Morgunblaðið - 23.01.1982, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.01.1982, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANUAR 1982 + Maðurinn minn, JÓN TÓMASSON frá Hrútatungu, Alfaskeiöi 64, Hafnarfiröi, lést i Landsspítalanum að morgni 22. janúar. Fyrir hönd vandamanna. Ósk Þórðardóttir. Eiginmaður minn og fósturfaðir, ÁRNI ÞÓRARINSSON, Skjólbraut 3, Kópavogí, fyrrverandi hafnsögumaóur, Vestmannaeyjum, lést að Borgarspítalanum 18. þ.m., jaröarförin fer fram mánudag- inn 25. janúar kl. 1.30 e.h. frá Fossvogskapellu. Guöbjörg Þóröardóttir, Hílmar Þórarínsson. + Eiginmaöur minn, JÓN GRÉTAR SIGUROSSON lögfræöingur, Melabraut 3, Seltjarnarnesí, andaðist í Landakotsspítala 21. janúar. Guðbjörg Hannesdóttir. + Systir mín og föðursystir okkar, GUÐRUN MORTHENSEN, Holti, Danmörku, lést 20. janúar. Jaröarförin fer fram frá Holti 23. janúar n.k. Hermann Ólafsson, Ólafur Sveinsson, Lárus Sveínsson. + Bróöir okkar, SÆVAR BENÓNÝSSON, sem lóst að sjúkrahúsi Vestmannaeyja 15. janúar, veröur jarö- sunginn frá Landakirkju, laugardaginn 23. janúar kl. 2. Fyrir hönd systkina, Sjöfn Benónýsdóttir. + Eiginmaöur minn, ÞORSTEINN Z. AOALBJORNSSON frá Siglufirói, Heióarbraut 3, Garði, veröur jarösunginn frá Utskálakirkju, laugardaginn 23. janúar kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Islands. Fyrir hönd vandamanna. Guöbjörg Valdadóttir. + Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir, amma og langamma, GUOBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Eystrí-Loftstööum, Vesturvallagötu 7, veröur jarösungin frá Selfosskirkju í dag, laugardag 23. janúar kl. 14.00. Bóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hennar, er beint á líknarstofnanir. Feröir veröa frá Umferöarmiöstööinni kl. 12.00. Einar Guómundsson, Haraldur Einarsson, Guómundur Einarsson, Hanna Ragnarsdóttir, Jón Þorbjörn Einarsson, Gyöa Áskelsdóttir, Sigríöur Einarsdóttir, Stefán T. Tryggvason, barnabörn og barnabarnabörn. + Alúöarþakkir sendum viö öllum þeim sem auösýndu okkur samúö viö andlát og útför ÞORORNU ERLENDSDÓTTUR. Fyrir hönd aöstandenda, Halldóra Thorlacius, Edda Thorlacius. Minning: Guðríður Finnboga- dóttir Bíldsfelli Fædd 10. júní 1883 Dáin 13. janúar 1982 Nú, þegar Guðríður Finnboga- dóttir, fyrrum húsfreyja að Bílds- felli, hefur kvatt þennan heim, há- öldruð, langar mig til að flytja henni nokkur kveðju- og þakkar- orð. Eg sá hana fyrst, þegar ég fyrir tæplega hálfri öld kom að Bílds- felli sem ungur maður ásamt fé- lögum mínum til laxveiða í Sog- inu. Þangað kom ég alloft í mörg sumur og tók húsfrúin og Guð- mundur Þorvaldsson maður henn- ar ávallt ástúðlega á móti mér og þeim sem með mér voru og þáðum við ósjaldan góðar veitingar. Hún gaf sér þá oft tíma til að rabba við okkur, þótt hún hefði ávallt meira en nóg að starfa á hinu stóra heimili og félli sjaldan verk úr hendi. Þórdísi konu minni, sem fæddist og ólst upp á Bíldsfelli, kynntist ég á þessum árum, er hún var barn að aldri. Henni var Guðríður