Morgunblaðið - 28.07.1982, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.07.1982, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JULI 1982 24 Katrín Helgadótt- ir - Minningarorð Fædd 27. nóvember 1905 Dáin 16. júlí 1982 Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Þau orð komu mér í huK, er ég frétti andlát tengda- móður minnar, Katrínar Helga- dóttur. Það er nú einu sinni svo að við, sem eftir lifum, eigum oft erf- itt með að sætta okkur við þegar ástvinir kveðja. Ef til vill er þetta vottur eigingirni að vilja halda sem iengst í þá sem okkur eru kærir. Eg átti þess sannarlega ekki von, þegar ég kvaddi hana glaða og hressa þriðjudaginn 13. júlí, að við ættum ekki eftir að hittast á ný í þessu lífi. Hún var að ieggja upp í orlofsferð aldr- aðra, sem hún hafði oft farið í á undangengnum árum. Að þessu sinni var ferðinni heitið að Löngu- mýri í Skagafirði, en þar lést hún að kvöldi 16. júlí. Katrín var fædd á Akureyri dóttir Helga Benediktssonar skip- stjóra o.g seinni konu hans, Si- gnýjar Jónsdóttur. Börn þeirra voru sex. Er Katrín síðust þeirra systkina, sem kveður. Þegar Katrín var níu ára missti hún föður sinn, og var þá börnun- um komið fyrir á ýmsum stöðum nema yngsta barninu, Lóu, sem Signý hafði hjá sér. Katrín lenti hjá góðu fólki í Kolgerði í Eyja- firði og dvaldi þar fram yfir ferm- ingu við venjuleg sveitastörf. Ekki var skólaganga Katrínar löng, eins og títt var á þessum árum, þrátt fyrir góða greind, en hún nam þeim mun meira í skóla lífs- ins, þeim skóla, sem herðir skap og stælir kjark. Eftir fermingu vann Katrín al- geng störf til sjávar og sveita eins og sagt er. Árið 1929 giftist Katrín Agli Jóhannssyni, góðum hag- Fædd 2. september 1895 Dáin 19. júlí 1982 Aldamótakynslóðin er nú sem óðast að hverfa af sjónarsviðinu af skiljanlegum ástæðum. Víða hefur mátt sjá og heyra í ræðu og riti fróðra manna, að engin kyn- slóð önnur hafi leyst af hendi þýð- ingarmeira hlutverk í þágu ís- lensku þjóðarinnar. Víst er, að Guðrún Guðmunds- dóttir verðskuldar þennan vitnis- burð. Ekki þekki ég margar konur, sem hefðu leyst af hendi með jafn- miklum myndarbrag það hlutverk að koma upp stórum barnahópi hjálparlaust á þeim erfiðu tímum, sem þá ríktu hér á landi, þegar mikið fjölskylduáfall reið yfir, er fyrirvinnan slasaðist og varð að liggja árum saman á spítala. Víst er, að til þess að vel færi, þurfti húsfreyjan að hafa til að bera góða greind, mikla nýtni og óhemju dugnað. Vel má vera, að erfiðleikar í uppvexti hafi hert og styrkt þessa ágætu konu, því að á síðasta tug 19. aldar og fram eftir þessari voru atvinnuhættir hér á landi næsta fábrotnir. Landbúnaður, sem þá var helsti atvinnuvegur þjóðarinnar, var rekinn á hinn frumstæðasta hátt. Flestir bænd- ur voru sárfátækir einyrkjar, sem tókst aðeins með naumindum að halda lífinu í fjölskyldum sínum með linnulausu striti myrkranna á milli. Nokkru skárri mun afkoma manna hafa verið við sjávarsíð- una, þar sem útvegsbændur gátu stuðst jöfnum höndum við sjávar- afla og landbúnað. Samt liggur i augum uppi, að einnig þar mun oft hafa verið um skort að ræða. Það er sama, hvar borið er