Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980
31
Dagur frímerkisins og
frímerkjasýning í nóvember
Ný frímerki 16. október nk.
Póst- og símamálastofnunin hefur nýlega sent út tilkynningu um
þrjú ný frímerki, sem út eiga að koma 16. október. Eru þau að
verðgildi 160, 170 og 190 kr. og með myndum af karfa, lunda og
landscl. Hefur Þröstur Magnússon teiknað merkin, en þau eru
djúpprentuð í Frakklandi. Merkin eru af sömu stærð og dýramerkin
frá í fyrra með íslenzka hundinum og refnum. Enda þótt þau merki
séu vel gerð, hef ég orðið var við, að margur álítur þau of lítil. Telja
menn, að mjög heppileg stærð á frímerkjum sé einmitt sú, sem valjn
var á Norðurlandamerkin frá 9. þ.m. Þessari ábendingu er hér með
komið á framfæri við íslenzku póststjórnina.
Um þessar mundir fara frí-
merkjasafnarar að huga að
merkjum sínum og söfnum eftir
sumarlanga hvíld. Og þá er
eðlilegt, að þáttur sem þessi fari
einnig á kreik í einhverri mynd.
Mun ég enn annast þáttinn, en
ætla þó eins og í fyrra að slá
þann varnagla um birtingu hans
hér í blaðinu, að þar verði bæði
tími og efni að ráða ferðinni. Um
hið siðara þarf vissulega aldrei
að kvarta, því að nægt efni er
oftast á reiðum höndum. Hins
vegar getur tímaleysi á stundum
orðið til trafala. Hvað sem þessu
öllu líður, verður reynt að fylgja
þeirri venju, sem skapazt hefur,
að birta þáttinn á laugardögum
eða sunnudögum. Ræðst þetta af
rými því, sem fæst í blaðinu. Því
miður reyndist stundum svo í
fyrra, að rúm fannst ekki fyrir
þáttinn, þegar til átti að taka, og
þá kom fyrir, að hann varð að
bíða um viku eða svo. Þar sem
mér var tjáð af hönnuðum blaðs-
ins, að þetta hafi á stundum
stafað af því, hversu margorður
ég var hefur mér dottið í hug að
breyta um aðferð og freista þess
að hafa hvern þátt ívið styttri en
venja hefur verið. Á þann hátt
ættu þættirnir að komast að á
tilætluðum tíma. En við þessa
breytingu er einnig hugsanlegt,
að þættirnir birtist þéttar og
jafnvel að stöku sinnum yrði að
skipta umræðuefni milli þátta.
Ekkert af þessu ætti að koma að
sök fyrir lesendur þáttanna.
Frimerki
eftir JÓN AÐAL-
STEIN JÓNSSON
Fyrsti fundur
Félags frí-
merkjasafnara
var haldinn 18. þ.m. í Álftamýr-
arskóla, en þar er orðinn fastur
fundarstaður félagsins. Verða
fundir mánaðarlega og yfirleitt
siðasta fimmtudag í mánuði
hverjum. Nú var fundur haldinn
viku fyrr en venja hefur verið,
enda margt fram undan hjá
frímerkjasöfnurum og því þörf
að byrja snemma á þessu hausti.
Á þessum fyrsta fundi var
nokkuð rætt um hugsanlega hóp-
ferð á alþjóðasýninguna VIPA
81, sem verður haldin í Vínar-
borg dagana 22. til 31. maí á
næsta ári. Hefur þó nokkur
áhugi þegar komið fram um
þessa ferð, enda margt að sjá og
heyra auk frímerkjasýningar-
innar í þeirri fögru borg við
Dóná að sögn kunnugra. Um
þetta verða félagar í F.F. og
aðrir, sem hug hafa á að fara
þessa för, látnir vita nánar fyrir
næsta fund félagsins í október.
Nú er ákveðið að halda frí-
merkjasýningu, FRÍM 80, í sam-
bandi við Dag frímerkisins, sem
verður 10. nóvember nk. Verður
hún á Kjarvalsstöðum dagana
6,—10. nóv. Ætlunin með frí-
merkjasýningu á sama tíma og
Dagur frímerkisins verður hald-
inn er sú að reyna að lyfta
deginum upp úr þeim öldudal,
sem hann hefur verið í undan-
farin ár. Um það eru allir
frímerkjasafnarar sammála. Og
nú er einmitt sérstakt tækifæri
til að minna á þennan dag, þar
sem Dagur frímerkisins hefur
verið haldinn hér á landi um 20
ára skeið — eða allar götur siðan
1960 og frá 1961 með sérstimpli,
sem póststjórnin hefur látið
útbúa og notað þennan eina dag
á ári.
