Morgunblaðið - 10.12.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.12.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MÍÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1980 23 Minning: Gunnar Theódór Gunnarsson Fæddur 30. júlí 1954. Dáinn 10. nóvember 1980. Við verðum víst að trúa því, að allir hlutir hafi sinn tilgang í lífinu, þó svo erfitt sé að sjá það í fljótu bragði. Hvernig ættum við annars að skilja það, þegar ungur maður er hrifinn á brott frá ungri konu og tveim ungum sonum, þegar þau enj rétt að hefja lífsstarf sitt? Þessar hugsanir fara í gegnum hug minn, þegar ég sezt niður, til þess að skrifa örfáar línur til minningar um mág minn, Gunnar Theódór Gunnarsson, en foreldrar hans eru þau hjónin Jóhanna Magnúsdóttir og Gunnar Theó- dórsson. Gunnar lézt af völdum hörmu- legs slyss í nágrenni Bremerhaven í Þýzkalandi þann 10. nóv. sl., þar sem hann hafði nýlega hafið störf, en þau Gunnar og Steinunn Frið- geirsdóttir, kona hans, höfðu flutt þangað í júlí sl. með synina tvo, þá Friðgeir Örn, 5 ára, og Gunnar Magnús, 2ja ára, m.a. til þess að Gunnar Magnús litli fengi þá beztu aðstoð og þjálfun, sem hægt væri að fá vegna veikinda hans, en aldrei hafa þau Gunni og Steina borið þá erfiðleika sína á torg. Talsvert áræði þarf til að taka sig upp og flytja til annars lands, en Gunnar var alla tíð glaðsinna og bjartsýnn á lífið og tilveruna og opinn fyrir því, sem í kringum hann var. Hann var því fljótur að samlagast lífsháttum í hinum nýju heimkynnum og ég veit að hann hefur með glaðværð sinni stutt eiginkonu sína, sem hefur þurft að vera mikið ein vegna hins langa vinnudags hans. En því hefur hún eflaust einnig verið vön hér heima, þar sem Gunnar starf- aði sem lögregluþjónn, þótt það sé ekki sambærilegt við það, að búa í fjarlægu lándi fjarri öllum ætt- ingjum og vinum. En dvölin ytra verður ekki lengri að þessu sinni, og nú eru drengirnir ungu komnir heim í fylgd föðurömmu og afa og föður- systur, sem hafa átt erfiða daga að undanförnu. Steina liggur enn- þá mikið slösuð á sjúkrahúsi í Bremerhaven, en er þó á góðum batavegi, en hún er ekki ein því hjá henni er systir hennar, María, sem fór utan til þess að vera hjá Sverrir Svendsen — Minningarorð í dag er kvaddur hinstu kveðju góður vinur og samstarfsmaður, Sverrir Svendsen, tjónaeftirlits- maður. Sverrir var fæddur í Reykjavík 9. nóvember 1915, sonur hjónanna Friðlínar Þórðardóttur og Carls Svendson. í móðurætt var Sverrir af ætt Gríms bónda Steinólfsson- ar á Grímsstöðum í Reykholtsdal, en faðir hans var sænskur. Sverrir stundaði ungur sjó- mennsku en tók síðar að starfa við bifreiðaviðgerðir og réttingar. Stofnaði hann ásamt fleirum fyrirtækið Bílaiðjuna og við það fyrirtæki starfaði hann þar til árið 1960 að hann réðst til Al- mennra Trygginga hf. sem tjóna- eftirlitsmaður. Þar starfaði hann til dauðadags. Mörg síðustu árin var það starf hans að fara yfir alla reikninga sem bárust vegna tjóna á bifreið- um og það starf rækti hann af frábærri trúmennsku og sam- viskusemi. Sverrir hafði öðlast mikla reynslu í bifreiðaréttingum þegar hann hóf störf hjá Almenn- um Tryggingum og naut mikillar viðurkenningar meðal starfsfé- laga á þeim vettvangi. Þeir vissu líka að Sverrir var þann veg gerður að hann vildi ekki ganga á rétt nokkurs manns og þess vegna naut hann virðingar og trausts í erfiðu starfi. Minningar okkar samstarfs- manna um Sverri eru eðlilega fyrst og fremst bundnar samver- unni á vinnustað. Þar var Sverrir hinn prúði og trausti félagi, sem vildi leysa vanda hvers manns. Hann var dulur maður sem ekki flíkaði tilfinningum sínum en naut sín vel í góðra vina hópi. Þá greip hann stundum til fiðlunnar, því Sverrir var listfengur maður, sem allt lék í höndunum á, og hann hafði mikið yndi af hljóm- list. Hann málaði líka og teiknaði og gladdi okkur oft með list sinni á því