Morgunblaðið - 04.12.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.12.1981, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, simi 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 100 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 6 kr. eintakiö. Neyð Pólverja Um allan hinn vestræna heim, þar sem menn hafa nóg að bíta og brenna, þrátt fyrir ýmislegt efnahagslegt andstreymi, er nú leitað til almennings með óskum um, að menn leggi eitthvað af mörkum til aðstoðar Pólverjum. Vetrarmánuðirnir eru myrkir í Póllandi af mörgum ástæðum, þó ekki síst vegna skorts á matvælum og öðrum nauðsynjavör- um. Landflótta Pólverjar um víða veröld eða fólk af pólskum ættum hefur myndað samtök til stuðnings þeim, sem halda kyrru fyrir í fá- tæktinni á gömlu ættjörðinni; katólska kirkjan beitir afli sínu til að safna mat'vælum á Vesturlöndum fyrir Pólverja; Rauði krossinn og aðrar hjálparstofnanir láta neyð Pólverja einnig til sín taka. Héðan hafa verið send matvæli, svo sem eins og lýsi handa skólabörnum. Fregnir af daglegu lífi manna í Póllandi minna helst á lýsingar á ástandinu í Evrópulöndum fyrstu árin eftir heimsstyrjöldina, á meðan framleiðslutækin voru enn í rúst og almenningur eygði enn enga leið út úr hörmungum sínum. Fátæktarkerfi kommúnismans, sem Pólverjar hafa mátt búa við lengst af eftir síðari heimsstyrjöldina, má líkja við rekstur þjóðféiags á stríðstímum, því að í löndum kommúnismans er það hervélin, sem hefur forgang og þá fyrst fær fólkið eitthvað til sinna þarfa, þegar herinn hefur fengið sitt. í stríðshrjáðum ríkjum Vestur-Evrópu var með markvissum hætti og með virðingu fyrir athafnafrelsinu unnið að endurreisn í kjölfar styrj- aldarinnar. Enn vita Pólverjar ekki, hvað morgundagurinn ber í skauti sér, yfir þeim hvílir hin sovéska ógn, og þeir vita ekki, hvenær þeir hafa að mati Krelmverja stigið það skref í baráttunni við fátæktina og neyðina, sem höfðingjunum í Moskvu finnst ógnun við veldi sitt og nægileg ögrun til að senda skriðdreka inn í Pólland. Ekkert kommún- istaríkjanna getur lagt neitt meira af mörkum til hjálpar Pólverjum, í þeim öllum búa menn við þröngan kost. Við, sem orðið höfum rík fyrir eigin atorku innan hins frjálsa hagkerfis, eigum að rétta Pólverjum hjálparhönd í neyð þeirra, um leið og við vonum, að takist þeim að þreyja þorrann og góuna muni losna um fátæktarbönd kommúnismans. Capo Verde Utanríkisráðherra Capo Verde Silvano da Luz dvaldist hér á landi í síðustu viku og var þá undirritaður samningur um áframhaldandi aðstoð íslendinga við þróun fiskveiða á þessum fátæku Atlantshafseyj- um, sem eru að stíga fyrstu skref sín á sjálfstæðisbrautinni. Undirritun samningsins, sem gildir til 1985, er staðfesting beggja aðila á því, að vel hafi til tekist fram til þessa, en í júní 1980 hóf rs. Bjartur fiskirannsókn- ir við eyjarnar. Nú er í undirbúningi smíði fiskiskips, sem er sérhannað til veiða við Capo Verde og í þróunarríkjum. Við þróunaraðstoð geta ríki valið á milli tveggja höfuðkosta, að láta aðstoðina í té fyrir milligöngu alþjóðastofnana, eða taka upp beint samband við eitthvert þróunarríki og aðstoða það með þeim hætti. íslendingar hafa satt að segja ekki látið þróunarmál mjög mikið til sín taka til þessa, en þó einkum tengst þeim í gegnum alþjóðastofnanir. Með aðstoðinni við Capo Verde er farið inn á nýja braut. Nú geta íslendingar betur en áður fylgst með því, hvaða árangri aðstoð þeirra skilar. Ef vel gengur, eins og vænta má, verður samstarf okkar við íbúa Capo Verde til þess, að við færum frekar út kvíarnar á þessu sviði. Silvano da Luz, utanríkisráðherra, sagði, að samvinna íslands og Capo Verde gæti orðið öðrum þjóðum til eftirbreytni. Islendingar settu til dæmis engin póltiísk skilyrði fyrir aðstoð sinni og fyrir íbúa Capo Verde væri það grundvallaratriði. Auðvitað á ekki að ástunda þróunaraðstoð með