Morgunblaðið - 11.10.1981, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.10.1981, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981 21 ftttfgtu Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, # Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, simi 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 85 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 5 kr. eintakiö. Iþjóðfélagi, sem byggir afkomu sína að mestu leyti á sjávarfangi, gerast tæplega alvarlegri atburðir en þegar fiskiskipum er snúið til hafnar og sjómenn neita að sækja björg í bú nema orðið sé við kröfum þeirra. íslenskir sjómenn grípa ekki heldur til slíkra örþrifaráða fyrr en í fulla hnefana eins og dæmin sanna. Sagan sýnir okkur einnig, að komi til slíkra atburða bregðast ráða- menn yfirleitt við af allri þeirri festu og lagni, sem þeim er gefin. í forsætis- ráðherratíð Bjarna Bene- diktssonar reyndi á þetta og fyrir tilstilli hans tókst að greiða úr vandanum, áð- ur en hann varð að illvígri deilu. Þegar Geir Hall- grímsson var forsætisráð- herra og Matthías Bjarna- son sjávarútvegsráðherra sneru sjómenn eitt sinn skipum sínum til hafnar, einnig þá var brugðist þannig við af ráðherrum, að lausn fannst, áður en allt var komið í hnút. Þeirri ríkisstjórn, sem nú situr sýnist annað betur lagið en bregðast skjótt og skynsamlega við, þegar fyrir liggur, að sjómenn ráðgera að sigla skipum sínum í land. Óánægjan með síldarverðið lá fyrir, áður en oddamaður, sem ekki tekur ákvörðun um svo afdrifaríkt mál án samráðs við sjávarútvegsráðherra, og fulltrúi kaupenda í yfir- nefnd Verðlagsráðs sjávar- útvegsins tóku þá ákvörð- un, sem sjómenn og útgerð- armenn ákváðu að mót- mæla með því að leggja síldveiðiskipunum. „Ríkis- stjórninni var fyllilega kunnugt um þann vanda, sem yfirnefndin átti við að etja ...“ sagði Ingólfur S. Ingólfsson, fulltrúi sjó- manna í yfirnefndinni, á fundinum á Eskifirði á föstudaginn. Hann sagði einnig, að úr því sem komið væri yrði síldarverði ekki breytt nema með lögum. Sjómenn og útgerðarmenn hafa ákveðið að hefja ekki veiðar fyrr en „fullnægj- andi leiðrétting" hefur fengist á síldarverðinu. eins og það er orðað í álykt- uninni frá Eskifirði, sem samþykkt var með 420 at- kvæðum gegn 6. Er það með vilja eða fyrir ráðleysi og klaufa- skap, sem ríkisstjórnin heldur þannig á ákvörðun- inni um síldarverðið, að hana verður að taka fyrir á nýsettu Alþingi? Öll rök hníga að því, að hér sé enn eitt dæmið um stjórnleysið í landinu og það jafnvel hið alvarlegasta til þessa. Bíða sömu örlög síldarsjómanna og Raufarhafnarbúa, sem leituðu til ríkisstjórnarinn- ar og virðast nú fjær var- anlegri lausn á vanda sín- um en nokkru sinni fyrr? Mörg atriði koma til álita, þegar hugað er að lausn á deilu síldarsjó- manna og útgerðarmanna við stjórnvöld. Ekki þarf að fara mörgum orðum um þá staðreynd, að við síldveiðar er ekki unnt að eyða meiru en aflað er, vilji menn að reksturinn haldist á réttum kili. Fáum er þetta ljósara en einmitt sjómönnum og útgerðarmönnum. Þeim finnst hins vegar, að við ákvörðun á síldarverðinu hafi tekjuskiptingunni ver- ið raskað á sinn kostnað. í höfn Matthías Bjarnason, al- þingismaður, kemst rétti- lega að orði, þegar hann segir hér í blaðinu í gær: „Sjómenn sætta sig ekki við annað en að fá sömu launabætur og aðrir laun- þegar í landinu og það er ekki við því að búast, að út- gerðin geti tekið á sig jafn gífurlegar hækkanir og hún hefur orðið að gera á þessu ári.