Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982 13 Bók eftir Qlaf Björnsson væntanleg: Einstaklingsfrelsi og hagskipulag FÉLAG frjálshyggjumanna gefur 2. febrúar næstkomandi út bókina Einstaklingsfrelsi og hagskipulag, sem er ritgerðarsafn eftir Olaf Björnsson prófessor, en þetta er í tilefni sjötíu ára afmælis Ólafs þann dag. Ólafur hefur kennt hag- fræði í fjörutíu ár, verið leiðtogi fjölmennra launþegasamtaka, al- þingismaður Reykvíkinga í mörg ár og er landskunnur fyrir bækur sínar og ritgerðir um þjóðmál. Ritgerðarsafn Ólafs skiptist í fjóra hluta. í fyrsta hlutanum verða ritgerðir um hagfræðileg efni, svo sem um áætlunarbú- skap, skipulagningu heimsvið- skipta, meginágreiningsefni hagfræðinga og ágóðahugtakið og arðránskenningu Marx. I öðr- um hlutanum verða ritgerðir um íslenska hagsögu, um bar- áttuna fyrir verslunarfrelsi á Is- landi og um þróun efnahags- mála frá lýðveldisstofnun 1944. í þriðja hlutanum verða ritgerð- ir um stjórnmál, þar á meðal um það, hvort menntamenn eigi er- indi í stjórnmálabaráttuna, um notkun hugtakanna hægri og vinstri stefna í stjórnmálum og um félagshyggju og velferðar- ríki. í fjórða og síðasta hlutan- um verða ritgerðir um nokkra nafnkunna einstaklinga, þá Adam Smith, Jón Sigurðsson, Ludwig von Mises, Friedrich A. Hayek og Milton Friedman. 100 innbundin eintök verða gefin út sérstaklega, árituð og tölusett af Ólafi. Skafti Harð- arson í Félagi frjálshyggju- manna sagði Morgunblaðinu, að mikil eftirspurn hefði verið eftir fyrri ritum félagsins, sem gefin hefðu verið út með þessum hætti, eftir Friedrich A. Hayek og Jónas Haralz, og hefðu færri Olafur Björnsson fengið áritað eintak en vildu. Þeir, sem vilja tryggja sér slíkt eintak, ge'ta annaðhvort haft samband við Skafta Harðarson eða skrifað Félagi frjálshyggju- manna. Dr. Guðmundur Magnússon háskólarektor skrifar formála að þessu ritgerðarsafni Ólafs Björnssonar. Hjörleifur Guttormsson um 42% hækkunarbeiðni RR: Oft sjást háar tölur, en það verður reynt að halda í „ÞESSAK umsóknir um hækkun raforkuverðs hafa verið að berast til ráðuneytisins. Þær fá hér venjulega afgreiðslu og verða sen- dar gjaldskrárnefnd til afgreiðslu. Það hafa nú oft sést háar tölur, en það verður reynt að halda í og láta hækkanirnar ekki fara fram úr öðrum hækkunum í landinu," sagði Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra er hann var spu- rður álits á yfirlýsingu Egils Skúla Ingibergssonar borgarstjóra í Mbl. nýverið um að Raf- magnsveitur Reykjavíkur þurfi að fá 42% hækkun á gjaldskrá fyrir 1. febrúar til að geta staðið undir rekstri sínum. Hjörleifur sagðist telja all- verulega þörf á hækkun gjald- skrár RR vegna ýmissa atriða, en sagðist ekki vilja tjá sig ná- nar um það á þessu stigi, enda hefði hann ekki kannað málið ítarlega. Þá sagðist hann einnig telja mikla þörf á að verð- grundvöllur rafmagnsveitnanna í heild væri endurskoðaður. Vantað hefði heilstæða mynd en verið væri að vinna að upplýs- ingaöflun. Frá blaðamannafundi félags- og heilbrigðisráðherra og ALFA-nefndar. F.v. Þórður 1. Guðmundsson ritari, Margrét Margeirsdóttir formaður, Svavar Gestsson ráðherra, Hallgrfmur Dalberg ráðuneytisstjóri, Unnar Stefánsson fulltrúi Sambands ísl. sveitarfélaga í nefndinni og Ásgeir Erlendsson fulltrúi heilbrigðisráðuneytis. í nefndinni eiga einnig sæti Sigríður Ingimarsdóttir sem fulltrúi Öryrkjabandalags íslands, Ólöf Ríkharðsdóttir frá Endurhæfingarráði ríkisins, Theódór Jónsson frá Landssambandi fatlaðra og Magnús Magnússon sérkennslufulltrúi frá menntamálaráðuneytinu. Viðamikill þáttur í starfi ALFA-nefndarinnar hefur verið kynningar- og upplýsingastarf um málefni fatlaðra. Markmiðið með þessu