Morgunblaðið - 24.12.1980, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.12.1980, Blaðsíða 10
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1980 Kotstrandarkirkia 70 ára Nýlega var haldinn safnaðar- fundur í Kotstrandarsókn, og lagðir fram reikningar fyrir árið 1979. A síðast liðnu ári voru liðin 70 ár frá því að kirkja var reist á Kotströnd. Safnaðarfólkið stendur í ómetanlegri þakkarskuld við þá framtakssömu menn í Ölfusi, sem fyrir 70 árum völdu þennan fagra stað fyrir kirkjustað. Biessuð sé minning þeirra. í ársbyrjun 1909 voru sameinað- ir Arnarbælis- og Reykjasóknir í Ölfusi, og ákveðið að byggja eina kirkju miðsvæðis í sveitinni. Reykjakirkja hafði fokið af grunni 27. nóv. 1908. Voru báðar kirkj- urnar að Reykjum og Arnarbæli rifnar og efni þeirra notað í hina nýju kirkju að hluta. Byrjað var á kirkjubyggingunni um vorið 1909 og kirkjan vígð fullbúin 14. nóv. sama ár. Mikið var unnið í sjálf- boðaliðsvinnu, en byggingarmeist- ari var Samúel Jónsson, faðir Guðjóns húsameistara ríkisins. Lengst hefur þjónað við kirkj- una sr. Ólafur Magnússon prófast- ur í Arnarbæli, en hann þjónaði prestakallinu frá 1903—1940, sr. Helgi Sveinsson frá 1940—1964, sr. Sigurður K.G. Sigurðsson frá 1964—1968, sr. Ingþór Indriðason frá 1968—1970, en þá tók við núverandi prestur sr. Tómas Guð- mundsson. Organisti við kirkjuna hefu lengst verið Luise Ólafsdóttir frá Arnarbæli alls í 60 ár. Núver- andi organisti er Ragnheiður Busk. I kirkjukórnum er fólk bæði úr Ölfusi og Hveragerði, og starf- ar hann bæði fyrir Hveragerðis- kirkju og Kotstrandarkirkju. Söngstjóri er Anna Jórunn Stef- ánsdóttir. Fyrir þremur árum tóku 3 konur að sér meðhjálpara- starfið í kirkjunni, og gegna þær því til skiptis. Við hátíðamessuna predikaði biskupinn, hr. Sigurbjörn Einars- son, en sóknarpresturinn annaðist altarisþjónustu. Að messu lokinni 'var öllum kirkjugestum boðið í Félagsheimili Ölfusinga til kaffi- drykkju og afmælisfagnaðar. Undirbúning allan hafði safnaðar- fólk sameinast um. Þar flutti Þórður Jóhannsson kennari sögu Kotstrandarkikju, og var gerður góður rómur þar að. Einnig var þar kórsöngur, fluttar margar ræður og almennur söngur. Þótti þessi afmælisfagnaður takast mjög vel. Á þessu sjötugasta ári kirkj- unnar hafa margir minnst henn- ar, og hafa henni borist margvís- legar gjafir. Kvenfélagið Bergþóra í Ölfusi gaf altarisklæði og lét nýja upp gamlan mjög vandaðan hökul, einnig gaf kvenfél. 2 við- hafnarstóla og áklæði á knébeð. Kirkjukórinn gaf 100.000,- kr. í gólfteppi á kirkjuloft. Organistinn Ragnheiður Busk gaf alla sína vinnu fyrir kirkjuna frá 1. maí — til ársloka, en það var hennar fyrsta starfstímabil. Ragnheiður Runólfsdóttir og Þorlákur Sveinsson á Sandhól gáfu kirkjunni stóran og vandað- an íslenzkan fána. Frá fjölskyldunum Laufskógum 7, Hveragerði fékk kirkjan falleg- an silfurkertastjaka, til minn- ingar um Jón Sverri Árnason og Tryggvinu Margréti Friðvinsdótt- ur. Minningargjöf að upph. 100.000 kr. frá Magnúsínu Grímsdóttur og Helgu Sigurjónsdóttur Hvera- gerði, til minningar um Sigurjón Júlíusson. Frá Bjarnþrúði Magnúsdóttur Rvík. 200.000 kr. til minningar um mann hennar Þorbjörn Sigurðsson f. 20. maí 1900 að Holti i Arnar- bælishverfi og foreldra hans Sig- urð Þorbjörnsson og Ingigerði Björnsdóttur sem lengi bjuggu að Króki í Arnarbælishverfi, einnig foreldra hennar Magnús Magnús- son og Vigdísi Steindórsdóttur, en þau báru ætíð hlýjan hug til þessa staðar. Öll heimili í sókninni gáfu rausnarlega til hlutaveltu og happdrættis, er efnt var til fyrir kirkjuna og nam ágóðinn þar af kr. 1.050.400., frá forstj. Gísla Sigurbjörnssyni bárust kr. 250.000., frá Sólveigu Sigurðard. Gerðakoti kr. 10.000., frá Margréti Jónsdóttur Hverag. 