Morgunblaðið - 17.04.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982
5
Verk Höskuldar Björnssonar á Kjarvalsstöðum
Höskuldur Björnsson
Veigar Óskarsson.
sem vann aó upp-
setningu verkanna
á Kjarvalssliiöum
ásamt Jóni l>óris:
syni, heldur hér á
sjálfsmynd sem
llöskuldur gerói á
sínum tíma.
Ljósm. Mbl. Kax
LAUGARDAGINN 17. apríl kl.
14.00 verður opnuð sýning á verk-
um Höskuldar Björnssonar, þeirra
er enn eru í eigu fjölskyldu hans.
í ár verða 75 ár liðin frá fæð-
ingu Höskuldar Björnssonar og
af því tilefni er efnt til þessarar
sýningar.
Höskuldur Björnsson var
fæddur 26. júlí 1907 að Dilksnesi í
Hornafirði og lést 2. nóvember
1963.
Höskuldur lærði teikningu hjá
Ríkharði Jónssyni myndhöggvara
veturinn 1925—1926. Hann naut
einnig tilsagnar Jóns Stefánsson-
ar listmálara 1928—1931.
Lengst af dvaldist Höskuldur í
Austur-Skaftafellssýslu, þangað
til hann fluttist búferlum til
Hveragerðis, þar sem ekkja hans,
Hallfríður Pálsdóttir, býr enn.
Eftir lát eiginmanns síns breytti
hún vinnustofu hans í notalega
kaffistofu, þar sem gestir geta
virt fyrir sér handbragð lista-
mannsins. Þar getur að líta það
sem helst einkenndi Höskuld
Björnsson: rómantískar fugla- og
landslagsmyndir auk mynda af
gömlum byggingum, svo nokkuð
sé nefnt. Auk verkanna úr vinnu-
stofunni verður fjöldi annarra,
sem ekki hafa verið sýnd áður.
Alls verða um 150 myndir á
sýningunni, sem lýkur 2. maí nk.
Ráðstefna um öryggi
og afvopnun í Reykjavík
Fyrir frumkvæði nemendasam-
bands Norska varnarmálaháskólans
fer nú fram hér í Reykjavík ráð-
stefna um öryggi og afvopnun á
norðursvæði Atlantshafsbandalags-
ins í Evrópu. Þátttakendur i ráð-
stefnunni eru um 50 frá Danmörku,
Noregi og íslandi auk fulltrúa her-
stjórna NATO í Norður-Evrópu og á
Norður-Atlantshafi.
Grethe Værnö, þingmaður frá
Osló, er ráðstefnustjóri og setti
hún ráðstefnuna með ræðu á
fimmtudagskvöldið en í gærmorg-
un, föstudag, flutti Ólafur Jóhann-
esson, utanríkisráðherra, ávarp
við upphaf umræðna. Lagði ráð-
herrann áherslu á, að samhliða
því sem Islendingar gerðu þær
ráðstafanir, sem nauðsynlegar
væru til að tryggja öryggi sitt,
styddu þeir um leið allar skyn-
samlegar hugmyndir um afvopnun
og vígbúnaðareftirlit, enda væri
hér um eitt og sama markmið að
ræða.
Að loknu ávarpi utanríkisráð-
herra tók Paul H. Speer, flotafor-
ingi hjá Atlantshafsherstjórn
NATO í Norfolk, til máls og skýrði
hernaðarstöðuna á Atlanshafi. Sir
Anthony Farrar-Hockley, yfir-
hershöfðingi Norðurherstjórnar
NATO, sem bækistöðvar hefur í
Kolsás, skammt frá Osló, flutti er-
indi um stöðuna á því svæði, sem
herstjórn hans nær til og varnir
þess. Síðdegis í gær flutti svo
Björn Bjarnason, blaðamaður, er-
indi um öryggismál íslands. Allir
þessir ræðumenn svöruðu fjöl-
mörgum spurningum ráðstefnu-
gesta.
Ráðstefnunni verður fram hald-
Bláskógar
með afmælis-
sýningu
HÚSGAGNAVERZLUNIN Bláskógar
á 10 ára afmæli um þessar mundir, og
í tilefni af afmælinu gengst verzlunin
fyrir húsgagnasýningu á morgun,
sunnudag kl. 13—18 og alla næstu
viku, á verzlunartíma.
A sýningunni verður kynnt ný
lína í húsgögnum, sem verzlunin hóf
fyrir nokkru að selja. Eru það aðal-
lega dönsk og vestur-þýzk húsgögn,
sígild nýtízku húsgögn, eins og eig-
endur verzlunarinnar orða það.
Verzlunin var nýlega stækkuð og
eru húsgögn sýnd í 600 fermetra
húsnæði, en alls hefur verzlunin yfir
að ráða 1000 fermetra húsnæði und-
ir starfsemi sína í Ármúla 8.
Aðaleigendur Bláskóga eru Bjarni
Ólafsson og Kjartan Kjartansson.
ið nú um helgina. I dag, laugardag,
er ráðgerð ferð til Keflavíkur-
flugvallar, þar sem kynnt verður
starfsemi varnarliðsins. Þá mun
Ib Faurby, framkvæmdastjóri
dönsku öryggis- og afvopnunar-
nefndarinnar, flytja erindi um
stefnu Norðurlandanna í örygg-
ismálum og þau viðfangsefni, sem
bera mun hæst á þessum áratug.
Á sunnudag verða afvopnun-
armál sérstaklega til umræðu og
mun þá Gunnar Gunnarsson,
starfsmaður Öryggismálanefndar,
fjalla um kjarnorkuafvopnun, og
Haraldur Ólafsson, dósent, fjalla
um starf Sameinuðu þjóðanna að
afvopnun.
Ráðstefnunni lýkur á mánudag
með umræðum um nýja kosti í af-
vopnunarmálum. Málshefjandi
verður Sverre Lodgaard frá frið-
arrannsóknastofnuninni SIPRI í
Stokkhólmi.
Séð yfir ráðstefnusalinn í Hótel Sögu. (Ljósm. EBB).
Sir Anthony Farrar-Hockley flytur er-
indi sitt á ráðstefnunni um öryggi og
afvopnun, sem nú er haldin í Keykja-
vík.
Viö synum
á Akureyri
Laugardaginn 17. apríl frá kl. 10-17
Bifreiðaverkstæðinu Bláfelli sf Óseyri 5a.
Komið og skoðið SAAB - spyrjið sölumennina út úr og
kynnist SAAB af eigin raun með því að prufukeyra.
TÖGGURHF.
UMBOÐIÐ