“ Og Matthías Bjarna- son segir einnig: „Verðbólg- an er geymd í vandamálum atvinnulífsins og með ákvörðun um síldarverð og loðnuverð er gerð alvarleg tilraun til þess að ráðast á þessa aðila sem afla hrá- efnis og skapa grundvöll undir allt annað sem hægt er að gera í landinu." Um síðustu áramót mót- aði ríkisstjórnin stefnu sína í efnahagsmálum. Þeirri stefnu hefur síðan verið hampað af ráðherr- um, og þeir láta sem unnt sé að leysa allan vanda þjóðarbúsins með því einu að hæla henni. Nú reynir verulega á framkvæmdina, ráðherrum er ekki lengur stætt á því að skjóta sér undan vandanum með sjálfshóli. Þeir geta ekki heldur sett upp sparisvip- inn og sagt, að ákvörðun um síldarverð komi þeim ekki við. Um allt land bíða menn þess með eftirvænt- ingu, hvernig ríkisstjórnin bregst við í viðræðum við sendinefnd sjómanna og útgerðarmanna á næstu dögum. Að líkindum höfum við þó aðeins fundið smjör- þefinn af vandanum, sem leiðir af hinni óraunsæju stjórnarstefnu. Formaður Framsóknarflokksins hælir sér af því að vera höfundur þessarar efnahagsstefnu og hann er einnig sjávarút- vegsráðherra, honum ættu því að vera hæg heimatökin að sannfæra sjómenn og útgerðarmenn um að þeir hafi rangt fyrir sér en hann rétt. Síldarskipin Listræn fölsun? Eftir Braga Ásgeirsson Það er stórt orð Hákot, segir máltækið on vist hrökk ég við, er ég las þau framslátt Gunnars Kvaran í Dauhlaðinu á dögun- um. að Lífshlaup Kjarvals væri listræn fölsun. Atti Gunnar þar við, _að listaverkið hafi skipt um eðii og í raun fengið tvíræða formgerð og um leið tvöfaldan lestur. Annars vegar sem mál- verk eftir Kjarval og hins vegar sem fornleifafræðileg hugmynd þess eðlis að endurreisa vinnu- stofu Kjarvais i framandi um- hverfi. Hið nýja „listaverk“ er ekki aðeins málverk heldur einnig hlutir úr gömlu vinnu- stofunni. Hurð, dyrakarmur, miðstöðvarofn, borð og stóll eru orðin hluti af listaverkinu. Við erum i raun komin inn i mynd- heim popp- og listamannsins George Segal“. Ósköp fannst mér þetta furðu- legur framsláttur hjá Gunnari Kvaran og þá ekki sízt síðasta setningin, sem ruglar saman umhverfi Kjarvals og mynd- heimi George Segal. Og Gunnar heldur áfram: „Þeir sem stóðu að þessari „endurreisn" hafa ekki áttað sig á gerbreyttu inntaki list- og sjónmenntahugtaksins í samtímalistum. Hér er því ljóst að þyngdarpunktur verksins sem hugsað var á veggfleti hefur nú færst „út fyrir rammann" og gert verkið að umhverfislist í þrívídd, þ.e.a.s. veggurinn sjálf- ur, hurðin, og ofninn, sem höfðu fyrst og fremst praktískt nota- gildi fyrir listamanninn, eru nú orðin hluti af listaverkinu. Listaverkið hefur verið rifið úr sínu venjubundna samhengi og þannig öðlast ámóta inntak og ready-made listaverk Duchamp. Þetta er eðlileg afleiðing þegar peningahugleiðingar sitja í fyrirrúmi." Víst má hver og einn segja sitt álit á þessari framkvæmd en það er ábyrgðarhluti og slá slíku fram sem óyggjandi staðreynd- um og blanda upprunalegu um- hverfi Kjarvals saman við til- búinn myndheim George Segal. Ég get alfarið viðurkennt það, að listaverk, sem verður til á vinnu- stofu myndlistarmanns sé komið í framandi umhverfi um leið og það yfirgefur uppruna sinn. Það sama má segja um jóðið sem yf- irgefur móðurkvið, það hefur væntanlega skipt um eðli, fengið tvíræða formgerð og um leið tvö- faldan lestur. Annars vegar var það kyrfilega falið í móðurkviði og hinsvegar öðlast það nýjar víddir og nýjan lestur er það hverfur frá