Morgunblaðið - 16.01.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.01.1982, Blaðsíða 1
40SÍÐUR OGLESBÓK 11. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR, 16. JANÚAR 1982 Prentsmiðja MorRunblaðsins. Haig vongóður eftir sáttaferð Tel At i». I.». janúar. Al’. ALEXANDER HAIG utanríkisráðherra sagði í dag, föstudag, að hann gerði ráð fyrir að fara í aðra snögga ferð til Egypta- lands og Israels í lok mánaðarins til að stuðla að samkomu- lagi um sjálfstjórn Palestínumanna. í kvöld biðu Sýrlendingar mikinn ósigur þegar þeir misstu mikilvæg- an stuðning í Öryggisráðinu og neyddust til að biðja um að frestað yrði fundi ráðsins um innlimun ar Golanhæða í ísrael. Sýrlenzkir fjölmiðlar sögðu í dag að nauðsyn- legt væri að grípa til vopna til að frelsa Golanhæðir. Haig sagði áður en hann fór aft- ur til Washington að hann væri Berlinguer fjarlægist Sovétríkin Kóm, 15. janúar. Al'. ÍTALKKI kommúni.staflokkurinn hefur cnn fjarlægzt Moskvu með ítrekuðum árásum á herliigin í Póllandi og gagnrýni á kommún- isma að sovézkri fyrirmynd fyrir efnahagsöngþveiti og frelsisskerð- ingu. „Hve margir ítalskir verka- menn, jafnvel úr hópi þeirra sem einlæglega vilja byggja upp sósí- alískt samfélag í landi okkar og í Vestur-Evrópu, óska eftir sam- félagi, efnahagslífi og stjórn- málaskipulagi af því tagi, sem þrífst í Sovétríkjunum og öðrum löndum í Austur-Evrópu? Ég tel að ef við efndum til þjóðarat- kvæðis yrðu þeir í minnihluta," sagði Enrieo Berlinguer flokks- ritari eftir þriggja daga umræð- ur um Pólland. í gagnrýni sinni á herlög í Póllandi gerði Berlinguer, sem er einn af höfundum „Evrópu- kommúnisma", hörðustu árás sína á Sovétríkin til þessa. Hann sagði að atburðirnir í Póllandi hefðu bundið endi á framfara- tíma sem hafi hafizt með rússn- esku byltingunni 1917. Stefna flokksins var samþykkt nánast einróma á þingi flokks- forystunnar. Herlögin í Póllandi eru gagnrýnd í ályktun þar sem einnig er ráðizt á neikvæð áhrif Rússa þar, eins og það var orðað. „bjartsýnn og vongóður". En hann kvaðst gera sér grein fyrir „þeim miklu tálmunum sem væru fram- undan“ í baráttunni fyrir því að gera ákvæði Camp David-sam- komulagsins um sjálfstjórn Palestínumanna að veruleika. Ráðherrann var tvo daga í Eg- yptalandi og tvo í ísrael og kynnti sér nákvæmlega viðhorf leiðtoga landanna til heimastjórnar Pale- stínumanna. Egypzkir og ísraelskir embættismenn sögðu að Haig hefði látið á sér skilja að hann vildi að samkomulag næðist fyrir 25. apríl þegar Israelsmenn hörfa frá vest- urhluta Sinaiskaga. ísraelsmenn hafa kvartað yfir því í marga mánuði að stjórn Ron- ald Reagans forseta hafi ekki beitt sér nógu skelegglega fyrir sam- komulagi og bent á að forsetinn hafi ekki skipað sérstakan samn- ingamann í málinu eins og Jimmy Carter forseti gerði. Þess vegna mun Haig hafa ákveðið að koma fljótt aftur. Haig sendi aðstoðarmann sinn, Nicholas Veliotes, til Jórdaníu og Saudi-Arabíu til að skýra frá við- ræðum sínum við Egypta og ísra- elsmenn. Alexander Haig utanríkisráðherra á morgungöngu í fylgd með öryggisvörðum í Jerúsalem þar sem hann ræddi við ísraelska ráðamenn um heimastjórn Palest- ínumanna. Rússar og Svíar hætta viðræðum um miðlínu Slokkhólmi. 15. janúar. Al*. SVÍAR og Rússar slitu vid- rædum um skiptingu Eystra- salts í dag í kjölfar blaða- frétta um meiriháttar tilslak- anir Svía. Viðræðurnar, sem hófust á mánudaginn, voru komnar í sjálfheldu þegar þeim var slitið að sögn aðalfulltrúa Svía í við- ræðunum, Hans Daneliusar. Aðspurður hvort Svíum fynd- ist við hæfi að slaka til gagn- vart Rússum aðeins tveimur mánuðum eftir strandsiglingu sovézks kafbáts í sænskri land- helgi sagði Ðanelius: „Þessar viðræður eru óskyldar kaf- bátsmálinu." „Við viljum ekki kalla þetta málamiðlun,“ sagði hann. „Báð- ir aðilar hafa boðizt til að hvika frá upphaflegri afstöðu sinni, en við erum enn fjarri sam- komulagi." Bæði Svíar og Rússar vilja að Eystrasalti verði skipt við mið- línu, en túlkun þeirra á því hvar miðlínan eigi að liggja er ólík. Málgagn pólska hersins hvetur nú til hreinsunar Varsjá, 15. janúar. Al'. MÁLGAGN pólska hersins hvatti í dag til hreinsunar í kommúnista- flokknum, ríkisstjórninni, fjölmiðl- um