Morgunblaðið - 17.06.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.06.1982, Blaðsíða 12
4 4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1982 ByggÖu ei hús þitt í kirkjugarði Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson lllir andar eru að ná tökum á Heather litlu O’Rourke. Kvikmyndaleikstjórinn Steven Spielberg, sem m.a. hefur stjórnað metaðsóknarmyndunum JAWS, CLOSE ENCOUNTERS OF THE THIRD KIND og RAIDERS OF THE LOST ARK, verður heldur betur í sviðsljósinu í sumar, þar sem að tvær myndir hans til viðb- ótar voru frumsýndar með viku millibili fyrr í mánuðinum. Hér verður fjallað um aðra þeirra POLTERGEIST, sem frumsýnd var i New York 4. þ.m. og spáö er feiknavinsældum, á við þær sem myndirnar þrjár sem fyrr er getið, nutu á sínum tíma. Heimsfrumsýningardagur myndar eftir Steven Spielberg er talsverður viðburður í augum forfailins kvikmyndaneytanda, svo ég tók daginn snemma og hafði tekið mér stöðu í þá þegar myndarlegri biðröð utan við kvikmyndahúsið uppúr 9, (f.h.) fyrsta sýning átti að hefjast klukkan 11. Og tíminn líður hratt á Times Square á heitum og fögrum sumarmorgni. Margt kúnstugt og kyndugt ber fyrir augu eyjarskeggjans þegar hann hefur ekkert annað fyrir stafni en að virða fyrir sér iðandi og litskrúðugt mannlífið á þessum krossgötum veraldar. Það tínist ýmislegt til. Og þegar byrjað var að hleypa inn, var biðröðin orðin næsta óárennileg. POLTERGEIST er í bland draugasaga og hrollvekja. Hún segir af Freelin hjónunum, (dæmigerðu millistéttarfólki — eftirlæti Spielbergs), sem búa í huggulegu, nýbyggðu úthverfi ásamt börnum sínum þremur, Dönu sem er á táningsaldri, Robbie og litlu Carol Anne. í myndarbyrjun eru þess eng- in merki að ýmislegt læviblandið liggi í loftinu. Heimilisföðurnum vegnar vel og innan dyra ríkir góður andi. Börnin eru þvegin, kembd og háttuð og pabbi sofnar útfrá sjónvarpinu. En þegar út- sendingu lýkur um nóttina fer ýmislegt á stjá sem enginn greinir nema heimilishundurinn og Carol litla. Hún dregst sem bergnumin að sjónvarpstækinu og í gegnum truflanirnar á auð- um skjánum, skynjar hún öfl sem reyna að ná til hennar. Kvöldið eftir brestur svo allt úr böndum. Robbie litli sofnar ekki, þar sem hann óttast að tréð fyrir utan gluggann ætli sér að hremma sig, (sem það og gerir) og yngsta barnið á bænum bíður spennt eftir að hinir nýju vinir hennar á skjánum birtist. Nú gerist margt. Óveður skell- ur á með tilheyrandi skruggum og ljósagangi, gamla, kræklótta tréð teygir visnar greinar sínar í Robbie og hrífur hann til sín. Pabba og mömmu tekst eftir langa mæðu að heimta hann úr helju eftir mörg skelfingar augnablik, en á meðan hafa vo- veiflegir hlutir gerst innan dyra. Líkt og hvirfilvindur hafa hin illu öfl af skjánum sogað til sín Carol litlu, en þó heyrir heimilis- fólkið neyðaróp hennar ein- hversstaðar úr fjarska. Samtímis verður reimt í hús- inu, óhugnanleg hljóð og birta skelfa íbúana. Húsgögn fara á flakk og framliðnir birtast, og af og til berast til eyrna kveinstafir litlu stúlkunnar. En lífið gengur hvarvetna sinn vanagang í hverfinu, svo þau hjónin vita ekki hvert þau eiga að snúa sér í leit að hjálp. Að lokum hugkvæmist þeim að leita á náðir sérfræðinga í reimleikum og dveljast þeir á heimilinu um hríð, hlaðnir margvíslegum tæknibúnaði. Þeir fá þó ekkert aðgert, frekar að draugagangurinn aukist en hitt, fyrr en til hjálpar er kvaddur dvergvaxinn miðill, hin furðu- legasta persóna í alla staði. Eftir mikinn darraðardans við illar vættir, tekst þó móðurinni — fyrir visku miðilsins — að „fara yfir mörkin" og heimta barn sitt úr heljargreipum. Allt virðist nú fallið í Ijúfa löð, vísindamenn- irnir hverfa á braut og miðillinn lýsir húsið „hreint". En húsráðendur una ekki hag sínum lengur á þessum stað, að auki hafa þau komist að því að það er byggt á gömlum kirkju- garði og þar virðist komin skýr- ingin á djöfulganginum. Hús- bóndinn heldur á braut til að ganga frá sínum málum fyrir brottflutninginn. En hann er ekki fyrr horfinn en enn eitt áf- allið ríður yfir hrjáða íbúa húss- ins, og nú er sem allir árar and- skotans leiki lausum hala ... Eins og sjá má af efninu er POLTERGEIST hrein fantasía, sem menn eiga að njóta sér til skemmtunar og forðast að taka alvarlega. Og svo sannarlega tekst Spielberg að hafa ofan af fyrir manni í þá tæpu tvo tíma sem myndin stendur. Reyndar er erfitt að sjá hvert hann stefnir en að mínu áliti var það takmark hans fyrst og fremst að gera skemmtimynd í anda sinna bestu mynda. Þó má ailtaf greina óttann sem nagar barnssálina í gegnum mestan