uppruna sínum og er orðið að sýnilegum hlut í þrí- vídd! Það má koma orðum að öllu og vafalítið má rökræða endalaust um þetta er er óþarfi frá mínum bæjardyrum séð. Ég hyggst ein- göngu reyna að hnekkja þessum framslætti með nokkrum orðum vegna þess að mér þykir hann í meira lagi vafasamur. Það getur verið alveg rétt, að þeir sem stóðu að nefndri endur- reisn Lífshlaupsins hafi ekki átt- að sig á gerbreyttu inntaki, „list- og sjónmenntahugtaksins í sam- tímalistum" og þá hefur það ein- ungis verið glópalán að viðkom- andi gerðu rétt, því að augljóst má vera hve myndirnar væru miklu fátækari án þess að vera sviðsettar í líkingu við uppruna- legt umhverfi. Merkilegt er þeg- ar öllum þessum mikla fram- slætti er skyndilega víxlað í pen- ingasjónarmið og síðan klykkt út með því „að á íslandi er að vaxa fram harðsvífin listaverkaverzl- un“ og loks, að íslenzkir lista- menn og stjórnvöld taki afstöðu gagnvart þessum markaði og setji ákveðnar reglur um höf- undarétt og útflutning á íslenzk- um listaverkum. Nú er það svo að íslenzkir myndlistamenn eru þrautpíndir af afskiptaleysi íslenzkra stjórn- arvalda og svo var einmitt með Kjarval lengst um, og frekar vildu menn blása lífi í lélegustu listaverkaverzlun norðan Alpa- fjalla en hitt og ekki vildum við alfarið láta frysta inn íslenzk listaverk á þessu útskeri norður við Dumbshaf. Við þetta má bæta, að dreifikerfi listaverka um landsbyggðina er ekkert. Jæja, en snúum okkur aftur að máli málanna Lífshlaupi Kjar- vals. — Það vita allir sem þekktu Kjarval, að maðurinn var stór- kostlegur leikari og gekkst mjög upp í því að láta á sér bera á köflum og brá sér þá gjarnan í leik þar sem hann var staddur er sá gállinn var á honum. Margar tiltektir hans mundu vafalítið slá í gegn væru þær uppfærðar í listaþingum nútímans sem „per- formansar". Þá voru vinnustofur hans líkt og margra artista á myndlistarsviði, líkastar þí sem maðurinn væri stöðugt að leik — væri stöðugt að búa til umhverf- islist og hann var allstaðar með pensilinn á lofti og hvarvetna spratt líf. Lífshlaupið kemur engum öðrum listamanni við en einmitt Jóhannesi Sveinssyni Kjarval, þetta var hans mynd- heimur, upprunalegur og magn- aður og ber okkur að reyna að bregða upp sem gleggstri mynd af listamanninum og umhverfi hans ef svo farsællega vill til að listaverkið verði að íslenzkri eign. Þetta er svo sjálfsagt og náttúrulegt sem verið getur og kemur engum listastefnum nú- tímans við í kjarna sínum þótt vísa megi til skyldleika. Því er naumast hægt að slá fram full- yrðingum né getsökum um „list- ræna föisun" og öllu slíku bera að vísa rakleiðis til föðurhús- anna. j Reyki avíkurbréf Laugardagur 10. október Stjórnarskipti í Noregi Minnihlutastjórn Hægriflokksins tekur formlega við völdum í Nor- egi i næstu viku. Eins og menn muna náðist ekki samkomulag milli borgaraflokkanna þriggja, Hægriflokksins, Miðflokksins og Kristilega þjóðarflokksins um meirihlutastjórn. Strandaði það einkum á afstöðu Kristilega þjóð- arflokksins, sem stóð fast á kröfu sinni um strangari fóstureyð- ingalöggjöf. Á Stórþinginu munu hægri menn njóta stuðnings hinna borgaraflokkanna í öllum meiri- háttar málum. Káre Willoch verðandi forsæt- isráðherra hefur lengi verið oddviti hægri manna á þingi og þótt sýna af sér mikla snerpu. Hann hefur einnig lengi verið virkur á þingum Norðurlandaráðs og oft tekist þar á við fulltrúa jafnaðarmanna og vinstri sósíal- ista. Fer Willoch sjaldan halloka í slikum