sem besta móðir. Kristín Jósefsdóttir móðir Þórdísar, sem vann þar á bænum í áratugi jafnframt sínum Ijósmóðurstörfum, og Guðríður húsfreyja voru mjög góðar vin- konur. Er Guðríður lést, hafði hún ver- ið ekkja um þrjátíu ára skeið og lengst af búið hér í borg hjá Þóru dóttur sinni og Ólafi Tómassyni manni hennar. Eftir að ég kvænt- ist Þórdísi fyrir tuttugu árum, urðu kynni okkar Guðríðar nán- ari. Hún var sístarfandi að handa- vinnu fram á síðustu ár, prjónaði m.a. margt, sem hún gaf okkur og börnunum. Hún hafði yndi af að gefa og gleðja. Það var alltaf ánægjulegt að líta inn til hennar. Ævinlega var hún glöð og elskuleg og vildi öllum gott gera. Börn okkar voru mjög hænd að henni og þótti vænt um hana eins og ömmu sína. Við söknum hennar mikið öll, ekki síst kona mín og tengdamóð- ir, sem unnu henni mjög. Að leiðarlokum kveðjum við hana með trega og biðjum Guð að blessa hana og leiða á þeim veg- um, er hún nú hefur lagt út á. Blessuð veri minning hennar. Erlingur Þorsteinsson Guðríður Finnbogadóttir fædd- ist að Víðilæk í Skriðudal 10. júní 1883. Hún var dóttir hjónanna Ingibjargar Sigurðardóttur og Finnboga Ólafssonar, bónda, og voru þau bæði ættuð úr Austur- Skaftafellssýslu. Guðríður var elst af 10 systkin- um, og eru þau nú öll látin nema einn bróðir, sem búsettur er í + Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og úttör móöur okkar, tengdmóöur og ömmu, ÖNNU GUTTORMSDÓTTUR. Arndís Hervinsdóttir, Gottskálk Jón Bjarnason, Guómundur Hervinsson, Björg Sverrisdóttir Erna Guðbjarnardóttir, og barnabörn + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vlnarhug viö andlát og útför SIGRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Fyrir hönd fjarstaddrar dóttur og systkina hinnar látnu. Valur Guðmundsson. + Innilegar þakkir færum viö þeim sem sýndu okkur samúö og vinsemd viö andlát og jaröarför GUÐMUNDAR E. Þ. BJÖRNSSONAR, Skipasundi 3. Gíslína Árnadóttir, Kristín Björnsdóttir, Viðar Björnsson, Sigurjón Björnsson. + Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför HERDÍSAR ÞORLEIFSDÓTTUR. Þorleifur Þorleífsson og aörir vandamenn. + Þökkum af alhug öllum þeim. sem auösýndu okkur samúö og hluttekningu viö fráfall ástkærs sonar okkar, bróöur og mágs. ANTONS SIGURDSSONAR, Unufelli 31. Kristín Þorvaldsdóttir, Siguröur Ólafsson, Kolbeinn Sigurösson, Guörún E. Gunnarsdóttir, Davíö Sigurðsson, Margrét Sigurðardóttir, Jón R. Sigurösson, Thelma B. Siguröardóttir. Ameríku. Hún ólst upp í Víðidal og víðar í Skriðudal. Veturinn 1904 til 1905 var hún í húsmæðra- skóla í Reykjavík. Hinn 5. nóv. 1906 giftist hún Guðmundi Þorvaldssyni í Geitdal í Skriðudal. Þau hófu búskap í Geitdal 1907 og bjuggu þar uns þau keyptu Bíldsfell í Grafningi árið 1910, þar sem þau bjuggu síð- an. Mann sinn missti Guðrún árið 1948. Eftir það bjó hún í 2 ár með Sigurði, syni sinum, á Bildsfelli. Börn þeirra Guðríðar og Guð- mundar voru 7 og eru öll á lífi. Þau eru: Þorvaldur, kvæntur Frið- meyju Guðmundsdóttir, Þorvald- ur var áður