Morgunblaðið - 06.08.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1982
19
Teikning af nýju bílferjunni, sem Bátalón hefur teiknað í stað Baldurs. Nýja
skipið mun bera 15 bíla ef af smíði verður.
Sýslunefnd V-Barðastrandarsýslu:
Ný bílferja verði
byggð til siglinga
yfir Breiðafjörð
SÝSLUNEFND Vestur-Barðastrand-
arsýslu hefur nýlokið fundi sínum á
Patreksfirði. I»ar voru margar
merkar ályktanir samþykktar og eru
þessar helstar:
Breiðafjarðarferja
„Svo sem fram hefur komið,
stendur nú til að byggja nýjan
flóabát í stað Baldurs.
Sýslunefnd Vestur-Barða-
strandarsýslu leggur þunga
áherslu á, að ekki verði stigið spor
aftur á bak við þá smíði, og þjón-
usta bátsins minnkuð frá því sem
verið hefur, heldur verði horfið að
því ráði að byggja haganlega
hannaða bílferju, sem annað geti
flutningsþörfinni yfir Breiðafjörð.
í því sambandi vísar nefndin til
ályktana sinna í þessu máli.
Benda má á sem líklega lausn
nýja teikningu af bílferju fyrir 15
bíla, sem Bátalón hf. í Hafnarfirði
hefur gert að tilhlutan Flóabáts-
ins Baldurs hf.
Til að greiða fyrir framgangi
þessa máls og styrkja fjárhags-
stöðu Flóabátsins Baldurs hf.
beinir sýslunefndin því til stjórn-
ar félagsins að beita sér fyrir auk-
ningu hlutafjár í félaginu með al-
mennu útboði. Sýslunefndin lýsir
sig reiðubúna til að leggja fram
hlutafjáraukningu kr. 500 þúsund
er greiðist þannig:
1982 kr. 100 þús., 1983 kr. 200
þús., og 1984 kr. 200 þús., enda sé
gert ráð fyrir því, að allt hlutaféð,
sem kynni að safnast, renni beint
til nýsmíðarinnar. Jafnframt
skorar sýslunefndin á aðra hlut-
hafa í Baldri hf., ekki hvað síst
sýslu- og sveitarfélög við Breiða-
fjörð, að taka hlutfallslegan þátt í
aukningu hlutafjár í félaginu og
stuðla á þann hátt að farsælli
lausn á samgöngum á sjó um
Breiðafj arðarsvæðið."
Heilbrigðismál
Til heilbrigðismála leggur sýsl-
an kr. 350 þús., sem aðallega fer til
sjúkrahússins á Patreksfirði, sem
sýslan er eigandi að og er rekið af
henni.
Árbók Barða-
strandarsýslu
Árbók Barðastrandarsýslu hef-
ur verið gefin út frá 1948. Siðasta
árbók kom út nú í vor og nær til
ársins 1979. Ritstjóri tveggja síð-
ustu árbóka hefur verið Hannibal
Valdimarsson fyrrv. ráðherra.
Byggðasafnið að Hnjóti
Að tilhlutan sýslunnar hefur
verið byggt yfir minjasafn Egils
Ólafssonar að Hnjóti í Örlygs-
höfn, til þess var veitt nú kr. 80
þús., en áformað er að vígja safnið
og taka það formlega í notkun
næsta vor.
Gestur hf. — Bjarkarlundur
Vestur-Barðastrandarsýsla
lagði fram kr. 25 þús. og Austur-
Barð. kr. 10 þús. sem hlutafjár-
aukningu í Gesti hf. sem rekur
sumarhótelið að Bjarkarlundi.
Mannvirki Samúels
Jónssonar í Selárdal
Ákveðið var að styðja við bakið
á aðila, sem vildi viðhalda mann-
virkjum og listmunum Samúels
Jónssonar, Selárdal.
Auk þess, sem hér að framan
greinir, styður sýslan fjölda ann-
arra mála, svo sem íþróttamál,
skákmál og fl.
Mikill áhugi er hér vestra fyrir
því, að myndarlega verði staðið að
endurnýjun Breiðafjarðarferju og
hefur sýslunefnd farið myndar-
lega af stað til að koma málinu
áleiðis með framlagi sínu. Með til-
komu nýju Akraborgar hefur
áhugi manna hér aukist fyrir því
að gott skip komi einnig á Breiða-
fjarðarleiðir.
Sýslumaður á förum
Jóhannes Árnason sýslumaður
hefur verið að halda manntalsþing
í sýslunni undanfarna daga. Hann
er nú á förum og hefur eins og
kunnugt er verið skipaður sýslu-
maður í Snæfells- og Hnappa-
dalssýslu. Jóhannes hefur verið
sýslumaður Barðstrendinga í 14
ár, en áður var hann sveitarstjóri
hér á Patreksfirði. Hann hefur
verið virkur í félagsmálum hér um
árabil og oft tekið sæti á Alþingi,
sem varaþingmaður sjálfstæðis-
flokksins í Vestfjarðakjördæmi.
Fylgja honum og fjölskyldu hans
góðar óskir Patreksfirðinga við
brottförina.
Páll
Því meiri kröfur, sem þú gerir
til utanhúsmálningar
því meiri
ástæða er til að þú notir
HRAUN, sendna akrýlplastmáln-
ingin hefur allt það til aö bera, sem
krafist er af góðri utanhússmáln-
ingu:
Mikinn bindikraft, frábæra endingu
— dæmi eru til um meiraen 17ár.
Þekur vel — hver umferð jafnast á
við þrjár umferðir af venjulegri
plastmálningu. Hefur fallega áferð
— til bæði fín og gróf, og fæst í fjöl-
breyttu litaúrvali.
HRAUN stenst allan verðsamanburð.
HRAUN litakortið fæst í öllum helstu máln-
ingarvöruverslunum landsins.
málninghlf
Laugardalshöll í kvöld
„Reggae"
í fyrsta sinn
á íslandi
„Reggae“-hljómsveitin Babat-
unde Tony Ellis heldur hljóm-
leika í Laugardalshöll í kvöld,
föstudaginn 6. ágúst, kl. 21.00.
Babatunde Tony Ellis er 10
manna hljómsveit sem hefur
komið víða fram á tónleikum á
Norðurlöndunum við mjög góö-
ar undirtektir.
Akureyri á morgun
--------O
\
Einnig koma
fram Ego og
Tappi tíkarrass
f,v%
mr1
Miöasala í Laugardalshöll frá kl. 16.00. Tryggið ykkur
miöa tímanlega — á fyrstu „Reggae“-hljómleika á
íslandi.
Næstu „Reggae“-hljómleikar með Babatunde Tony
Ellis verða í íþróttaskemmunni á Akureyri, laugar-
daginn 7. ágúst kl. 21.00.