Morgunblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981 ÓVEÐRIÐ OG AFLEIÐINGAR ÞESS Smiðir uppá þaki eins raðhússins við Ásgarð. beir sögðust þegar vera búnir að kaupa efni í viðgerðina fyrir u.þ.b. hálfa milljón gamalla króna. í baksýn er Lög- reglublokkin svonefnda við Ásgarð, en nær allar þakplötur þeirrar blokkar fuku i óveðrinu. — Ljósm. K.Ö.E. „Óhjákvæmi- legt að stjórn- völd grípi til sérstakra ráðstafana“ bíla sem hafa stórskemmst, og ég reikna með að meðaltjón sé svipað og það sem ég varð fyrir sjálfur, eða um tvær milljónir gamalla króna. — Ég reyndi að komast hingað uppeftir um kvöldmatarleytið í fyrrakvöld, sagði Sigurður Ingi, en varð að snúa við. Ég komst hrein- lega ekki inní götuna. Og ég vissi af einum hérna í nágrenninu, sem sat af sér óveðrið inni í bifreið sinni og þorði sig hvergi að hræra, nötrandi af hræðslu. — Ég bý við Engihjallann, sagði Sigtryggur, og þegar við íbúarnir höfðum barist út að bílunum.uppúr kvöldmatarleytinu í gærkvöldi — ætluðum að færa þá til — þá urðu allt upp í tíu manns að sitja í bílunum og hanga á þeim, svo þá tæki ekki á loft. Við sátum fimm í mínum bíl, meðan við færðum hann, og tveir héngu utan á. Svo strengdum við kaðal milli húsa til að komast að bílunum, og fyrir rest skriðum við — það var ekki um annað að ræða. í rauninni var stórhættulegt að vera utandyra. Bílar fuku, hús nötruðu og' rúður brustu! FJÖLDI landsmanna var utan- dyra, að iagfæra hús sín og athuga skemmdir á bílum o.s.frv., er Morgunblaðsmenn óku um höf- uðborgarsvæðið í gærdag. Mest var tjónið að öllum likindum að Engihjalla i Kópavogi þar sem varð miiljarða (gkr.) tjón á öku- tækjum. Bilar tókust á loft og fuku, svo skipti tugum metra, bílaraðir klesstust saman, þak- plötur losnuðu mjög viða og nokk- uð var um rúðubrot. Húsmæður að Engihjalla í Kópa- vogi sögðust hafa átt vægast sagt hörmulega nótt. Stórar íbúða- blokkir standa við Engihjalla, og í austari endum þeirra hélst fólkið ekki við og flýði í vestari hlutann. Það hvein í öllu og rúður svignuðu, húsin nötruðu og skulfu, jafnvel á neðstu hæðum. — Það varð engum svefnsamt í Engihjallanum, meðan versta veðrið gekk yfir, sagði ung kona við blm. Mbl. Fólk var ekki beinlínis hrætt, það gerði sér grein fyrir hættunni, og hegðaði sér mjög skynsamlega. Það greip ekki um sig nein skelfing. Allir voru rólegir. Utandyra var ekki stætt, bílar tókust á loft. Sjónarvottur fullyrti í samtali við Morgunblaðið, að næst- um hefði verið hægt að ganga undir suma bílana, sem feyktust um á bílastæðinu milli Engihjalla 18 og 25. Að Engihjalla 25 hitti blm. þá Sigurð Inga Ólafsson, tæknifræðing og Sigtrygg Jónsson Sigtryggur Jónsson, SigurAur Ingi Olafsson og vinnupallar í hrúgu. - Ljósm. K.Ö.E. framkvæmdastjóra hjá Byggingar- samvinnufélagi Kópavogs, sem er að reisa stórt fjölbýlishús að Engi- hjalla 25. Þaðan höfðu fokið vinnu- pallar, stórir og þungir, langar leiðir. Fjöldi þeirra eyðilagðist og margir vinnupallar stórskemmdu bifreiðir á bílastæðinu milli Engi- hjalla 18 og 25. Eftir því sem Sigtryggur sagði, munu trygg- ingarfélög ekki greiða eigendum þeirra bíla bætur, sem vinnupall- arnir eyðilögðu, vegna þess að þeir fuku í óveðri. — Það er mjög lítið sem fólkið getur fengið í bóta- greiðslur, sagði Sigtryggur, sem og við í Byggingarsamvinnufélaginu nema stjórnvöld grípi til sérstakra ráðstafana, sem hlýtur að vera óhjákvæmilegt. Hér á þessu bíla- stæði er vitað um að a.m.k. þrjátíu Þannig var umhorfs við Engihjalla i Kópavogi i gærmorgun er fólk vakn aði til vinnu. — Ljósm. Rax. Það er varla ofsagt, að þakplötur hafi fokið af þriðja hverju húsi við Ásgarð í Reykjavík, þar sem Mbl.menn hittu fyrir smiði uppi á þaki eins raðhúsanna. Nær allt þak lögreglublokkarinnar svokölluðu við Ásgarð var farið og plöturnar lágu sumstaðar eins og hráviði. Stofugluggar höfðu brotnað í sum- um húsanna og fólkið bjóst ekki við neinum bótagreiðslum, nema ríkis- stjórnin gripi til sérstakra ráðstaf- ana. í nýjum húsakynnum Prentsmiðjunnar Eddu við Smiðju- veg hafði orðið milljónatjón og smiðir voru þar að störfum. í byggingavöruverslunum og glersölum á höfuðborgarsvæðinu var nánast örtröð í allan gærdag og héldu verslunarmenn, að öll kurl væru ekki komin til grafar, því margir vildu áreiðanlega ekki fara í nema bráðabirgðaviðgerðir, með- an óljóst væri um bótagreiðslur. Þaksaumur, þakpappír, plastdúkar, bárujárn, báruplast og hvaðeina sem þarf til lagfæringar á þökum seldist næstum upp í mörgum verslunum, og glersalar afgreiddu gler í gær, eins og þeir gátu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.