Morgunblaðið - 05.02.1982, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.02.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982 29 Minning: Þorgils Steinþórsson fv. skrifstofustjóri Fæddur 9. ágúst 1911. Dáinn 29. janúar 1982. I dag er kvaddur Þorgils Stein- þórsson, Eskihlíð 22 hér í borg. Hann lést á Borgarsjúkrahúsinu fimmtudaginn 29. f.m. eftir nokk- urra ára vanheilsu. Fæddur var Þorgils og uppalinn í Mývatnssveit, sonur Guðrúnar Jónsdóttur og Steinþórs Björns- sonar, bónda og steinsmiðs, hann var þvi hálfbróðir Steingríms Steinþórssonar fyrrum forsætis- ráðherra og þeirra bræðra frá Litlu-Strönd í Mývatnssveit en þar var Þorgils einnig uppalinn. Þegar Þorgils var 17 ára lá leið hans í Menntaskólann á Akureyri og útskrifaðist hann þaðan sem gagnfræðingur 1931, en hætti námi þar eftir 4. bekk 1932. Þor- gils tók námið föstum og ákveðn- um tökum og átti ljúfar og góðar endurminningar frá þeim skóla- tíma, sem títt er hjá flestum. Hann minntist margra góðra kennara við skólann, ekki síst hins snjalla læriföður, Sigurðar Guð- mundssonar skólameistara. Það er líka ýmislegt sem bendir til þess að leiðsögn meistarans hafi síðar haft sín áhrif á það hvað Þorgils var traustur, raunsær og áhuga- samur um að leysa störf sín og skyldur sem best af hendi hverju sinni. Hann var sérlega prúður og traustvekjandi í allri framkomu og samstarfi. Var laus við alla metorðagirnd og upptroðslu til frama eða yfirborðsmennsku. Á yngri árum eða 1938 hóf Þorgils Steinþórsson störf hjá Grænmet- isverslun ríkisins og starfsævi hans lauk þar einnig eftir meira en 40 ára tímabil, þegar heilsu hans hrakaði nú fyrir þrem árum síðan. Hann starfaði því hjá sömu stofnun lengst af ævi sinnar, þótt nafni hennar hafi verið breytt síð- ar í Grænmetisverslun landbún- aðarins 1956 samkvæmt nýjum lögum og reglugerð um afurðasölu landbúnaðarins. Það var þriðjudaginn 26. janúar, að við vorum við allar mættar í skólann, nema íris. Kennari kom inn í tíma og sagði, að ein af bekkjarsystrum okkar hefði látist. Þá datt okkur sist í hug að það væri ein af okkur, íris. Þetta er allt svo skrýtið. Allar minn- ingarnar sem hrönnuðust upp. Við sáum hana ennþá ljóslifandi fyrir okkur. Allar saman í gær og í dag vantar eina, eina af þeim bestu. Minningin um írisi mun lifa með okkur áfram. Hún var hæglát og fór lítið fyrir henni hjá þeim sem lítið þekktu, en við okkur var hún alltaf hress og ánægð. Við viljum votta unnusta, for- eldrum, systrum og öðrum að- standendum okkar dýpstu samúð. Góður Guð mun varðveita hana og öll munum við hittast um síðir. Þar sem ég hefi átt meira og minna samstarf við skrifstofu- stjóra Grænmetisverslunarinnar í meira en 20 ár, tel ég mig vera dómbæran á það að þar hefur samviskusemi og trúmennska ver- ið í fyrirrúmi í allri fyrirgreiðslu vegna viðskiptamanna og annarra er hafa haft erindi við fyrirtækið. Skrifstofustjórinn Þorgils Steinþórsson lagði á það alveg sér- staka áherslu við sitt samstarfs- fólk í stofnuninni, að þar sem þetta væri eina fyrirtækið á öllu landinu sem annaðist verslun með innflutt grænmeti og kartöflur, hefði ennfremur á hendi einkasölu á íslenskri kartöfluframleiðslu, þá væri versluninni og starfsfólki hennar lagðar ennþá þyngri byrð- ar á herðar en ella, ef fleiri aðilar önnuðust þessa þjónustu. Sam- kvæmt þessu leitaðist Þorgils við að starfa enda mátti hann vel