Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982 Bæjarstjórnarmeirihlutinn á Akureyri: Klofnaði í afstöðu til lóðahækkunar M£IRIHLUTI bæjarstjórnar Akureyrar klofnaði í gær í afstöðu til tilllögu meirihluta bæjarráðs, um hækkun á byggingargjaldi fyrir einbýlishúsa- og raðhúsalóðir við göturnar Jörvabyggð og Háhlíð. Lagði meirihluti bæjarráðs, þeir Ingólfur Árnason, kosinn af Sam- tökum frjálslyndra o£ vinstri manna, Freyr Ófeigsson frá Alþýðu- flokki og Sigurður Oli Brynjólfsson frá Framsóknarflokki, til að byggingargjöld af raðhúsalóðum hækkuðu um 30 þúsund, en af einbýlishúsalóðum um 50 þúsund krónur. Þessi tillaga var lögð fram á þykkt tillaga frá Tryggva bæjarstjórnarfundi í gær, og var hún felld. Atkvæði á móti greiddu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þeir Gísli Jónsson, Sigurður J. Sig- urðsson og Sigurður Hannes- son, og þau Helgi Guðmunds- son og Soffía Guðmundsdóttir frá Alþýðubandalagi, og Tryggvi Gíslason frá Fram- sóknarflokki. Jóhannes Sig- valdason frá Framsóknar- flokki sat hjá, en fylgjandi voru Sigurður Óli Brynjólfs- son F., Ingólfur Árnason SFV., og Freyr Ófeigsson og Þor- valdur Jónsson Alþýðflokki. Meirihluta bæjarstjórnar Ak- ureyrar mynda fulltrúar Al- þýðuflokks, Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og Samtak- anna, og klofnaði meirihlutinn því í afstöðunni til þessarar auknu skattheimtu á hús- byggjendur. Á hinn boginn var sam- Gíslasyni, um að nefnd kanni og endurskoði bygginga- gjaldskrá, en slík endurskoðun fór fram fyrir skömmu, og ný gjaldskrá var samþykkt í vor er leið, að tillögu bæjar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Ljósm. Mbl.: Emilía. Frá fundi yfirnefndar Verðlagsráðs sjávarútvegsins, sem hófst klukkan 17 I gær og lauk röskri klukkustund síðar. Fulltrúar kaupenda eru til vinstri, þeir Friðrik Pálsson og Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, oddamaður nefndarinnar, Ólafur Davíðsson, við borðsendann og fulltrúar seljenda, þeir Kristján Ragnarsson og Ingólfur Ingólfsson, eru hægra megin með borðið. Hafnarstjórn: SÍS vill útvega milljón dollara lán til byggingar eigin legukants - í annað sinn, sem stefnt er að óeðlilegri fyrirgreiðslu til SÍS, segir Birgir ísleifur Gunnarsson Á FUNDI hafnarstjórnar Reykja- víkur fyrir skömmu kom fram til- boð frá SÍS um milligöngu til út- Gluggagægir hrellir íbúa efra Breiðholts MAÐUR sem hefur haft í frammi ósiðlegt atferli hefur hrellt íbúa efra Breiðholts um nokkurt skeið. Maðurinn, en líkur benda til að einn og sami maðurinn hafi verið á ferli, hefur legið á gægjum við glugga og ummerki hafa verið um, að hann hafi fróað sér. Tvær kærur hafa borist. Hin fyrri í Spóahólum. Þar var maður á gægjum í vor og haust. Honum var lýst sem grannvöxnum, með ljóst og nokkuð þykkt hár og um eða yfir tvítugt. Hann var þar á gægjum og ummerki voru um, að hann hefði fróað sér. Hin kæran Seldu í Grims- by og Hull vegunar láns hjá City Bank að upp- hæð 1 milljón dollara. Því fylgdi sú ósk að féð yrði notað til byggingar legukants í Sundahöfn, sem yrði athafnasvæði