Morgunblaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 23
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1981 23 Kveðjuhljómleikar Utangarðsmanna Á MORGUN, 2. maí. verða haldn- ir síðustu hljómleikar UtanKarðs- manna áður en þeir halda i Evrópureisu sína, sem kemur til með að taka minnst þrjá mánuði. Illjómleikar þessir verða haldnir í Háskólabiói ok hefjast klukkan 16.30. Verða þetta kveðjutónleikar þeirra, til styrktar þeim fyrst og fremst andlega og fjárhagslega í langri reisu. Upphitunarhljómsveit á hljóm- leikunum verður Purrkur Pillnikk sem flytur um 20 mínútna pró- gramm, en Utangarðsmenn flytja síðan um eins og hálftíma pró- gramm. Hljómleikarnir eru haldnir af Utangarðsmönnum og Steríó. Þjóðleikhúsið: í kvöld, 1. maí, verður sýning á óperu Puccinis, La Bohéme, og einnig á sunnudagskvöld. í einsöngshlutverkum eru Garðar Cortes, Ólöf K. Harðardóttir, Halldór Vilhelmsson, Ingveldur Hjaltested, Eiður Gunnarsson og John Speight, Kristinn Hallsson og Guðmundur Jónsson. Þá syngur Þjóðleikhúskórinn og Sinfóníuhljómsveit Islands leikur undir stjórn Jean-Pierre Jacquillat. Leikstjóri er Sveinn Einarsson, aðstoðarleikstjóri er Þuríður Pálsdóttir, en leikmyndina gerði Steinþór Sigurðsson, Dóra Einarsdóttir sá um búningana og Ingvar Björnsson um lýsinguna. mikilla vinsaelda og verður sýnd ur á laugardagskvöld. Það er Gunnar Eyjólfsson sem leikur sölumanninn Willy Loman og Margrét Guðmundsdóttir sem leikur Lindu konu hans. Syni þeirra leika Hákon Waage og Andri Örn Clausen. Aðeins fáar sýningar eru eftir á La Bohéme, en Sinfóníu- hljómsveit Islands fer innan skamms í hljómleikaför til Þýskalands. Óperan verður sýnd nokkrum sinnum í júní með mjög breyttri hlutverkaskipan. sonar, Bryndísar Pétursdóttur og Randvers Þorlákssonar. Sölumaður deyr á laugardagskvöld Sölumaður deyr hefur notið Önnur stór hlutverk eru í höndum Róberts Arnfinnssonar, Árna Tryggva- Oliver Twist í næst síðasta sinn Næst siðasta sýningin á Oliver Twist verður á sunnudag kl. 15.00 og skal fólki bent á að engar aukasýningar verða á verkinu og það verður ekki á fjölunum í haust. Úr óperunni La Bohéme. La Bohéme - fáar sýningar eftir Keilir. ein Ijósmynda Björns Rúrikssonar á sýningunni. Kjarvalsstaðir: Ljósmyndasýning Björns Rúrikssonar í dag opnar Björn Rúriksson ljósmyndasýningu í vestursal Kjarvalsstaða. Það sýnir hann 63 myndir sem teknar eru á síðast- liðnum sex árum. Þetta er þriðja einkasýning Björns, en hann hefur áður sýnt í Newark Museum í New Jersey og í Nikon House í Rocke- feller Center í New York. Myndirnar á sýningunni eru allar frá íslandi, flestar náttúru- og landslagsmyndir. Þess má geta, að með því að ganga rangsælis um sýningarsalinn og staldra við myndir sem merktar eru með rauðum depli, má fá nokkuð sam- fellda mynd af jarðfræði landsins. Skýringarblað liggur frammi fyrir þá sem hafa áhuga á þessu. Sýningin stendur til 17. maí. Vortónleikar Tónlist- arskóla Seltjarnarness TÓNLISTARSKÓLINN á Sel- tjarnarnesi heldur sjöundu vor- tónleika sína í dag kl. 14 — 18 í nýjum tónleikasal skólans. Skól- inn, sem var stofnsettur 1974 flutti I vetur i sérhannað húsnæði fyrir skólann í menningarmið- stöð er reist hefur verið við Melahraut á Seltjarnarnesi. I tilefni opnunar tónleikasalarins. Galdraland í Breiðholti GARÐALEIKHÚSIÐ sýnir barna- og fjölskylduleikritið Galdraland eftir Baldur Georgs í Breiðholtsskóla nk. laugardag og sunnudag, 2. og 3. maí, kl. 15 báða dagana. Sýningum á leikritinu fer nú að fækka. Leikendur eru þrír, þeir Aðalsteinn Bergdal, Þórir Steingrímsson og Magnús Ólafs- son. sem tekur um 110 manns, efnir tónlistarskólinn til tónleika á laugardag auk þeirra sem áður er getið og hefjast þeir kl. 14. Á tónleikunum koma fram nem- endur og kennarar tónlistarskól- ans, svo og Skólakór Seltjarnar- ness og Selkórinn á Seltjarnar- nesi. Eftir tónleikana verður húsið til sýnis til kl. 18. Á sunnudag verða svo ein- söngstónleikr Ragnheiðar Guð- mundsdóttur kl. 16.30, undirleik- ari verður Jónas Ingimundarson. í Tónlistarskólanum á Seltjarn- arnesi eru nú 160 nemendur og 14 kennarar. Skólastjóri er Hannes Flosason. Eitt af verkum Matínúsar Guömundssonar í Eden. Sýning Magnús- ar Guðmunds- sonar í Eden í EDEN í Hveragerði stendur nú yfir málverkasýning Magnúsar Guðmundssonar, frá Kirkjulækj- arhvoli í Fljótshlíð. Á sýningunni eru 54 myndir, allt olíumálverk af mönnum, dýrum, blómum og fögru landslagi. Þetta er þriðja sýning Magnús- ar í Eden. Aðsókn að sýningunni hefur verið góð og allt að helming- ur myndanna selzt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.