Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981
Dvalarheimilid Ás Hveragerði:
Sölusýning að Bröttuhlíð 20
llveragerði, 5. nóvember.
DVALARHEIMILIÐ Ás í Hvera
gerði verður með sölusýningu á
morgun, sunnudag, og hefst hún kl.
14.00 að Bröttuhlíð 20. I»ar gefst
fólki kostur á að skoða og kaupa
framleiðslu vistfólksins, sem er á
aldrinum 26 til 95 ára.
Þarna eru á boðstólum margs-
konar prjónles, s.s. góðir vettl-
ingar, sokkar, húfur, treflar, sjöl,
vesti og lopapeysur. Þá eru hekl-
aðir dúkar, veggmyndir, púðar,
jóladagatöl, brúðuföt, málverk,
rýa- og smyrnamottur og smá-
teppi, og margt fleira sem of langt
yrði upp að telja.
Dagleg sala á framleiðslu vist-
fólksins er fimm daga vikunnar
frá kl. 13.30 til 17.00 og gera þar
margir góð kaup því verði er stillt
í hóf. Frú Unnur Benediktsdóttir
hefur umsjón með föndurtímun-
um og segir hún að fólkið vinni
mikið og sýni mikinn dugnað og
vinnugleði. Sigrún.
Sam Avant spilar á Vínlandsbar á
Hótel Loftleiðuin og segir frá „pöbb-
unum" í Knglandi.
Enskur „pöbb-
kynnir“ á
Loftleiðum
SAM AVANT, heitir Knglendingur
sem hefur það fyrir starfa að spila á
píanó í enskum „pöbbum“ í London.
Hann er nú staddur hér á landi á
vegum bresku ferðaskrifstofunnar
sem hann vinnur einnig hjá við að
kynna Bretland og „pöbbmenningu"
Knglcndinga og ferðast hann víða
um heim í þeim tilgangi. Hann hefur
komið hingað áður, fyrir einu og
hálfu ári síðan.
Hann kom hingað á miðvikudag
og spilar fyrir gesti á Hótel Loft-
leiðum en að sögn Emils Guð-
mundssonar hótelstjóra spilar
Sam á hverju kvöldi á Vínlands-
bar en þar verður leitast við að ná
upp breskri „pöbb“-stemmningu.
Sam spilar á píanóið og sýndar
eru myndir frá London auk þess
sem hann segir frá borginni og
börunum þar. Þá er til reiðu bjór,
íslenskur að vísu.
Sam Avant fer aftur út á
fimmtudaginn og heldur til Eng-
lands en þaðan er ferð hans heitið
til Nýja-Sjálands. Hann hefur far-
ið víða, t.d. til Júgóslavíu, Japan,
Ástralíu, Frakklands og annarra
landa.
Mynd þessi var tekin á vígsludag Hjúkrunarheimilis aldraðra í Kópavogi í
maí sl. I.jó.smynd Mbl. Kristján.
Hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi:
Síðasta bauka-
söfnunin í dag
FJÓRÐA og síðasta allsherjarsöfn-
un bauka vegna byggingar Hjúkr
unarheimilis aldraðra í Kópavogi
verður framkvæmd í dag, laugardag-
inn 7. nóvember. Sjálfboðaliðar úr
Menntaskólanum í Kópavogi og
aðildarfélögunum sem að bygging-
unni standa munu heimsækja öll
heimili í bænum og taka við söfnun-
arbaukum, en nýir baukar verða
ekki afhentir að þessu sinni. Var í
upphafi áætlað að söfnun þyrfti að
standa yfir í tvö ár og eru þau nú
liðin.
Hjúkrunarheimilið er nú full-
reist og unnið er um þessar mund-
ir af kappi við innréttingar og
frágang. Er ráðgert að taka heim-
ilið í notkun á fyrsta fjórðungi
næsta árs.
Alls hefur nú verið byggt fyrir
um níu milljónir króna og hefur
almennt söfnunarfé borið hita og
þunga framkvæmdanna frá upp-
hafi. I fréttabréfi frá stjórn
Hjúkrunarheimilis aldraðra í
Kópavogi segir að samstaða bæj-
arbúa um þetta átak ásamt mikl-
um áhuga og velvilja fólks víða um
land, hafi gert drauminn um bygg-
ingu Hjúkrunarheimilisins að
veruleika og að vonast sé til þess
að samheldnin í Kópavogi nú á
lokasprettinum verði jafn góð og
verið hefur til þessa.
