Morgunblaðið - 26.06.1980, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 26.06.1980, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1980 Sveinbjörn Eyjólfsson: Að hreppa þjóðhöfðingjastöðu! „Til lítils skal ætlast af strákum ok stafkörlum" stóð í bréfi fornu. Til mikils skyldi þá ætlast af nútímamanni, sem hlotið hefur prestsvígslu og leiðir lýðháskóla í Skálholti. Á annars ágætum framboðs- fundi Guðlaugs Þorvaldssonar á Selfossi á dögunum hélt Skál- holtsrektor ræðu og fórust honum orð eitthvað á þá leið, að sízt væri ástæða til að ljá atkvæði sitt þeim, er kemur heim til fósturjarðar sinnar sem gestur til þess eins að hreppa þar þjóðhöfðingjastöðu. Hér er vikið svo ómaklega að þeim frambjóðanda, sem nú má ætla fremstan meðal jafningja að eigi verður um þagað. Hvers vegna dvaldist Pétur J. Thorsteinsson erlendis? Var hann þar í einhverjum einkabisness? Ó, nei! Pétur fékk ungur það hlut- skipti að vera fulltrúi þjóðar sinnar á erlendri grund og hef ég enga hjáróma rödd heyrt hafa vefengt ágæti hans á þeim vett- vangi. Pétur er maður sem hófst að eigin verðleikum frá erfiðum æskuárum og munaðarleysi til þess að bera veg íslendinga sem frjálsrar þjóðar um víða veröld. Hvar í heimi sem starfsvettvang- ur hans lá, hvort sem var í Bandaríkjunum eða Kina gengu menn inn í íslenzka stofu á heimili hans. Við, ungir íslendingar, sem nú veljum okkur forseta í fyrsta sinn, minnumst þess að þeir, sem reyndust þessari þjóð traustastir er mest lá við, höfðu gjarnan það hlutskipti að dveljast erlendis blómann af ævi sinni. Ljóðið „ísland farsældar frón“ var ort í Danmörku. Sveinn Björnsson, fyrsti forseti Islands, var kallaður heim frá sendiherrastörfum til þess að gegna embætti ríkisstjóra og síðan forseta á tímum neyðar- ástands. Og við vitum, þótt Skál- holtsrektor hafi illu heilli gleymt því, að Jón Sigurðsson forseti var heimilisfastur í Kaupmannahöfn allan sinn starfsaldur. Ungir kjósendur! Ég heiti á ykkur. Kynnið ykkur störf og æviferil Péturs J. Thorsteinsson- ar. Vitið, að hvort sem um var að ræða íslenzkan sjómann í erlendri höfn eða íslenzkan námsmann á erlendri grund, þá átti hann vin og sitt athvarf þar sem Pétur J. Thorsteinsson réði húsum í nafni íslands. Þetta fólk ber það, að Pétur hafi ætíð verið því ímynd þess bezta, er það gat saknað að heiman. Hann fylgdist með og fann til „í stormum sinnar tíðar". Hann talar gullfallega íslenzku, er skáldmæltur, kann góð skil á bókmenntum okkar fyrr og síðar og hefði ugglaust getað haslað sér völl á þeim vettvangi hefði tími hans leyft. Af því ágæta fólki, sem nú býðst til þess að taka við mannaforráðum á Bessastöðum af okkar ástsæla forseta, Kristjáni Eldjárn, tel ég Pétur J. Thor- steinsson bera af sökum reynslu sinnar og persónulegs ágætis. Því vildi ég segja við þann Skálholts- rektor, sem með orðum sínum olli skrifum mínum: Skjóttu geiri þínum þangað sem þörfin meiri fyrir er. Fram til sigurs ungir sem aldnir fyrir Pétur! Hjörtur Hjálmarsson, Flateyri: Góður maður og vaxandi Þegar ég heyrði Guðlaug Þor- valdsson nefndan sem líklegan frambjóðanda við forsetakjör gerði ég mér ljóst að þar væri maður, sem ég teldi álitlegt að styðja. Þessi afstaða mín hefur styrktst síðan við nánari athugun á ferli Guðlaugs. Að öðrum ágætum frambjóð- endum ólöstuðum er ég sannfærð- ur um að enginn annar gjörþekkir jafn