Morgunblaðið - 06.12.1981, Síða 2
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1981
„Lífsjátning“
— endurminningar
Guðmundu Elíasdóttur
ÚT ER komin hjá Iðunni bókin
„LiTsjátning“, endurminningar Guð-
mundu Elíasdóttur söngkonu. Ing-
ólfur Margeirsson skráði. — Þetta
er stór bók, tæpar þrjúhundruð blað-
síður og með mörgum myndum.
„Saga Guðmundu er ævintýri lík-
ust,“ segir m.a. á kápusíðu, — „og
þó umbrotasamari en nokkurt
ævintýri. Hún segir hér frá bernsku
sinni og uppvexti á Vestfjörðum,
dvöl í Reykjavík rétt fyrir seinna
stríð, starfi og námi í Kaupmanna-
höfn á myrkum hernámsárum, þar
sem hún hlýðir kalli söngsins. Hún
greinir frá hjúskap sínum sem var
nokkuð rysjóttur á köflum, margvís-
legum vinakvnnum, listferli sínum
og lífsbaráttu heima og erlendis."
Haukur Clausen á
Kjarvalsstöðum
Myndlíst
Valtýr Pétursson
Þeim er ekki fisjað saman
Clausenbræðrum, eins og þeir
vita, sem muna þá tíma, er þeir
gerðust mestir garpar í Evrópu,
en síðan eru liðnir tugir ára og
margt hefur á daga þeirra
drengja drifið síðan. Nú er
Haukur þekktur tannlæknir og
hefur unnið að þeirri listgrein
um langt árabil, en færri hafa
vitað, að jafnframt tannlækn-
ingum hefur hann lagt stund á
málaralist í frístundum sinum
af sömu elju og hann hefur sýnt
á öðrum sviðum. En eplið fellur
ekki langt frá eikinni, eins og
þar stendur. Faðir þeirra bræðra
var mikið með pentskúfinn á
lofti, er hann átti stund frá því
að aka ráðherrum um allar triss-
ur. Nú hefur Haukur gert sér lít-
ið fyrir og fyllt Vestursal Kjar-
valsstaða með olíumálverkum og
vatnslitamyndum, og það er eng-
in smásýning þarna á ferð; 105
númer, geri aðrir betur í hjá-
verkum.
Landslagið er aðalviðfangs-
efni Hauks á þessari sýningu
Hann vinnur myndir sínar bæði
í olíulitum og vatnslitum. Ein
abstraktmynd er þarna eins og
óboðinn gestur, en að mínum
dómi er hún með því besta, sem
á sýningunni finnst. Það er engu
líkara en að hið abstrakta form
eigi einkar vel við skapferli
Hauks, og hann kemur mér fyrir
sjónir sem snarpur íþróttaiðk-
andi í þessu verki. Nú má vera,
að hann sjálfur sé á öðru máli,
og hann um það. En ég er sann-
færður um, að honum hæfir bet-
ur að taka duglega til hendi en
að nostra of mikið við viðfangs-
efnin, eins og óneitanlega kemur
í ljós í sumum þeirra verka, er
hann sýnir þarna. Það fer heldur
ekki milli mála, að þessi sýning
Hauks er nokkuð misjöfn, og
skal það ekki koma neinum á
óvart, þegar aðstæður og fjöldi
verka er meðtekinn í reíkning-
inn.
Persónulega finnst mér Hauk-
ur Clausen ná bestum árangri í
sumum af vatnslitamyndum sín-
um, og það er mitt álit, að í
mörgum tilfellum hefði hann átt
að nota karton við innrömmun,
en hann segist ekki vilja sjá
slíkt. Svona eru skoðanir oft á
tíðum skiptar. Allt er á þessari
sýningu vandlega innrammað,
og eru ekki margir listamenn,
sem efni hafa á slíkum lúxus.
Frágangur allur er því mjög
vandaður og til sóma Hauki.
Þarna voru nokkúr verk, sem
komust nær mér en önnur. Má
minnast á nr. 83, er mér féll sér-
lega í geð og 101, sem er vatns-
litamynd. Nr. 96 einnig í vatns-
litum og nr. 71, 68 og nr. 38,
Akrafjall. Ef fólk gætir vel að,
kemur í ljós, að ég er mest inni á
vatnslitum hjá Hauki. Það er
eins og hann nái ekki sama
árangri í olíumálverkum sínum,
og má það vera vegna þess, hve
hann er háður fyrirmyndum sin-
um og leggur áherslu á að koma
þeim sem nosturlegast til skila.
Þegar á heild þessarar sýn-
ingar er litið, verður maður al-
deilis hlessa yfir þeim mikla
mannlega krafti, sem stendur að
baki henni, þegar það er athug-
að, að hér er um frístundavinnu
að ræða. Til hamingju með af-
raksturinn.
Heilmikiö
úrval
af
ítölskum
smávörum
Tilvaliö í
jólagjafir
til
heimilisins
HÚSGÖGN Langholtsvegi 111, símar 37010-37144.
Salómon svarti
og Bjartur
í endurútgáfu
BÓKAFORLAG Odds Björnsson-
ar hefur gefið út bókina Salómon
svarti og Bjartur eftir barnabóka-
höfundinn Hjört Gíslason. Bókin
kom fyrst út fyrir 20 árum og naut
mikilla vinsælda meðal barna og
unglinga. Bókin hefur verið
ófáanleg í mörg ár.
í bókinni er sagt frá ýmsum
ævintýrum, sem bræðurnir Fífi
og Fói lenda í ásamt þeim félög-
um Salómoni og Bjarti. Salóm-
on er hrútur en Bjartur er
hrafn, hvítur hrafn, sem þeir
bræður og félagar þeirra finna
og ala upp. Viðskipti krakkanna
og dýranna við Láka löggu eru
skemmtileg. Bókin er hollt les-
efni fyrir bæði börn og full-
orðna, þar sem gamanið situr í
fyrirrúmi. Fjölmargar teikn-
ingar eru í bókinni eftir Halldór
Pétursson, listmálara.