Morgunblaðið - 20.04.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.04.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982 3 Útflutningsbætur á landbúnaðarvörur: Horfur á að 81 milljón vanti til að bætur nægi HORFUR eru nú á því aö 81 milljón króna vanti upp á til að útflutnings- bætur úr ríkissjóði dugi til að jafna hallann af útflutningi landbúnaðar- vara á yfirstandandi verðlagsári. Framleiðsluráð hefur gert áætlun um þörf fyrir útflutningsbætur og er hún um 274 milljónir króna. l'ltflutn- ingsbótarétturinn hefur aftur á móti verið áætlaður 192 milljónir, þannig að standist áætlun Framleiðsluráðs vantar 81 milljón upp á að bæturnar dugi. Morgunblaðið hafði vegna þessa tal af Inga Tryggvasyni, formanni Stéttarsambands bænda. Sagði hann að ekki hefðu enn verið gerð- ar áætlanir um það hvað gert yrði í málinu. Starfsnefnd, sem sett var á laggirnar á síðasta stjórn- arfundi stéttarsambandsins, ynni að málinu og yrði það síðan tekið fyrir á næsta stjórnarfundi í lok mánaðarins. Þess vegna væri ekki hægt að segja um það á þessu stigi hver viðbrögð stéttarsambandsins yrðu. Menn yrðu þó að leggjast á eitt um að leysa þennan vanda og koma í veg fyrir að af honum yrðu stór áföll. Þá sagði Ingi að ástæðan fyrir því að þessi vandi kæmi upp svona skyndilega væri meðal annars sú, að Noregsmarkaðurinn fyrir kindakjöt hefði lokazt og hefði það verið bezti markaðurinn. í fyrra hefðu á þriðja þúsund lestir af dilkakjöti verið seldar til Noregs en ekkert nú. Ástæðan fyrir því væri sú að Norðmenn hefðu aukið talsvert kjötframleiðslu sína, bæði á kindakjöti og öðru kjöti og dreg- Þjóðverj- ar heiðra Halldór Laxness HÁSKÓLINN í Túbingen í Sambandslýöveldinu Þýska- landi hefir heiðrað nóbelsskáld- ið 1 lalldór Laxness í tilefni átt- ra'ðisafmælis hans með því að gera hann að heiðursdoktor. Heiðursskjalið verður hon- um afhent þann 20. apríl nk. af prófessor Wilhelm Friese, þekktum vísindamanni í nor- rænum fræðum við háskólann í Túbingen, í kvöldverði, sem sendiherra Sambandslýðveld- isins Þýskalands heldur hon- um til heiðurs. í Sambandslýðveldinu Þýskalandi verður afmælisins minnst í sjónvarpssendingum norður-þýska útvarpsins, svo og í öðrum fjölmiðlum. Þekkt- ir þýskir rithöfundar munu taka þátt í heillaóskum, sem svissneska bókaútgáfufyrir- tækið Huber í Frauenfeld, St. Gallen, lætur afhenda afmæl- isbarninu, ásamt með fyrsta eintaki nýjustu þýsku útgáf- * rAU,i“ unnar at .ajausucuu IWiiu • Krétlatilkynning. „Hvað er að gerast?...“ ÞAR SEM Morgunblaðið kemur ekki út á föstudaginn nk. verður þátturinn „Hvað er að gerast um helgina?" í blaðinu á fimmtudag. Fréttir í þáttinn verða því að ber- ast ritstjórn Morgunblaðsins fyrir [)riðju<lagHkvóW. Nauðsynlegt að fram- tíðarlausn finnist, segir Ingi Tryggva- son, formaður Stétt- arsambands bænda ið úr niðurgreiðslum á því þannig að neyzla hefði minnkað. Þá mætti geta þess að á síðasta verðlagsári vantaði yfir 40 millj- ónir króna upp á að útflutnings- bætur dygðu. Þá kom viðbótar- framlag í lánsformi frá stjórn- völdum að upphæð 20 milljónir. Til viðbótar var vandinn leystur með greiðslum af fóðurbætis- gjaldi, sem auðvitað væri eign bænda. Þá hefði hluta af þessari vöntun, 10 til 12 milljónum, verið jafnað niður á bændur. Gert væri ráð fyrir því að nú yrði reynt að fara svipaðar leiðir, en stéttar- sambandið legði mikla áherzlu á að þetta erfiða mál yrði leyst til frambúðar og í því sambandi ræddu menn mest um loðdýra- rækt til að d' aga úr kindakjöts- framleiðslunr i. Grásleppuveiðar suðvestanlands hófust á sunnudagsmorgun og karlarn- ir voru komnir af stað í býtið um morguninn til að leggja net sin á „beztu" staðina. Á myndinni er það Peli, sem skriður út úr Reykjavík- urhöfn á miðin við Akurey. Nýtt Lotus Discret 5 mm á þykktina, en hefur samt alla sömu eiginleika og þykkari bindi 4 . % »,i n Gamla reglan var þessi: Þykkara bindi = aukiö öryggi + aukin óþægindi. En ekki lengur. Það er samt ótrúlegt, að 5 mm bindi geti verið sambæriiegt við venjulegt 15 mm bindi. Engu að siður er það staðreynd, að Lotus discret gerir fullkomlega sama gagn og bindi af gömlu geró- inni. Svariö er að finna í sérstakri efnasamsetningu bindisins, sem hefur þann eiginleika, að draga I sig 20 falda þyngd slna af vökva, — og plasthúóuð bakhlið eykur enn á öryggið. Yfirborðió er úr nýju, finofnu og mjúku trefjalagi, sem heldur efsta lagi bindisins ótrúlega þurru, og gerir þaö mun þægilegra en ella. kdut z

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.