Morgunblaðið - 01.10.1981, Blaðsíða 18
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1981
Tómas M. Tómasson hassaleikari
I'ursaflokksins varð á vejfi Poka-
hornsins. Við Kripum tækifærið ok
neyddum hann til að eiga við okkur
viðtal. I>að er óþarfi að kynna Tóm-
as neitt frekar, allir sem fylxst hafa
með tónlist hér á landi ættu að
kannast við manninn.
Þið Þursar voruð á hljómleika-
ferðalagi núna seinast í sumar, byrj-
um vjð á að spyrja hann. Hvernig
gengur fyrir hljómsveit að fá inni í
húsum úti á landsbyggðinni fyrir
hljómleika?
Það er engum vandkvæðum bund-
ið að komast inn í félagsheimilin.
Hinsvegar erum við ekki sáttir við
að það skuli ekki vera samræmt verð
á leigu félagsheimila. Eitt félags-
heimilið tekur kannski fimm hundr-
uð krónur fyrir kvöldið meðan annað
lætur okkur borga þúsund krónur.
Þá vilja enn önnur fá upp í fimmtán
til tuttugu prósent af innkomunni,
sem okkur finnst í það mesta.
Er það rétt að fólki sé meinað að
dansa á hljómleikum?
Tja, segir Tómas. Málið er nú að
ríkið felldi niður söluskatt af hljóm-
leikum fyrir um það bil einu og hálfu
ári, minnir mig. Annars væri enginn
grundvöllur fyrir þessari starfsemi.
Eg skal ekki segja hvort það sé
bannað að dansa, en væru þá hljóm-
leikar ekki orðnir að dansleik? Ann-
ars vona ég að hugtakið hljómleikar
fari að fá víðari merkingu en þá að
fólk sitji hlið við hlið og glápi á svið-
ið rétt eins og við værum í sjónvarpi.
Hljómleikar ættu að leysa sveita-
skröllin af hólmi. Á almennilegum
rokktónleikum getur fólk gert það
sem það lystir. Þetta ætti ekki að
vera svona fastmótað eins og nú er.
Hér er engin þátttaka af hlustand-
ans hálfu, þeir gætu rétt eins farið á
bíó.
Þið gerðuð lukku í NEFS um dag-
inn. Fenguð rúmlega húsfylli á tón-
leikana ykkar. Er einhverra breyt-
inga að vænta í tónlist Þursanna?
Okkur heyrðist að þið væruð mikils
til búnir að gefa þjóðlögin upp á bát-
inn.
Við erum alltaf leitandi í okkar
músík. En það er of snemmt að segja
til um hvaða endanleg stefna verður
ofan á. Við vinnum venjulegast mús-
íkina á þann veg að prófa okkur
fram með tónleikahaldi. Við setj-
umst ekki niður og einangrum okkur
í tvo til þrjá mánuði til að pæla og
koma svo með tónlistina fullskapaða
á sviðið.
En látið þið þá viðtökur áheyrenda
ráða einhverju um hvernig tónlistin
verður svo á endanum?
Nei, það get ég ekki sagt. Nei,
viðbrögð áheyrenda ráða ekki hvern-
ig tónlistin þróast heldur það hvern-
ig við upplifum hana sjálfir á svið-
inu.
Hverjir semja helst hjá ykkur
Þursum?
Ásgeir og Egill eru duglegastir við
það að koma með tilbúin lög. En það
er að verða algengara að lögin verði
til úr samkrulli okkar allra, fæðist i
djammi. Til dæmis eru mörg okkar
laga opin í endann, látum það ráðast
hverju sinni hvernig niöurlagið verð-
ur.
Er þá ekki einhver einn sem leið-
ir?
Nei, við sem erum núna í Þursun-
um höfum spilað svo lengi saman.
Við gerum okkur nokkurn veginn
grein fyrir hvenær tími er til að
hætta.
Er það? Stjórnar þú ekki eða rétt-
ara sagt bassinn þinn?
Nei, ekki vil ég kalla það stjórn en
stundum tel ég fyrir lögin.
Eigið þið ekki í neinni innbyrðis
togstreitu í Þursunum? Um stefnur
til dæmis?
Að sjálfsögðu erum við ekki alltaf
sammála og reynum ýmsar leiðir.
Við verðum fyrir áhrifum af um-
hverfinu og þeirri tónlist sem í
kringum okkur er. Við erum ófeimn-
Tómas tekinn tali
ir við að prófa eitthvað nýtt. Við
fylgjum engri sérstakri línu og erum
heldur ekki að stæla neinar ákveðn-
ar hljómsveitir, enda væri það alveg
vonlaust. Hinsvegar er margt gott
að gerast núna í músíkinni, má segja
að það hafi verið hrært hressilega
upp í tónlistinni nú síðustu árin.
Er ekki væntanleg plata bráðum?
Við verðum ekki með í jólagjafa-
markaðinum. Við ætlum að spila
þeim mun meira á næstunni. Aðal-
lega hér í bænum, þó kemur til
greina að við spilum í skólum úti á
landi. Annars er meiningin að byrja
upptökur á nýju efni í nóvember.