niður í spjöld sögunnar frá aldamótaár- leiksmanni, og átti með honum fjórar dætur, sem allar eru giftar hér á höfuðborgarsvæðinu. Árið 1942 missti Katrín mann sinn, og stóð þá ein uppi með dæturnar, þá elstu 13 ára, en yngstu 7 ára. Á þeim árum voru engar almanna- tryggingar og því í fá hús að venda fyrir einstæðar mæður. En ein- mitt þá, eins og oft síðar, kom í ljós hennar sterka skaphöfn, að gefast ekki upp, en berjast til þrautar. Var nú lögð nótt við dag til að sjá dætrunum ungu far- borða. I stríðslok réðist hún í að kaupa íbúð, að Víðimel 19, sem varð hennar heimili til hinstu stundar. Katrín var um margt sérstæð kona, hún var ekki allra við fyrstu kynni og bar ekki tilfinningar sín- ar á torg, en þeir sem einu sinni höfðu öðlast vináttu hennar og tryggð áttu hana til æviloka, því undir harðri skelinni sló stórt hjarta, heitt og ríkt. Árið 1950 giftist Katrín aftur, Ingiberg Runólfssyni bifreiða- stjóra, góðum manni og greindum, sem oft kryddaði heimilislífið á Víðimelnum með glettni sinni og gamansemi. Hann lést á árinu 1981 og sýndi Katrín í veikindum hans hvern mann hún hafði að geyma, því hún var vakin og sofin yfir velferð hans þar til yfir lauk. Þegar dætur Katrínar giftust hver af annarri, varð heimilið á Víðimelnum miðstöð allra fjöl- skylduboða. Þar ríkti góðvild og glaðværð, þar sem húsmóðirin var hrókur alls og stjórnaði af sinni höfðingsiund færandi, gefandi, veitandi, en einmitt þeir eiginleik- ar voru ríkjandi í hennar skap- gerð. Mér hefur oft flogið í hug hin síðari ár, þegar maður fer að velta unum og fyrstu árum 20. aldar — hvarvetna blasir við skortur, litlir atvinnumöguleikar á vissum árs- tíðum, fjárskortur og, því miður, oft matarleysi. Þjóðin var fátæk og hrjáð eftir margra alda nýlenduok. Sáraiitlir peningar í umferð og varla hægt að segja, að þeir hafi sést meðal almennings. Fiskiskipastóll lands- manna var eingöngu opnir árabát- ar, þar til fyrstu skúturnar voru keyptar til landsins um og upp úr aldamótunum, og veiðarfæri af skornum skammti. Enskir botn- vörpungar skófu upp fiskimiðin inn í firði og víkur og landhelgis- gæslan var í höndum Dana, venju- lega eitt herskip, sem oft lá lang- tímum saman í höfn. Vegasam- band afleitt milli landsfjórðunga og byggðarlaga, víðast aðeins troðningar og götuslóðar eftir lestarferðir. Þannig var umhverfið og að- stæðurnar, sem Guðrún Guð- mundsdóttir fæddist í og ólst upp við. Guðrún fæddist að Þæfusteini á Hellissandi 2. september 1895. Foreldrar hennar voru Guðmund- ur Jónsson útvegsbóndi og Guðrún Jónsdóttir kona hans, sem bjuggu síðar á Munaðarhóli á Sandi. Tíu ára að aldri varð Guðrún fyrir þeirri mikiu sorg að missa móður sína, og hefur það áfall eflaust orðið þess valdandi, að heimilið tvístraðist nokkuð, en fjölskyldan var stór og börnin sjö talsins. Var Guðrún þá send að Auðshaugi á Barðaströnd, þar sem hún átti heima um tveggja ára skeið. Árið 1907 fluttist hún til Katrínar syst- ur sinnar, sem þá var nýgift Þorsteini J. Jóhannssyni skip- stjóra frá Narfeyri, og bjó á heim- ili þeirra hjóna um nokkurt árabil. Þar fermdist hún, og þar mun hún lífinu fyrir sér í alvöru, hvort