starfi hefur verið að koma á framfæri upplýsingum um málefni fatlaðra til almennings og láta út- búa varanlegt kennsluefni til notk- unar í grunnskólum. Eru það yfir tuttugu verkefni sem nefndin hefur unnið að varðandi kynningarstarf þetta. Loks má geta þess að nefnd- in hefur styrkt ýmsa aðila til kynn- ingarhalds og annarra verkefna. I marz sl. var byggingu sund- laugar við Sjálfsbjargarhúsið, Há- túni 12, lokið og sundlaugin tekin í notkun. Síðan hefur á árinu verið lokið við 10 önnur framkvæmda- verkefni sem sérstaklega nýtast fötluðum. Þá hefur einnig á árinu verið unnið að þrettán slíkum framkvæmdaverkefnum sem áætl- að er að lokið verði eða komin á góðan rekspöl fyrir árslok 1982. Fyrir alþingi liggur nú frumvarp til laga um málefni fatlaðra og kvað félags- og heilbrigðisráð- herra, Svavar Gestsson, mikið und- ir því komið að það yrði afgreitt sem lög á yfirstandandi þingi. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að sérstök stjórnarnefnd fari með málefni fatlaðra og verði hún skip- uð 7 mönnum til fjögurra ára í senn. Ráðuneytin þrjú, sem fara með málefni fatlaðra, félagsmála- ráðuneytið, heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytið og menntamála- ráðuneytið, skipa sinn manninn hvert. Samband íslenzkra sveitar- félaga tilnefnir einn mann en sam- tök fatlaðra, Landssamtökin þroskahjálp og Öryrkjabandalag Islands tilnefna þrjá menn. Að sögn Svavars er lögð á það áherzla í frumvarpinu að afskipti hins opinbera af málefnum fatlaðra verði ekki til að draga úr frum- kvæði og starfi áhugamanna um þessi mál eða samtaka fatlaðra. Benti Svavar á að frumvarpið fæli í sér valdadreifingu sem tryggði að hinir ýmsu aðilar er störfuðu að málefnum fatlaðra gætu haft áhrif á framvindu þessara mála, en frumvarpið fæli hins vegar í sér samræmingu á þeirri starfsemi er snýr að fötluðum. A blaðamannafundinum kom fram að bein framlög ríkisins vegna fatlaðra voru á árinu 1981 rúml. 82 millj. kr. en í fjárlögum ársins 1982 er gert ráð fyrir að samsvarandi útgjöld verði tæplega 90 millj. kr. en þessar tölur eru báðar miðaðar við verðlag 1. des. 1981. Skipafélagið Vík- ur kaupir Charm SKIPAFÉLAGIÐ Víkur hefur gengið frá kaupum á nýju skipi til salt- og fiskflutninga, en að sögn Finnboga Kjeld, framkvæmda- stjóra fyrirtækisins, er hið nýja skip um 4.000 tonn að stærð og keypt af Svendborg Shipsyard í Ilanmörku. Skipinu, sem nú er aðallega í svokölluðum stórflutningum, verður breytt áður en Skipafé- lagið Víkur fær það afhent í aprílmánuði nk. — Sett verður kæling i skipið og það sérstak- lega búið til salt- og saltfisk- flutninga. Skipafélagið Víkur á fyrir tvö skip, Hvalvík og Eld- vík, sem aðallega hafa verið í salt og saltfiskflutningi. Hið nýja skip kemur sem viðbót í þessa flutninga. Kaupverð skipsins, að með- töldum breytingum, sem á því verða gerðar, er í kringum 40 milljónir danskra króna, eða í námunda við 44,5 milljóntr ís- lenzkra króna. Þess má geta, að skip það er um ræðir, er skip það er lenti í árekstrinum við Berglindi á sínum tíma, með þeim afleið- ingum að Berglind sökk, og heitir Charm. r jASsbAllETT Dansstúdió auglýsir innritun í ný námskeiö - bæöi fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir. Allir aldurshópar frá 7 ára aldri. Sérstök áhersla er lögð á jassballett við nútimatónlist auk þess sem kenndir verða sviðs-og sýningardansar fyrir bæði hópa og einstaklinga. Innritun: Reykjavik: Simi 91-78470 kl. 13-17. Akranes: Simi 93-1986 kl. 13-17. Stígðu réttu sporin. .... komdu með í nýjan og ferskan jassballettskóla. dANSSTÚdíÓ Sóley Johannsdottir i i j i 4 >• < i i L6 1 :» / 1 1 . » <; l j »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.