una þeim dómi er samtíðin felldi um starf hans, sem oft var vandasamt m.a. vegna þröngsýni ráðandi afla í þessum sölumálum, skömmtunar og hafta er oft á tímum var talið óhjákvæmilegt í áraraðir. Um leið og ég nú þakka vini mínum góða samvinnu í nær ald- arfjórðung þá er mér sérstaklega ljúft að minnast þess, að þeir hinir mörgu í kaupmannastétt og kaup- félagsstjórar, er hafa haft við- skipti við Grænmetisverslunina, hafa oftsinnis haft orð á því að þar hafi farið traustur og góður starfsmaður er vildi leysa hvers manns vanda ef kostur væri. Þá hafa kartöfluræktarbændur á Suðurlandi og víðar verið einum rómi sammála um það að skrif- stofustjórinn í Grænmetisverslun landbúnaðarins hafi verið samvinnuþýður að leysa úr vanda- málunum hverju sinni eftir því sem aðstæður leyfðu og fram- leiðsla þeirra gaf tilefni til. Á yngri árum var Þorgils mjög áhugasamur um íþróttir og vel lið- tækur á því sviði. Fótboltinn var hans uppáhaldsgrein strax i skóla Hvenær veit enginn, en öll förum við einhverntíma. Anna Katrín, Begga, Eva, Helga Liv, Hildigunnur, Ing- unn, Sigga, Stína og Svava. Við bekkjarfélagar írisar í Menntaskólanum í Reykjavík, sem átt höfum samleið með henni í haust, vorum slegin óhug þegar okkur barst fregnin um það hörmulega slys sem batt svo ótímabæran enda á líf sem átti svo ótalmargt framundan. Þessi beiski veruleiki kallar okkur öll til vitundar um að sér- hvert okkar fetar ár og dag ósýni- lega markalínu lífs og dauða. Ekk: ert er öruggt eða sjálfgefið. í okkar hópi var íris alla tíð yfir- lætislaus og góður íélagi sem lítið fór fyrir. á Akureyri og síðar þegar til Reykjavíkur var komið, 1934, var hann virkur liðsmaður í Víking. Hann dáði mikið sínar æskustöðv- ar í Mývatnssveit og fór þangað yfirleitt í sínum leyfum hvort sem var að vetri eða að sumarlagi. Þorgils var mikill náttúruunnandi og duglegur göngumaður. Stanga- veiði stundaði hann mikið í frí- stundum og veiðiferðir til fjalla freistuðu hans svo lengi sem heils- an leyfði. En fyrst og fremst var það tryggðin við hið fagra þing- eyska hérað, Mývatnssveitina, hans æskustöðvar, sem heilluðu hann löngum. Þó heilsu hans væri farið að hraka í sumar þá dreif hann sig „norður" ásamt Sigríði konu sinni. Og 17. júní sl. á þjóð- hátíðardegi íslensku þjóðarinnar kvaddi hann sína heimahaga og flaug beint til Reykjavíkur eftir stutta sumardvöl í sveitinni sinni. Ég er sannfærður um að vinur minn Þorgils hefur hugsað sem þingeyska skáldið við það tæki- færi, „Blessuð sértu sveitin mín“ o.s.frv. Heim í sveitina liggja löngum hreinar og djúpar rætur hjá þjóðhollu fólki í okkar fagra en harðbýla landi. Þegar fullorðinsárin tóku við var Þorgils fremur maður alvör- unnar ef svo má segja, enda reglu- semi og vandvirkni í störfum hans aðalsmerki. En engu að síður hafði hann góðan „húmorsans" og var skemmtilegur vinnufélagi. Hann gerði meiri kröfur til sjálfs sín en samstarfsfólks við lausn Auður stóll og bert skólaborð kalla nú fram þau hughrif sem staðfesta, að handan yfirlætis- leysisins bjó einstaklingur sem til var tekið. Ættingjum og ástvinum vottum við fátæklegan skilning á því hve mikils er misst. 