Morgunblaðið - 18.12.1981, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.12.1981, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR 278. tbl. 68. árg. FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Bandarískum hershöfðingja rænt á Italíu Washington, 17. desember. AP. BANDARÍSKA hershöfðingjan- um James L. Dozier var rænt frá heimili sínu í Verona á Italíu í kvöld, að sögn bandaríska varn- armálaráðuneytisins. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir. Rauðu herdeildirnar eru grunað- ar um ránið. Fundir vegna Gólanhæða Damaskus, Tel Aviv, Sameinuðu þjóðunum, 17. desember. Al*. SÝRI.AND fór fram á neyðarfund utanríkis- og varnarmálaráðherra arabalandanna vegna ákvörðunar ísraela að innlima Gólanhæðir í ísrael í dag. Ariel Sharon, varnarmálaráðherra Israels, sagði í dag að ísraelsk herlið í Gólanhæðum væru ekki að undir búa árás en að þau hefðu verið efld til að varna árás Sýrlendinga eða Palestínumanna á ísrael vegna inn- limunar svæðisins. Sýrlendingar skoruðu á öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna að dæma innlimun hæðanna í ísrael ógilda. Heimildir hermdu að Sýrlend- ingar legðu til að ísrael fengi viku frest til að fella innlimunina úr gildi. ísrael missti stuðning fjöida ríkja, þar á meðal Islands, á alls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna í atkvæðagreiðslu á miðviku- dagskvöld vegna Gólanhæða. Alls 141 þjóð studdi tillögu þar sem Israel var álasað fyrir að koma illa fram við íbúa Gólanhæða. Fulltrúi ísraels hjá SÞ greiddi einn atkvæði gegn tillögunni en 3 þjóðir sátu hjá. Þegar tillagan var fyrst borin upp á þinginu 30. nóv- ember sl. greiddu 96 þjóðir at- kvæði með tillögunni, 2 voru á móti og 24 sátu hjá. Ronald Reagan Bandaríkjafor- seti sagði í kvöld að ákvörðun ísra- elska þingsins að innlima Gólan- hæðir hefði komið Bandaríkja- mönnum á óvart og að Bandaríkja stjórn harmaði hana. Hann sagði að friðarumleitunum í Mið- Austurlöndum yrði haldið áfram og sagðist vera bjartsýnn varð- andi þær. Fjökli sovéskra herskipa hefur komið til Póllands á síðustu dögum. Blóðsúthellingar í Póllandi — frekari refsiaðgerðum hótað London, 17. deoember. UTVARPIÐ í Varsjá sagði í dag að sjö Pólverjar hefðu beðið bana og 400 særst í átökum við herlögreglu í Gdansk og Slesíu. Efnt var til mótmæla í miðborg Varsjár á afmæli Gdansk-óeirðanna 1970 og boðaðar voru strangar öryggisráðstafanir. Sjö námamenn voru drepn- ir og 39 særðust þegar þeir réðust á lögreglu í námu við Katowice, sagði útvarpið. 41 lögreglumaður særðist í átök- unum við námamennina, sem beittu grjóti, klaufjárnum og öxum. 160 herlögreglumenn og 164 óbreyttir borgarar særðust í Gdansk þegar vopn- aðar hersveitir réðust inn í Lenin-skipasmíðastöðina og brutu verkfall á Bak aftur. Þetta voru fyrstu opinberu fréttir af átökum síðan herlög voru sett. Allt frá 15.000 til 75.000 hafa verið handteknir. Nokkur mótmæli urðu á Frelsistorginu í Varsjá þar sem aðallega ungt fólk kom saman.Atta voru handteknir, en yfirvöld sögðu að rólegt væri í borginni. Yfirvöld boðuðu nýjar og strangar ráðstafanir gegn glæpum og árásum á öryggi ríkisins. Slík mál fá skyndi- meðferð, viðurlög verða 3—25 ára fangelsi en dauðarefsing í sumum tilfellum og þeim verður ekki áfrýjað. Fréttaritari BBC í Varsjá sagði í kvöld að höfuðborgin væri umkringd skriðdrekum og stórskotaliði, eftirlits- stöðvum hefði verið fjölgað í miðborginni, bifreiðar væru stöðvaðar hvað eftir annað og rannsakaðar. Hreinsun verkalýðsleiðtoga, mennta- manna og kennara héldi áfram og ógerningur væri að segja til um hve margir væru í haldi. Ógerningur yrði að ráða við ástandið án misk- unnarlausra öryggisráðstaf- ana, kannski í nokkur ár. Sendiherra Póllands í Stokkhólmi staðfesti að Lech Walesa væri í stofufangelsi