vel þverskurð þjóðlífsins og hann, allt frá vikadrengnum í fjöru og túni að forsvarsmanni æðstu menntastofnunar landsins. En að þekkja þá þjóð sem hann á að þjóna og bera merki fyrir tel ég höfuðkost á þeim manni, sem skipar embætti forseta, jafnframt því að vera mannasættir. Guðlaugur og kona hans eru glæsileg hjón, sem vel mundu sóma sér sem fremstu fulltrúar Islands hvar sem væri. En gljáfægt yfirborð er þó lítils virði móts við trausta innviði. Þar finnst mér skera úr, hve margir þeirra er kynnst hafa Guðlaugi í starfi eru meðal stuðningsmanna hans. Kristín Ólafsdóttir: Forsetaframbjóðandinn minn Forsetaframbjóðandinn minn gladdi mig svo mikið með frammi- stöðu sinni í sjónvarpinu í kvöld, að ég verð að stinga niður penna og tjá ykkur gleði mína. Ég er engum forsetaframbjóð- endanna persónulega kunnug en tel þá alla mæta menn. Einn þeirra virðist þó hæfa bezt hug- mynd minni um góðan forseta. Eg leyfi mér því að nefna hann hér: forsetaframbjóðandann minn. Enginn heilvita maður, sem fylgzt hefur með framgöngu hans á opinberum vettvangi og þá ekki sízt í yfirstandandi kosningabar- áttu, efast um, að honum hafa hlotnazt góðir vitsmunir, gott uppeldi oggóð menntun. Vissulega eru þetta gjafir Guðs og gæfunnar þeim sem hlýtur. En fleiri njóta góðs af, þegar slíkar gjafir eru nýttar á jákvæðan hátt. Allt sem ég sé og heyri til frambjóðandans míns kætir mig og bætir. Honum er sérlega lagið að fjalla um mannleg málefni, jafn hversdagslegar athafnir okkar sem háleitar hugsjónir. Hjá honum samtvinnast aðdáunarlega glöggskyggni, glettni, hlýja og virðuleiki. Þessi frambjóðandi höfðar til mín sem lifandi mann- eskju en ekki aðeins sem nafns á kjörskrá. Hann vekur mig til umhugsunar um ýmsa þætti, svo sem kærleika, vináttu, víðsýni og umburðarlyndi. Annar forsetaframbjóðandi ágætur sagði í sjónvarpinu eitt- hvað á þá leið, að hlutverk forset- ans ætti að vera og væri í reynd stærra en stjórnarskráin kveður á Ég álít, að mikilvægasta hlut- verk forseta okkar höfði til þeirra eiginleika, sem ég finn hjá fram- bjóðandanum mínum en sé ekki fólgið í þeirri skrifstofuvinnu, sem stjórnarskráin felur forseta á hendur. Hver sæmilega læs, skrif- andi og samvizkusamur íslending- ur er fær um að gegna því starfi sómasamléga. Þetta er ekki sagt til að gera lítið út skrifborðsvinnu forseta. Hún er óhjákvæmileg og eðlileg. Og sem betur fer er frambjóðandinn minn meira en sæmilega læs, skrifandi og sam- vizkusamur. En trú mín er sú, að hugsun hans sé svo heiðrík, skýr og frjáls, að ekkert fái tjóðrað hann í klafa stirðnaðs kerfisbákns. Mér finnst, að frá honum sem forseta muni stafa birtu, hlýju og ferskleika. Þessi tilfinning gleður mig. Reyndar gleður mig líka mikið að vita af frábærri þekkingu hans á landi okkar, þjóð og sögu. Meira gleður mig að hlýða á málfar hans, lifandi, kjarngott og óbjagað. En mest gleður mig, að forseta- efnið, sem ég mun með svo góðri samvizku kjósa til forseta 29. júní n.k., hefur góður Guð skapað í líki konu. Slíka konu hefur Guð ekki skapað til að verða karlmanni undirgefin, heldur til að standa karlmanni jafnfætis. Þessi augljósa staðreynd hlýtur að vera öllum fylgjendum jafn- réttis kynjanna mikils virði, eftir að hafa nýlega heyrt, á öldum ljósvakans, einn af embættis- mönnum ríkisins harma, að vald húsbóndans á heimilinu væri ekki lengur