Morgunblaðið - 27.05.1982, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MAÍ1982
Frá blaöamannafundi Bílgreinasambandsins. Taldir frafvinstri: Hafsteinn Vilhelmsson framkvæmdastjóri FÍB, Þórir
Jensen varaform. Bílgr.samb., Olafur Walther Stefánsson skrifstofust. Dómsmálaráð. og Jónas Þór Steinarsson
framkvæmdastj. Bílgreinasamb.
Hjólbarðadagur 2. júní
„HJOLBARÐADAGURINN“ veröur haldinn miövikudaginn
2. júní og þann dag fer fram hjólbaröakönnun um land allt.
Starfsmenn hjólbarðaverkstæöa munu framkvæma könnun-
ina. í Reykjavík fer hún þannig fram, að stöðvaðir veröa bílar
í umferð af iögreglu og síðan verða hjólbaröarnir skoðaðir af
hjólbarðaviðgerðarmönnum. Kinnig verður til staðar bifreiða-
eftirlitsmaður. Hópar manna verða við þessar skoðanir í
Reykjavík, og ennfremur verða skoðaðir bílar á bílastæðum
víðsvegar um borgina. Uti á landi verður framkvæmdin nokk-
uð háð aöstæðum á hverjum stað. Gert er ráð fyrir að bílar
verði annaðhvort stöðvaðir eða skoöaöir þar sem þeir eru á
bílastæðum eða annars staðar, þannig að út á landi verða
skoðaðir 50—200 bílar á hverjum stað eftir atvikum.
Útbúið hefur verið sérstakt
eyðublað sem útfyllist af skoðun-
armönnum. Eyðublaðið er jafn-
framt happadrættismiði og eru
nýir hjólbarðar í vinning. Bíleig-
andinn fær númerað afrit af eyðu-
blaðinu, en aftan á því eru ýmsar
leiðbeiningar um notkun hjól-
barða.
Bílgreinasambandið gengst
fyrir þessum hjólbarðadegi í sam-
ráði við Bifreiðaeftirlit ríkisins,
Dómsmálaráðuneytið, Félag ísl.
bifreiðaeigenda, lögreglu og Um-
ferðarráð. Hugmyndin með hon-
um og þessari könnun er að vekja
athygli á hversu mikill öryggis-
þáttur ástand hjólbarða sé í
akstri, hversu miklu máli skiptir
að þeir séu í lagi og meðferð þeirra
sé þannig að þeir komi að sem
mestum notum. Það er von þeirra
aðila sem að þessum degi standa,
að hann verði upphafið að bættri
hjólbarða-menningu og meiri
fræðslu, bæði til almennings og
þeirra sem vinna í þessari grein.
Eftir að könnuninni lýkur verða
niðurstöður kynntar í fjölmiðlum.
Er hugmyndin að með þeim
ábendingum sem úr könnuninni
fást verði hægt að stuðla að bættu
umferðaröryggi.
„Standard” lengdir eða sérlengdir, allt eftir óskum kaupandans.
Að auki þakpappi, pappasaumur, þaksaumur, kjöljárn, rennu-
bönd og rennur.
B.B. BYGGINGAVÖRUR HF
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.
Kosningaúrslit
í yfirliti Morgunblaðsins um úrslit sveitarstjórnar-
kosninganna á laugardaginn féllu á nokkrum stöðum
niður nöfn þeirra, sem kosnir voru.
Kópavogur
Bæjarfulltrúar í Kópavogi
þetta kjörtímabil eru eftirtaldir:
Af A-lista Alþýðuflokks: Guð-
mundur Oddsson og Rannveig
Guðmundsdóttir. Af B-lista
Framsóknarflokks: Skúli Sigur-
grímsson og Ragnar Snorri
Magnússon. Af D-lista Sjálf-
stæðisflokks: Richard Björgvins-
son, Bragi Michaelsson, Ásthild-
ur Pétursdóttir, Guðni Stefáns-
son og Arnór Pétursson. Af
G-lista Alþýðubandalags: Björn
Ólafsson og Heiðrún Sverris-
dóttir.
Sauðárkrókur
Á Sauðárkróki voru eftirtalin
kjörin til setu í bæjarstjórn
næstu fjögur árin: Af B-lista
Framsóknarflokks: Magnús Sig-
urjónsson, Sighvatur Torfason,
og Björn Magnús Björgvinsson,
Pétur Pétursson. Af D-lista
Sjálfstæðisflokks: Þorbjörn
Árnason, Aðalheiður Arnórs-
dóttir og Jón Ásbergsson. Af
G-lista Alþýðubandalags: Stefán
Guðmundsson. Af K-lista
óháðra: Hörður Ingimarsson.
Selfoss
Bæjarfulltrúar á Selfossi eru
nú: Af A-lista Steingrímur Ingv-
arsson. Af B-lista: Ingvi Eben-
hardsson, Hafsteinn Þorvalds-
son og Guðmundur Kr. Jónsson.
