Morgunblaðið - 30.04.1981, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30- APRÍL 1981
23
Dazhuna Davitashvili fæst við einn sjúkiinga sinna.
Andalæknir vekur
athygli í Sovét
Brésneff sagður skjólstæðingur
Moskvu, 29. apríl. AP.
EINN þekktasti og virtasti lækn-
ir Sovétrikjanna, Irina Chek-
macheva. sem veitir forstöðu einu
fullkomnasta sjúkrahúsi i
Moskvu. hefur farið miklum við-
urkenninKarorðum um anda-
lækni nokkurn. Sajft er að sjálfur
Leoníd Brézneff, flokksleiðtoffi
og forseti Sovétríkjanna, sé einn
af skjólstæðingum andalæknis-
ins, sem er kona að nafni Dzhuna
Davitashvili. Chekmacheva full-
yrðir að glöggskyggni Davitas-
hvilis i sjúkdómsgreiningu sé
nær óskeikul. og beri úrskurði
hennar saman við álit færustu
lækna í 97% tilfella.
Chekmacheva kveðst hafa látið
fara fram ýtarlega athugun á
starfsemi andalæknisins, og hafi
þá m.a. komið í ljós, að auk þess að
greina sömu sjúkdóma og aðrir
læknar finna í sjúklingunum, með
því einu að fara um þá höndum,
finni Davitashvili annan krank-
leika hjá um það bil helmingi
sjúklinganna þ.e.a.s. sjúkleika sem
hinir læknarnir hafi ekki orðið
varir við, enda þótt þeir hafi á að
skipa fullkomnasta tækniútbún-
aði.
Grein um þetta birtist í tímarit-
inu Ogonyok í þessari viku, en
nýlega var sagt frá starfi konunn-
ar í Prövdu og fleiri blöðum. Hafa
greinarhöfundar lagt áherzlu á
nauðsyn þess að komið verði á fót
rannsóknarstofnun til að rann-
saka fyrirbærið, en sjálf . segir
Davitashvili að það sé á engan
hátt yfirnáttúrulegt. Hún heldur
því fram að í kringum hvern
einstakling sé lífeðlissvið, sem
sérlega næmt fólk — eins og hún
sjálf — geti greint auðveldlega.
Sjúkdómar hafi þau áhrif að þetta
svið breytist og með því að renna
höndum sínum yfir líkama sjúkl-
inganna geti hún fundið hvaða
iíffæri starfi ekki eðlilega.
Hirohito Japanskeisari.
Japanskeisari áttræður
Tókýó, 29. aprll. AP.
UM 75 þúsund manns komu
saman við keisarahöllina i
Tókýó í dag til Hirohito keisara
á áttræðisafmæii hans. Öldung-
urinn birtist fjórum sinnum
ásamt fjölskyldu sinni á skot-
heldri verönd hallarinnar og
talaði hlýlega til mannfjöldans.
Mun þetta vera í fyrsta skipti
sem hann viðhefur svo alþýðlega
framkomu við slíkt tækifæri, en
Japanskeisari hefur löngum lif-
að í upphafinni einangrun og
verið dýrkaður sem goð af þegn-
um sínum.
Kjarvalsstaðir á morgun:
Fyrsta ljósmyndasýning Björns
Rúrikssonar hér á landi opnuð
BJÖRN Rúriksson opnar á morg-
un Ijósmyndasýningu að Kjar-
valsstöðum i Reykjavik. Alls sýn-
ir hann sextiu og þrjár myndir,
teknar á árunum 1975 til 1981.
Myndin er þriðja einkasýning
Björns, en hann hefur áður sýnt i
Newark Museum i New Jersey og
í Nikon House i Rockefeller Cent-
er í New York. Þá hafa víða birst
eftir hann myndir, svo sem í
Iceland Review. New York Times
og Lesbók Morgunblaðsins.
Myndirnar eru allar frá Islandi,
náttúru- og landslagsmyndir mest
áberandi. Um fjörutíu af hundraði
myndanna eru teknar úr lofti, og
gefur þar að líta mörg kunn
örnefni er hingað til hafa yfirleitt
verið mynduð frá öðru sjónar-
horni. í sýningarskrá segir Björn
að von hans sé að sýningin megi
verða til þess, að kynna landið,
þann fjársjóð er landsmönnum sé
ljáður, og eigi að geta verið
hverjum manni hvatning til dáða
og sóknar fram á veg. Björn sagði í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins, að hann hafi byrjað að
taka myndir fyrir um það bil tíu
árum, og af nokkurri alvöru fyrir
sex til átta árum. Hann var um
tíma búsettur í Bandaríkjunum
þar sem hann tók margar myndir,
og segir það land vera frábært til
ljósmyndunar vegna fjölbreytn-
innar. Öðru máli gegni um Evrópu,
sem sé að Suður-Evrópu undan-
skilinni öll skógi vaxin. Island
segir Björn vera mjög skemmtilegt
land til ljósmyndatöku, bæði vegna
fjölbreytilegs náttúru- og lands-
lags, og einnig vegna hins enda-
lausa skyggnis hér, þar sem sjón-
deildarhringurinn hverfur ekki í
mistri og þoku eins og svo víða
erlendis.
