Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982 List og hönnun í íslenskri framleiðslu til sýnis á Kjarvalsstöðum Fyrirtæki eitt í Reykjavík var að opna nýtt húsnæði undir starfsemi sína. Þurfti að kaupa í það ný húsgögn. Það spurðist eins og eðlilegt er til þeirra, sem hafa með höndum húsgagnafram- leiðslu og innflutning á húsgögnum. Húsgagna- innflytjandi nokkur hringdi í forráðamenn fyrir- tækisins í þeim tilgangi að bjóða honum vöru sína. „Ég var að heyra að ykkur vantaði húsgögn í þetta nýja húsnæði ykkar,“ sagði hann. „Nei, ekki lengur," var svarað, „við höfum þeg- ar fest kaup á íslenskum húsgögnum, þakka þér fyrir.“ Og innflytjandinn á að hafa svarað: „Hva, er ekki íslenski húsgagnaiðnaðurinn dauður." Einn viðmælenda Morgunblaðsins sagði þessa sögu, sem á að hafa átt sér stað fyrir nokkru, með þeim fyrirvara að ekki væri á nokkurn hátt hægt að sanna hana, en hún sýndi kannski betur en margt annað, sagði viðmælandi, viðhorf manna til íslenskrar húsgagnaframleiðslu. Valur Valssoa framkræmdastjórí FÍI: „ Við böfum fengið tölurerða reynslu í þrí að hönnun rörunnar er torsenda þess að hún eigi sér hfsvon. “ MorgunblaðiA/ RAX. Úlfur Sigurmundsson framkvæmdastjóri l'tflutnings- miðstöóvar iðnaöarins: „Hönnun og vöruþróun mun hjálpa verulega til í samkeppninni við innflutning í hús- gögnum.“ Á Kjarvalsstöðum stendur nú yfir sýning, sem kallast Hönnun ’82 og má segja að sé lokapunktur á verkefni, sem nefnist „Markaðs- átak í húsgagnaiðnaði,,, og er því ætlað að stuðla að bættri mark- aðsstöðu íslenskra húsgagna- og innréttingaframleiðenda. Unnið hefur verið að þessu verkefni um tveggja ára skeið en verkefnis- stjóri er Hulda Kristinsdóttir. Þátt tóku í verkefninu 14 fyrir- tæki í húsgagnaiðnaðinum, Sam- starfsnefnd um iðnþróun, Útflutn- ingsmiðstöð iðnaðarins, Land- samband iðnaðarmanna, Iðntæknistofnun og iðnaðarráðun- eytið. í samtali við Morgunblaðið sagði Hulda, að helstu niðurstöður verkefnisins væru þær að á þeim tveimur árum, sem það hefur staðið yfir jókst framleiðni fyrir- tækjanna, sem þátt tóku í verk- efninu um 50 prósent að meðaltali. Hvað gæði snerti var lögð áhersla á að halda sama gæðastigi í fram- leiðslu samskonar vöru og segja má að það hafi tekist, að sögn Huldu. Þá hefur það gerst frá því byrjað var á verkefni, að sölu- aukning fyrirtækjanna, sem þátt tóku í verkefninu, hefur orðið að meðaltali um 25 prósent miðað við fast verðlag. Sagði Hulda að end- anlegt markmið væri að stærstu fyrirtækin í húsgagnaiðnaðinum flyttu út allt að 30 prósent fram- leiðslu sinnar. Sagði Hulda að lok- um, að vonast væri til að 1984 eða ’85 yrðu húsgögn flutt út fyrir 15 til 20 milljónir á verðlagi dagsins í dag. Morgunblaðið ræddi við nokkra aðila, sem tengdir eru húsgagna- iðnaðinum á einn eða annan hátt og innti þá eftir iðnhönnun og vöruþróun á íslandi og nýjum þreifingum í framleiðslu- og hönnunarmálum íslensk iðnaðar. Þá ræddi Morgunblaðið við for- ráðamenn Hildu hf., sem er stærstur útflytjandi á ullarfatn- aði ásamt SÍS og Álafossi. - O - „Tilgangur sýningarinnar á Kjarvalsstöðum er að gefa fólki kost á að sjá hvar hönnun er á vegi stödd hér á landi og jafn- framt að sýna að við erum komnir á sporið," sagði Valur Valsson, framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra iðnrekenda, í samtali við Morgunblaðið. Og hann hélt áfram: „Við erum farnir að framleiða hluti hér, sem eru hannaðir með nútíma hætti og aðferðum. Það er ekki lengur aðeins litið á útlit og notagildi, heldur er tekið tillit til mun fleiri þátta eins og hvernig er að framleiða vöruna?, er hún „Hva, er ekki íslenski húsgagnaidnaðurinn hentug til raðframleiðslu?, er auð- velt að flytja hana?, hentar hún í gáma? og svo framvegis. Þegar allir þessi þættir eru teknir með í reikninginn er fyrst hægt að tala um alvöru iðnaðarvöru. Á þennan hátt erum við að reyna að byggja upp íslenskan iðnað. Áður fyrr unnu menn í húsgagnaiðnaðinum hver í sínu horni og varla var hægt að tala um hönnunarhefð. Menn