Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981 5 „Útnesjamenn“ kolkritarmynd eftir Jóhannes S. Kjarval. bessa mynd gáfu börn þeirra Grethe og Ragnars Kjarvalsstöðum árið 1973. Nú hefur verið gert við myndina. sem var fremur illa farin, og verður hún sýnd i fyrsta sinn á þessari sýningu. „Úr fórum Grethe og Ragnars Ásgeirssonar44 Sýning á merku einkasafni að Kjarvalsstöðum sendibréf þeirra bera ljósan vott um. Elzta myndin á sýningunni er radering eftir Rembrandt, sem Grethe kom með í búið frá foreldrum sínum í Danmörku. Elztu íslenzku verkin eru eftir Asgrím Jónsson, lítið olíumál- verk málað í Borgarfirði 1904 sem Einar Jónsson gaf Ragnari, tvö málverk frá 1906, og lítið málverk af „Djáknanum á Myrká“ sem Kjarval gaf Ragn- ari. Ragnar Asgeirsson lést árið 1973. Börn hans fjögur, — Eva, Haukur, Sigrún og Úlfur — gáfu þá Kjarvalsstöðum fimm verk eftir Kjarval og eru þrjú þeirra nú á sýningunni, — tvær rauð- krítarmyndir, önnur sjálfsmynd Kjarvals og hin af Ragnari, og svo stór kolateikning — frum- mynd af veggmynd í Lands- banka íslands. Það er næsta fátítt að haldnar séu sýningar á einkasöfnum hér á landi. Safn Grethe og Ragnars, sem nú kemur fyrir almenn- ingssjónir, bregður upp verð- mætri mynd af ferli nokkurra fremstu listamanna okkar. Stjórn Kjarvalsstaða telur mik- ils virði að þessari sýningu var komið upp og að hér sé um mikinn listviðburð að ræða. Fundur foreldra barna á dagvistunarheimilum í Kópavogi: „ÚR FÓRUM Grethe og Ragn- ars Ásgeirssonar“ nefnist sýn- ing sem opnuð verður á Kjar- valsstöðum á morgun, iaugar- dag. Hér er um að ræða einstætt safn málverka er þau hjónin, Grethe og Ragnar. eignuðust á timabilinu frá um 1920 til 1960. Á sýningunni verða rúmlega 150 myndir, — þar af um 80 verk eftir Jóhannes S. Kjarvai, um 30 eftir Gunnlaug Scheving, um 30 eftir Höskuld Björnsson, svo og nokkrar myndir eftir Guðmund frá Miðdal og fáeinar fágætar myndir eftir Ásgrim Jónsson. Kjarvaisstaðir standa fyrir sýningunni i samvinnu við afkomendur Grethe og Ragn- ars. Ragnar Ásgeirsson fæddist árið 1895. Hann stundaði nám í garðyrkju í Kaupmannahöfn en þar komst hann í kynni við listasöfn og listamenn, og vakn- aði þá hjá honum sá listáhugi er entist til æfiloka. Árið 1915 kynntist hann Jóhannesi Kjar- val, sem þá stundaði nám við listaháskólann í Kaupmanna- höfn, og var það upphaf langrar vináttu. Eftir heimkomuna rit- aði Ragnar mikið um listir og listsýningar og gerði mikið til að glæða áhuga á slíku hérlendis. Hann átti um skeið sæti í Hjónin Grethe og Ragnar Ás- geirsson Menntamálaráði, og beitti sér þá m.a. fyrir því að íslenzka ríkið keypti hið kunna mannamynda- safn Kjarvals. Vegna afskipta sinna af þessum málum kynntist Ragnar mörgum listamönnum, m.a. Einari Jónssyni, Gunnlaugi Scheving og Höskuldi Björns- syni. Dvöldust sumir þeirra löngum á heimili þeirra hjóna, og tókst Ragnari á ýmsan hátt að greiða götu þeirra, svo sem Starfsmannafélag Kópa- vogs hraði viðræðum ÞANN 25. febr. 1981 var haldinn fundur um dagvistarmálin i Kópa- vogi. Til fundarins var hoðað af nokkrum foreldrum barna á dag- vistarheimilum i Kópavogi og var fulltrúum bæjaryfirvalda og full- trúum fóstra boðið til fundarins. Eftir að fulltrúar bæjaryfirvalda og fóstra höfðu gert grein fyrir afstöðu sinni og svarað fyrirspurn- um viku þeir af fundi og foreldrar raddu málin áfram. Eftirfarandi samþykktir voru gerðar: Fundur foreldra barna á dagvist- arheimilum í Kópavogi haldinn 25. febr. skorar á Starfsmannafélag Kópavogs að beita sér fyrir því að hraða viðræðum við bæjarráð um lausn á kjaradeilu fóstrá og bæjar- ins. Fundur foreldra barna á dagvist- arheimilum í Kópavogi haldinn í Víghólaskóla 25. febr. 1981 leggur áherslu á mikilvægi þeirra starfa sem fóstrur vinna og telur nauðsyn- legt að laun þeirra verði í samræmi við þá ábyrgð sem þær bera. Fundurinn telur hættu á að hæfir starfskraftar veljist ekki framvegis til fóstrustarfa ef starfið er ekki metið til launa að verðleikum. Fundur foreldra barna á dagvist- arheimilum í Kópavogi haldinn 25. febr. skorar á deiluaðila, fóstrur og bæjaryfirvöld, að leysa launamál sem fyrst. Fundur foreldra barna á dagvist- arheimilum í Kópavogi haldinn 25. febr. 1981 ákveður að boða til stofnfundar foreldrafélags. Fundur- inn kýs