skilyrðislaust. Við sem berum gæfu til að koma auga á framúrskarandi hæfileika frambjóðandans míns, skulum þó ekki óttast, að okkur verði lengi núið um nasir að hafa kosið hann í nafni jafnréttisbaráttunnar. Nái hann kosningu, svo sem allar líkur benda til, mun hann sem forseti sanna, að við kusum hann í nafni verðleika hans sjálfs. Sporið, sem Íslendingar hafa þá stigið svo auðveldlega fram í jafnréttisátt, verður á spjöldum sögunnar talin vera fullkomlega eðlileg og farsæl þróun. en öll er og sorgin fer ekki í manngreinarálit. Það verða ein- hverjir ekklar á hverjum degi. Er líklegt að maður á forsetastóli sem yrði fyrir slíkum harmi segði embætti sínu lausu, jafnvel þó hann hefði fyrir kjör talið „nauð- synlegt" fyrir forseta að eiga maka? Það kemst enginn af án þess sem er nauðsynlegt. Þessir menn vita að störf forseta verða ekki unnin nema af honum einum hversu vel sem hann er makaður. Að sjálfsögðu er með þessu verið að vega að hjúskaparstöðu konunnar sem í framboði er, sem er þó alfarið hennar einkamál, með ósmekklegum hætti, en af svo mikilli þröngsýni að væri slík skoðun ríkjandi, væru einhleyp- Leifur Vilhelmsson Leifur Vilhelmsson símvirki: Karlabros í fornsögum okkar er ein besta einkunn, sem manni er gefin, að „hann var drengur góður". Ef ég man rétt, skýrir Snorri Sturluson þetta orðtak svo, að það sé góður maður og vaxandi. Ollum, sem ég hef talað við ber saman um að Guðlaugur sé góður maður. Hitt virðist mér ljóst að hann hefur vaxið með hverju því starfi, sem hann hefur tekið að sér. Verði hann forseti íslands mun hann þó enn vaxa við yl þjóðarinn- ar, sem hann finnur að á bak við hann stendur. Þegar kosið er til forseta horfa mál við með allt öðrum hætti en tíðkast í venjulegum kosningum til alþingis. I þingkosningum ræð- ur hefðbundin flokkaskipting i landinu meiru um úrslit en ágæti þeirra einstaklinga, sem í kjöri eru. Þá lofa menn miklu og úthella hjartablóði sínu í endalausum ræðum og eru ekki ánægðir fyrr en ekki er spjör eftir á andstæð- ingunum og helst ekkert atkvæði heldur. Forsetakosningarnar nú greina sig frá fyrri kosningum með þeirri nýlundu að kona er í fyrsta skipti í kjöri og býður óhikað byrginn þríeinu karlaveldinu, forfrömuðu í embættum, stjórnun, verslun, viðskiptum, stjórnmálum, kjara- deilum, milliríkjasamningum, af- urðasölumálum, fisksölu og ýmsu fleiru, bæði heima og erlendis og svo var að heyra í sjónvarpinu um daginn að þeir vildu helst fá að sinna þessum verkum áfram og eins þó á forsetastóli væri. Og einn þeirra sagði í sjónvarpinu að forsetinn „væri síðasti hlekkurinn í verðmætasköpuninni" og þótti sumum nóg um. Á að sameina þjóðina gegnum afurðasölumálin? Aldrei hefur maður heyrt nú- verandi forseta orðaðan við neitt af þessu tagi, nema hann hefur áreiðanlega einhvern tíma fundið fiskbein, sem notað hefur verið sem verkfæri, eftir að búið var að selja það og éta af því og ekki mundi hann fúlsa við skemmti- legri og fróðlegri útskrift úr versl- un frá því á 17. öld sem mönnum hefði yfirsést eða fyndist fyrir tilviljun. Sjaldan hefur veldi karla og mótun þeirra á samfélaginu komið eins skýrt fram og í þessari kosningabaráttu, áhugasvið þeirra, draumar þeirra, siðfræði þeirra og hvergi betur en í sjón- varpinu. Þannig töldu tveir af þeim þríeinu að „nauðsynlegt" væri fyrir forseta að eiga maka (konu). Það veit enginn sína