FRÍM 80 verður einvörðungu
kynningarsýning, þar sem söfn-
urum gefst tækifæri til að sýna
margs konar efni, sem þeir eiga í
fórum sínum, án þess að setja
það undir mæliker dómenda,
sem fara eftir ákveðnum reglum
og oft ströngum um uppsetningu
og gæði. Hér verður það almenn-
ingur sem dæmir eftir eigin
smekk og áhuga, og lærir von-
andi um leið á hvern hátt má
safna frímerkjum til ánægju og
dægrastyttingar.
Á FRIM 80 verður eins manns
minnzt alveg sérstaklega, Sig-
urðar Ágústssonar. Að öllum
öðrum félögum F.F. ólöstuðum
vann hann einna mest og bezt
við Dag frímerkisins frá upphafi
og til dauðadags 1979. Hluti úr
hinu mikla safni Sigurðar af
skátafrímerkjum verður vænt-
anlega sýndur, en hann gekk
ungur að árum í skátahreyfing-
una. Trúlega verður ýmislegt
annað úr söfnum hans sýnt á
Kjarvalsstöðum.
Á FRÍM 80 fá sýningargestir
einnig að kynnast starfi F.F. á
liðnum árum og sýndir verða
margvíslegir munir úr eigu fé-
lagsins, svo sem útgáfudags-
umslög þess frá upphafi. Á sama
hátt verður starfsemi Lands-
sambands íslenzkra frímerkja-
safnara einnig kynnt.
Þá er ætlunin, að fyrirlestrar
verði fluttir á hverju kvöldi um
frímerki og frímerkjasöfnun og
til þess fengnir sérfróðir menn.
F.F. heldur frímerkjauppboð
viku eftir að sýningunni lýkur.
Verður uppboðsefnið að ein-
hverju leyti haft á sýningunni,
svo að menn geti kynnt sér það.
Ýmislegt fleira en hér hefur
verið rakið verður gert í samb.
við FRÍM 80, en sýningunni er
ætlað að vekja áhuga á frímerkj-
um og söfnun þeirra. Síðar
verður sagt nánar frá þessu öllu,
þegar nær dregur Degi frímerk-
isins.
Hjartans þakkir til allra
sem heiöruöu mig meö
heimsóknum, gjöfum, skeyt-
um og simtölum á 75 ára
afmœlinu minu 21. sept-
ember sl.
Guð veri með ykkur öllum.
Sigurður Tómasson,
Grundarbraut 11,
Ólafsvík.
Ég þakka öllum vinum mínum fjær og nær, sem
glöddu mig með gjöfum, skeytum og heimsóknum
á 60 ára afmælisdegi mínum þann 10. september
sl. Lifið heil.
Guðjón Hólm.
Af alhug þakka ég öllum þeim, sem gerðu mér 75 ára
afmœlisdaginn 20. ágúst sl. ánœgjulegan og eftirminni-
legan, með heimsóknum, gjöfum, skeytum og á annan
hátt.
Kærar kveðjur.
Jónas Sólmundsson.
BALLETTSKÓLI
EDDU
SCHEVING
Skúlagötu 34.
Síðustu innritunardagar í síma 76350 kl. 2—5 e.h.
Afhending skírteina í skólanum þriðjudaginn 30.
september kl. 5—7 e.h.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
MEDINA raðskáparnir eru nýjasta
framleiðsla okkar. Glæsilegir
raðskápar sem við erum stoltir af.
Það verður þú líka eftir að hafa
eignast MEDINA.
MEDINA fæst með hinum hag-
stæðu greiðslukjörum okkar.
KRISTJÓn
SIGGEIRSSOn Hfi
LAUGAVEGl 13.
SMIOJUSTIG 6, SIMI 25870
Útsölustaðir:
Reykjavík: Hallarmúli sf., Jón Loftsson hf • Akureyri: Augsýn hf., örkin hans Nóa
• Akranes: Verslunin Bjarg hf • Blönduós Trésmiðjan Fróði hf • Borgarnes:
Verslunin Stjarnan • Bolungarvík: Verslunin Virkinn • Hafnarfjöröur Nýform •
Húsavík: Hlynur sf • Keflavík Duus# Kópavogur: Skeifa hf • Neskaupstaður:
Húsgagnaverslun Höskuldar Stefánssonar • Ölafsfjörður: Verslunin Valberg hf •
ólafsvík: Verslunin Kassinn • Sauöárkrókur: Húsgagnaverslun Sauöárkróks^
Selfoss: Kjörhúsgögn • Siglufjöröur Bólsturgerðin • Vestmannaeyjar
Húsgagnaverslun Marínós Guðmundssonar • Patreksfjöröur: Húsgagnaverslun
Patreksfjaröar • Stykkishólmur: J.L húsiö • Hornafjörður: Húsgagnaverslun
J.S.G. •
rig óska eftir aö fá sent MEDINA litmyndablaðið
| Nafn: ________________________________________________________
| Heimili: _____________________________________________________
. Staður:_______________________________________________________
| Sendist til: Kristján Siggeirsson h f.Laugavegi 13.101 Reykjavík