sennum og í sjónvarps- einvígum við Gro Harlem Brundtland fyrir kosningarnar, þótti Willoch hafa betur. Hinn nýi forsætisráðherra Nor- egs hefur oftar en einu sinni kom- ið til íslands í opinberum erindum sem þingmaður. Fleiri ráðherrar í stjórn hans hafa að sjálfsögðu haft kynni af íslendingum og ís- lenskum málefnum. Þeirra á með- al er Sven Stray utanríkisráð- herra, sem er eindreginn fylgis- maður Atlantshafsbandalagsins og telur aðild að því forsendu fyrir frelsi Noregs. Þeir Norðmenn, sem þannig hugsa, gera sér jafnframt grein fyrir því, að frelsi lands þeirra er komið undir góðri sam- vinnu við íslendinga í öryggis- og varnarmálum. Er Stray þeirrar skoðunar, að öryggismálin verði áfram eins og hingað til mikilvæg- asti þátturinn í utanríkisstefnu Norðmanna. Hér skulu tveir nýir ráðherrar nefndir sérstaklega, án þess að með því sé farið í mann- jöfnuð. Kunnugir íslandi Lars Roar Langslet verður menntamálaráðherra í hinni nýju stjórn. Hann hefur lengi verið virkur í menningarmálum fyrir Hægriflokkinn og meðal annars látið sig útvarpsmál miklu skipta. Frá því var skýrt hér í blaðinu á sínum tíma, þegar norskir hægri menn kynntu hugmyndir sínar um frjálst útvarp í Noregi, en um það létu þeir vinna mikla greinargerð undir forystu Langslets og lögðu fyrir Stórþingið ásamt hugmynd- um um að einkaréttur norska ríkisútvarpsins verði afnuminn. Ekki er að efa, að Lars Roar Lang- slet mun berjast fyrir framgangi þess máls sem ráðherra. Hann hefur komið hingað og ferðast um landið í einkaerindum og hefur sannan áhuga á málefnum ís- lands. Anders Sjaastad verður varn- armálaráðherra. Hann hefur ekki átt sæti á Stórþinginu, var í 8. sæti á lista Hægriflokksins í Oslo í kosningunum núna og hefði sest á þing við stjórnarmyndunina sem fyrsti varamaður, því að í Noregi afsala menn sér þingsetu sem ráðherrar. Sjaastad mun ekki taka þátt í störfum Stórþingsins sem þingmaður heldur varnar- málaráðherra. Hann hefur starfað í mörg ár við Norsku utanríkis- málastofnunina nú siðast sem upplýsingastjóri. Hann hefur rit- að mikið um öryggismál og þá ekki síst hættulega útþenslu Sov- étríkjanna við landamæri og strendur Noregs. Til dæmis reit hann í samvinnu við annan starfsmann utanríkismálastofn- unarinnar, Jon Kristen Skogan, bók um öryggi og stjórnmál í lönd- unum við Noregshaf. Komu þeir félagar hingað til að afla efnis í þá bók fyrst fyrir 10 árum og hafa síðan fylgst náið með gangi ís- lenskra málefna. Hvað sem öðru líður gildir hið sama í samskiptum ríkja og milli einstaklinga, að persónuleg kynni vega oft þyngra að lokum við töku ákvarðana í viðkvæmum málum en köld rökhyggja. Það kann sjaldan góðri lukku að stýra, að láta málefnin ein ráða ferðinni, þegar menn sækja að ákveðnu markmiði í stjórnmálum, heldur farnast mönnum oftast betur, þeg- ar þeir gleyma ekki mannlega þættinum. Til hans má örugglega vísa, ef einhver alvarleg vandamál koma upp í samskiptum íslenskra stjórnvalda við hina nýju stjórn í Noregi, en hitt skal einnig haft í huga, að Káre Willoch er þekktur fyrir annað en geðþóttaákvarðan- ir, svo að liklega á hann ekki skap með öllum ráðherrum í ríkisstjórn Islands. Brúargerð yfir Héraðsvötn í Skagafirði. í baksýn er f jallið Glóðafeykir. Ljósmynd: Snorri Snorrason. Myndstödvaraar Eitt vinsælasta umræðuefnið manna á meðal um þessar mundir snýst um það, hvaða ráð stjórn- völd telji best andspænis sífellt víðtækara neti myndstöðva á veg- um einstaklinga. Undir ríkis- stjórn, sem