sviði. Um það vitna nú myndirnar hans sem prýða veggi á vinnustaðnum. Sverrir var kvænt- ur Kristínu Steinsdóttur. Eignuð- ust þau eina dóttur, Ernu, en urðu fyrir þeirri miklu sorg að missa hana barn að aldri. Fráfall Sverris bar snöggt að. Fæst okkar vissum að hann hafði kennt sér þess meins sem varð honum að fjörtjóni. Það var hins vegar táknrænt fyrir samviskusemi Sverris að það vakti athygli þegar hann treysti sér ekki til þess að mæta til vinnu þann 1. desember sl. Að morgni þess dags hafði hann samband við samstarfsmenn sína til þess að ráðgast við þá um verkefni dags- ins en að kvöldi var hann allur. Starfsfólk Almennra Trygginga sendir eiginkonu hans og öðrum ættingjum innilegar samúðar- kveðjur. Það var gott að þekkja Sverri Svendsen. Blessuð sé minning hans. ólafur B. Thors. + Öllum þeim tjölmörgu sem sýndu okkur samúö viö andlát og jaröarför, MARGRÉTAR GUÐNÝJAR TRYGGVADÓTTUR, þökkum viö af alhug. Aöalsteinn Halldórsson, Þórhallur Aöalsteinsson, Svanhildur Þorleifsdóttir, Margrét Þórhallsdóttir, Elín Þórhallsdóttir, Ríkaröur Þórhallsson. Slitur úr sjöorðabók — ný ljóðabók Jóhanns S. Hannessonar systur sinni í erfiðleikum hennar. Gunnar hvílir hinsvegar í kirkju- garðinum í Bederkesa, smábæ í nágrenni Bremerhaven, þar sem þau áttu heimili. Gunnar var jarðsettur þann 21. nóv. sl. Megi Guð gefa drengjunum þá gjöf að Steinunn komist heim fyrir jól, því jafnvel þó þeir séu í góðum höndum hjá ömmu og afa, þá er missir þeirra mikill og móðurástin það sem þeir þarfnast mest, og við þig, Steina mín, get ég aðeins sagt; í drengjunum þínum felst styrkur þinn til þess að mæta áföllum lífsins, því í þeim átt þú minninguna um góðan dreng, sem aldrei gleymist. Stefán Bergsson BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlyg- ur hf. hefur sent frá sér ljóðabók- ina Slitur úr sjöorðabók eftir Jóhann S. Ilannesson. Er þetta önnur ljciðabók höfundar. Hin fyrri, Ferilorð, kom út hjá AI- menna bókafélaginu árið 1977. Höfundur skiptir hinni nýju bók í fimm kafla, ep í bókinni eru alls 28 ljóð, orkt á síðustu fjórum árum. Dregur bókin nafn sitt af síðasta ljóði bókarinnar. Slitur úr sjöorðabók er sett, umbrotin, filmuunnin og prentuð í Prentstofu G. Benediktssonar, en Arnarfell hf. annaðist bókband. Kápu bókarinnar hannaði Sigur- þór Jakobsson. í MORGUNBLAÐINU 1 gær birtist frétt um nýja bók og var fréttin svo brengluð, að ásta'ða er til að birta hana i heild aftur: Bókaútgáfan Þjoðsaga hefur gef- ið út bókina „Starfsrækt“ eftir indverska spekinginn Svami Vive- kananda. Þýðendur eru Jón Thor- oddscn og Þórbergur Þórðarson. Bókin Starfsrækt, eða Karma- Yoga, eru átta fyrirlestrar Svami Vivekananda og fyrir útgáfunni er stuttur inngangur um hann eftir Þórberg Þórðarson þar sem segir m.a.: „Vivekananda er spekingur að viti, afburða ræðuskörungur og ritsnill- ingur. Hann hefur ritað fjölda bóka um yoga og indverska heimspeki. Vivekananda andaðist árið 1902, harmaður um Indland þvert og endilangt, enda var hann talinn sannheilagur maður." Bókin er 98 blaðsíður að stærð, prentuð í Prenthúsinu sf. Starfsrækt eftir Svami Vivekananda Einrttvel, margar letu rgerói r Það er ekki lengur spurning um hvaða rafritvél þú velur, heldur hvernig letur þú velur í IBM kúluritvélina. IBM kúluritvélin hefur marga kosti umfram aðrar rafritvélar. Einn er að geta skipt um letur. Með einu handtaki má skipta um leturkúlu og fá þannig annað letur, sem kemur að góðum notum við sérstakar bréfa- skriftir, skýrslugerðir og textaskrif. Nú bjóða SKRIFSTOFUVÉLAR h/f upp á fjórðu leturgerðina í IBM kúluritvélar. Sú nýja nefnist Courier 10 og bætist þar með í hóp Advocate, Courier 12 og Scribe, sem þegar eru til með íslenska stafrófinu. Biðjið um letursýnishorn. ^ + ^ Hverfisgötu 33 HVERFISGATA 20560 Við byggjum upp framtíð fyrirtækis þíns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.