Þursarnir koma og Þursarnir fara.
Hvers vegna þessi hlé alltaf?
Við viljum ekki ofbjóða fólki, svo
eru menn líka uppteknir við annað,
stundum. Það er ekki hægt með góðu
móti að halda bandi gangandi allt
árið, markaðurinn er of lítill. Ann-
ars ætlum við að staldra lengur við í
þessari lotu en við höfum oft gert
áður. Það er svo mikið mál að byrja
upp á nýtt þegar meðlimirnir hafa
haldið hver í sína áttina.
Tómas, nú ert þú mikill session-
maður. Getur þaó ekki haft slæm
áhrif á þína eigin sköpun að vera að
spila fyrir aðra inn á plötur?
Til hins verra, meinið þið? Veit
ekki. Session-vinnan er ekki alltaf
skemmtileg en það kemur annað á
móti. Til dæmis heldur sú vinna í
mér lífinu og það er betri kostur að
geta þó samt unnið við tónlist en
vera í byggingarvinnu á milli. Og
session-vinna gefur manni ákveðna
reynslu sem hægt er að miðla öðrum
af.
Vel á minnst. Þú hefur starfað
sem upptökustjóri fyrir yngri grúpp-
ur. Hefurðu þá ekki áhrif á útkom-
una hjá þeim? Manni finnst stund-
um vera Tommabragð hjá þeim?
Ja, ég reyni nú að halda mig í
skugganum og hafa eins lítil áhrif og
ég get. Hlutverk upptökustjóra er að
mínu áliti að skapa artistunum sem
best vinnuskilyrði, ekki að reyna að
breyta músíkinni hjá hljómsveitun-
um eftir sínu höfði.
Það er áberandi hversu bassinn er
orðinn mikilsvert hljóðfæri í allri
nýrri tónlist. Getur verið að diskóið
hafi haft einhver áhrif í þá átt að
gera hlut bassans meiri en hann
var? Þú veist, með taktfastari tón-
list.
Nei, þessi breyting varð ekki endi-
lega vegna diskósins en hún varð
fyrst áberandi þar. Menn tóku að
setja bassann framar í hljóðblönd-
uninni, aðallega í svörtu diskómúsík-
inni. Bassinn er að komast framar
og framar og verður varla lækkaður
úr þessu, samanber nýbylgjuna. En
það hafði sitt að segja í gamla daga,
áður en fjölrásaupptökur komu til
sögunnar, að bassinn og trommurn-
ar voru alltaf spilaðar inn fyrst.
Svokallað „sound on sound“ eins og
kerfið var kallað, og þegar ofan á
bættist söngur og öll önnur hljóð-
færi, var varla komist hjá því að
bassinn og trommurnar drukknuðu.
Hljóðið varð mattara og óskýrara en
nú gerist.
Það voru góðar viðtökur sem þið
fenguð í NEFS, hljómsveitir hafa
gleymst á styttri tíma en fjórtán
mánuðum, en þið dragið að ykkur
Hljómleikar vikunnar
Sunnud. 4/10
Purrkur Pillnikk. Tónabær.
Jazzkvintett Viðars Alfreðs. Stúdentakj.
Þursaflokkurinn. Menntask./Kópavogi.
Fræbbblarnir. Ársel.
Þursaflokkurinn. Menntask./Sund.
Kvartett Kristjáns Magnússonar. Djúpið.
Fræbbblarnir. Hótel Borg.
Þursaflokkurinn. Fjölbraut/Breiðholti.
Spilafífl + Þrumuvagninn. NEFS.
Kvartett Kristjáns Magnússonar. Djúpið.
Mezzoforte + ónafngreind jazzgrúppa. NEFS.
Við minnum á símanúmer okkar (91)26668.
Mánud. 5/10
Þriðjud. 6/10
Miðv. 7/10
Fimmtud. 8/10
Föstud. 9/10
Laugard. 10/10
lýðinn eftir þetta langt hlé. Hverju
viltu þakka?
Hvað ætli maður velti því fyrir
sér. En auðvitað erum við ánægðir
að hafa ekki gleymst eftir allan
þennan tíma. Gott að fólk nennir að
hlusta á okkur og gefa okkur „feed-
back“ á það sem við erum að gera.
Á kannski að halda utan eftir
þetta?
Já, við hefðum áhuga á því en það
yrði að vera á öðrum grundvelli en
síðast. Það verður að vera betri
fyrirvari ef vel á að takast. Auðvitað
verður aldrei um gróðamöguleika að
ræða með svona flakki. En ef við
færum, þá yrði Skandinavía fyrir
valinu, hún liggur okkur næst. Svo
höfum við líka fengið boð um að
spila í Færeyjum. Það yrði ágætis
stökkpallur að taka þar niðri á leið-
inni. Færeyingar reyndust okkur
mjög vel í síðustu ferð því það voru
þeir sem greiddu fyrir okkur farið til
Danmerkur og gerðu okkur þannig
kleift að komast áfram. Hinsvegar
þurftum við að labba okkur inn á
skrifstofu Flugleiða og slá hjá þeim
víxla til að komast aftur heim.