undirbúningsnefnd stofn- fundar. Athugasemdir Albert Einarsson, sem var fundar- stjóri á fundi foreldra barna á dagvist- arheimilum í Kópavogi er fram fór 25. þ.m., gerði athugasemd við orðalag Eggerts Haukssonar í frétt sem birtist í Morgunblaðinu 26. þ.m. þar sem hann segir að „hugmyndin, að ganga frá stuðningsyfirlýsingu við málstað fóstra í málinu", hefði orðið undir á fundin- um. Þessi hugmynd var að sögn Alberts aldrei borin undir atkvæði á fundinum og því ekki um það að ræða að hún hefði orðið undir. Þá gerði Albert athugasemd við orðalag Eggerts er hann segir: „Þá kom það fram hjá a.m.k. 75% ræðumanna, að þeir teldu ekki, að svona kjarabar- átta ætti að fara fram nema í gegnum kjarasamninga. Taldi Albert þetta hæpið orðalag sem gæfi villandi hug- mynd um afstöðu manna á fundinum. - O - Sigurður Þórir Jónsson og Hákon Sigurgrímsson, sem báðir sátu fund foreldra barna á dagvistarheimilum í Kópavogi, sem haldinn var í fyrra- kvöld, höfðu samband við Mbl. vegna fréttar blaðsins um fundinn, þar sem haft var eftir einum fundarmanna, að andrúmsloftið á fundinum hefði verið frekar andstætt fóstrum, og sú hug- mynd, að lýsa yfir stuðningi við þær í kjarabaráttu sinni hefði orðið undir. Töldu þeir Sigurður og Hákon þarna hallað réttu máli, mjög mikill meiri- hluti fundarmanna hefði verið á bandi fóstra enda væri tillaga, sem Hákon flutti á fundinum og var samþykkt með atkvæpum langflestra fundarmanna, glöggt dæmi þar um. Ástæður þess, að fundarmenn hefðu samþykkt tillögu frá Eggert Haukssyni, þar sem skorað var á fóstrur og bæjaryfirvöld að ganga þegar til samninga, væru einfaldlega þær, að menn vildu fá lausn málsins. Sigurður gat þess þó, að þó nokkrir hefðu ekki greitt tillögu Eggerts at- kvæði, þar á meðal hann sjálfur. „Varðandi þær fullyrðingar Eggerts, að 75% ræðumanna hefðu tekið afstöðu gegn þessum kjarabaráttuaðferðum fóstra, þá er þar til að taka, að ræðumenn voru formlega aðeins fjórir og þar af var það einungis Eggert og annar maður til, sem tóku þessa afstöðu. Það er því erfitt að finna út hvar Eggert finnur þessi 75%,“ sagði Sigurður ennfremur. Matthías Bjarnason gagnrýnir Útvarpið: Einkermilegt að skýra þurfi frá heimsókn ráðherra til Akraness! „JAFNHLIÐA fréttum af opin- berri heimsókn forseta ísiands til Danmerkur, er skýrt ítarlega frú opinberri heimsókn forsætisrúð- herra íslands til Akraness, og er þetta nýr fréttaflutningsmáti, sennilega til kominn vegna beiðni rikisstjórnarinnar.“ sagði Matthías Bjarnason alþingismað- ur i ræðu á Alþingi i gær. Sagöi Matthias, að likiega ætiaði ríkis- stjórnin með þessu að festa þá trú i sessi, að forsætisráðherra væri „þjóðarleiðtogi og alveg sérstakiega vinsæll i landi sinu. bví verða opinberir fréttamiðlar að fylgja slikum þjóðarleiðtoga eftir og endursegja það sem hann lætur frá sér fara.“ Þá gagnrýndi Matthías einnig, að Ríkisútvarpið teldi ástæðu til að taka upp eftir forsætisráðherra þau ummæli á Akranesi, að stjórnarandstaðan ætlaði að efna til málþófs um bráðabirgðalögin. Þetta kvað Matthías alrangt, ekki væri um málþóf að ræða þó þingmenn vildu ræða svo mikil- vægt mál sem það er hér um ræddi. Gunnar Thoroddsen hefði á hinn bóginn sjálfur tafið fyrir afgreiðslu málsins með för sinni upp á Akranes, því ekki væri eðlilegt að langar umræður yrðu um málið að honum fjarstöddum. Undir gagnrýni Matthíasar tóku þingmennirnir Halldór Blöndal og Friðrik Sophusson. Friðrik sagði fréttaflutning út- varps í hádegisfréttum um ferða- lag forsætisráðherra upp á Akra- nes því undarlegri, sem í sama fréttatíma hefði stærstu frétt dagsins verið sleppt. En það væri afgreiðsla ríkisstjórnarinnar á kaupum á Þórshafnartogaranum fyrr um morguninn, það er í gærmorgun. markaðurinn í Sýningarhöllinni Bíldshöfða Opið í dag frá kl. 1—7 e.h., á morgun frá kl. 9—4 e.h Fatnaður s.s.: ★ Herraföt ★ Stakir jakkar ★ Terylenebuxur ★ Rifflaöar flauelsbuxur ★ Denim gallabuxur ★ Dún- wattjakkar ★ Blússur ★ Skyrtur ★ Peysur ★ Kjólar ★ Kápur ★ Pils ★ Dömu- og barnaskór þu matt f Fyrir þá sem sauma sjálfir og vantar góð efni, bjóð- um við m.a. tweed, 100% ull, fínflauel, ytra byröi á úlpum, poplín, canvas, twill, denim, náttefni allskonar o.m.fl. Karnabær Belgjagerðin Saumastofa Karnabæjar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.