hugarfari heimsvaldasinnanna, sem allt vilja undir sig leggja, raunar yrðu íslendingar næsta hjákátlegir í því hlutverki, þótt þeir líti að jafnaði nokkuð stórt á sig. Hitt er víst, að við höfum meiri skilning en flestar aðrar vestrænar þjóðir á því viðhorfi eyjaskeggjanna á Capo Verde, að þeir telji eðlilegt að líta vel til beggja átta á sjálfstæðisbraut- inni. Þjóðviljinn og prófkjörið Eins og við var að búast rembist Þjóðviljinn við að reyna koma illu af stað innan Sjálfstæðisflokksins í kjölfar prófkjörsins. í því efni er blaðið sjálfu sér samkvæmt, enda það eitt eftir sem stefnumið Alþýðu- bandalagsins að koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn líklega í nafni þeirra „sögulegu sátta", sem forsætisráðherra eru kærastar. Ein af helstu röksemdum Þjóðviljans í árásinni á prófkjörið er, að í því hafi ekki fengist nein „afgerandi úrslit" um borgarstjórnarefni sjálfstæðismanna, af því að ekki hafi verið mikill atkvæðamunur á efstu mönnunum í prófkjörinu. Þjóðviljinn ætti að fara sér hægt á þessari braut, minnugur þess, að aðeins nokkrir tugir atkvæða tryggðu vinstri mönnum meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur 1978. Voru það ekki „afgerandi úrslit"? A að skilja vangaveltur Þjóðviljans um prófkjör sjálfstæðismanna svo, að blaðið sé að komast á þá skoðun, að samstarf vinstri manna í borgarstjórninni í tæp fjögur ár byggist á hreinum misskilningi vegna skorts á „afgerandi" kosningaúrslitum? Blönduvirkjun: Landeigendur ákveði sig fyrir 16. desember Landeigendum var kynnt samþykkt ríkisstjórnarinnar um röðun næstu vatnsafls- virkjana landsmanna á fundi á Blönduósi á þriðjudag. Á fundinum voru ákveðin tíma- mörkin 16. desember nk. hvað varðar frest norðan- manna til að taka ákvörðun um hvort þeir fallast á að láta eftir lönd til virkjunar Blöndu samkvæmt virkjana- tilhögun 1. I samþykkt ríkisstjórn- arinnar er þess getið, að ef Blanda verður ekki virkjuð nú, verði Fljótsdalsvirkjun næsta stóra vatnsaflsvirkj- unin. Skoðanir hafa verið skiptar fyrir norðan um hvort samþykkja eigi virkj- anatilhögun þá sem ákveð: ið er að virkjað verði eftir. I viðtölum við norðanmenn í gær kom fram að staða mála fyrir norðan sé mjög svipuð og verið hefur, en hreppsnefndirnar sex sem hér eiga hlut að máli munu fjalla um mál þetta á næstu dögum. Kristján Ragnarsson: „Ef olíugjald kemur til hlutaskipta glatar út- gerðin 65 millj. krónaa „ÉG IINDRAST þessi ummæli rád- herra og minni á að núverandi ríkis- stjórn hækkaði olíugjald með lögum úr 2% í 7,5% þann 1. október 1980. Ég get því ætlað að ríkisstjórnin hefði ekki gert það, nema hún hafi haft til þess brýna ástæðu. Þróun olíuverðs hefur verið útgerðinni óhagstæð frá því að olíugjaldið var ákveðið. Þannig hefur verð á gasolíu hækkað um 58% og á svartolíu um 82%, frá því að olíugjaldið var ákveðið 7,5%. Fiskverð hefur á sama tíma hækkað um 42%,“ sagði Krist- ján Ragnarsson, formaður Lands- sambands ísl. útvegsmanna þegar Morgunblaðið bar undir hann þau ummæli Svavars Gestssonar í Þjóð- viljanum í gær, að eðlilegt sé að olíu- gjald verði fellt niður til að greiða fyrir samningum við sjómenn. „Öllum eiga að vera kunnir erf- iðleikar útgerðarinnar vegna hins stórhækkaða olíukostnaðar og það þekkir fólkið úti á landsbyggðinni, sem hitar hús sín með olíu. Eg tel hins vegar fráleitt að olíugjald verði lækkað við næstu fiskverðs- ákvörðun. Ef ráðherrann meinar það sem hann segir í öðru orðinu, að af- koma útflutningsatvinnuveganna þurfi að vera trygg, þá getur hann ekki í hinu orðinu gert þær ráð- stafanir, sem valda mundi aðal- aútflutningsstarfseminni stór- auknum erfiðleikum. Ég vil líka minna á, að þegar síðustu kjara- samningar við sjómenn voru gerð- ir, um sl. áramót, var olíugjaldið 7,5% og er því ekki um neina rösk- un gagnvart sjómönnum að ræða, þótt það haldist óbreytt," sagði Kristján. Morgunblaðið