ekki hafi verið margt líkt með Katrínu og nöfnu hennar og ömmu, sem var þekkt og virt ljósmóðir á öld- inni sem leið. Um ömmu hennar var sagt: að hún hefði læknisgáfu og líknarhendur. Um Katrínu ljósmóður skrifar Karl Krist- jánsson fv. alþingismaður í ritið „Islenskar ljósmæður", en hún var einnig amma hans. Sagt hefur verið, að lengi búi að fyrstu gerð. Ég hygg að Katrín hafi frá öndverðu beint hugum dætra sinna að því að verða góðir og gegnir borgarar enda uppskar hún eins og hún sáði. Dætur henn- ar eru allar velgerðar konur og myndarhúsmæður og tengslin milli dætra og móður hafa verið til fyrirmyndar. Hún lét ekki staðar numið við dæturnar, heldur fylgdist vökul- um augum með vexti og þroska barnabarnanna, og þeim skildist snemma að þau áttu hauk í horni, þar sem amma á Víðimelnum var. Ég er þess fullviss að Katrín átti ekki heitari ósk en fá að kveðja einmitt á þessum árstíma þegar „Foldin fríða tjaldar sínu feg- ursta“, í sátt við alla. Þegar kallið kom eins og hendi væri veifað var hún söm, að miðla öðrum af glaðværð sinni og gæsku, aldrei til ama, sjálfstæð og sterk lífið á enda. Þannig munum við ástvinir hennar og niðjar geyma minninguna um hana. Að endingu nokkrar ljóðlínur eftir Stein Sigurðsson, en í þeim felst raunar það sem ég vildi sagt hafa um þessa mætu konu. Hver þér trúrri í stödu o* stétt hver sUerri að þreki og vilja hver meiri að fordast flekk og blett hver fremri að stunda satt og rétt hver skyldur fyrri að skilja.“ (Til móðir minnar) Blessuð sé minning hennar. Tengdasonur „Hví skyldi eg ekki reyna >ð byrla Braga full og bra ða, sleypa og móta hið dýra feðra gull, ef heimaoielan kynni að horfa í aðferð mína og hlusU í stutta siigu um mömmu og ömmu sina. hafa unað hag sínum vel, enda heimilið hið prýðilegasta. Þegar Guðrún var 18 ára, tók hún sig upp, kvaddi Breiðafjörð og lagði land undir fót, hélt vestur til ísafjarðar. Á þeim árum var ísa- fjörður meðal stærstu útgerðar- bæja landsins, aflabrögð í besta lagi og atvinnumöguleikar því meiri þar en víða annars staðar. Ekkert var því eðlilegra en að ung, hugsandi stúlka, sem vildi komast áfram í lífinu, leitaði á þær slóðir. Er til ísafjarðar kom, vann Guðrún um tíma hjá þeim hjónum Guðrúnu Stefánsdóttur og Ásgeiri Jónssyni, en vistréðst því næst á heimili hjónanna Jóns Hró- bjartssonar kennara og Rannveig- ar Samúelsdóttur og varð það heimili hennar, þar til hún giftist 2. nóvember 1918, Sigurði Sigurðs- syni, Vestfirðingi að ætt, sem þá stundaði sjómennsku á vélbátum frá Isafirði. Jón og Rannveig áttu viður- kennt myndarheimili, stórt og mannmargt, og ráku einnig mötu- neyti, svo að auk fjölskyldunnar voru þar að jafnaði margir kost- gangarar. Glaðværð mun þar hafa verið ríkjandi, ekki síst þar sem húsbóndinn var listrænn og þægi- legur viðmóts, en heimilisvenjur samt fastmótaðar og öllu stjórnað af festu og virðuleik. í þessu um- hverfi undi Guðrún sér vel og hún sagði síðar, að dvöl sín á heimili Jóns og Rannveigar hefði verið besti skóli sinn á lífsleiðinni. Eins og áður segir, voru þau Guðrún og Sigurður gefin saman 1918. Stofnuðu ungu hjónin þá heimili sitt á ísafirði, þar