30.000., frá Elínu og Gíslínu frá Reykjakoti 40.000., frá Lúise Ólafsd. frá Arn- arbæli 10.000., frá Þjóðbjörgu Jó- hannsd. á Grund 5.000., frá Guð- ríði Jónsd. Rvík 5.000., frá N.N. 5.000., frá N.N. 13.000., frá Ölfus- hrepp í tilefni 70 ára afmælis kirkjunnar kr. 300.000. Allar þessar peningagjafir voru gefnar án nokkurs skilmála af hendi gefenda, og hefur sóknar- nefnd ráðstafað þeim til þeirra hluta er kirkjunni mega verða til mestra nota. Á árinu 1978 gaf Jónas Sól- mundsson húsgagnasmíðameist- ari, Rvík., forkunnarfagran út- skorinn söfnunarbauk. Árið 1979 veitti Búnaðarsam- band Suðurlands Kotstrandar- kirkju mjög fagran silfurblóma- vasa áletraðan fyrir snyrtilega umgengni á kirkju og kirkjustað. Þessi verðlaunagripur var afhent- ur í júní sl. Á síðast liðnu sumri gaf Hall- dóra Þórðardóttir og börn hennar 140.000 kr. til minningar um Kristján Eysteinsson bónda á Hjarðarbóli í Ölfusi, en hann var fæddur 29. júlí 1910. í sept. síðast liðinn barst kirkj- unni 100.000. kr. frá Gísla Sigur- björnssyni forstj. til minningar um Björn Jónasson bónda á Völl- um í Ölfusi fyrir dygga og góða þjónustu um áraraðir við Dvalar- heimilið Ás, Hverag. Fyrir allar þessar góðu gjafir viljum við þakka, og hugsum til gefendanna nú á jólaföstunni og hugleiðum hinn forna boðskap friðar, frelsis og mannkærleika. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og farsælt nýtt ár. Fyrir hönd Kotstrandar- safnaðar Sóknarnefnd Kotstrandar- kirkju: Unnur Benediktsdóttir form., Þorlákur Gunnarsson gjald- keri, Ólafur Guðmundsson ritari. EF SVO skyldi vilja til að einhverjir lesenda eigi stund lausa um jólin fá þeir hér nokkrar skák- þrautir til þess að drepa tímann. Þrautirnar eru alls sjö og ætti engin þeirra að vefjast mjög lengi fyrir neinum. Ilin- ar fyrstu fjórar eru úr endatöflum og því lítið lið á borðinu, en í hinum þremur á hvítur leik og mátar í tveimur leikjum. í tveggja leikja þrautunum er það venjulega svo að þegar lausnarleikurinn er fundinn er dæmið leyst, en í endatafls- þrautum er það ekki eingöngu fyrsti leikurinn heldur þarf að finna beztu sókn og vörn til þess að dæmið sé rétt leyst af hendi. Hvitur er á leið upp borðið í öllum dæmunum. 1. G. Nadareishvili 1951. J ólaskákþr aut ir Ilvítur leikur og heldur jafntefli. Svo sem sjá má koma aðins tveir leikir til greina hér, Bbl og Bc4. Samkvæmt framansögðu er ekki nægilegt að útiloka annan þeirra, heldur finna rétta leikja- röð. 2. A. Votava 1940. 5. V. Lieder, 1976. Hvítur leikur og heldur jafntefli Þetta er erfiðasta þrautin aí endataflsdæmunum. Kasparjan er nú líklega frægasti skák- dæmahöfundur í Sovétríkjunum, en þar eru oft haldnar sam- keppnir í skákdæmagerð. Hér á landi hefur Kasparjan stundum verið ruglað saman við G. Kasp- arov, hinn unga og upprennandi stórmeistara. Hvítur leikur og vinnur. Hvítur mátar í tveimur leikjum. skemmtun og gleðileg jól. Skemmtanir í Siglufirði SKEMMTANIR í Siglufirði um hátíðarnar verða sem hér segir: Siglufjarðarbíó: Koma, sýnd 2. jóladag, Dick Harry beitir hörku, sýnd á nýársdag. Hótel Höfn: Rotary og Kiwanis með barna- og unglingadansleik klukkan 17 á 2. í jólum, almennur dansleikur um kvöldið. Björgun- arsveitin er með dansleik að kvöldi 3. í jólum og Lions með barnadansleik 4. í jólum. Á gaml- ársdag er venjulegur nýársfagn- aður. 483 milljónir í uppsteypu kjallara Borgarleikhúss TILBOÐ voru opnuð í uppsteypu kjallara Borgarleikhúss 17. nóv- ember síðastliðinn. Lægsta tilboð- ið var frá Sveinbirni Sigurðssyni og var það upp á röskar 483 milljónir króna. Kostnaðaráætlun hönnuða nam tæplega 550 milljón- um króna. Níu fyrirtæki buðu í verkið og var hæsta tilboð upp á tæplega 588 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.