hugsuðu lítið um hönnun og vöruþróun. Þó eru einstök dæmi þess að einstaklingar hafi brotist fram og komið með sérkennilega vöru á húsgagnamarkaðinn. Þá tók framleiðandinn einn allar ákvarðanir um gerð og útlit fram- leiðslu sinnai'. Hönnun á fjölda- framleiddum vörum var þar til fyrir stuttu alger nýlunda hér á landi. Við höfum fengið töluverða reynslu í því að hönnun vörunnar er forsenda þess að hún eigi sér lífsvon. Besta dæmið í því sam- bandi er ullariðnaðurinn. Hönnun ullarfatnaðar er lykillinn að vel- gengni þeirrar vöru bæði hér heima og erlendis. Vöruþróun er hlutur, sem ís- lensk iðnfyrirtæki taka mun al- varlegar en áður. Iðnaðurinn hér er í óheftri samkeppni við allt það besta í iðnaði úti í heimi. Ef halda á uppi samkeppni við erlenda aðila er vöruþróunin frumskilyrði til að varan haldi velli. í því sambandi má benda á að á skömmum tíma hefur skapast iðnaður á sviði véla- og tækjabúnaðar fyrir sjávar- og fiskvinnslu. Sú framleiðsla er í vaxandi mæli að sækja á erlendis. Það hefur einungis gerst vegna markvissrar vöruþróunar. Hvar liggja vandamálin og hvar má gera betur? Spurningum sem þessum er varpað fram og varan er síðan hönnuð og þróuð þar til öllum spurningum hefur verið svarað og öll vandamál hafa verið leyst. Rafeindavogin í frystihús- unum og tæki tengd henni er gott dæmi um velheppnaða vöru. Hugmyndir um lausnir á vanda- málum, sem upp koma í fram- leiðslugreininni liggja víða. Sumar hafa komið fram hér á landi og þær þótt merkilegar og arðvænlegar erlendis. Þróunin á þessum framleiðslusviðum hér á landi, segir mér það, að skilningur á mikilvægi hönnunar og vöru- þróunnar fari hraðvaxandi. Nú eiga sér stað betri og meiri tengsl dauður? u Gunnar Magnússon innanhússarki- tekt: „Ég held það hafi verið byrjað i röngum punkti þegar reynt var að hefja útflutning á húsgögnum.” Guðni Pálsson arkitekt og hönnuður sýningarinnar á Kjarvalsstöðum. Jakki frá Hildu hf. Frá því að Hilda hf. fór að taka upp skipulega hönnun flikum sínum hefur sala þeirra aukist ár frá ári. en áður milli hönnuða og fram- leiðenda. En það þarf að gera miklu meira í þessum málum þó að við séum komin af stað í rétta átt og hugarfarsbreyting hafi átt sér stað. Það hefði til dæmis verið óhugsandi fyrir nokkrum árum að halda svona sýningu eins og nú er á Kjarvalsstöðum á Listahátíð i Reykjavík. - O - Það er ánægjulegt að sjá á sýn- ingunni samvinnu ólíkra greina eins og húsgagnaframleiðenda og áklæðis- og teppaframleiðenda. Þeir gefa sýningunni heildar- mynd. Sem dæmi má nefna sam- vinnu Álafoss og Víðis. Þessi tvö fyrirtæki unnu saman að hönnun vöru sinnar með tilliti til eigin- leika efnanna, sem notuð eru, það er og ull. Það er vonandi að sýn- ingin og „Markaðsátak í hús- gagnaiðnaði" virki sem hvati á ís- lensk iðnfyrirtæki, svo þau leggi meiri áherslu á hönnun og vöru- þróun í framtíðinni. Ég held að flestir voni að hægt verði með tímanum að ná fram sérstökum íslenskum einkennum og stíl, því slíkar vörur er hægt að selja dýrt. Við framleiðum frekar dýrar vörur sem geta ekki keppt við ódýrustu fjöldaframleiðslu. Ef keppt yrði að því að ná séríslensk- um stíl gæti það þýtt meiri líkur á að fólk kaupi vöruna þó hún sé dýr. Ný viðhorf í húsgagnafram- leiðslu á íslandi eru þegar farin að hafa áhrif. Fyrir ári síðan var til sýnis stóll frá Stálhúsgagnagerð Steinars hf. sem Pétur B. Lúters- son hannaði, á Skandinavískri húsgagnasýningu í Kaupmanna- höfn. Það var Stacco-stóllinn og vakti hann mikla athygli. Það mikla að Stálhúsgagnagerðin hef- ur þegar gert umtalsverðan sam- ning um framleiðsluleyfi við mjög stórt danskt húsgagnafyrirtæki. Það fyrirtæki sýndi á samskonar sýningu í vor þennan stól með áberandi hætti. Stóllinn er dæmi um það sem þegar hefur komið út- úr þessu skipulagða markaðas- átaki. Menn hafa áttað sig á mikil- vægi hönnunarinnar en öllum er ljóst að hönnun leysir ekki nema einn þáttt málsins, þó það sé vissuleg ómissandi þáttur."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.