og menntastofnunum til að „fjarlægja ófógnuð úr lífi okkar“ og „kameljón" sem skiptu um lit eftir setningu herlaga. Blaðið segir að aldrei áður hafi aðstæður verið eins góðar til slíkrar hreinsunar og nú og byrja skuli á mönnum sem studdu „andstöðuna“ á 16 síðustu mánuðunum fyrir setn- ingu herlaganna. Flugmiðum hefur verið dreift í höfuðborginni með áskorunum um að myndaðir verði fámennir hópar til að halda uppi „óvirkri and- spyrnu" í því skyni að koma til leiðar hruni efnahagslífsins og herforingjastjórnarinnar sam- kvæmt frétt fréttaritara danska blaðsins „Weekendavisen" í Varsjá, sem segir Pólverja vera að ná sér eftir áfallið sem herlögin ollu. Hann segir að stöðugt fjölgi flugmiðum og dreifibréfum, m.a. ljóðum sem fangar í Bialoleka- fangelsi í Varsjá ortu eftir setn- ingu herlaganna. Tvær bækur eru meira að segja í vinnslu í neðan- jarðar-prentsmiðju í Varsjá. Verið getur að Lech Walesa verði sleppt bráðlega ef hann ræð- Sonur Thatcher snýr heim eftir björgunina l/ondon, 15. janúar. Al*. MARK THATCHER, sonur forsætis- ráðherra Breta, kom aftur til London í dag cftir björgunina í auðnum Sahara þar sem kappakstursbifreið hans hilaði og sagði: „Ég ætla strax að hringja í mömmu. Það er gott að vera kominn heim. Ég hafði ekki hugmynd um að það væri svona kalt.“ Mark og Denis Thatcher faðir hans komu með þotu forseta Alsír, Chadli Benjedid. Denis fór til Alsír að taka þátt í leitinni að syni sínum, sem var saknað í sex daga í kapp- akstrinum frá París til Dakar. Margaret Thatcher var í heimsókn í kornflöguverksmiðju í Manchester þegar Mark kom heim. Þau hittast í kvöld að sveitasetri forsætisráðherr- ans, Chequers. Frönsk aðstoðarkona Marks, Anny-Charlotte Verney, og Jacky Garnier bifvélavirki héldu áfram til Niono í Mali sem er á leiðinni til Dakar. Mark sagði áður en hann fór frá Algeirsborg: „Ef hvarf okkar hefði strax verið tilkynnt alsírskum emb- ættismönnum hefðum við fundizt fyrr.“ Stjórnendur mótsins tilkynntu ekki hvarfið fyrr en á fjórða degi. „Við höfðum aldrei áhyggjur, af því við vissum að við mundum finn- ast,“ sagði Mark Thatcher. „Við höfðum fyrst og fremst áhyggjur af fjölskyldum okkar.“ Það var ekki að ástæðulausu. Frú Thatcher tókst ekki að halda venju- legri ró sinni og brast í grát í hádeg- isverðarboði. Hún sagði í dag að þeg- ar hún frétti að sonur hennar væri týndur í Saharaauðninni hefði „hjartað stanzað". Frú Thatcher hefur beðið Mark að taka ekki aftur þátt í þessari keppni nema hin verði betur skipulögð. „Við heyrðum ekkert frá skipuleggjend- um kappakstursins og ég sagði við Denis: þú verður að fara þangað og athuga hvað er á seyði.“ Hún sagðist hafa orðið áhyggju- full, eins og allar mæður hefðu orðið í hennar sporum, og hrósaði Alsír- stjórn fyrir leitaraðgerðirnar og stjórnum Mali og Frakklands fyrir rausnarlega hjálp. Mark Thatcher kemur til flugvallarins í Tamanrasset eftir biörgunina og hittir föður sinn sem beið hans þar. ir við yfirvöld að sögn bandaríska öldungadeildarmannsins Larry Pressler, sem er í heimsókn í Pól- landi á vegum formanns utanrík- isnefndar öldungadeildarinnar. Honum var sagt að Walesa hefði sigrazt á þunglyndi og væri við góða heilsu, að hann hitti kaþólsk- an prest daglega og fjölskyldan fengi að heimsækja hann. í fyrsta skipti í marga mánuði hafa verið auglýstir tónleikar, kvikmyndasýningar og leiksýn- ingar í Varsjá. Talsmaður stjórn- arinnar sagði að byrjað væri að sleppa 1.056 af um 5.500 Sam- stöðumönnum sem hafa verið í haldi. Pólski Rauði krossinn hefur beðið um aðstoð handa 80.000 manns sem hafa verið fluttir frá heimilum sínum vegna Vislu- flóðanna. í París ákváðu embættismenn ríkja sem Pólverjar skulda að hætta um sinn viðræðum við Pól- verja sem hafa beðið um frest á greiðslum 2,5 til 3 milljarða doll- ara sem falla í gjalddaga á þessu ári. Þetta er í samræmi við þá af- stöðu sem var mótuð á fundi utan- ríkisráðherra NATO í Brtissel í vikunni. Tass birti í dag pólska yfirlýs- ingu þar sem vestræn ríki eru sök- uð um „einstæð afskipti“ af inn- anlandsmálum fullvalda ríkis með því að gagnrýna herlögin í Pól- landi. Átt var við NATO-fundinn í Brussel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.