Morgunblaðið - 27.06.1982, Blaðsíða 23
skálda um list Kjarvals, sem
ósjaldan geta ails ekki staðizt i
raun og á köflum virðast stílæf-
ingar einvörðungu. Hóflegir og
skilmerkilegir textar skiia sér
ólíkt betur í slíkum tiivikum en
hitt.
Þá vakti það undrun mína, að
eingöngu er vitnað til ummæla
og skrifa skálda og listfræðinga
er ritað hafa um Kjarval bækur,
en í engu er vísað til skilgrein-
inga gagnrýnenda fyrr og nú —
en þeir hafa fjölmargir ritað um
Kjarval, innlendir sem útlendir.
En hér er allt fyrst og framtak,
sem er til mikilla bóta, skal met-
ið að verðleikum. Þetta gefur
hugmynd um, að snjallt yrði að
gefa út bók um lífsferil Karvals í
líku sniði og t.d. bókina um Siri
Derkert, sænsku listakonuna.
Formið er ekki ósvipað en rit-
málið eru vel ritaðar, öfgalausar
og óskáldlegar heimildir er ailir
geta melt. Enda selst bókin upp
á augabragði. Slík bók um
Kjarval í ennþá fullkomnara
formi væri að minni hyggju
vænlegasta kynning á mannin-
um og list hans sem hugsazt get-
ur og mundi væntanlega rjúka
út á Norðurlöndum og jafnvel
víðar. Ég veit það ósköp vel, að
menn þyrstir í upplýsingar um
íslenzka myndlist erlendis og ris
íslenzkrar listar yrði stórum
meira ef við réðum bót á þessum
þorsta. I skynsamlegri mynd,
þ.e. án þeirrar yfirþyrmandi
hlutdrægni, sem við erum þekkt-
ir fyrir í þessum málum og út-
lendum líkar miður.
í gefnu formi er sýningin sett
upp sem skólabókardæmi fyrir
þá er fátt vita um Kjarval og
þróunarferil hans og þeir eru
vissulega margir hérlendis —
einkum meðal ungu kynslóðar-
innar. Þá er sýningin í þessu
formi og með nokkrum viðauka
vel til þess fallin að fara á flakk
innan lands sem utan — hafa
erlendir enda þegar sýnt áhuga á
slíkri framkvæmd í heimalönd-
um sínum.
Dregið saman í hnotskurn, þá
er þetta mjög áhugaverð sýning,
sem fólk ætti ekki að láta fram
hjá sér fara og gefa sér drjúgan
tíma til að skoða verkin og sýn-
inguna í heild. Uppsetningin er
athyglisverð, einkum hvað teikn-
ingar áhrærir, en hér var Kjar-
val í essinu sínu sem „artisti" og
vann myndirnar á margvíslegan
hátt eftir því hvað hann hafði
handanna á milli hverju sinni —
slíkt er aðal sannra myndlist-
armanna. Jafnvel salernispappír
er fágæti ef annað er ekki við
hendina er andinn kemur yfir þá
... Að lokum ber að þakka öllum
er hér lögðu hug og hönd að.
Bragi Ásgeirsson
Sumarferð
Fríkirkjunnar
SUMARFERÐ Fríkirkjunnar verður
að þessu sinni farin sunnudaginn 4.
júlí, og verður lagt upp frá kirkjunni
kl. 9 að morgni.
Ekið verður austur um sveitir og
undir Eyjafjöll, þar sem hádegis-
verður mun snæddur að Eddu-
hótelinu í Skógum. Komið verður
við hjá Skógafossi, byggðasafnið í
Skógum skoðað, og síðan ekið að
upptökum Jökulsár á Sólheima-
sandi. í bakaleiðinni verður ekið
um Fljótshlíð.
Stoppað verður á ýmsum athygl-
isverðum stöðum og síðdegiskaffi
drukkið einhvers staðar úti í nátt-
úrunni. Er fólk því beðið að hafa
með sér kaffi eða gosdrykki og
nestisbita.
Fargjaldi verður stillt í hóf eins
og hægt er. Farseðlar verða seldir í
versluninni Brynju á Laugavegi.
(FrétUtilkynning frá Fríkirkjunni.)
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ1982
23
Reykja-
lundi gefið
þrekpróf-
unarhjól
301.NÝLEGA gaf Lionsklúbbur
Kjalarnesþings Reykjalundi
þolprófunarhjól, sem notað verður
við töku álagshjartalínurita og við
þjálfum hjartasjúklinga. Verft-
mæti þessa tækis með söluskatti
er um 60 þúsund krónur.
Hjólið er búið tölvu, sem ýmist
velur sjálf æfingaprógram fyrir
viðkomandi eða gerir kleift að
stýra vinnuálaginu mjög ná-
kvæmlega. Bráðlega verður að-
staða til þjálfunar hjartasjúklinga
formlega tekin í notkun að
Reykjalundi.
Frá afhendingu þolprófunarhjólsins. A myndinni eru: Karl Friðrik Kristjánsson formaður Hjarta- og æðaverndarfélags
Reykjavíkur, Friðrik Sveinsson héraðslæknir, Kári Sigurbergsson læknir, Guðmundur Sigþórsson, Þengill Oddsson læknir,
Herberg Kristjánsson, Bernharð Lonn, Páll Vigmundsson, Ingimundur Eymundsson, Ólafur Bjarnason, Magnús Sig-
steinsson formaður Lionsklúbbs Kjalarnesþings, Björn Ásmundsson framkvæmdastjkóri Reykjalundar og Magnús Ein-
arsson læknir.