Tíminn - 20.07.1965, Blaðsíða 1

Tíminn - 20.07.1965, Blaðsíða 1
HAMDBÓK VERXLUNAR MANNA ÁSKRMFTARSÍIVM 4 4CCOA lOUOO lOuoO toooo HANDBÖK VERZLUNARMANNA ÁSKRNFTARSÍMI tS68B 16688 16686 1..•..... ' ' - *. < “•• ; wœW • • - ■ i ]y/ : WwwwRtKSwS Susane Reith í Reykjavikurhöfn í gær, Inn í myndina er feld önnur sem tekln var í vetur af fram- partlnum á strandstaS á Raufarhöfn. ÁTTA METRA MUNUR KJ—Reykjavík, mánudag Þá er hið margumtalaða skip Susanne Reith komið alla leið hingað til Reykjavíkur, og von andi verður þetta ekki enda- staðurínn hennar, því þetta er allra laglegasta skip Þegar búið er að mála það, og á áreið anlega eftir að gera siit gagn. Svo sem kunnugt er af fyrri fréttum þá strandaði skipið á Raufarhöfn í vetur,, og gáfust tryggjendur þess upp á að bjarga því .af strandstað. Björg unarfélagið Björgun keypti þá skipið á strandstað, og hefur síðan verið unnið markvisst að því að koma því á flot aftur. Susanne brotnaði á rífinu þar sem hún strandaði og eyðilagð ist stór hluti skipsskrokksins í miðjunni. Skáru björgunar- mennimir skipið í tvennt, og skemmdína burt, en skeyttu síð an fram og aftur endana sam an, settu sement í rifumar og síðan var skipinu siglt hingað suður til Reykjavíkur í fylgd vitaskipsins Árvakurs. Geírk ferðin að óskum, og ganghrað inn var 8—9 mílur, eða eins og hjá meðal fiskibát. Hingað til Reykjavíkur kom skipið snemma í morgun. og var lagt við Ingólfsgarð og komu margir í dag til að skoða skipið, því mörgum finnst Það ganga furðuverki næst að hægt var að bjarga skipinu og gera það haffært á nýjan leik. Dælur voru að vísu í gangi alla leiðina suður, og reyndar hér í höfninni líka Skipið mun nú verða tekið til fullnaðarviðgerðar í slipp. Susanne Reith á án efa eftir að verða gott skip. þrátt fyrir að hafa verjð stytt um 8 metra. HALIDÓR LAXNESS UM ÞÁ FRÉTT LAND OG FOLK, AÐ HANN VERÐI FORSETAEFNI í NÆSTU KOSNINGUM: „Það hefur bara ein- MB—Reykjavík, mánudag. Danska blaðið Land og folk segir á sunnudaginn, að sterk öfl á Islandi vinni að því, að nóbelsskáldið Halldór Laxness verði í kjöri við næstu forseta- kosningar. „Það hlýtur bara einhvern að hafa dreymt þetta" sagði Lax- ness, þegar blaðið bar „fróttina" úndir hann 1 dag. í dag barst blaðinu svohljóð andi fréttaskeyti frá Geir Að- ils, fréttaritara Tímans í Kaup mannahöfn: Land og Folk, dagblað komm únista i Danm., skýrír frá því í gær, að sterk öfl á íslandj vinni að undirbúningi fram- boðs skáldsins og nóbelsverð launahafans Halldórs Laxness til forsetakjörs. Sagt er að al- merinur áhugi sé á því að hinn 63 ára rithöfundur verði í kjöri við forsetakosningarnar, sem fara fram í júní, 1968, skrif ar blaðið“. Blaðjð hafði í dag samband vjð Halldór Laxness. Hann hló við og sagði: „Ég hefi nú bara aldrei heyrt talað um þetta. Það hlýtur einhvern að hafa dreymt þetta! Það hefur aldrei nokkur maður minnzt á þetta við mig. Ég hefi enga hugmynd um af hvaða rótum þetta er runnið. Þetta kemur mér algerlega á óvart og mér finnst þetta bara hlægilegt!" FJÖLMENNASTA ÞING ISLANDI JHM—Reykjavík, mánudag. Fjölmennasta þing, sem haldið hefur verið á íslandi, hefst hér i borg n. k. fimmtudag, og verða þátttakendurnir um 1200 manns. Þetta er nítjánda norræna skólamótið, og sækja það bæði kennarar og aðrir sem að kennslumálum starfa. Frá Norðurlöndum koma a. m. k. 850 manns, en innlendir þátt- takendur verða um 330—340. Mótið verður sett í Háskólabíó, en lokafundurinn verður á Lög- bergi. á Þingvöllum. Eins og geta má nærri þá er erfitt fyrir Reykja vík að hýsa svo marga gesti, bæði erlendis frá og utan af landi. Til að leysa vandann koma 370 manns með austur-þýzka skipinu Fritz Heskert, sem er í leigu hjá sænsku ferðaskrifstofunni RESO, en hún sér um komu flestra fulltrúanna. nema Finnana. Um 150 fulltrúum verður komíð fyrir i herbergjum út í borginni, en um helmingur Þeirra mun dvelja á heimilum kennara. í Sjómannaskólanum fá 50 manns gistingu, en afgangurinn verður á gistthúsum. Nokkrir af fulltrúum eru komn ir til landsins, svo og fréttamenn frá Norðurlöndum sem munu fylgj ast með þinginu. Kennslumálaráð herrar Dana og Finna verða hér, þeir K. B. Andersen og Jussi Saukkonen Frá Noregi kemur Helge Sivertsen, menntamálaráð herra, og frá Svíþjóð S. Moberg, ráðuneytisstjórí. Flestir gestanna munu dvelja hér í a. m. k. 2—3 daga eftir að mót inu lýkur. Hátt á annað hundrað manns ætlar að fljúga til Akur eyrar. með F í á laugardaginn kemur. strax að þinginu loknu til að skoða sig um á Norðurlandi Tala gestanna fer stöðugt vax andi og daglega koma skeyti með tílkynningum um nýja þátttakend ur, s. I. laugardag barst m.a. sím skeyti frá sænsku ferðaskrifstof- unni RESO er var á þriðja metra á lengd með nöfnum Þátttakenda. Laxness: „Mér flnnst þetta bara hlægilegt"

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.