Þar sem nokkur brögð munu að
því að baukar séu ekki til staðar á
heimilum í Kópavogi mun söfnun-
arfólkið bjóða fólki sérstök viður-
kenningarskjöl fyrir fimmtíu
króna styrktarframlag. Verða slík
skjöl einnig fáanleg á skrifstofu
Hjúkrunarheimilisins þar til
heimilið verður að fuliu frágengið.
Samtök áhugamanna um fjölmiðlarannsóknir:
Halda ráðstefnu um
myndbandabyltinguna
VISTFÓLKIÐ á Hrafnistu heldur
sína árlegu handavinnusölu næst-
komandi laugardag 7. nóvember frá
kl. 14.0«.
Að vanda er þar margt góðra
muna, hlýr prjónafatnaður til
vetrarins, jóladúkar og fleira til
jólagjafa svo eitthvað sé nefnt.
Nýlega voru gerðar breytingar
og endurbætur á húsnæði fyrir
handavinnukennslu og samkomu-
hald og verður sölusýningin á
laugardaginn í nýja föndursalnum
á 3ju hæð Hrafnistu.
SAMTÖK áhugamanna um fjölmiðla-
rannsóknir efna til fræðslufundar um
myndbandabyltinguna að Kjarvals-
stöðum í dag og hefst hún kl. 14.00.
Yfirskrift ráðstefnunnar er „Mynd-
bandabyltingin, félagsleg mengun eða
þjóðþrif. Fimm menn hafa framsögu
á ráðstefnunni og eru þeir Andrés
Björnsson, útvarpsstjóri, sem ræðir um
afstöðu ríkisútvarpsins til myndbanda-
byltingarinnar, Sigurður Líndal, pró-
fessor, sem ræðir um hina lagalegu
hlið málsins, Njáll Harðarson, annar
eigandi fyrirtækisins Videoson hf., sem
gerir grcin fyrir afstöðu og áformum
fyrirtækisins, Þorbjörn Björnsson, sem
ræðir byltinguna út frá félagsfræðilegu
sjónarhorni og llaukur Ingibergsson,
en hann kemur frá SÍS og talar um
notkun myndbanda í fræðsluskyni og
úti í atvinnulífinu.
Félagið „Samtök áhugamanna um
fjölmiðlarannsóknir" var stofnað sl.
sumar og er það opið öllum að sögn
sr. Bernharðs Guðmundssonar,
fréttafulltrúa kirkjunnar, sem er
formaður félagsins,. Á stofnfundi fé-
lagsins voru 12 manns en að sögn sr.
Bernharðs hefur félagsmönnum
fjölgað ört undanfarið. Stjórn fé-
lagsins skipa: sr. Bernharður Guð-
mundsson, Þorbjörn Broddason lekt-
or og Hallgrímur Thorsteinsson
fréttamaður.
Ráðstefna þessi um myndbanda-
byltinguna er fyrsta verkefni félags-
ins en áformað er að halda reglu-
bundna fundi í vetur þar sem kynnt-
ar verða rannsóknir og efnt til um-
ræðna um fjölmiðlamál. Sagði sr.
Bernharður að tilgangur félagsins
væri að vekja fólk til umhugsunar
um áhrif fjölmiðla á mannlegt líf og
efla rannsóknir á því sviði.
Þau mistök urðu í blaðinu í gær, að með umsögn Braga Ásgeirssonar um
myndlistarsýningu Arnar Inga birtist mynd frá eldri sýningu. Hér birtist
mynd frá sýningu listamannsins, sem stendur yfir að Kjarvalsstöðum.
Handavinnusala í Hrafnistu
l>órdur Ben sýnir að Kjarvalsstöðum
ÞÓRÐUR BEN hefur opnað sýningu að Kjarvalsstöðum og fjaiiar
hún um skipulag Reykjavíkurborgar. Eru á sýningunni arkitektúr-
teikningar ýmsar sem lýsa hugmyndum Þórðar á þessu sviði. Þá eru
og á sýningunni þrjú myndlistarverk. Teikningarnar eru til sölu.
f
tFfti fv.ý?
Nokkrir munanna á sýningunni.
BINGÓ BINGÓ
Á morgun kl. 3, sunnudag, veröur BINGÓ á HÓTEL BORG. Stórgóöir vinningar. Flugferöir, reiðhjól, húsgögn,
matarkarfa og margt, margt fleira. Nú mæta allir.
Kvennadeild Slysavarnafélags íslands í Reykjavík.