sem þau bjuggu síðan til ársins 1977, þegar þau fluttust hingað suður, er ellin leitaði á. Eflaust hefur heimilisstofnunin verið erfið, enda kaupið lágt í þá daga, en þau Guðrún og Sigurður voru dugleg og samtaka um að gera heimili sitt svo vel úr garði, sem föng leyfðu. Síðan eignuðust þau börnin, eitt af öðru, og árið 1936 taldi fjölskyldan níu manns, börnin orðin sjö. Það er eiginleiki greindra og dugmikilla húsmæðra að stjórna (lm héraðsbrest ei getur, þó hrökkvi sprek í tvennt, er hríðarbylur geisar, það liggur gleymt og fennt. Og ein.s er lítill tregi og engin aorg á ferðum, þó ekkja falli í valinn meó sjötíu ár á herðum.“ Svo yrkir Guðmundur Frið- jónsson á Sandi í ódauðlegu kvæði sínu „Ekkjan við ána“, sem elsk- aði, fórnaði og spann í lífsvef sinn þátt tryggðar, hljóðlát, án mögl- unar og fann unað lífsins í vellíð- an barnanna sinna, er hún þreytt lagðist til hvíldar eftir unnið dagsverk. „Er búió var aó „Jeaa“ hún bar þeim kvöld veróinn og breiddi síóan ofan á litla hópinn sinn, á versin sín þau minnti og vermdi kalda fetur, en vakti sjálf og prjónaói fram á miójar na*tur.“ Því koma mér í hug þessi orð, þegar í dag verður til moldar bor- in merkiskonan, ekkjan Katrín Helgadóttir, Víðimel 19, Reykja- vík. Við sem þekktum hana virtum hana og mátum vel, fundum í fari hennar, að þar fór sérstæð kona og mikillar gerðar, sem ekki bar á torg kjör sín. Heldur hóf, svo af bar, til vegs með verkum sínum trúmennsku og skyldurækni. Þegar Melaskólinn í Reykjavík hóf starfsemi um miðjan fjórða heimilum sínum af nærgætni, halda uppi heilbrigðum aga án orða og glata aldrei virðuleik hús- freyjunnar, hversu mikið sem á móti blæs. Óhætt er að fullyrða, að þennan eiginleika hefur Guð- rún Guðmundsdóttir haft til að bera í ríkum mæli. Árið 1938 varð fjölskyldan fyrir miklu áfalli, þegar heimilisfaðir- inn slasaðist við vinnu sína. í fyrstu var ekki álitið, að um al- varlegt slys væri að ræða, en þeg- ar tímar liðu kom í ljós, að áverki, sá sem Sigurður hafði hlotið, hafðist illa við, og úr varð illkynj- að fótarmein, sem útilokaði hann frá störfum um árabil, auk þess sem hann varð að liggja langdvöl- um á sjúkrahúsum. Vafalaust hefur þetta tímabil verið húsmóðurinni mjög erfitt, enda hefur það verið henni víðs fjarri að biðja um aðstoð. Með raunsæjum augum mun Guðrún hafa litið á hlutverk sitt og með ráðdeildarsemi, fádæma dugnaði og hjálp góðra barna yfirsteig hún alla örðugleika og stjórnaði heim- ili sínu af smekkvísi og virðuleik. Sennilega hefur það verið ein erf- iðasta ákvörðun hennar á þessum tíma, þegar hún neyddist til að láta son sinn ungan hætta í skóla, svo að hann mætti hjálpa til að vinna fyrir heimilisþörfum. áratuginn, þá réðst hún þar til ræstingarstarfa, sem hún síðan hafði með höndum í 34 ár, eða þar til hún varð að hætta fyrir ald- urssakir. Þar vann hún í fyrstu við þröngan kost og erfiðar aðstæður af þvílíkri elju og ósérhlífni, sem umtals er vert. Við leiðarlok, nú þegar hún hef- ur lagt niður staf sinn, þá er ég þess fullviss að þeir fjölmörgu, sem hana hafa þekkt og með henni hafa starfað, minnast hennar að verðleikum með virðingu