SÍS. Afgreiðslu máls- ins var frestað til næstkomandi miðvikudags, en síðan mun borgar- stjórn taka endanlega afstöðu til lántökunnar, verði hún samþykkt í hafnarstjórn. Að sögn Birgis ísleifs Gunn- arssonar, fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins í hafnarstjórn, töldu fulltrúar flokksins ekki mögu- leika á þessari lántöku, þar sem nú væri nær allur rekstrarhagn- aður hafnarsjóðs bundinn til af- borgana og vaxta af lánum næstu 4 árin og bættist þetta lán við, yrði ekkert af framkvæmd- um þennan áratuginn miðað við að núverandi gjaldskrá héldi verðmæti sínu. Um þetta urðu nokkrar deilur og flutti formaður hafnarstjórnar, Björgvin Guð- mundsson, tillögu um að gengið yrði til viðræðna við SÍS á þess- um grundvelli og fulltrúar ann- arra vinstri flokka voru honum fylgjandi. Þetta væri í annað skiptið, sem stefnt væri að því að SÍS fengi mjög óeðlilega fyrir- greiðslu í hafnarstjórn, þvert ofan í allar reglur og eðlileg vinnubrögð. Yrði þetta afgreitt væri eðlilegast að halda fundi hafnarstjórnar á skrifstofum SÍS frekar en á skrifstofu hafn- arstjóra. Eins og áður sagði hefur af- greiðslu málsins verið frestað. TVÖ íslenzk skip seldu afla í Hull og Grimsby í gærmorgun. Vigri RE seldi 139,4 tonn í Hull fyrir 1.469,7 þúsund krónur og var með- alverð á kíló kr. 10,54. Þá seldi Arinbjörn RE 141,3 tonn í Grimsby fyrir 1.173,3 þúsund kr. og var meðalverð á kíló kr. 8,30. barst úr Austurbergi og var hann á ferð í sumar og í október. Þar voru svipuð ummerki og sagt að ljóshærður maður hefði verið á ferð. Þann 29. desember vék maður sér að konu í stigagangi í fjölbýl- ishúsi í Hólahverfi og gerði sig líklegan til að ráðast á hana. Mað- urinn hafði hulið andlit sitt með því, að reima úlpuhettu þétt að andliti sínu. Hann lagði á flótta þegar konan veitti mótspyrnu. Óvíst er hvort sami maðurinn hafi verið á ferð, þó líkur þyki benda til þess. Lögreglan hefur vegna þessa haft uppi nokkurt eftirlit, en vill beina þeim tilmælum til fólks að láta vita ef það sér grunsamlega menn á ferli. Vonum að ráðherra svipti okkur ekki atvinnunni - teljum sölu stöðvarinnar fyllilega lögmæta, segja forsvarsmenn bifreiðastöðvar Steindórs „VID teljum þessi kaup okkar á Bif- reiðastöð Steindórs sf. fyllilega lögmæt. Atvinnuleyfin eru gefin út á fyrirtækið og tilheyra því. Hér er þvf ekki um neina sölu atvinnulcyfa að ræða. Með þessu erum við að tryggja okkur áframhaldandi at- vinnu og treystum því að ráðherra svipti okkur henni ekki,“ sögðu hin- ir nýju forráðamenn bifreiðastöðvar innar í samtali við Morgunblaðið. Þeir sögðu ennfremur, að þegar Ijóst hefði verið að fyrri eigendur Bjarni Bragi Jónsson: „Örðugt til lengdar að hafa öfugan vaxtamuna - Kostnaðarverð fjármagnsins meira en afurðalánanna „ÞAÐ gefur auga leið að örðugt er til lengdar að hafa öfugan vaxtamun í þessu lánakerfi," sagði Bjarni Bragi Jónsson, hagfræðingur Seðlabank- ans, er Morgunblaðið spurði hann um þann mun, sem er á vöxtum á afurðalánum og því fé, sem Seðlabankinn notar til afurðalána. Þau lán eru að mestu fjármögnuð með fé af bindiskyldu