spurði Kristján hvað olíugjaldið gæfi útgerðinni miðað við að það héldist 7,5%. „Eins og er eru það 150 millj. kr. og ef olíugjaldið kæmi til hluta- skipta þá myndi útgerðin glata 65 millj. kr. Vegna ummæla ráð- herra, að afnám þess væri barátta gegn verðbólgu, vil ég benda á að afnám olíugjalds er verðbólgu- hvetjandi," sagði Kristján Ragn- arsson að lokum. Ákvæði vantar um hvernig greiðslu barnabóta skuli hagað f nýju skattalögunum í SKATTALÖGUNUM nýju er ekki kveðið á um hvernig greiðslu barnabóta skuli hagað og hafa lögfróðir menn bent á að þarna sé gat f lögunum. Jafnvel sé mögulegt fyrir fólk, sem rétt á á barnabótum, að krefjast þess, að þær séu greiddar í einu lagi. Ef slíkt sé ekki gert kunni viðkomandi að eiga rétt á vöxtum. Venjulegast er, að barnabætur séu greiddar í fernu lagi. Árni Kolbeinsson, deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu, sagði það rétt, að í nýju lögunum væri ekk- ert slíkt ákvæði og reglugerð um framkvæmdina, sem til væri í handriti, hefði ekki öðlazt gildi. Hins vegar sagðist Árni ekki telja líkur á, að fólk ætti heimtingu á greiðslu barnabóta í einu, lagi og ef um slíkt hefði verið að ræða að fá þá vexti ofan á bæturnar. „í eldri skattalögunum í c-lið 25. greinar var mjög hliðstætt ákvæði um barnabætur og er í núgildandi lögum," sagði Árni Kolbeinsson. „Þar segir, að barnabætur greiðist framfæranda barns að því marki, sem eftirstöðvum nemi, þegar frá hafi verið dregnar greiðslur ákveðinna opinberra gjalda, sem síðan eru talin upp í forgangsröð. Síðan kemur setning þar sem seg- ir, að fjármálaráðherra skuli ákveða gjalddaga eftirstöðvanna ár hvert. I 69. grein ‘nýju skattalaganna, en samkvæmt þeim hefur tvívegis verið lagt á, er þetta ákaflega líkt upp sett, og þessi grein samsvarar c-lið 25. greinar gömlu laganna. Orðalagið er það sama nema hvað ákvæðið um að fjármálaráðherra skuli ákveða gjalddaga er ekki í nýju lögunum. Hins vegar er al- menn reglugerðarheimild í 119. grein nýju laganna, þar sem segir, að ráðherra sé heimilt að kveða nánar á um framkvæmd laganna með reglugerð. Sú ákvörðun, sem ráðherra hefur tekið á grundvelli eldri heimildar um skiptingu greiðslu barnabóta, hefur ekki enn birzt í formi reglugerðar. Mér finnst líklegt að þessi setn- ing hafi fallið út vegna mistaka. í lögunum stendur aðeins að barna- bætur skuli greiða, en ekkert er tekið fram um hver gjalddaginn eigi að vera eða hvernig og hvenær eigi að greiða barnabætur. I reglu- gerðarheimildinni almennu er ráðherra hins vegar falið að setja nánari reglur um framkvæmd lag- anna. Ég myndi túlka það þannig, að sú heimild næði einnig til þessa þó svo að það sé kannski ekki haf- ið yfir allan vafa,“ sagði Árni Kolbeinsson, deildarstjóri. Vegna ummæla dr. Gunnars Vegna þeirra ummæla dr. Gunnars Thoroddsens í Tíman- um í gær, að ég hafi ekki leitað upplýsinga hjá honum, þegar ég skrifaði bókina um Ólaf Thors, vil ég geta þess, að ég átti langt samtal við hann í Mbl. fyrir for- setakosningarnar 1968, þar sem fjallað var um' líf hans og störf og m.a. forsetakosningarnar 1952 og studdist ég við samtöl okkar, eins og fram kemur í bók- inni um Ólaf. Þá þegar hafði ég unnið að ritverkinu um Ólaf Thors um nokkurt skeið. Hitt er svo annað mál, að hæpið er að leita um of til núlif- andi stjórnmálamanna, þegar skrifað er ritverk eins og „Olafur Thors" og vil ég benda á svofelld ummæli í bókinni þess efnis: „Ég hef helst leitað heimilda í sam- tíðinni, meðan sagan var að ger- ast og allt var á hreyfingu í kringum höfuðpersónu þessa rits, en þó einnig í síðari tíma heimildir. Þær eru samt einatt harla varasamar, svo að ekki sé meira sagt. Þegar stjórnmála- menn horfa um öxl, hættir þeim til að segja söguna eins og þeir vilja, að hún hafi verið, en ekki eins og hún var.“ Matthías Johannessen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.