og þökk, einkum vil ég sem þessar línur rita, sérstaklega þakka alla þá vináttu, sem ég naut frá hennar hendi. Ég mun ekki hér rekja ævisögu þessarar merku konu, því til þess skortir mig nægan kunnugleika, hitt veit ég, að hún var gædd mikl- um hæfileikum bæði til munns og handa og þeim eðliskostum, sem ekki vildu vamm sitt vita. Hún var kona með stórbrotna skapgerð og ríka höfðingslund og stóð meðan stætt var, óljúft að fela öðrum hlut sinn. Hún var vinur sem til vamms sagði, viðkvæm og veitul þeim sem hjálpar þörfnuðust. Ævikjörin voru ekki alltaf blíð, hún var tvígift og tvisvar ekkja, sá á bak báðum eiginmönnum sínum auk fátæktar og heilsuáfalla. En þrefaldan silfurþráðinn, sem hún spann í ævikjörin sín tókst ekki að slíta. í einlægri trú og trausti á Hann sem: „Brákaðann reyrinn brýtur ekki sundur, og dapran hörkveik slökkur ekki, heldur boðar réttinn með trú- festi.“ Þá gat hún glaðst með glöð- um og hryggst með hryggum og borið skjöld sinn heilan og fægð- an. Með fyrri manni sínum eignað- ist hún fjórar dætur, sem að erfð- um hafa tekið svipmót móður sinnar og nú blessa minningu hennar. „Far þú í friði. Friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ Arinbjörn Árnason í upphafi þessa máls er því lýst fáum orðum, hvernig umhorfs var hér á landi um og upp úr aldamót- unum, hve skortur sagði til sín hvarvetna, hve möguleikarnir á að bjarga sér voru takmarkaðir og hve þjóðin var í rauninni skammt á veg komin í félagslegri uppbygg- ingu. Upp úr aldamótunum fór þó að þokast í rétta átt, og eftir því sem lengra leið, voru æ stærri skref stigin. Náði sú framvinda svo hámarki, þegar lýðveldið var endurreist á Þingvöllum 1944. Engin kynslóð íslendinga hefur skilað meira dagsverki en sú, sem hóf starf sitt um og upp úr alda- mótunum. Engir hafa búið betur í haginn fyrir komandi kynslóðir, og sennilega engir lagt harðara að sér. Þetta á við um fólk í öllum stéttum, hvar í flokki, sem það hefur staðið, og hvort heldur það hefur átt heimkynni til sjávar eða sveita. Þetta er fólkið, sem hefur lagt grunninn að þeirri velmegun, sem þjóðin býr nú við. Þau hjónin, Guðrún og Sigurð- ur, leystu upp heimili sitt á ísa- firði 1977 eftir 59 ára búskap þar og fluttust hingað suður. Fyrstu árin bjuggu þau í húsi sonar síns og tengdadóttur að Starhólma 4, Kópavogi, en í september 1980 fluttust þau á Dvalarheimili aldr- aðra sjómanna í Laugarási í Reykjavík. Þaðan var Guðrún svo flutt 18. þessa mánaðar á Land- spítalann eftir að hafa fengið hjartaáfall. Þar sofnaði hún sín- um hinsta svefni, og yfir henni var værð og ró. Að lokum er rétt að benda á rík- an þátt i fari Guðrúnar, en það var sú sterka trúhneigð, sem hún allt- af átti og aldrei brást. Sagði hún undirrituðum oft frá trúhneigð sinni, og að hún teldi sig hafa haft mikinn styrk og hjálp í bæninni. Ekki þarf að efa, að svo hafi verið. Þegar Guðrún Guðmundsdóttir er nú kvödd að endingu, er það einlæg ósk mín að mega hitta hana í fyllingu tímans heilbrigða og káta á fallegri stjörnu í fjar- lægu sólkerfi. Olafur E. Einarsson Guðrún Guðmunds- dóttir - Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.