Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 Vorsýning Mynd- listarskólans í húsakynnum Myndlistar- skólans í Reykjavík að Lauga- vegi 118 stendur nú yfir árleg vorsýning skólans. Það er vel til fallið að hafa sýninguna opna yfir páskahelgina og kynna al- menningi starfsemina og gera það á þann veg, að menn sjá einnig verk á vinnslustigi, en ekki einungis fullunnin verk svo sem yfirleitt mun venjan. Hlutverk Myndlistarskólans er öðru fremur, að opna augu almennings fyrir myndlist og gildi allra sjónmennta í daglegu lífi. Skólinn útskrifar ekki hönn- uði í einstökum listgreinum líkt og t.d. Myndlista- og handíða- skóli íslands, og það er einmitt sérstaða hans og styrkur. Von- andi verður svo áfram um alla framtíð því að hér er um mikið svið að ræða með ótæmandi möguleikum. A þessari sýningu er högg- myndadeildin einna mest áber- andi en þetta svið hefur Mynd- listarskólinn til skamms tíma ræktað öllum öðrum skólum betur hérlendis. Er t.d. með ólíkindum að Myndlista- og handíðaskóli íslands skyldi tak- ast að starfa í fjóra áratugi án þess að upp risi sérdeild í þessari frumgrein myndlista. Margt sá Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON ég vel gert í þessari deild og vissulega er góður efniviður fyrir hendi því að hæfileikar koma víða fram. Hins vegar er höggmyndalist svo krefjandi, að menn verða að gefa sig alla ef úrskerandi árangur á að nást, — íhlaupavinnubrögð geta aldrei orðið hér undirstaða stórbrotins árangurs. En við erum ekki í leit að stórbrotnum árangri á skólasýn- ingu þar sem obbinn að verkun- um er unninn af áhugafólki í tómstundum. En í sjálfu sér er árangurinn stórbrotinn sé miðað við allar aðstæður og það er það sem gildir. Módelteikningarnar á sýning- unni eru og mjög eftirtektar- verðar og er augljóst, að fólk vinnur hér af áhuga en ekki af einhverri kvöð til að ná tilskild- um árangri upp í framhalds- deildir. Hagrænir framtíðar- möguleikar sitja þannig ekki í Úr Myndlistarskólanum. fyrirrúmi líkt og stundum vill brenna við í æðri listaskólum. Minnast má og á barnadeildirn- ar þar sem margt athyglisvert kemur fram og frumleikinn ræð- ur lögum og lofum. Annars átti þetta ekki að vera listdómur heldur vildi ég vekja athygli á starfsemi, sem þarf að þróast sem víðast á landinu, — já sannarlega ekki síður í dreif- býlinu en á höfuðborgarsvæðinu. Höfuðborgarbúar hafa sko eng- an einkarétt á sjónmenntun á landinu. — Þessi sýning svíkur engan Skíðalandsmótið á Akureyri: Frá Sighirni Gunnarssyni blm. Mbl., Hlíðarfjalli. ÞEGAR úrslitin í stökki 20 ára og eldri og norrænni tvíkeppni lágu fyrir í gær, varð mörgum að orði að fastir liðin væru eins og venjulega, því að í þessum grein- um varð hinn ódrepandi íþrótta- maður og unglingaleiðtogi, Björn Þór Ólafsson, sigurvegari. I báðum greinum var Björn Þór að vinna sinn 10. íslandsmeistara- titil. Björn Þór sigraði fyrst í stökkinu árið 1965 og í norrænni tvíkeppni sigraði Björn fyrsta sinn árið 1970 og hefur sigrað í tvíkeppninni samfellt síðan, nema 1973 þegar Steingrímur Garðars- son, Siglufirði, varð sigurvegari. Að stökkinu loknu var Björn Þór Ólafsson ánægður með sigur- inn, en sagði að fyrir löngu væri sá