yfirleitt hefur það að leiðarljósi, að hún eða einhverjir aðrir opinberir aðilar viti best, vænta menn helst boða og banna. Ýmsir óttast, að kaplar kunni að vera gerðir upptækir eða gripið verði til einhverra annarra slíkra úrræða. Þótt ólíku sé saman að jafna og alvarlegu máli líkt við hégóma, fer ekki hjá því, að staða áhorfenda á myndstöðvar gagn- vart yfirvöldum minni á stöðu pólskrar alþýðu gagnvart sovéska valdinu. Almenningi finnst, að hann njóti fyllsta réttar til að horfa á myndstöðvarnar en er einnig með hugann við stóra bróð- ur og vill ekki styggja hann um of. Eins og við var að búast ákváð ríkisstjórnin að setja nefnd í mál- ið. Erindisbréf hennar sýnist ekki vera langt og kannski er það ekki til. í Tímanum á þriðjudag má lesa, hvað framsóknarmenn, en í þeirra hópi eru menntamálaráð- herra og formaður nefndarinnar, eru að hugsa um þessi mál. í for- ystugrein Tímans er komist að þeirri niðurstöðu, að setja verði löggjöf um myndstöðvarnar. Rök- in eru þessi: „Þar þarf margs að gæta. Þó verður fyrst og fremst að trygKÍa. aö slíkar stöðvar séu ekki misnotaðar, hvorki af stjórnmála- aðilum né fjársterkum einstakl- ingum eða fyrirtækjum. Jafn- framt verður dagskrárefni slíkra stöðva að lúta svipuðum reglum með tilliti til barna og unglinga og ríkisútvarpið." í hinum tilvitnuðu orðum kem- ur fram sá grunntónn, að ríkið eigi bæði að ákveða hverjir reki myndstöðvar og hvernig dagskrá- in verði. Hver hefur veitt fram- sóknarmönnum umboð til að ákveða þessi afskipti ríkisins af þessum tækjum? Er þörf á því nú að hlaupa til og hnoða saman ein- hverjum lagabálki um opinbera íhlutun á þessu sviði með þeim hætti, sem Tíminn vill? Raunar sýna hugmyndir Tímans gleggst, hve vanhugsaðar hugmyndir manna um þetta mál eru enn hér á landi. Fyrsta viðfangsefnið á ekki að vera það, að opinberir aðilar skipti sér af því, hvað sýnt er í myndstöðvum eða hverjir standi að þeim, heldur á hið opinbera að standa vörð um eignarrétt manna á þessu sviði sem öðrum. Það á engum að líðast að fá hug- verk manna leigð með þeim kjör- um, að þau séu til einkanota og síðan séu þau gerð að söluvöru án þess að höfundurinn fái eitthvaö í aðra hönd. Til eru reglur, sem eiga að tryggja höfundarrétt á töluðu máli og rituðu og raunar einnig því, sem fest er á filmu. Vonandi einbeitir hin nýskipaða nefnd sér að þessum þætti myndstöðvabylt- ingarinnar en eyðir ekki kröftun- um í að smíða reglur til skerða frelsi manna til að njóta þess, sem framleitt er fyrir slíkar stöðvar. Þær lifa ekki lengur en fólk hefur áhuga á þeim. Hugmyndir Hægriflokksins Eins og fram kom í viðtali við Lars Roar Langslet, sem birtist hér í blaðinu 11. apríl 1980 um frjálst útvarp í Noregi, ákvað Hægriflokkurinn á landsfundi sín- um 1978, að útvarpsrekstur skyldi tekinn til sérstakrar athugunar á hans vegum. Var Langslet skipað- ur formaður flokksnefndar til að fjalla um málið og með honum voru hægri menn úr menntamála- nefnd Stórþingsins og útvarps- ráði. Nefndin valdi ekki þann kost að semja algjörlega nýjar reglur um norskan útvarpsrekstur. Vildi hún, að stig af stigi þróaðist rekst- ur bæði hljóðvarps og sjónvarps í frjálsræðisátt og yrðu skrefin ákveðin í hvert sinn miðað við áunna reynslu. 