Morgunblaðið - 22.07.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.07.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ1981 19 Sjópróf í Kanada í gær: Áhöfn Berglindar við góða heilsu - segir Sævar Guðlaugsson skipstjóri, en áhöfn kemur til íslands á föstudag „ALLIR í áhöfninni eru við góða heilsu og ómeiddir og gekk björgun manna vel,“ sagði Sævar Guðlaugsson skipstjóri á Berglind, sem sökk út af Nova Scotia sl. mánudag eftir árekstur við danskt skip. Áhöfnin telur 12 menn og sagði Sævar að þeir kæmu flugleiðis heim um New York á fimmtudag og verða þeir komnir til íslands á föstudagsmorg- un. Sjópróf stóðu yfir í Sydney í gær og bjóst Sævar við að þeim lyki um kvöldið, en síðan myndu fara fram sjópróf hérlendis. Sævar Guðlaugsson skipstjóri á Berglind. Gámar dregnir í land Sævar Guðlaugsson sagði helm- ing áhafnarinnar hafa farið um borð í danska skipið, að Berglind hefði verið fullhlaðin stykkjavöru í gámum og að þoka hefði verið þegar áreksturinn varð, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um mála- vöxtu, það yrði að bíða sjóprófa. Gámar, er voru á dekki, hefðu flotið upp, og hefðu þeir verið dregnir til hafnar og í skeyti AP-fréttastofunnar segir, að þar hefði verið um að ræða gáma með matvælum, bílavarahlutum o.fl. Nokkur olíubrák er á sjónum. Hún hefur þó ekki valdið tjóni þar sem hún er alllangt frá landi. Bílar og búslóðir Hjá Eimskipafélaginu fékkst upplýst, að meðal varnings hefðu t.d. verið bílar, búslóðir, matvæli, vélar, varahlutir, byggingarefni og ýmsar vörur fyrir varnarliðið. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun íslenzk fjölskylda, sem búsett hefur verið í Banda- ríkjunum og var að flytjast heim, hafa misst alla búslóð sína, sem var um borð í Berglind, þar á meðal nýjan bíl, sem hún hafði nýlega keypt. Fjölmargir aðilar, fyrirtæki og einstaklingar, áttu varning með Berglind. Hjá nokkrum trygg- ingarfélögum fékk Mbl. þær upp- lýsingar, að beðið væri farmbréfa og upplýsinga frá sendendum varnings um hvað verið hefði með skipinu, en mörg fyrirtæki hafa svokallaðan opinn samning. Tryggía Þau aUan flutning sinn og segja farmbréf til um hvað hefur verið flutt. Af þeim sökum fengust ekki nánari upplýsingar um tjón einstakra aðila er áttu vörur með skipinu og í mörgum tilfellum tryggir sendandi vöruna og kemur það tjón því ekki fram hjá íslenzk- um tryggingarfélögum. Meðal þeirra fyrirtækja er áttu varning má nefna íslenzka aðal- verktaka, sem tryggt höfðu farm fyrir um 150 þúsund Bandaríkja- dali eða um 1,1 milljón króna og hjá Agli Vilhjálmssyni var upp- lýst, að fyrirtækið hefði átt bæði bíla og varahluti, en beðið var eftir upplýsingum um hve marga. Danska skipið Charm, sem lenti í árekstri við Berglind átti aö halda frá Sydney í gærkvöld. Fyrirtækið Islenzk kaupskip, dótturfyrirtæki Eimskipafélags íslands, gerði út Berglind og hefur Sævar Guðlaugsson verið skip- stjóri í 5 ár. Skipið er skráð í Singapore og hjá Eimskipafélagi íslands fengust þær upplýsingar, að fyrri eigendur skipsins, sem voru kanadískir, hefðu skráð það þar og því hefði ekki verið breytt eftir að íslendingar keyptu það, þar hefðu m.a. fjárhagslegar ástæður legið að baki. Berglind tryggð fyrir 2 millj. dala Berglind er tryggð hjá brezkum aðilum fyrir 2 milljónir Banda- ríkjadala og upplýsti Eimskipafé- lagið að þegar á mánudag hefði verið byrjað að kanna hvort fáan- leg væru önnur leiguskip og var ekki búist við teljandi erfiðleikum á að halda uppi nauðsynlegum flutningum frá Bandaríkjunum. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Bátur dregur gám úr Berglind til hafnar í Sydney. en með skipinu var margs konar stykkjavara. matvæli, vélar, bílar og búslóðir. simamynd ap. Pinotex grund Þessi Pinotex-viðarvörn er ætluð til að grunna ófrágenginn við. Seld í 1, 2V4 og 5 lítrum litlaus og svört. Pinotex extra Nýjung á Pinotex-sviðinu. Þessi viðarvörn lekur ekki niður, er óvenjulega litheld og að auki búin mikilli endingu og varnar- hæfileika. Seld í 1, 214 og 5 lítrum. Níu litir og auk þess litlaus. Pinotex struktur Þessi Pinotex-viðarvörn skýrir og varðveitir fagra og eðlilega æðagerð og byggingu viðarins. Seld í 1, 2'A, 5 og 25 lítrum í 28 litum og litlaus. FÆST í ÖLLUM HELZTU MÁLNINGARVÖRUVERZLUNUM LANDSINS. smáauglýsingar — smáauglýslngar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Ljósritun — Fjölritun Fljót afgreiösla Bílastæöi Ljós- fell. Skipholtl 31, sími 27210. Ljósborg hl. er flutt aö Laugavegi 168, Brautar- holtsmegin. Ljósprentun — tjöl- ritun. Síml 28844. Innheimtustofa Þorvaldur Ari Arason hrl.. Smiöjuvegi D-9, Kópavogl. S: 45533, box 321, 121 Reykjavfk. Til sölu baöker, hitakerfisdæla og galv. þensluker. selst ódýrt. Baökeriö er hvrtt úr þykku steypujárnl. Hentar vel sem skolker f þvotta- hús, eöa fyrir olíubööun véla- hluta. Siml 12890. Njaróvík Tll sölu tokhelt einbýlishús viö Kópubraut, kominn sðkkull fyrlr bilskúr Fasteignasala Vilhjálms Þór- hallssonar, Vatnsnesi 20, Kefla- vik. Sími 1263. Skip óskast til leigu Tveir amerískir vísindamenn óska eftir bát til leigu, til þess aö tlytja sig til Kulusukk á Qræn- landi svo fljótt sem auöiö er. Lysthafendur sendi nöfn sín og símanúmer inn á augl.deild Mbl. lyrir 25. júli nk. merkt: „B — 1510". Hörgshlíð 12 Samkoma í kvöld kl. 8. UTIVIST ARF E RÐIR Miövikudagur 22. júli kl. 20. Mosfell og nágrennl, létt kvöld- ganga. Ver kr. 40, frítt f. börn m. fullorönum Farlö frá BSÍ, vest- anveröu. Um næstu helgi: 1. Þórsmörk. 2. Fimmvöröuháls. Verslunarmannahelgi: Horn- strandir, Þórsmörk, Dalir — Akureyjar, Snæfellsnes, Gæsa- vötn — Vatnajökull. Ágústferöir: Hálendishringur, Borgarfjöröur eystri, Grænland, Sviss. Upplýsingar og farseölar á skrifstofunnl Lækjargötu 6a, síml 14606. Útlvlst. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11796 og 19533. í kvöld kl. 20. — Kvöldferö i Viöey, fariö frá Sundahöfn. Verö kr. 30.-. Fritt fyrir börn i fyigd meö fullorönum. Ferðafélag islands. Kristniboóssambandið Almenn samkoma veröur ( kristniboöshúsinu Betania, Lauf- ásvegi 13, í kvöld kl. 20.30 Jóhannes Ólafsson kristniboös- læknir talar. Tekiö veröur á mófl gjöfum til krlstniboöslns. Allir velkomnír. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Helgarferöir 24.-26. júlí: t. Þórsmörk - Skógá - Kverná. Gist í húsi. 2. Þórsmörk - Fimmvöröuháls. Gist í húsi. 3. Hveravellir. Gist í húsi. 4. Landmannalaugar - Eldgjá (ef færö leyfir). Gist í húsi. Farmiöar og allar upplýsingar á skrifstofunni. Öldugötu 3. Feröafólag íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.