Morgunblaðið - 04.05.1980, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 04.05.1980, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1980 II. grein ir William Stephenson hélt til Kanada eftir fyrri heimsstyrjöldina og var ráðinn til að kenna við Háskólann í Manitoba, kenndi stærðfræði. En Stephenson dvaldi ekki lengi í Kanada. „Ég hafði sektartilfinn- ingu, fannst ég hefði átt að deyja ásamt svo mörgum félögum mínum. En þar sem ég lifði heimsstyrjöld af, þá fannst mér ég verða að sanna fyrir sjálfum mér, að ég væri þess verður að komast lífs af úr þessum mikla hildar- leik,“ sagði Stephenson síðar. Hann afréð að fara í stutta ferð til Englands en sú dvöl varð lengri en hann óraði fyrir — í 19 ár bjó hann á Englandi. Síðla árs 1922 var BBC stofnað og útbreiðslu- stjóri BBC var Gladstone Murray, fyrrum félagi Stephensons í stríðinu. Það var fyrir hans orð að hann fór til Englands. Öld útvarps var að ganga í garð og fyrir mann eins og Stephenson var það stóra . tækifærið. Stephenson snéri sér | að útvarpinu — hann keypti hlut í tveimur fyrirtækjum, General- Radio og Cox-Cavendish, raf- tækjafyrirtæki. s Um þrítugt hafði hann eignast fyrstu milljónina Stephenson vann að þróun við- tækja og hann beindi athygli sinni að lausn einkar mikilvægs máls í útvarpstækni, þráðlausri sendingu mynda. Undanfarin 30 ár hafði verið hægt að senda mynd þráð- laust með því að skipta henni í smáhluta og var hver hluti ein- kenndur með bókstaf, eða tölu til að sýna rétt stig birtu eða skugga. Þessi aðferð var ákaflega ófull- nægjandi og myndin varð aldrei skýr. Stephenson taldi, að því aðeins væri hægt að senda mynd þráðlaust með fullkominni ná- kvæmni, að myndin sjálf stjórnaði senditækinu. Hann tók til við að þróa slík tæki. Lundúnablaðið Daily Mail, sem þá hafði stærsta upplag í heiminum, hafði áhuga á þráðlausum myndasendingum og hafði raunar framkvæmt tilraunir á því sviði síðan 1908. Northcliffe lávarður beitti sér fyrir því, að Stephenson fengi aðstoðarmann, þekktan efnafræðing, Thoren Bak- er, prófessor. Þeir hófu samstarf á rann- sóknastofum General Radio í Twyford. Árangurinn af þessari samvinnu þeirra átti eftir að hafa byltingarkennd áhrif á myndbirt- ingar blaða og var einnig fyrirboði um framtíð sjónvarps. Efnið, sem venjulega var notað um þær mundir í sendingu mynda, til að breyta ljósi í rafstraum og hægt var að senda um þræði eða þráðlaust, var selenium. Það hafði þann ókost, að vera tiltölulega seinvirkt. Eftir langar og ná- kvæmar rannsóknir tókst Stephenson að framleiða efni í stað seleniums, í formi þess sem hann kallaði „ljósnæmt tæki“ er jók sendingarhraðann verulega og tryggði jafnframt ágæta eftir- mynd. „Þessi mynd var send með okkar aðferð á 20 sekúndum," sagði Stephenson við gest um leið og hann sýndi litla mynd, með samhliða rákum og hann bætti við að sending kvikmynda væri ekki lengur ótrúlegur draumur. „Það þarf aðeins að auka hraða tækis- ins á þann tíma, sem nauðsyn- legur er til að skapa myndasam- hengi." Þegar Daily Mail birti fyrstu myndina, sem send var með þessari nýju aðferð í desember 1922 hyllti blaðið hinn unga hug- vitsmann, sem „snilling á sviði vísinda" og uppgötvun hans var nefnd „mikill vísindaviðburður". Tæpum tveimur árum síðar giftist Stephenson bandarískri stúlku frá Tennessee, Mary Eyöileggingin eftir árás Þjóöverja á Co- ventry var gífurleg — heil borg lögö í rúst. Turninn einn stóö eft- ir af dómkirkjunni. Stephenson viö tæki þaö, sem hann fann upp skömmu eftir heimstyrj- öldina fyrri, til aö senda myndir þrálaust. Tækið markaði tímamót í myndanotkun blaöa um allan heim. Sir William Stephenson var yfirmaöur leyniþjón- ustu Breta vestanhafs í síðari heimsstyrjöldinni. Leyniþjónusta hans teygöi anga sína víðs vegar um heim. Hann var heiðraður af bæði Bretum og Bandaríkjamönnum fyrir störf sín í síðari heims- styrjöldinni. Sir William Stephenson er af íslenzku bergi brotinn, móðir hans var íslenzk. Franch Simmons, í júlí 1924. Faðir hennar var auðugur tóbaksútflytj- andi. Stephenson hafði þó enga þörf fyrir peninga hans — einka- leyfi þau, sem hann hafði fengið fyrir uppfinningar sínar á sviði loftskeyta, reyndust sönn gull- náma. í ársbyrjun 1926 hafði hann, þegar hann stóð á þrítugu, eignast sína „fyrstu milljón doll- ara“. Snemma á 4. tug aldarinnar stjórnaði hann tveimur tugum fyrirtækja, átti hús við hina virðu- legu New Cavendishgötu og auk þess sveitasetur í Chilterns. Hitler ætlar sér að vinna heiminn Árið 1924 fékk Stephenson til- boð frá Berlín um dulmálsvél, sem gerði það að verkum, að keppi- nautar hans á sviði viðskipta kæmust ekki að skilaboðum hans við hin ýmsu fyrirtæki. Þetta tæki var svo sem nógu saklaust í viðskiptum — en væri því beitt í hernaði til að senda upplýsingar, þá var maskína þessi hreint af- bragð. Dulmálsvélin líktist helst þunglamalegri ritvél. Það sem vélritað var á dulmálsvélina kom út sem hreinasta rugl — nema viðkomandi hefðu dulmálslykil- inn. Stephenson vissi ekki þá, að þýzka leyniþjónustan vann að því að gera þetta tæki að mikilvægu hernaðarlegu vopni. Sjálfur gleymdi hann þessu — en einmitt þetta dulmálstæki átti eftir að hafa mikla þýðingu í stríðinu og verður þess nánar getið síðar. Nazistar komust til valda á fjórða tug aldarinnar. Stephenson fór margar ferðir til Þýzkalands á fyrstu árum nazismans. Hann var þá eigandi Pressed-Steel fyrirtæk- isins en það framleiddi yfir 90% allra bifreiðayfirbygginga í Morr- is, Humber, Hillman og Austin. Það voru einmitt tengsl Stephen- sons við Pressed-Steel, sem fyrst komu honum í tengsl við brezku leyniþjónustuna. Á kaupsýsluferð- um sínum, sem hann fór til Þýzkalands varð hann brátt þess áskynja, að nær allt stál, sem Þjóðverjar framleiddu var notað til framleiðslu á vopnum og skot- færum, þó lögðu Versalasamn- ingarnir blátt bann við slíku. Ráðamenn í Bretlandi áttuðu sig ekki á þessari ógnvekjandi þróun — Winston Churchill var á þess- um árum í pólitískri eyðimerkur- göngu sinni og rödd hans var kölluð „rödd stríðsæsingamanns- ins“. Stephenson komst á laun í ársreikninga stálfyrirtækja í Ruhr og hann skýrði Churchill frá þessu í apríl 1936. „Hitler ætlar sér að vinna heiminn," skrifaði Stephenson til Churchill á þessum árum. Bæði í Bretlandi og Banda- ríkjunum mynduðust fámennir hópar manna, sem gerðu sér grein fyrir hvert stefndi og voru sann-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.