefur frá fyrstu búsetu þessa lands leikið í höndum konunnar og tekið á sig margar myndir, eftir því hvað þörfin og hugarflugið réðu hverju sinni. Þjóðminjasafnið á ótrúlega margt fagurra gripa í formi ísaums, út- saums og vefnaðar og þó mun það einungis örlítið brot alls þess, er gert hefur verið í landinu, því að margur kjörgripurinn hefur vafalítið farið forgörðum. Það hefur aldrei leikið neinn vafi á því mikla hlutverki, sem konan hefur gegnt í íslenzkri listmennt um al- dirnar og mun ávallt verða metið og seint fullþakkað, og þá er ei heldur neitt að óttast, að hér verði látið staðar numið. Verkefnin hafa aldrei verið meiri en í dag og kalla á hugkvæmni konunnar til átaka á hinum aðskiljanlegustu sviðum lista- og handmennta. A Kjarvalsstöðum stendur þessa dagana yfir sýning, er Bandalag íslenzkra kvenna gengst fyrir, og munu öll verkin vera gerð á þessari öld og eru langflest ný af nálinni. Þetta er mjög fjölbreytt sýning, er spannar vítt svið handíða, og ber mjög á margs konar vefnaði, list- rænu prjóni, ullar- og tóvinnu. A palli við enda vestri salar, þar sem sýningin fer fram, sýna spunakonur vinnubrögð á rokk og snældu, og knipplingakonur og vefarar sýna handbrögð sín. Ætti að vera óþarfi að taka það fram, að hér eiga sér stað mjög spennandi gjörningar, sem ungir og aldnir hafa mikla unun af að fylgjast með og sjá ýmsir af hinum fyrrnefndu vafalítið slík handbrögð í fyrsta skipti á ævinni. Þrátt fyrir fjölbreytnina vantar margar þekktar veflistarkonur t.d. Ásgerði Búadóttur og allar þær textílkonur, er standa að Galleríi Langbrók, en þær hyggja á sýningu nú á næstunni og eru því löglega afsakaðar. Þrátt fyrir það finnst undirrituðum allnokkuð vanta, að þetta ágæta fólk skuli ekki vera með. Vefnaðurinn er mjög fjölbreyttur og þarna getur m.a. að líta veggteppi saumað úr ýmsum bútum og er eftir skáldkonuna Theódóru Thoroddsen, en keimlík vinnubrögð hafa mjög rutt sér til rúms víða um heim hin síðari ár og var t.d. amerísk lista- kona, Linda Schöpfner að nafni, með stóra slíka sýningu í göngum Kjar- valsstaða fyrir ári síðan, er mikla athygli vakti. Er teppi Theódóru mjög frumlegt og fallegt. Þá vöktu athygli mina tvö teppi eftir Krist- rúnu Benediktsdóttur (f. 1878) en hún mun hafa saumað 25—30 teppi og frumsamið nokkur þeirra algjör- lega, og voru m.a. nokkur teppi eftir hana sýnd á heimssýningunni í New York árið 1939. Ekkert teppi Krist- rúnar var eins, þar sem hún breytti jafnan um uppsetningu og litaval. Þá eru þarna nokkur gamalkunn verk eftir Vigdísi Kristjánsdóttur, m.a. hið fagra teppi „Limrúnir" og hin stóru teppi, er hún óf eftir málverk- um Jóhanns Briems. Af þekktum listakonum, er nú eru í fullu fjöri, vakti teppi Hildar Hákonardóttur af sama andlitinu í tvígang óskipta athygli mína. Mörg fleiri nöfn væri hægt að nefna hér, en það yrði of löng upptalning, en verkin eru jafn góð fyrir því. í háum gæðaflokki eru handprjón- aðir kjólar, skírnarkjólar, ofnir kjól- ar svo og batíkkjólar, og hér erum við á vettvangi, sem gefur ótakmarkaða framtíðarmöguleika og er harla merkilegt, að ennþá skuli ekki hafa verið komið upp deild slíkrar list- rænnar prjónahönnunar við Mynd- lista- og handíðaskóla Islands. í sumum tilvikum hefur sama konan allt í senn unnið ullina, frá því að reifið var klippt af kindinni, þvegið hana, tekið ofan af, hært, kembt, samkembt, spunnið og tvinn- að bandið, hannað munina og prjón- að þá. Á þetta t.d. við um muni Frá sýningunni á Kjarvalsstöðum. Margrétar Jakobsdóttur, og fyrir slíku framtaki tekur maður ofan. Skemmtilegt tillegg til sýningarinn- ar eru og brúðukerlingar Þórunnar Egilsson. Gullsmíðavinnan á sýningunni kom mér á óvart fyrir mörg ný og óþekkt nöfn, og er ekki annað að sjá, en þar séu konur að hasla sér völl á myndarlegan hátt. Hugmyndaríkir gripir Ágústu Pétursdóttur Snæ- land, í grjóti og fiskbeinum, sanna áþreifanlega, að allt efni má nota við gerð listmuna ekki síður en t.d. myndlistarverka. Hlutur leirkerasmíðarinnar er eft- ÞtíSSl* vikna ferði «r til Miami Beach, Florida Vikuleqar brottfarir alla iaugardaga fra og með 3. maí FLUGLEIÐIR Nánari upplýsingar: Söluskrifstofur okkar Lækjargötu 2 og Hótel Esju, sími 27800, farskrárdeild, sími 25100, ferðaskrifstofur og umboðsmenn okkar úti á landi, Útvarp ReyKjavlK AIMUD4GUR 25. febrúar MORGUNINN___________________ 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. 7.10 Leikfimi. Valdimar örn- ólfsson leikfimikennari leið- beinir og Magnús Pétursson pianóleikari aðstoðar. 7.20 Bæn. Séra Arngrímur Jónsson flytur. 7.25 Morgunpósturinn. Um- sjónarmenn: Páll Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauks- son. (8.00 Fréttir). 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. landsmálabl. (útdr.) Dagskrá. Tónleikar. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna. 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 9.45 Landbúnaðarmál. Um- sjónarmaðurinn. Jónas Jónsson, segir frá búnaðar- þingi. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Morguntónleikar: Sinfón- iuhljómsveit íslands leikur „Sigurð Fáfnisbana“, forleik eftir Sigurð Þórðarson; Páll P. Páisson stj. / Fílharmon- iusveitin í Miinchen leikur „Coppelíu“, bailettsvitu eftir Léo Delibes; Fritz Lehmann stj. 11.00 Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikasyrpa. Léttklassisk tónlist og lög úr ýmsum áttum. SÍÐDEGIÐ 14.30 Miðdegissagan: „Myndir daganna“, minningar séra Sveins Víkings. Sigriður Schiöth byrjar lesturinn. 15.00 Popp. Þorgeir Ástvalds- son kynnir. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Siðdegistónleikar. 17.20 Útvarpsleikrit barna og unglinga: „Andrée-leiðang- urinn“ eftir Lars Broling; fjórði þáttur. Þýðandi: Stein- unn Bjarman. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Leik-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.