1 tillögum nefndarinnar segir, að norska ríkisútvarpið skuli áfram hafa rétt til að reka hljóð- varp og sjónvarp en ekki einka- rétt.Sú meginregla er mótuð, að mönnum sé frjálst að koma sér upp og starfrækja tæknibúnað til staðbundinna útsendinga á út- varpsdagskrám hvort heldur um streng eða þráðlaust. Verði það í höndum fjarskiptayfirvalda á hverjum stað að úthluta tíðnis- sviðum og fylgjast með því, að tæknibúnaður sé þannig úr garði gerður, að hann valdi ekki truflun- um á öðrum loftskeytum. Stað- bundnum samtökum verði veitt útvarpsleyfi í sinni heimabyggð, bæði þeim, sem nú séu starfandi og einnig þeim, sem kynnu að verða stofnuð í því skyni að stunda útvarpsrekstur. Einka- fyrirtæki fái heimild til sjónvarpssendinga um streng gegn áskriftargjaldi og geti sent út efni, sem þau hafa keypt, leigt eða framleitt sjálf. Samhliða þessum staðbundnu sendingum taldi útvarpsnefnd norska Hægriflokksins, að Stór- þingið ætti að skipa útvarpsnefnd ríkisins, sem hefði það hlutverk að úthluta útsendingartíma á bylgj- um, sem nái til alls Noregs. Taldi nefndin ekki líkur á því, að einka- aðilar réðust á næstunni í það stórvirki að koma upp fjarskipta- neti, sem næði til allra staða í Noregi eins og ríkisútvarpið. I því efni bíða Norðmenn líklega eftir sérstökum útvarpsgervihnetti fyrir sig, en hægri mönnum þótti koma til álita á þessu stigi að leyfa einkaaðilum að nota útsend- ingarnet norska ríkisútvarpsins á öðrum tímum en venjulegum út- sendingartíma. Nordmenn varkárir Enginn getur sagt, að Norð- menn flasi að neinu, er snertir þjóðlíf þeirra. Síst af öllu ættu róttæklingar að saka hægri menn um að vera of nýjungagjarna, en líklega hlytu tillögur Hægri- flokksins í Noregi um frjálst út- varp ekki einu sinni hljómgrunn meðal ráðamanna í Framsóknar- flokknum hvað þá almennt innan ríkisstjórnarinnar hér á landi. Einmitt í málum eins og þessum eru vinstri stjórnir afturhalds- samar, því að innan þeirra taka menn rétt ríkisins fram yfir rétt einstaklingsins. Líklega myndu allir ráðherrar í ríkisstjórn Is- lands leggja lóð 3itt á vogarskál ríkisins, ef þeir ættú að taka af- stöðu til hugmynda um frjálst út- varp í þeirri mynd, sem hér hefur verið lýst. Þessir sömu ráðherrar hika þó ekki við að sveipa sig skikkju frjályndis, þegar þeir mæta á mannamótum. Það er svo sannarlega ástæða til þess fyrir áhugamenn um frjálst útvarp á íslandi að fylgjast náið með því, hvað gerist á þessu sviði í Noregi undir ráðherrastjórn Lars Roar Langslets. í hans augum er einn helsti vandinn í þessu máli öllu að ákveða, hvort innleiða beri auglýsingar í útvarp og sjónvarp í Noregi, vandi, sem við eigum ekki við að stríða vegna hefðar í ríkis- fjölmiðlunum. I tillögum útvarps- nefndar Hægriflokksins segir, að við hlið norska ríkisútvarpsins geti aðrar útvarpsstöðvar tæplega þrifist nema þær fái heimild til að afla sér tekna með auglýsingum og leggur nefndin til, að þær verði leyfðar bæði í hljóðvarpi og sjón- varpi einkaaðila, en hins vegar byggist rekstur ríkisútvarspins áfram á afnotagjöldum. Vill nefndin, að auglýsingar slíti ekki dagskrárliði í sundur heldur birt- ist á milli liða og að hámarki 30 mínútur á dag. Þessar reglur stafa ekki af því að ætlunin sé að hafa hömlur á tekjuöfluninni heldur af tilliti til hlustenda og áhorfenda (við myndum meta slíka reglu í jólaflóðinu). Það er nauðsynlegt að hefja um- ræðurnar um frjálst útvarp á ís- landi á öðrum forsendum en hingað til. Kjörinn vettvangur til þess er til dæmis landsfundur Sjálfstæðisflokksins í lok þessa mánaðar. Flokkurinn er eina stjórnmálaaflið hér á landi, sem léti ekki oftrúna á ríkið villa sér sýn í þesu máli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.