Á ekkert að bæta við fleiri hljóð-
færaleikurum? Haldið þið áfram
fjórir? (+ Ásgeir, Þórður og Egill).
Það má eiginlega segja að við sé-
um fimm en ekki fjórir. Hljóðmað-
urinn, Júiíus Agnarsson, er okkur
mjög mikilvægur og hann verður
fastur hjá okkur áfram en það er
ekki vilji, held ég, að bæta við hljóð-
færaleikurum. Við sem núna spilum
saman erum eiginlega hinn harði
kjarni Þursanna. Auk þess hefur
okkur ekki haldist of vel á mönnum.
Kannski ná þeir ekki inn í okkur,
kjarnann. Svo er óneitanlega hag-
kvæmara að vera bara fjórir en ekki
sex. Við erum líka svo samhentir, til
dæmis erum við ekki með rótara með
okkur. Gerum allt sjálfir, setjum
upp tækin og svo framvegis.
Að lokum Tómas, áður en við
sleppum þér. Hvað er þetta skalla-
poppari eiginlega?
Þreytulegt bros færist yfir Tómas.
Það hlýtur að vera poppari sem er að
verða sköllóttur. Veit ekki hver er
höfundur þessa orðs. Hversvegna
ekki að tala við þá í Orðabókar-
nefnd?
Endir.
Vinsælda-
listarnir
BANDARIKIN
Stórar plötur
1. (1)TAn00Y0U-
Rolling Stones
2. (4) F0UR — Foreigner
3. (3) ESCAPE - Journey
4. (2) BELLA DONNA -
Stevie Nicks
5. (5) PIRATES — Rickie Lee Jones
6. (19) NINE TONIGHT
7. (20) THEINNOCENT AGE -
Dan Fogelberg
8. (6) PRECIOUS TIME -
Pat Benatar
9. (9) ENDLESS LOVE - Ýmsir
10. (11) BREAKIN' AWAY —
Al Jarreau
Litlar plötur
1. (1) ENDLESS LOVE -
Diana Ross og Lionel Richie
2. (7) ARTHUR’S THEME -
Christopher Cross
3. (3) STOP DRAGGIN' MY
HEARTAROUND -
Stevie Nicks og Tom Petty
4. (6) WHO'S CRYING NOW -
Journey
5. (5) NO GETTIN' OVER ME —
Ronnie Milsap
6. (2) QUEEN OF HEARTS -
Juice Newton
7. (8) STEP BY STEP -
Eddie Rabbitt
8. (4) URGENT - Foreigner
9. (10) START ME UP -
Rolling Stones
10. (10) HOLD ON TIGHT - ELO
ENGLAND
Stórar plötur
1. (-) ABACAB — Genesis
2. (1) DEAD RINGER - Meat Loaf
3. (2) TATTOO YOU -
Rolling Stones
4. (4) RAGEIN EDEN - Ultravox
5. (15) SUPER HITS 1&2 - Ýmsir
6. (-) WIRED FOR SOUND -
Cliff Richard
7. (77) HOOKED ON CLASSICS -
Louis Clark/Royal
Philharmonic Orchestra
8. (8) SHAKY — Shakin’ Stevens
9. (16) CELEBRATION -
Johnny Mathis
10. (6) WALK UNDER THE LADDERS
— Joan Armatrading
Litlar plötur
1. (1) PRINCE CHARMING -
Adam and The Ants
2. (2) TAINTED LOVE - Soft Cell
3. (4) HANDS UP - Ottawan
4. (3) SOUVENIR - Orchestral
Manoeuvres in the Dark
5. (8) PRETEND -
Alvin Stardust
6. (5) WIRED FOR SOUND -
Cliff Richard
7. (13) ENDLESS LOVE -
Diana Ross og Lionel Richie
8. (25) BIRDIE SONG - Tweets
9. (-) INVISIBLE SUN - Police
10. (11) SLOWHAND-
Pointer Sisters
Þessa vikuna ætlum viö til gamans
að birta lista yfir 10 vinsælustu þunga-
rokkslögin í London þessa vikuna:
1. SHOOT OUT THE LIGHTS -
Diamond Heads
2. BRUCE FORCE ANDIGNORANCE
— Rory Gallagher
3. TAKEIT ALL AWAY - Girlschool
4. DEVIL'S ANSWER -
Atomic Rooster
5. DIRTY WHITE BOY - Foreigner
6. HEARTBREAKER - Prisoner
7. LET IT GO - Def Leppard
8. THE POWER OF ROCK'N'ROLL -
Frank Marino
9. LOCK UP YOUR DAUGHTERS -
Slade
10. READY TO ROCK -
Michael Schenker Group
Umsjón: BJÖRN VALDIMARSSON