tími kominn að einhver yngri manna tæki við. „Mig vantar orðið kraft í uppstökkið, eins og þú sérð,“ sagði Björn. „Sjáðu yngri strákana, þeir stökkva hærra upp en svifið vantar." Blaðamaður gat með engu móti komið auga á að kraft vantaði í Björn nema síður væri. Björn sagði að snjóleysi hefði háð Ólafsfirðingum við æfingar í vetur. Slíkt er einstakt á Ólafs- firði, því að elstu menn þar muna ekki eins snjólausan vetur þar og nú. Björn sagði að margir ungir og efnilegir stökkvarar væru nú á Ólafsfirði, og nefndi til dæmis sigurvegarann í flokki 19 ára og yngri, Hauk Hilmarsson. Þá sagði Björn að margir enn yngri piltar á Ólafsfirði æfðu nú stökk og því væri bjart framundan í þessari „einkagrein" Ólafsfirð- inga. Björn hefur um árabil verið iðinn við að hvetja unga Ólafsfirð- inga til æfinga og keppni í nor- rænum greinum skíðaíþrótta, og þannig má segja að þeir ungu piltar sem nú gera garðinn frægan í stökki og göngu séu lærisveinar hans. Má þar nefna hina nýbökuðu Islandsmeistara, bræðurna Jón og Gottlieb Konráðssyni og Hauk Sigurðsson, svo að einhverjir séu nefndir. Björn sagði að lokum að Ólafs- firðingar myndu ekki láta deigan síga í norrænum greinum skíða- íþróttarinnar> það væri nægur efniviður heima fyrir og mikill áhugi á þesum skemmtilegu skíðagreinum. Keppni á skíðalandsmótinu á Akureyri var fram haldið í gær. Þá var keppt í stökki og að sjálfsögðu urðu Ólafsfirðingar sig- ursælir. Úrslitin fara hér á eftir: Stökk 20 ára og eldri m 41.0 39,0 37,0 36,5 34.0 m Stigin 43,5 201,5 40,0 180,9 38,0 172,4 38,0 163,3 37,0 162,1 1. Bjöm Þór Ólafsson Ó 2. Benóný Þorkelsson S 3. Þorsteinn Þorv.s. Ó 4. Sitturjón Krlendsson S 5. Guómundur Konr.s.Ó Stökk 19 ára og yngri 1. Ilaukur Hilmarsson Ó 44,0 45,0 224,7 2. Jakob Kárason S 40,0 41,0 195,7 3. Baldur Benónýsson S 39,0 41,0 183,8 Norræn tvíkeppni: Stökk- Göngu- stig stig Alls Björn Þór Ólafsson Ó 199,5220,00419,50 Þorsteinn Þorvaldsson Ó 184,2203,05287,25 Haukur Snorrason R 115,2131,50246,70 1. deildarlið vilja kaupa Karl KARL Þórðarson hefur verið bezti maður La Louviere í undan- förnum leikjum og hafa 1. deild- arlið í Belgíu gert um hann fyrirspurnir, samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér. La Louviere hefur spjarað sig í undanförnum leikj- um og er líkiegt að liðið sieppi við fall í 3. deild. Karl skorar mikið og nýlega skoraði hann þrjú mörk í æfingaleik gegn 1. deildarliðinu Molenbeek. Björn Þór sigraði tíunda árið í röð Viðbrögð við fiskverði Útvegsmannafélag Suðurnesja; Mótmælir harðlega nýákveðnu fiskverði FJÖLMENNUR fundur í Út- vegsmannafélagi Suðurnesja, sem haldinn var í Festi í Grindavík í fyrrakvöld, mót- mælir harðlega nýákveðnu fisk- verði og lækkun olíugjalds úr 5% í 2.5%. I ályktun fundarins er minnt „á þann mikla vanda, sem út- gerðin varð fyrir á árinu 1979 vegna hins gífurlega kostnaðar- auka, sem olíuverðshækkunin olli útgerðinni. Hver lítri af gasolíu hefur hækkað frá árs- byrjun 1979 úr kr. 49.75 í kr. 155.20 eða um 220% og samsvar- andi hækkun hefur orðið á svartolíu," segir í ályktuninni. Ennfremur bendir fundurinn á, að ein forsenda þess, að útgerðarmenn greiddu fiskverðs- ákvörðuninni atkvæði sitt