kvæntur Þrúði Briem, en þau slitu samvistum, Svanhvít, hennar maður var Geir Gígja, skordýrafræðingur, Ingibjörg, gift Grími Ögmundssyni á Syðri- Reykjum, Sigurður, garðyrkjum., kvæntur danskri konu, Marie Kristinsen, Elísabet, gift Tage Andersseon, dönskum iðnaðar- manni, Þóra, gift Ólafi Tómassyni, viðskiptafræðingi og Guðríður Hulda, gift Sigurði Jónssyni, for- stjóra. Þórdís, stjúpdóttir Guðríð- ar er gift Erlingi Þorsteinssyni, lækni. Auk þessara barna ólu þau hjón upp nokkur börn að meira eða minna leyti. Eins og áður segir, byrjuðu þau Guðríður og Guðmundur búskap sinn á Bíldsfelli árið 1910. Varð myndarskapurinn á Bíldsfelli fljótlega kunnur víða. Mig minnir það væri 1940, sem ekki ómerkari maður en Böðvar á Laugarvatni sagði mér, að Bíldsfell væri falleg- asta býli í Árnesýslu, bæði utan dyra og innan. Þau hjónin byggðu litla rafstöð til ljósa árið 1911, og hef ég fyrir satt, að sú sé hin fyrsta rafstöð í sveit á íslandi. Árið 1930 byggðu þau reisulegt íbúðarhús í gömlum burstabæj- arstíl. Hann stendur enn, þótt síð- an hafi nýrra hús verið byggt á Bíldsfelli. En fallegur finnst mér alltaf gamli bærinn. Þá hafði Guð- mundur fyrir nokkru selt Reykja- víkurborg vatnsréttindi fyrir lík- lega svipað verð og hann keypti jörðina alla, en auk þess var í þeim samningi ákvæði um frítt rafmagn, 10 hö, sem fylgja skyldu jörðinni upp frá því æ og ævin- lega. Þessa get ég til að sýna hygg- indi Guðmundar og þeirra hjóna í hvívetna. Á Bíldsfelli var jafnan mann- margt og mörgu að sinna enda telja kunnugir að venjulegur vinnudagur húsfreyju væri frá kl. 6 að morgni til miðnættis. Fjöl- skyldan var stór og margt vinnu- fólk. Gestkvæmt var þar og oft dvalargestir á sumrum. Þótt Guð- mundur bóndi hefði jafnan nóg að sýsla við stjórn og störf á stóru búi, gaf hann sér ævinlega nægan tíma til að sinna gestum sínum og taldi lítt eftir. En auðvitað mæddi allt það umstang mest á húsfreyj- unni. Guðríður heitin var meðalkona á hæð og samsvarandi á annan vöxt, hún var fremur glaðlynd, en hæglát og hlý í fasi, trygglynd og traust, enda hlaut hún vináttu og virðingu flestra, sem henni kynnt- ust að ráði. Það mun nú vera hátt á 5. ára- tug síðan ég kynntist Guðríði fyrst, og kom hún mér fyrir sjónir á þann hátt, sem að ofan greinir. Eftir að ég varð tengdasonur hennar og hún hætti búskap, dvaldi hún oft part úr sumri á heimili okkar Ingibjargar. Eru minningar mínar allar hinar ljúf- ustu frá þeim tíma. Síðastliðin 25 ár dvaldi Guðríð- ur óslitið hjá Þóru, dóttur sinni og manni hennar, Ólafi Tómassyni. Verður atlæti það og sú umönnun sem hún naut á heimili þeirra, þeim hjónum til ævarandi sóma. Hafi þau heila þökk fyrir. Tengdamóður, Guðríði Finn- bogadóttur, kveð ég með þökk og virðingu frá okkur Ingibjörgu. Öðrum aðstandendum votta ég samúð. Grímur Ögmundsson Vegna þess að ég ætla að línur þessar nái ekki síst augum margra þeirra sem af ósérhlífni og drengskap lögðu á sig ómælt erfiði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.