Af D-lista: Óli Þ. Guðbjartsson,
Guðmundur Sigurðsson, Ólafur
Helgi Kjartansson og Guðfinna
Ólafsdóttir. Af G-lista: Sigurjón
Erlingsson.
I-listinn fékk 201 atkvæði, ógild-
ir seðlar voru 18 og 6 auðir.
í hreppsnefnd sitja nú fyrir
H-listann: Finnbogi Björnsson,
Sigurður Ingvarsson og Ingi-
mundur Guðnason. Fyrir I-list-
ann: Eiríkur Sigurðsson og
Viggó Benediktsson.
Kjörfundi lauk á laugardags-
kvöld kl. 23 og um miðnætti
hófst talning fyrir opnu húsi og
var hún nokkuð söguleg. í upp-
hafi tók I-listinn góða forystu
sem hann hélt framanaf og var
það ekki fyrr en um eða uppúr
miðri talningu að leikar fóru að
jafnast. I lokin var svo enda-
spretturinn H-listans og þar
með meirihluti í hreppsnefnd í
höfn. I kosningunum 1978 var
talningin miklu jafnari en þá
sigraði I-listinn með svipuðum
atkvæðamun og H-listinn nú.
Arnór.
Ólafsvík
Til sveitarstjórnar á Ólafsvík
voru kjörnir sjö fulltrúar, en
ekki fimm eins og sagði í Morg-
unblaðinu. Kosningu hlutu tveir
fulltrúar af D-lista, þrír full-
trúar af H-lista almennra borg-
ara og tveir fulltrúar af L-lista
lýðræðissinna.
Kosningu hlutu Kristófer
Þorleifsson og Helgi Kristjáns-
son af D-lista, Stefán Jóhann
Sigurðsson, Gylfi Magnússon og
Sigríður Þóra Eggertsdóttir af
H-lista og Jenný Guðmundsdótt-
ir og Kristján Pálsson af L-lista.
Að þessu sinni var sveitar-
stjórnarfulltrúum í Ólafsvík
fjölgað úr 5 í 7 og við það missti
PresLshjónin, sr. Gudmundur og frú Steinvör, mættu snemma á kjör-
stað í Garðinum. Hér eru þau fyrir utan barnaskólann ásamt Sigurjóni
Kristinssyni. Ljósm. Arnór.
Seltjarnarnes
Eftirtaldir voru kjörnir í bæj-
arstjórn á Seltjarnarnesi til
næstu fjögurra ára: Af B-lista:
Guðmundur Einarsson. Af
D-lista: Sigurgeir Sigurðsson,
Magnús Erlendsson, Júlíus Sól-
nes, Guðmar E. Magnússon og
Ásgeir S. Ásgeirsson. Af G-lista:
Guðrún K. Þorbergsdóttir.
Garður
Garði, 25. maí.
Gífurleg kosningaþátttaka var
í hreppsnefndarkosningunum á
laugardaginn. Á kjörskrá voru
586 manns og kusu á kjörfundi
518 en 41 í utankjörstaðarat-
kvæðagreiðslunni. Eru þetta
95,4% og hefir kjörsókn ekki
verið neitt nálægt þessu i undan-
förnum kosningum enda er þetta
mesta kjörsókn yfir landið í
þorpum af svipaðri stærð.
H-listinn, listi sjálfstæð-
ismanna og annarra frjáls-
lyndra, hlaut 285 atkvæði og 3
menn kjörna en I-listinn, listi
óháðra borgara, 263 atkvæði og 2
menn kjörna. Tíu seðlar voru
auðir og einn ógildur. I-listinn
hafði meirihluta í hregpsnefnd á
siðasta kjörtímabili. í kosning-
um til sýslunefndar fékk Þor-
steinn Einarsson 326 atkvæði en
hann var í kjöri fyrir H-listann.
H-listinn meirihluta þann, sem
hann hefur haft í 8 ár. Þá bætt-
ist nú einn framboðslisti við, það
er L-listinn. í sýslunefnd var
kjörinn Ólafur Kristjánsson af
D-lista. Þá samþykkti mikill
meirihluti kjósenda að sótt
skyldi um kaupstaðarréttindi til
handa Ólafsvík.
Súðavík
Enginn listi kom fram við
sveitarstjórnarkosningarnar á
Súðavík og var því óhlutbundin
kosning. Flest atkvæði og kjör í
sveitarstjórn hlutu: Sveinn
Kjartansson, Auðunn Karlsson,
Jónína Hansdóttir, Guðmunda
Matthíasdóttir og Heiðar Guð-
mundsson.
Stöðvarfjörður
Á Stöðvarfirði fór fram
óhlutbundin kosning á laugar-
daginn og voru fimm menn
kjörnir til hreppsnefndar. Þeir
eru: Hafþór Guðmundsson kenn-
ari, Bryndís Þórhallsdóttir
verkakona, Ingibjörg Björg-
vinsdóttir húsmóðir, Bjarni
Gíslason bifvélavirki og Bjarni
Kristjánsson símstöðvarstjóri.
Alls kusu 169, sem er um 82%
kosningaþátttaka en um 350
manns búa á Stöðvarfirði.