Björn Rúriksson fæddist í
Reykjavík árið 1950. Hann varð
stúdent frá M.R. 1972 og viðskipta-
fræðingur frá Háskóla Islands
1980. Einkaflugmannspróf tók
hann 1976, og frá 1975 til 1980
ferðaðist hann víða um Bandaríkin
Við opnun sýningar Björns i New York: Björn sýnir hinni kunnu
leikkonu Ginu Lollobrigidu sýninguna. en hún er einnig þekktur
ljósmyndari. LjÓKm: Raxnar Axelsson.
Björn við uppsetningu á myndum sinum á Kjarvalsstöðum í gær.
Stóra myndin, Keilir, er tekin af fjallinu Keili í vetrarklæðum, frá
öðru sjónarhorni en f jallið er yfirleitt séð frá.
þar sem hann hélt fyrirlestra um
Island í háskólum og vann einnig
við önnur störf.
Sérstakt við sýninguna á Kjar-
valsstöðum er meðal annars, að
með því að ganga rangsælis um
hana og huga að myndum sem
merktar eru með rauðum depli, má
fá nokkuð samfellda mynd af
jarðfræði landsins. Skýringahlað
liggur frammi fyrir þá er áhuga
hafa á þessu.
Norðurlandaráð-
stefna skáta í Rvík
NORÐURLANDARÁÐSTEFNA
skáta 1981 verður haldin að Ilótel
Loftleiðum i Reykjavik dagana
30. april til 2. mai nk. Ráðstefna
sem þessi er haldin 3ja hvert ár
og til skiptis á Norðurlöndunum.
Þarna koma saman stjórnir
skátabandalaga allra Norður-
landanna og aðrir forystumenn
skátastarfs viðkomandi landa.
Helstu viðfangsefni ráðstefnunn-
ar verða:
1) umræður um næstu alheims-
ráðstefnur skáta nk. sumar.
2) Samstarf Norðurlandanna í
skátastarfi á komandi árum.
3) Tengsl Norðurlandaskáta-
starfs við Æskulýðssjóð Norður-
landaráðs.
4) Skipti milli Norðurlandanna á
hugmyndum og verkefnum í skáta-
starfi.
5) Almennur áhugi og óskir um
tómstundastarf fyrir 14—18 ára
unglinga og hvernig nota má í
skátastarfi þekkingu þar að lút-
andi.
6) Samstarf kven- og drengja-
skáta í alþjóða-skátastarfi.
Framsöguerindi verða flutt um
KVENNADEILD Skagfirðinga-
félagsins verður að venju með
kaffisölu og hlutaveltu 1. mai og
að þessu sinni i Skagfirðinga-
heimilinu Drangey, Siðumúla 35.
í frétt frá kvennadeildinni segir
hvert mál og síðan verða almennar
umræður eða hópumræður.
Ráðstefnustjórar af íslands
hálfu verða þau Anna Kristjáns-
dóttir og Halldór S. Magnússon.
Undirbúningsnefnd hefur starf-
að á vegum Bandalags íslenskra
skáta undanfarna mánuði við und-
irbúning og er Borghildur Fenger
formaður hennar.
Um 130 skátar taka þátt í
ráðstefnunni, þar af um 100 er-
lendir. Færeyskir skátar taka nú í
fyrsta skipti þátt í þessu samstarfi
sem Færeyingar, en áður hafa þeir
verið taldir með Dönum.
Allir fundir ráðstefnunnar fara
fram á Hótel Loftleiðum og þar
gista allir erlendu þátttakendurn-
ir.
Ráðstefnan verður formlega sett
fimmtudaginn 30. apríl kl. 20.30.
Föstudaginn 1. maí þiggja þátt-
takendur heimboð forseta íslands
Vigdísar Finnbogadóttur til Bessa-
staða, en hún er verndari íslenskra
skáta. Eftir þá heimsókn verður
farin skoðunarferð um Reykjavík.
Laugardagskvöldið 2. maí lýkur
svo ráðstefnunni með hófi á skáta-
vísu að Valhöll á Þingvöllum.
að engin núll verði í hlutaveltunni,
en ágóðinn af fjáröflun deildar-
innar hefur á undanförnum árum
ýmist runnið til líknar- eða menn-
ingarmála.
Kaffisala til
styrktar
kristniboði
Kristniboðsfélag kvenna i
Reykjavik efnir á morgun, 1. maí.
til kaffisölu i kristniboðshúsinu
Betaniu að Laufásvegi 13. Hefst
hún kl. 14.30 og stendur til kl. 22 og
rennur allur ágóði til íslenska
kristniboðsins i Eþiópiu og Kenýa.
í frétt frá Kristniboðsfélagi
kvenna segir m.a., að prestarnir
tveir, sem sátu í fangelsi í marga
mánuði vegna trúar sinnar, hafi nú
verið látnir lausir. „Fangelsun
þeirra átti að hefta starf kirkjunnar,
en hefur í þess stað orðið til að efla
safnaðarstarfið að mun. Meðan yfir-
völd staðarins beita svipum til að
safna fóiki á áróðurssamkomu, þyrp-
ist margmenni að prestum og pré-
dikurum hvenær sem þeir birtast
þrátt fyrir bann við kristilegu sam-
komuhaldi úti í héraðinu."
í Kenýa eru nú starfandi tvenn
kristniboðahjón frá íslandi, Kjellrun
og Skúli Svavarsson og Valdís Magn-
úsdóttir og Kjartan Jónsson.
Skagfirðingafélagið:
Kvennadeildin með fjáröflun