Morgunblaðið - 11.04.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.04.1980, Blaðsíða 1
68 SÍÐUR 82. tbl. 67. árg. FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Carter biður um stuðning Washington. 10. apríl. AP. JIMMY Carter forseti sagði í dag, að samherjar Bandarikjanna yrðu að taka þátt í því að bera þær byrðar og færa fórnir sem viðnám gegn íhlutun Rússa í Afganistan krefð- ist. í ræðu sem hann flutti á fundi félags bandarískra ritstjóra hvatti hann til stuðnings við þá stefnu að taka ekki þátt í Ólympíuleikunum í Moskvu og kvað það sanngjarnt að byrðarnar kæmu sem jafnast niður. Hann sagði að samkvæmt regl- um Ólympíuhreyfingarinnar væru íþróttamenn fulltrúar þjóða sinna og Bandaríkin vildu ekki senda fulltrúa til lands sem gerði innrás í annað land og kúgaði það. Hann sagði að ef nauðsynlegt reyndist að leita til dómstóla til að knýja fram þá ákvörðun að senda ekki bandaríska íþróttamenn til Moskvu yrði það gert. Carter Tengt á braut Moskvu. 10. apríl. AP. GEIMFARIÐ Soyuz—35 með sovézku geimförunum Leonid Popov og Valery Ryumin inn- anborðs var í dag tengt við geimrannsóknarstöðina Sal- yut—6, um 26 klst eftir að því var skotið frá Baikonur í Mið-Asíu að sögn íréttastof- unnar Tass. Sovézka sjónvarpið sýndi Ryumin fara inn í geimstöðina sem hefur verið auð í tæpa átta mánuði síðan hann sjálfur fór frá stöðinni ásamt öðrum geimfara eftir 175 daga dvöl. Ryumin tilkynnti: „Allt er eins og við skildum við.“ 5 lönd bjóða Kúbönum hæli Lima, Perú, 10 april. AP. FIMM Suður-Ameríkuríki samþykktu í dag að bjóð- ast til að skjóta skjólshúsi yfir þær þúsundir Kúbu- manna sem hafa leitað hælis í sendiráði Perú í Havana. Utanríkisráðherra Perú, Arturo Garcia y Garcia, sagði að Perú mundi taka við 1.000 Kúbu- mönnum. Hann sagði að Bólivía, Kólombía, Ekvador og Venezúela mundu tilkynna sína kvóta síðar. Garcia sagði að öðrum löndum yrði boðið að taka við kúbönskum flóttamönnum ef þeim yrði leyft að fara frá Kúbu. Ákvörðunin var tekin á ráð- herrafundi Efnahagsbandalags Andesfjallalandanna. í yfirlýs- ingu sagði að Kúbustjórn bæri ábyrgðina á innrás Kúbumanna, sem vildu fara úr landi, í sendiráð Perú, en „alþjóðleg samstaða“ væri nauðsynleg til að hjálpa flóttamönnunum. Vor í lofti Ljúsm.RAX. EBE hótar íran refsiaðgerðum Lissabon. 10. april — AP. UTANRÍKISRÁÐHERRAR Efnahagsbandalagsins gáfu í skyn í yfirlýsingu í dag að aðildarlöndin kynnu að grípa til efnahagslegra refsiaðgerða ^gegn íran og sögðu að þeir mundu „krefjast“ þess að Iranir slepptu gíslunum 50 í bandaríska sendiráðinu. í yfirlýsingu utanríkisráðherr- sagði, að þeir mundu fela anna sendiherrum sínum í Teheran að segja Abolhassan Bani-Sadr Iransforseta að hann yrði að tiltaka hvaða dag gíslarnir yrðu látnir lausir og gera grein fyrir áætlunum sínum um að sleppa þeim. I Teheran hrópuðu íranir „Dauði yfir Ameríku" þegar þeir fögnuðu sem þjóðhetjum 34 ír- önskum diplómötum sem var vísað úr landi í Bandaríkjunum þegar Carter forseti sleit stjórnmála- sambandi við íran. Teheran-útvarpið sagði að fagn- andi mannfjöldi hefði fleygt blóm- um að diplómötunum og fjölskyld- um þeirra undir forystu Ali Agah, sendifulltrúa í íranska sendiráð- inu í Washington. Sadegh Ghot- bzadeh utanríkisráðherra var einn þeirra sem tóku á móti þeim. Tveir gíslanna komu ^fram í Sovézkir yfirmenn felldir í bardögum Nýju Delhi. 