um s.l. áramót var ákvörðun um, að 5% olíugjald gilti út árið 1980, sam- anber ályktun Alþingis um það efni. Eyjólfur Martinsson, Ísíélagi Vestmannaeyja: „Ekki nóg að gert" EYJOLFUR Martinsson fram- kvæmdastjóri hjá ísfélagi Vest- mannaeyja sagði að staðan í rekstri frystihúsanna væri svip- uð og áður en fiskverð var ákveðið, um taprekstur væri að ræða. „Gengissigið hjálpar eitt- hvað upp á stöðuna ef þessi 8% verða látin síga fljótt og þeir verða ekki að myglast með þetta fram í júni. Þrátt fyrir það er ljóst að ekki er nóg að gert til þess að um eðlilega stöðu sé að ræða og samkvæmt úttekt á fyrstu tveimur mánuðum ársins er frystiiðnaðurinn rekinn með tapi.“ Friðrik Pálsson, framkvæmdastjóri SÍF: Saltfiskdeild Verð- jöfnunarsjóðs tæmist ef halda á viðunandi afkomu í greininni MORGUNBLAÐIÐ leitaði í gær til Friðriks Pálssonar fram- kvæmdastjóra Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda og spurði hann um stöðu salt- fiskframleiðenda og þessarar útflutningsgreinar eftir að nýtt fiskverð var ákveðið. Svar Frið- riks var svohljóðandi: „Sú gengisbreyting, sem kom í kjölfar fiskverðsákvörðunar, breytir í engu þeirri staðreynd, að þrátt fyrir rúmlega 40% verðhækkun í erlendri mynt á síðustu 2 árum tæmist saltfisk- deild Verðjöfnunarsjóðs á þessu ári, að óbreyttu gengi, ef halda á viðunandi afkomu í greininni. Það er ekki skynsamlegt við ríkjandi markaðsaðstæður. Þegar allar helztu greinar útflutnings eru reknar með miklum halla, þá er gengið rangt skráð. Um það getur varla verið ágreiningur." Gísli Konráðsson hjá Ú.A. Fiskverðið og geng- isbreytingin vega hvort á móti öðru“ „Við höfum nú lítið séð af ráðstöfunum ríkisstjórnarinn- ar enn sem komið er, annað en nýtt fiskverð og gengisbreyt- ingu og þar er svona rétt að það vegi hvort á móti öðru,“ sagði Gísli Konráðsson forstjóri Út- gerðarfélags Akureyringa í samtali við Morgunblaðið í gær. „Breytingin er því ekki mikið til batnaðar að því að okkur sýnist," sagði Gísli ennfremur, „og um áframhaldandi erfiðleika er að ræða þangað til við fáum eitthvað frekar að heyra. Talað er um einhverjar leiðréttingar og lækkanir á kostnaðarliðum, en það bólar ekkert á því enn. Ég sé því ekki að það sé neitt glæsilegt framundan. Ljóst er að nú er um að ræða hallarekstur, og það kann að sjálfsögðu ekki góðri lukku að stýra, þó sjálfsagt finnist þeir sem eru verr settir en við erum, og stöðvun mun ekki koma til fyrr en í fulla hnefana vegna þess hve þessi starfsemi er mikilvæg fyrir allt bæjarlífið hér. En ég vil einnig taka það fram, að við óskum að sjálfsögðu eftir lagfærinu í formi lækkaðra kostnaðarliða frekar en gengis- fellingu, því hún kemur að okkur aftur bakdyramegin ef svo má að orði komast. Við erum til dæmis með afurðalánin í erlendum gjaldeyri, þannig að helmingur- inn af gjaldeyrissiginu fer til þess að greiða gengissigið af láninu. Vanti okkur til dæmis 2% á rekstursgrundvelli, þá þarf að minni hyggju 4% gengissig til að við fáum 2 út úr því. Því viljum við heldur lækkun á ýmsum kostnaðarliðum, svo sem vöxtum, stimpilgjöldum, sölu- skatti, vörugjaldi og fleiri lið- um,“ sagði Gísli að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.