Morgunblaðið - 29.02.1980, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980
(mynd: Einar Hannesnon)
Skuggaíoss í Langá á Mýrum. í fossinn var byggður laxastigi 1962 og sést hann til vinstri á myndinni
landsvegi hjá Svignaskarði í Borg-
arhreppi.
Vatnsmiðlunar-
stífla og tveir
fiskvegir
I rennsli Langár er, eins og í
öðrum ám, breiða, brot, fljót, flúð,
foss, hávaði, hlaup, hola, hylur,
iða, kvörn, leira, lón, lygna, ólga,
pollur, renna, straumur, strengur,
stokkur og sveigur. Áin fellur á
leið sinni til sjávar að meðaltali
tæplega 6 metra á hvern kíló-
metra eða 60 sm á hverja 100 m
eftir ánni. Sumir fossanna í ánni
voru laxinum hindrun en aðrir
tofðu hann á göngu upp ána.
Skammt ofan ósasvæðis (leiru-
svæði) er Skuggafoss sem var laxi
erfiður þröskuldur, þegar vatns-
magn í ánni og önnur skilyrði voru
honum óhagstæð. Fyrst mun hafa
og hins vegar var steypt sérstök
sleppitjörn neðar í ánni.
Félagsmálin
Jafnskjótt og veiðin komst á ný
í hendur landeigenda, var hafinn
undirbúningur stofnunar fisk-
ræktarfélags um Langá og
Urriðaá sem síðar stóð fyrir sum-
um þeim framkvæmdum sem
tíundaðar hafa verið hér að fram-
an, en annað hefur verið unnið á
vegum einstakra landeigenda, svo
sem bygging fiskvegar í marg-
nefndan Sveðjufoss, hjá Grenjum
og Litla-Fjalli. Auk þess hafa
landeigendur sjálfir verið að
„breyta og bæta“ ánni fyrir landi
sínu, sem fyrr greinir.
Veiðifélag var hins vegar sett á
laggirnar árið 1972 og leysti af
hólmi fiskræktarfélagið eftir 12
ára starf þess. Veiðifélagið starf-
ar, eins og fiskræktarfélagið gerði,
Einar
Hannesson:
(Ljósm.: Þór Guöjónsson)
Myndin sýnir fiskveg í Sveðjufossi í Langá á Mýrum.
Fyrir daga þessarar umsvifa-
miklu fískræktar, sem hófst í
smáum stíl fyrst um 1960, höfðu
veiðiréttindi jarða við Langá verið
um áratuga skeið í eigu erlends
aðila, og veiði með stöng verið
stunduð í ánni frá því fyrir
aldamótin síðustu, eins og í borg-
firsku laxveiðiánum: Grímsá,
Norðurá og Þverá. Samfelldar
skýrslur eru til um stangaveiði í
Langá allt þetta tímabil og mun
það vera einsdæmi, að slík gögn
séu fyrir hendi. Um 120 ár eru
liðin frá því að fyrstu ensku
veiðimennirnir hófu stangaveiði í
ánum í Borgarfirði. Byrjaði það í
Grímsá og fylgdu í kjölfarið aðrar
stóru laxveiðiárnar í héraðinu. Til
eru ýmsar minjar frá fyrri tíð um
dvöl breskra veiðimanna í Borg-
arfirði, svo sem veiðimannahús,
ýmsir munir og fleira.
Myndin er tekin við stifiuna i útrennsli Langavatns 1971. Frá vinstri Haukur Þorleifsson, Jónas Tómasson,
Sólheimatungu, Jósef Reynis, Magnús Thorlacius, formaður vatnsmiðlunarfélagsins og Jóhannes
Guðmundsson, Ánabrekku, allir i stjórn félagsins
Beilá og nokkrir smærri lækir. í
Beilá falla ár sem koma úr
Vikravatni sem er skammt austur
af Langavatni og er í 275 m hæð
yfir sjó, og Hrófbjargardalsá en
upptök hennar eru í vestanverðu
fjallinu Sátu, 741 m á hæð,
skammt suðvestur af sýslumörk-
um fyrrgreindra sýslna hjá
Bröttubrekku. Langavatn er 5,1
ferkílómetri að flatarmáli og
mesta dýpi í því er 36 m, en
meðaldýpið 15,7 m. Vikravatn er
innan við 1 kmz að flatarmáli. Tvö
hreppsfélög og jörð í þriðja
hreppnum eiga veiðirétt í Langa-
vatni. Borgarhreppur og jörðin
Hreðavatn hafa veiðirétt í Vikra-
vatni. í vötnunum er bæði bleikja
og urriði og stangaveiði í Langa-
vatni hefur verið leigð almenningi.