hluta POLTERGEIST, óttann sem við munum örugg- lega velflest eftir frá bernskuár- unum. Ótta við myrkrið sem helltist yfir mann þegar ljós voru slökkt á kvöldin, ótta við ókindina sem bjó um sig í myrkrinu undir rúminu og leit- aði færis að grípa heljartökum um fætur manns ef maður vog- aði sér framúr, (sem var sjald- an), jafnvel góðvinir manns, leikföngin gátu fengið á sig ískyggilegan blæ ef hugar- ástandið var bágborið á myrkv- uðu síðkvöldi þegar flestir voru gengnir til náða. Myrkfælnina man Spielberg og kemur trú- verðulega til skila. Sennilega hafa sjónbrellur og hljóðeffektar sjaldan notið sín jafnvel og í POLTERGEIST. Hér koma í ljós sterkustu hliðar töframannsins Spielbergs. Hann, ásamt úrvals aðstoðar- mönnum, baðar áhorfendur í margbreytilegri lýsingu, sem á mögnuðustu köflunum virkar ójarðnesk. Hann kemur út á þeim köldum svita með einkar útsjónarsamri hijóðupptöku í sex rása Dolby, þar sem bregður fyrir hverskyns brellum og níst- andi kveinstöfum. Sjónbrellurn- ar eru stórkostlegar. Andarnir sem svífa útúr sjónvarpstækinu eru flókin og illframkvæmanleg tækniafrek, sama má segja um kölska gamla, sem bregður fyrir. Hann minnir á hákarlsskoltinn fræga. Þá eru í myndinni nokk- ur, mjög vel unnin förðunar- atriði. Leikurinn hvílir næstum ein- göngu á herðum óþekktra leik- ara utan Beatrice Straight sem fer fyrir hóp vísindamannanna sem kallaðir eru til hjálpar. Það reynir ekki svo mikið á leikhæfi- leikana í POLTERGEIST, hér eru það Spielberg og tækni- meistarar hans sem eru stjörn- urnar. Undantekningar eru þó hlutverk barnanna tveggja, en með þau fara Oliver Robbins og Heather O’Rourke. Þau fara á kostum og er leikur hvorttveggja sannfærandi og skemmtiiegur. Og ekki má gleyma furðukvend- inu Zeldu Rubinstein í hinu makalausa hlutverki dvergmið- ilsins sem er sér kafli útaf fyrir sig. POLTERGEIST er tvímæla- laust enn ein skrautfjöðrin í hattinn hans Spielberg. Því þrátt fyrir endasleppan og óhugsandi efnisþráð, hefur hon- um enn einu sinni tekist að skapa afburða afþreyingarmynd, þar sem hvergi er höggstað að finna frá tæknilegu eða skemmt- analegu sjónarmiði. Hinsvegar hefur hann auðgað kvikmynda- formið með sífrjórri útsjónar- semi sinni og ríku hugmynda- flugi. Og ekki var laust við að maður andaði léttar er útí sól- skinið var komið að nýju. ATH.: Ég hef alfarið eignað Spielberg myndina POLTER- GEIST, hinsvegar er Tobe Hoop- er titlaður leikstjóri á kreditlist- anum. Sá er frægastur fyrir ófögnuðinn THE TEXAS CHAINSAW MASSACRE, eina subbulegustu og ósmekklegustu lágkúru síðari ára, sem naut þó talsverðra vinsælda. Af þeim sökum bauð Spielberg Hooper leikstjórastarfið, en von bráðar kom í ljós að hann var því engan veginn vaxinn. Spielberg tók því yfir eins og bersýnilega kemur fram á gæðum og yfirbragði myndarinnar. Af vissum ástæð- um lét hann þó ekki afmá nafn Hoopers — sem heldur hefur ekki borið á móti þessari afsetn- ingu. Gerð 1982 af MGM/UA. Fram- leiðandi: Steven Spielberg, Frank Marshall. Leikstjóri: Tobe Hooper. Handrit: Spielberg, Michale Grais og Mark Victor. Söguþráður: Spiel- berg. Kvikmyndtataka: Matthew F. Leonett. Klipping: Michael Kahn. Tónlist: Jerry Goldsmith. Sýningartími 115 mín. Aðalhlut- verk: Graig T. Nelson, Jobeth Williams, Beatrice Straight, Dom- inique Dunne, Oliver Robins, Heather O’Rourke og Zelda Rub- instein. Jobeth Williams, í hlutverki móðurinnar, í óskemmtilegum félagsskap f lokauppgjöri manna og illra afla i POLTERGEIST. It knoMs H'hat scares you. Nafn myndarinnar. Hönnunarsýningu á Kjarvals- stöðum lýkur um helgina Sýningunni Hönnun '82, sem haldin er á Kjarvalsstöðum í til- efni Listahátíðar, lýkur um helg- ina, en sýningin er árangur sam- starfs stjórnar Kjarvalsstaða og stjórnarnefndar markaðsátaks í þágu íslenzks húsgagnaiðnaðar. Á sýningunni er úrval húsgagna, lampa og „textíla" frá ellefu ís- lenzkum framleiðendum, svo og ýmiskonar listmunir eftir 27 ís- lenzka listamenn. Tilgangurinn með sýningunni er, að sögn forráðamanna Kjarvalsstaða, að leiða saman listamenn og framleiðendur til sameiginlegs átaks og vekja með því móti athygli á því hvernig listin getur unnið fyrir og með hinum ýmsu þáttum atvinnu- lífsins. I því sambandi er á það bent hvernig þróun hönnunar t.d. í Finnlandi og Danmörku hefur sannað hverju hugvit og listrænn metnaður fá áorkað í þessum efnum. Forseti fslands, Vigdís Finnbogadóttir, skoðaði sýninguna sl. mánudag, ásamt Hjörleifi Guttormssyni og fleiri gestum, og var myndin tekin við það tækifæri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.