Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980 13 Bjart yfir Hólahátíð Bæ. SkaKafirði. 18. ágúst. EKKI bregst það, að á Hóla- hátíð er gott veður, og svo var það nú, er gestir fjölmenntu heim að Hólum á hina árlegu hátið Hólafélagsins. Öll sæti voru skipuð i dómkirkjunni og mörgum stólum þurfti að koma fyrir aukalega, en áætl- að var að þarna væri a.m.k. 150 manns. Auk fjölmenns kirkjukórs frá Sauðárkróki. sem söng undir stjórn Jóns Björnssonar tónskálds, en einsöng flutti Ragnheiður Óskarsdóttir frá Sauðár- króki. Ellefu skrýddir prest- ar gengu til kirkju ásamt vígslubiskupi. Fyrir altari þjónuðu séra Gunnar Gísla- son prófastur og Sighvatur Emilsson prestur á Ilólum. Eitt barn var skírt við þessa guðsþjónustu. Stólvers var sungið „Heyr himnasmiður“ eftir Tuma Tómasson, en lag- ið er eftir Jón Björnsson tónskáld. Prédikun flutti Örn Ragn- arsson prestur á Raufarhöfn. en altarisþjónustu önnuðust vigslubiskup og prófastur Skagafjarðarsýslu. Eftir messu var kaffihlé, en kl. 4 hófst hátíðardagskrá með ávarpi formanns Hólafélags- ins, sr. Árna Sigurðssonar á Blönduósi. Haukur Guðlaugs- son söngmálastjóri lék einleik á orgel. Þvínæst flutti Pálmi Eitt verkanna á sýningunni. Björn Birnir á Kjarvalsstöðum í VESTURSAL Kjarvalsstaða verður kl. 16 í dag opnuð sýning Björns Birnirs. Á sýningunni eru tæplega 60 verk, — teikningar, kol- og akrílmyndir. Björn hefur áður haldið einkasýningar í Norræna húsinu 1977, Chicago I.V. 1979, Devenport Iowa 1979 og auk þess sýningar víðsvegar um Canada. Björn stundaði nám í Handíða- og Myndlistarskólanum 1949— 1952. Lauk prófi í skreytilist og skiltaferð frá Bergenholtz Dekor- ations fagskole 1955 og prófi í fjarvíddarteiknun, flatarteiknun og rúmteiknun við Indendors Arkitekt Akademied. Árið 1979 lauk hann svo Master of Science prófi við Indiana State University. Sýningin stendur frá 29. ágúst til 10. september og er opin frá kl. 14 til 22 alla dagana. LjáHin. A-S. Á Akureyri er talsverður áhugi rikjandi fyrir sjóskiðaíþróttinni og má oft sjá menn æfa þá iðju á pollinum þegar þannig viðrar. Dómkirkjan að Hólum. Jónsson landbúnaðarráðherra ræðu þar sem hann talaði um margþætt hlutverk Hólafé- lagsins og þátt Hólahátíðar til eflingar Hólum. Þá ræddi hann um Hólastað fyrr og nú, þær framkvæmdir, sem verið væri að gera á Hólum og þær vonir, sem bundnar væru við þær. Stefnt væri að því að hefja reglulegt skólahald að nýju haustið 1981, en á kom- andi vetri yrði námskeið eins og verið hefði sl. vetur. Talaði hann einnig um vonir manna um framtíð Hóla. Næst söng Guðrún Tómas- dóttir einsöng með undirleik Hauks Guðlaugssonar. Síðan flutti sr. Sigurpáll Óskarsson bæn, en formaður Hólafélags sleit samkomunni. Á Hólum standa nú yfir miklar framkvæmdir. Unnið er að gagngerum endurbótum á skólahúsnæðinu að utan en að innan er ráðgert að hefja viðgerðir á næsta ári. Byrjað er á hitaveitu frá Reykjum að Hólum, brú á að setja á Hjaltadalsá nálægt laxeldis- stöðinni, sem Hólalax er að byggja. Er það mannvirki jafnvel á undan áætlun bygg- ingartíma. Verið er að byggja fyrsta hluta hesthúss og til stendur að laga og endurbæta starfsmannabústaði. Þeir, sem unna Hólastað, gleðjast og vona að senn verði þar glæsilegur rekstur á skóla og fleiri framkvæmdir. Björn í Bæ. AUCLÝSINCASTOFA MYNDAMÓTAHF Bestu kaupin! heimilistæki frá Noregi Viö fengum takmarkaö magn af þessum stór- glæsilegu eldavélum á þessu einstaklega hag- stæöa verði kr. 520.400.- PA 460 eldavélinni fylgir vifta fyrir annaö hvort út- blástur eöa kolasíu. (Verö á kolasíu sérstakt.) Digital klukka er í viftunni. PA 460 eldavélin er meö 4 hellum. Aövörunarljós fyrir hverja hellu. 2 fullkomnir ofnar. Sjálfhreinsandi ofn aö ofan, búin rafdrifnum grilltein. Stór ofn aö neö- an, sem einnig má baka og steikja í. Öryggislæsing á ofnhurð. PA 460 eldavélarnar fást í karry gulu, avocado grænu og svörtu. Tryggöu þér vél strax í dag á þessu einstaklega hagstæöa veröi. Takmark- að magn. Eigum einnig kæliskápa, frystiskápa, uppþvottavél- ar og frystikistur á hag- stæðu verði. PA 460 mál: 60x60x85—90 sm. E _ EINAR FARESTVEIT S. CO HF. BERGSTAÐASTRÆTI I0A • SIMl 16995 Árs ábyrgð Greiðslu- skilmálar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.