fyrir utan Varsjá. Að sögn diplómata hefur fangabúðum verið komið upp nærri Gdansk og Varsjá fyrir þúsundir handtekinna Pól- verja. Tveir frjálslyndir menn sem voru kosnir í æðsta ráð flokksins í júlí munu vera í þeim hópi. Allir meðlimir pólsku vísindaakademíunnar hafi verið yfirheyrðir. Áskorun frá biskupum var smyglað úr landi. Skoruðu þeir á stjórnvöld að sleppa Walesa og sögðu það „nauð- synlegt til að koma aftur á jafnvægi" og sögðu að þjóðin væri felmtri slegin. Jozef Glemp erkibiskup sagði í yfirlýsingu að öll þjóð- in þjáðist og henni væri ógnað með hervaldi. Þetta var fyrsta gagnrýni æðsta yfir- manns kirkjunnar á aðgerð- irnar. Leiðtogar Austur-Evrópu- landa, sem komu til Moskvu í dag að vera við hátíðahöld á 75 ára afmæli Leonid Brezhn- evs á föstudag, hafa þeir verið •' beðnir að hjálpa Rússum og auka matvælaflutninga til Póllands. Matvælaflutningar frá Sovétríkjunum munu hafa aukist síðan á sunnudag. Fyrstu farþegar frá Pól- landi síðan um helgina komu til Vesturlanda í kvöld. Pólsk- ur ferðamaður sagði: „Enginn gengur lengur með merki Samstöðu í barmi sínum“. Kulikov setti úrslitakosti lx>ndon, 17. desember. Al\ VIKTOR KULIKOV marskálkur, yfirmaður herafla Varsjárbandalagsins, var í Varsjá á fimmtudaginn og fíjstudaginn og setti Jaruzelski hershöfð- ingja úrslitakosti: „Ef þið gerið það ekki, þá gerum við það,“ samkvæmt frétt sem var smyglað í dag frá fréttaritara BBC í Varsjá, Tim Sebastian. Bandarískur öldungadeildar- maður, J. Bennet Johnston, kvaðst einnig hafa fengið fréttir um úrslitakostina og sagði: „Ef pólski herinn ræður ekki við ástandið tel ég vel geta verið að Rússar geri innrás." Sebastian sagði að aðgerðirn- ar á sunnudaginn hefðu verið vandlega skipulagðar, fallhlífa- hermenn hefðu tekið sér stöðu umhverfis útvarpsstöðvar lands- ins og verið væri að „friða ein- angraða andspyrnuhópa einn af öðrum“ — eins og yfirvöld kom- ast að orði. Liðsflutningar valda vestræn- um sérfræðingum verulegum áhyggjum, herlið er á verði á götum Varsjá, mörgum götum hefur verið lokað, persónuskil- ríkja er oft krafizt og stjórnmálalíf, m. a. kommúnistaflokksins, hefur ver- ið upprætt. „Eitt virðist víst: það verður ekkert afturhvarf til sigurvímu síðustu 18 mánaða, það verða engar fleiri tilraunir, það verða sennilega engin samtök sem heita Samstaða. Austur-Evrópa Viktor Kulikov er að heimta aftur umráðasvæði sitt,“ sagði Sebastian. Hann hafði eftir ónefndum austur-evrópskum blaðamanni: „Þegar menn tala um stjórnmál hérna líta þeir fyrst á landakort- ið. Samstaða glevmdi að líta á það.“ Aðstoða ekki Pólverja á meðan herlög gilda WjLshington, 17. deæmber. AP. „ÞAÐ ER AÐ sjálfsögðu ómögu- legt fyrir okkur að halda áfram að reyna að hjálpa Pólverjum að leysa efnahagsvanda sinn á meðan herlög gilda í landinu, þúsundum er haldið í fangelsum og gengið er á lögmæt réttindi sjálfstæðra verkalýðsfélaga," sagði í yfirlýsingu sem Ronald Reagan Bandaríkjaforseti las á blaðamannafundi sínum í kvöld. Hann sagði að aðgerðir stjórn- valda í Póllandi brytu í bága við Helsinki-sáttmálann og mann- réttindi. Hann sagði að Bandaríkja- menn og bandamenn þeirra hefðu gert Sovétmönnum ljóst hversu alvarlega þeir myndu líta afskipti Sovétmanna af vandanum í Póllandi en vildi ekki segja til hvaða ráða Bandaríkin myndu grípa ef ástandið versnar þar. „En við látum þá (Sovétmenn) ekki komast upp með neitt,“ sagði forsetinn. Hann sagði að það þyrfti einfeldning til að halda að pólsk stjórnvöld hefðu grip- ið til þessara aðgerða án vit- undar Sovétmanna. Bankar á Vesturlöndum neituðu í dag Pólverjum um 350 milljón dollara lán til viðbótar fyrri lánum. Pólska stjórnin fór fram á lánið í vik- unni svo að hún gæti greitt vexti af erlendum skuldum þjóðarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.