viðskiptabanka og sparisjóða hjá Seðlabankanum og eru vextir á þeim 36^ frá Seðlabank- anum, en vextir á afurðalánum hafa verið 2H% frá .Seðlabankanum. Bjarni Bragi sagði, að munur- inn væri þó ekki í raun 8% held- ur um 5%, þar sem ávöxtun fjár- ins á ári væri áætluð 31,1% hjá Seðlabankanum, en bindiávöxt- unin hins vegar 36% þannig að munurinn væri um 5%. „Þetta verður erfiðara er til lengdar lætur og kostnaðarverð fjármagnsins er meira heldur en það sem lánað er, en þessir pen- ingar hafa verið teknir af ávöxt- un eiginfjár eða endurmati gjaldeyrisforða Seðlabankans. í þessu tilfelli er um það að ræða hvort menn vilja veita vaxta- styrki og spurningin er sú hvort menn vilja veita slíka styrki, þó þeir séu faidir í kerfinu," sagði Bjarni Bragi Jónsson. vildu selja bifreiðastöðina, hefðu bifreiðastjórar séð fram á atvinnuleysi og því talið það eina möguleikann að stofna sameignar- félag um kaup á stöðinni til að varna því. Þeir teldu söluna fylli- lega lögmæta og það væri rangt í þessu sambandi að vitna í lög og reglur um atvinnuleyfi bifreiða- stjóra með það í huga að halda því fram að salan væri ólögleg. í þess- um lögum og reglum væri það alls staðar tekið fram að um Bifreiða- stöð Steindórs sf. giltu sérstakar reglur. Bifreiðastöðinni hefði á sínum tíma verið úthlutað 45 leyf- um og þau tilheyrðu Bifreiðastöð Steindórs sf., ekki eigendum henn- ar. Fyrirtækið væri persóna að lögum, atvinnuleyfin fylgdu henni enn og því hefðu engin leyfi verið seld. Það væri augljóst að ágreining- ur væri milli lögmanna kaupenda og seljenda annars vegar og ráðu- neytis hins vegar og því væri rétt- ast að sú leið yrði farin að dóm- Karl í 2.-5. sæti KARL Þorsteins vann Carvalho frá Brasilíu í fjórðu umferð al- þjóðlega unglingamótsins í Rio de Janeiro í gær og er Karl nú í 2.-5. sæti með 3 vinninga, en efstur er Saeed með 3,5 vinninga. I fimmtu umferð teflir Karl við Correa frá Brasilíu, en hann er með 3 vinn- inga, eins og Karl. stólar skæru úr því hvort salan væri heimil samkvæmt lögum eða ekki, en að þeirra mati væri hún fyllilega lögmæt. „Það er ekkert nýtt í þessu máli í dag,“ sagði Brynjólfur Ingólfs- son, ráðuneytisstjóri í samgöngu- ráðuneytinu, er hann var spurður um skoðun samgöngumálaráðu- neytisins á sölu leigubifreiðaleyfa bílastöðvar Steindórs, í gær. Brynjólfur sagði hinsvegar, að fundur yrði í ráðuneytinu í dag, klukkan níu árdegis, þar sem Steingrímur Hermannsson sam- gönguráðherra myndi fara yfir málið með embættismönnum í ráðuneytinu. 97 í Blóð- bankann NÍUTÍU og sjö manns gáfu blóð í Blóðbankanum í gær, en mikil þörf hefur verið á blóði síðustu daga vegna fjölda uppskurða. Að jafnaði þurfa um 50 manns að koma daglega í Blóðbankann til að gefa blóð til að anna þörfum. Þó margir hafi komið í gær, þá er það ekki met, raunar ekki óvenjulegt. Það var sett þegar flugvél og þyrla hröpuðu á Mosfellsheiði 1979. Þá streymdi að mikill fjöldi fólks ótilkvaddur, og gaf blóð. Blóðbankinn vill koma því á framfæri, að um þessar mund- ir er þörf á blóði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.