10. apríl — AP. AFGANSKIR uppreisnarmenn hafa fcllt 10 sovézka foringja og tekið 400 afganska hermenn til fanga i Kunar-héraði í Austur-Pakistan að sögn pakistanska útvarpsins í dag. Þeir tóku auk þess 460 vopn i bardaganum. Rússar urðu fyrir „miklu manntjóni" í öðrum bardaga í héraðinu Herat í vesturhluta landsins að sögn útvarpsins. Ferðamaður frá Afganistan hafði áður haft það eftir sjónar- vottum að uppreisnarmenn hefðu fellt tíu rússneska hermenn og tekið 31 til fanga í árás á sovézkan herflokk í Sorobi, 75 km austur af Kabul. Síðan hefur vegurinn milli Kabul og Pakistans um Khyber- skarð verið lokaður. I öðrum bardögum sem sagt var frá í síðustu viku hafa afganskir uppreisnarmenn: • Fellt rúmlega 200 rússneska hermenn og þrjá yfirmenn nálægt Ghazni, 160 km suðvestur af Kabul. • Skotið niður tvær stjórnarþyrl- ur í Logar-héraði sem uppreisn- armenn ráða suður af Kabul og tvær aðrar á föstudag við Ghazni. Fimmta þyrlan var skotin niður í Kunar og tveir sovézkir hers- höfðingjar og aðrir yfirmenn féllu. Á fimmtudag hlupust 400 afg- anskir yfirmenn undan merkjum í Mohammad Agha, 50 km suður af Kabul, og gengu í lið með upp- reisnarmönnum. Jafnframt segir Kabul-útvarpið, að yfirvöld hafi brotið á bak aftur „erlenda útsendara" í Baglan- héraði í norðurhluta landsins og tekið mikið magn vopna og skot- færa herfangi. íranska sjónvarpinu, sem sagði að þeir hefðu játað njósnir, og lýstu njósnaaðferðum bandarískra leyniþjónustustofnana að sögn blaðanna Los Angeles Times Washington Post. og Shahpour Bakhtiar fyrrverandi forsætisráðherra hefur sent Cart- er símskeyti þar sem hann skorar á hann að endurskoða þá ákvörðun að ógilda vegabréfsáritanir ír- anskra stúdenta í Bandaríkjunum þar sem meirihluti þeirra sé andvígur Khomeini-stjórninni. Herskip á Persaflóa Teheran. 10. april. — AP. ÍRÖNSK herskip létu úr höfn í dag og sigldu út á Persaflóa til að „svara hvers konar árás“ frá grannríkinu írak að sögn útvarpsins í Teheran. Jafnframt hafa um 25.000 íranir, sem hefur verið vísað úr landi í írak, streymt yfir landamærin, Forseti íranska herráðsins, Mohammad Hadi Shadmehr hershöfðingi, sagði að kyrrt hefði verið á landamærasvæð- inu síðan í gærkvöldi. Hann sagði að barizt hefði verið í gær á svæðinu Qasr-E-Shirin. Hershöfðinginn bar til baka fréttir um loftbardaga sem íranskar herþotur og þyrlur hefðu háð við þyrlur frá Irak í gær. Samkvæmt fréttinni var engin flugvél skotin niður í loftbardaganum sem fór fram yfir íranska landamærabænum Baveissi. Iranska sjónvarpið segir að 15 íranskir byltingarverðir hafi særzt í stórskota- og eldflaugaárásum íraka yfir suðvesturlandamærin í gær. Teheran-útvarpið segir að í einni slíkri árás, á svæðinu Qasr-E-Shirin, hafi íranskt stórskotalið svarað skothríð- inni og eyðilagt írakska landa- mærastöð. Uggur um loftbardaga Beirút, 10. apríl. — AP. NOKKUR hundruð ísraelskir hermenn, sem njóta stuðn- ings skriðdreka. brynvar- inna bíla og jarðýtna. komu sér fyrir í skotgröfum á nýherteknum svæðum í Suð- ur-Líbanon. þar á meðal gæzlusvæðum SÞ. ísraelskar herþotur fóru í könnunarferðir yfir nýju stöðvarnar og hluta Bekaa- dalsins sem er á valdi sýr- lenzkra hersveita. Sýrlenzkar herflugvélar flugu yfir svæðið rétt á eftir og uggur vaknaði um loftbar- daga í líkingu við þá sem voru háðir í fyrra. Aðalfulltrúi Líbanons hjá SÞ tilkynnti í dag að hann hefði farið fram á fund í Öryggisráðinu vegna her- hlaups ísraelsmanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.