ævina fyrr ingar í reynd ekki kjörgengir til forsetaemþættisins. Einnig eru hér á ferðinni staðl- aðar hugmyndir karlaveldisins: Kona, hvað ert þú að gera hér, farðu og eldaðu grautinn. Þau tíðindi að kona skuli gefa kost á sér til forseta leiðir hugann að því hvað stjórnmálaflokkarnir eiga afskaplega erfitt með að fá konur, sem eru hæfar að mati okkar karla til trúnaðarstarfa, eins og þingstarfa. Margir töldu að með prófkjörum myndi konum opnast leið til áhrifa á þeim vettvangi, en reynslan varð öll önnur. Þannig féll t.d. mjög fram- bærileg kona í síðasta prófkjöri hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykja- vík, af lítt skiljanlegum ástæðum og er sem annað hafi komið til en venjulegt verðleikamat. Hjá Al- þýðubandalaginu voru nokkrar konur í prófkjöri fyrir síðustu kosningar, fjórar eða fleiri, það bjargaðist, en tæpara mátti það ekki standa. Þá brostu karlar og þótti sýnt að öllu væri óhætt þar sem greinilegt mátti kalla að konur kysu ekki konur, en teldu í þess stað vissara að þeir réðu fyrir málum þeirra og þær síðan bornar lofi fyrir heimilisstörf, fiskvinnu og móðurhlutverk þegar hentar og það bt s hefur raunar staðið allar götur síðan Hvamms-Sturla var lagður hnífi í kinn og sagði í krafti síns herradóms:„ ... Konur kunna með ýmsu móti að teita eftir ástum" — og til dagsins í dag. Það er tímabært að karlmenn standi við þó ekki væri nema lítinn hluta . ' öllum þeim lofsöng um íslensku konuna, sem þeir hafa kyrjað gegnum aldirnar, því nú er tækifærið að standa við öll stóru orðin, allar ástarjátningarnar, há- stemmdar lýsingar skáldanna og gera konu að því andliti landsins er við köllum forseta, konu sem er góður fulltrúi þess besta er við finnum í fari annarra manna, og hefur með ágæti sínu laðað að sér fjöldafylgi sem mun skila henni á forsetastól á Bessastöðum. Halldóra Jóhannsdóttir, verkakona í Hafnarfirði: Alþýðlegan forseta Þegar velja á forseta fyrir íslenska lýðveldið, viljum við, að hann sé alþýðlegur, vel hæfur og umfram allt góður maður. Við, sem alla tíð höfum stundað hin almennu erfiðisvinnustörf, leggj- um áherslu á það, að hann þekki til slíkra starfa, skilji okkur al- þýðufólk, geti sett sig inn í kjör okkar og lífsviðhorf. Við hvert og eitt viljum geta tileinkað okkur þjóðhöfðingjann og að hann geti átt eitthvað í okkur. Heimilin eru sá grunnur, sem þjóðfélagið bygg- ir á, og við viljum að forsetaheim- ilið sé gott heimili og til fyrir- myndar, þar sem húsum ráði góð, samhent hjón. Forsetinn þarf að geta sameinað íslenska þjóð, bæði á góðri stundu og ekki síður, þegar á móti blæs. Halldóra Jóhannsdóttir Það var mér gleðiefni, að Guð- laugur Þorvaldsson skyldi gefa kost á sér til forsetakjörs. Ég treysti honum og hans ágætu konu. Ég hefi aldrei vitað til þess, að hann hafi ekki verið jafn við alla. Hann hefur alist upp við öll algeng störf til sjávar og sveita. Hann hefur hlotið góða menntun og margvíslegur trúnaður hefur honum verið sýndur í þjóðfélaginu og hefur leyst öll sín verk með sóma. Hann hefur ekki ofmetnast heldur ávallt verið sami látlausi og góði drengurinn. Ég er viss um, að hann mun ekki gleyma því fólki, sem vinnur hin daglegu störf verkafólks, fremur en öðrum. í hans góðu eiginleikum getum við öll sameinast. Guðlaugur er mað- ur okkar, alþýðufólksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.