Greið vegaleið er að vatninu að
sumarlagi og ekið út af norður-
verið reynt að bæta úr þessum
ágalla árið 1911, með því að
sprengja í fossinum. Það er þó
loks árið 1964 að tekinn er í
notkun fullkominn fiskvegur í
Skuggafossi. Áður fyrr komst lax-
inn lengst upp ána að Sveðjufossi
sem er í 21 km fjarlægð frá
sjávarósi. I fossinn var gerður
fiskvegur árið 1967 sem opnaði
laxi leið í efri hluta árinnar. Árið
1969 var reist á vegum Vatnsmiðl-
unarfélags Langár og Gljúfurár
stífla í útrennsli Langavatns, til
að safna vatni til að bæta og jafna
sumarvatn árinnar og Gljúfurár.
Tilkoma þessa mannvirkis hefur
dregið nær alveg úr ísruðningi í
ánni á vetrum sem áður var árviss
og olli tjóni á fiskstofni árinnar.
Stóraukið
landnám laxins
Auk fyrrgreindra framkvæmda
hefur verið keppt að því, eftir að
Sveðjufoss varð greiðfær laxinum,
að gera nokkra aðra fossa ofan
Sveðju fiskgenga með lagfæringu,
og stefnt að því að koma göngu-
fiski allt inn að Langavatni. Er
um sex fossa að ræða á þessu
svæði. Komist laxinn inn að stíflu
við Langavatn stækkar veiðisvæði
árinnar um 15 km. Það jafngildir
tvöföldun á stangaveiðisvæði
hennar fyrir daga fiskvegar í
Sveðjufossi. Þá hafa verið gerðar
ýmsar breytingar í árfarvegi
Langár og rennsli hénnar, til að
létta fiski göngu um ána og búa
honum í öðrum tilvikum hvíldar-
staði (veiðistaðir) og festa í sessi
eldri veiðistaði. Þá hefur verið
sleppt miklum fjölda seiða í ár-
kerfið; smáseiði og stærri laxa-
seiði og þau sett bæði í fiskgenga
hluta árinar og ófiskgenga svæðið,
inn á afrétti. Ennfremur hafa
verið útbúnar tvær sleppitjarnir
fyrir gönguseiði, til að tryggja
betri árangur í endurheimtu á laxi
úr sjó. Er hagnýtt í þessu skyni
hvíldarhólf í fiskveginum í Sveðju
Á vatnasvæði Langár í
Mýrasýslu hefur verið unn-
ið meira að fiskrækt en í
nokkurri annarri á hér á
landi. Framkvæmt hefur
verið: Fiskvegagerð,
vatnsmiðlunarstífla, lag-
færing árfarvegar, slepp-
ing laxaseiða, sleppitjarn-
irnar fyrir gönguseiði og
veiðieftirlit.
á grundvelli laga um lax- og
silungsveiði. Það skipuleggur veiði
og ræktun á félagssvæðinu, er
tekur til Langár sjálfrar frá ósi í
sjó og að Langavatni ásamt
Úrriðaá. Innan vébanda félagsins
eru 16 jarðir og tvö afréttarlönd
sem liggja að ánni neðan Langa-
vatns. Jarðirnar eru allar í Álfta-
neshreppi og Borgarhreppi í
Mýrasýslu, en Langá er merkja-
vatn hreppanna. — Það verkefni
bíður úrlausnar að koma á fót
veiðifélagi um Langavatn og árnar
sem í það falla.
Veiðieigendur við Langársvæðið
hafa verið sammála um, að hver
einstakur landeigandi ráðstafi
veiði fyrir sínu landi og eingöngu
sé stunduð stangaveiði á félags-
svæðinu. Um tíma var í tíð
fiskræktarfélagsins beitt netum á
neðsta hluta svæðisins, en sl. 10 ár
hefur eingöngu verið veitt á stöng.
Fyrst (1949) voru ákvarðaðar fjór-
ar stengur til veiða í Langá.
Stangaveiðiálag hefur aukist
smám saman með netaupptöku og
aukinni ræktun og nú er leyfð alls
13,5 stöng í Langá og Urriðaá.
Veitt er í fimm pörtum eða
svæðum í Langá, en Urriðaá er
leigð út í einu lagi. Langármenn
annað hvort leigja út veiði eða
stunda sjálfir veiði fyrir sínu
landi. Sumir landeigendur hafa
samvinnu um útleigu en aðrir eru
Fellur í tvær áttir!
Langá kemur úr Langavatni,
214 m hæð yfir sjó, og fellur í sjó
milli Rauðaness og Landdeildar-
höfða, 6 km suðvestur frá Borg-
arnesi, og er áin 36 km að lengd.
Stærð aðrennslissvæðis Langár er
262 km2. Er þetta einkennileg
tilhögun náttúrunnar og trúlega
nær einstætt fyrirbæri hér á
landi, að ein og sama áin skipti sér
í tvær áttir.
Tvö stöðuvötn
Efstu upptök Langár eru vatna-
skil Mýrasýslu og Dalasýslu, suð-
ur af Vífilsdal er liggur inn af
Hörðudal í Dölum. Um 50 km eru
frá upptökum að sjávarósi. Vatn
af þessu svæði rennur fyrst til
Langavatns um Langavatnsdalsá.
Auk árinnar falla í Langavatn
Árangursrfk
fiskirækt
f Langá
á Mýrum