3. B, Menntaskólanum í Reykjavík hinna aðkallandi dægurvanda- mála. Og sá eiginleiki út af fyrir sig lýsir betur en nokkuð annað hvern mann Þorgils Steinþórsson hafði að geyma. „Hvér er sinnar gæfu smiður" á hér vel við að mér finnst. Þessi vinur okkar sem kvaddur er í dag hefur ávaxtað „vöggugjöfina" þannig að samtíðin þakkar með virðingu og hlýhug. En fyrir utan ómetanlega vöggugjöf, þá fékk Þorgils aðra gjöf góða, en það var 20. október 1945 þegar þau gengu í heilagt hjónaband hann og eftirlifandi kona hans, Sigríður Guðmunds- dóttir frá Sæbóli í Aðalvík, Norður-Isafjarðarsýslu. Hún hef- ur stutt mann sinn dyggilega á lífsleiðinni og ekki hvað minnst í veikindum hans nú síðari ár. Þeim hjónum gaf forsjónin tvö börn, sem hafa reynst foreldrum sínum gleðigjafar. Þau eru Völ- undur, matreiðslumaður, Suður- vangi 6, Hafnarfirði, giftur Guð- laugu Eggertsdóttur. Þá er dóttir- in Guðrún búsett í Danmörku, gift Sören Höyr, bakarameistara, og rekur hann sitt eigið fyrirtæki í Kaupmannahöfn. Heimili þeirra er að Astridsvej 79, Kastrup Kh. Barnabörnin eru orðin 7, þar af eitt fósturbarn, Eggert Birgisson, sem var mikið hændur að afa sín- um ekki síður en hin börnin. Þessum nánustu fjölskyldum og öðru venslafólki Þorgils Stein- þórssonar fv. skrifstofustjóra sendum við vinir og samstarfsfólk innilegustu samúðarkveðjur á skilnaðarstundu. Við minnumst þess að hafi gott fólk áhrif á um- hverfi sitt, þá er það áreiðanlegt að það var mannbætandi að starfa með og kynnast jafn góðum dreng og Þorgils var. Blessuð sé minning hans. E.B. Malmquist ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Gunnsteinn Gíslason við eitt verka sinna, en aðferðina við gerð veggmyndar innar kallar Gunnsteinn múrristu. (Ljónni. Krisiján) Sýning á veggmynd- um á Kjarvalsstöðum Næstkomandi laugardag opnar Gunnsteinn Gíslason sýn- ingu á veggmyndum að Kjarvalsstöðum. Myndirnar eru unn- ar með sérstakri tækni sem kallast sgraffito, en sú aðferð er þekkt í veggskreytingum erlendis allt frá byggingarlist mið- alda. Þetta er í fyrsta sinn sem sýning er haldin á verkum unnum með þessari tækni hér á landi en aðferðin hefur verið lítt kunn á íslandi til þessa. Nafnið sgraffito er komið af ít- alska orðinu sgraffiare sem þýðir rista, og hefur aðferðin verið nefnd múrrista á íslensku. Uppi- staðan í múrristunni er fínmulinn hvítur marmari, kalk og steinlitir. Lituð múrlög eru dregin hvert yfir annað eftir því hve margir litir eiga að vera í myndinni. Vinnu- teikning er síðan yfirfærð í blauta steinsteypuna, myndin skorin til og litir og form skafin fram. í sýningarskrá ritar Baltasar m.a.:„„sgraffito“ er mjög heppileg aðferð við stórar veggskreytingar, sérstaklega utandyra og í inni- görðum. Með tilkomu nýrra efna í múrverk seinni tíma, eru mögu- leikar þessarar tækni enn að opnast. Frá 13. aldar „sgraffito" í Madenburg til veggskreytingar Ficassos á arkitektaskólanum í Barcelona, þar sem hann sand- blæs múrinn í mismunandi dýptir til að ná fram lit og áferð, hafa verið stöðugar framfarir. Það er ánægjulegt að sjá þessari tækni sýndan áhuga hér á landi, og er það vonandi að með sýningu Gunnsteins Gíslasonar ryðji sér til rúms nýr þáttur í veggskreyt- ingum á íslandi.“ Þetta er fyrsta einkasýning Gunnsteins en hann hefur tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis. Sýningin verður opin til 22. febrúar og eru flestar myndirnar til sölu. Iris Sigmarsdótt- ir — Minningarorð AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR HF 80 23 ...auðvitað ORUnDIG U n LaugavegilO, sími 27788

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.