Morgunblaðið - 10.08.1982, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 10.08.1982, Blaðsíða 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1982 Óvæntur sigur Völsunga gegn efsta liðinu ÓVÆNT úrslit urðu í 2. deildar- kcppninni í knattspyrnu á Laugar- dalsvdlinum á Isugardaginn, er Völsungur frá Ilúsavik sigraði Þrótt 2—0. Þetta var fyrsti tapleikur Þróttar á mótinu til þessa, 12 leiki hafði liðið leikið i röð án taps. Þrátt fyrir ósigurinn hefur liðið örugga forystu í 2. deild og fátt virðist geta komið í veg fyrir að það næli sér í 1. deildar—sæti. Völsungarnir mættu grimmir til leiks, ætluðu sér greinilega ekkert minna en sigur í leiknum og kannski hafa Þróttararnir ver- ið orðnir óþarflega öruggir með sig. Hvað um það, staðan í hálfleik var 1—0 og skoraði Kristján Kristjánsson fyrrum Haukamaður markið mjög laglega. Þróttur sótti mjög, einkum eftir að Völsungarn- ir höfðu skorað og færi fengu þeir nokkur. En bráðsnjall markvörður þeirra Völsunga, Gunnar Straumland, var Reykjavíkurlið- inu erfiður ljár í þúfu. Hann varði nokkrum sinnum meistaralega. Undir lokin fór síðan mesti kraft- urinn að fjara úr liði Þróttar og færðust norðanmennirnir þá allir í aukana. Hörður Benónýsson bætti þá öðru marki við og 2—0 urðu lokatölur leiksins. Loks sigraöi Skallagrímur á heimavelli sínum NEÐSTl! lið annarrar deildar í knatkspyrnu, Skallagrímur og Þrótt- ur, Neskaupstað, mættust í Borgar- nesi um helgina. Þetta var leikur í fallbaráttunni og fyrir leikinn var það Ijóst að það liðið sem tapaði væri svo gott sem fallið í þriðju deild. Skallagrímur sigraði 1—0 og þó tap- ið geri stöðu Þróttar vonlitla er Skallagrímur einnig illa statt, í næst neðsta sæti, með 3 stig á eftir næstu liðum. Leikurinn fór fram við afar erf- iðar aðstæður, strekkingsvindur og skúrir. Leikurinn var eftir að- stæðum, slakur. Þróttur lék með vindinn í bakið í fyrri hálfleik en samt voru það heimamenn sem skoruðu þá eina mark leiksins og var það fallegt. Karl Birgisson fór upp annan kantinn og gaf góða sendingu fyrir mark Þróttar. Bergþór Magnússon náði sending- unni og skaut viðstöðulaust í markið. Þetta mark var það mark- verðasta sem átti sér stað í dauf- um leik. 1—0 voru sanngjörn úrslit því Skallagrímur átti flest þau mark- tækifæri sem þó sköpuðust í leikn- um þó ekki tækist þeim að nýta sér fleiri en eitt. Þetta var fyrsti sigurleikur Skallagríms á heima- velli í sumar og reyndar í 14 mán- uði og kom hann sannarlega á góð- um tíma. HBj. Mikil barátta í 3. deildarkeppninni UM helgina og í síðustu viku fór fram heil umferð í 3. deildinni fyrir norðan og var þar hart barist enda farið að líða að lokum móts- ins. Úrslit leikjanna urðu sem hér segir: Huginn — Árroðinn 3—1 (1—0) Mörk Hugins: Sigurbjörn Jó- hannsson 1 og Hilmar Harðarson STAÐAN Staðan í 2. deild er nú þessi: Þróttur R. 13 8 4 1 18—7 20 Þór Ak. 13 4 7 2 24—12 15 Reynir 13 6 3 4 19—11 15 FH 13 5 5 3 16—15 15 Njarðvík 13 5 3 4 20—21 13 Völsungur 13 4 4 5 14—14 12 Kinherji 13 5 2 6 18—21 12 Skallagr. 13 3 3 7 11—22 t Þróttur N. 13 2 3 8 5-20 7 2 en mark Árroðans gerði Unn- steinn Sigurgeirsson. Sindri — Magni 1—0 (0—0) Mark Sindra gerði Grétar Vil- bergsson. HSÞ - Austri 3-2 (2-1) Mörk HSÞ: Gunnar Blöndal 2 og Zofanías Árnason 1. Mörk Austra: Bjárki Unnarsson og Guðmundur Gíslason. KS — Tindastöll 0—0 — re. Ólafur skoraöi sigurmarkiö Vopnafjarðarliðið Kinherji vann dýrmætan sigur gegn Reyni Sand- gerði í 2. deildarkeppninni i knatt- spyrnu um helgina, leikurinn fór fram austur á Vopnafirði og lauk honum með sigri Kinherja, 1—0. Sigurmark Einherja skoraði Ólafur Jóhannesson, fyrrum Haukamaður, sem nú þjálfar og leikur með Einherja. Ragnar Margeirsson í kröppum dansi i leik gegn Fram á dögunum. Hann skoraði sigurmark ÍBK gegn KA á laugardaginn. ÍBK slakaði á í lokin Keflvíkingar sigruðu KA með 3 mörkum gegn 2 í fjörugum og skemmtilegum leik i Keflavík sl. laugardag. Leikið var í strekkingsvindi og rigningarskúrum og var mesta furða hvað knattspyrnumönnun- um tókst að fóta sig á glerhálum vellinum. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og sóttu þau til skiptis, en þó virtust sókn- arlotur Keflvíkinga mun hættu- legri. Á 27. mínútu klúðraði Ingv- ar Guðmundsson dauðafæri, eftir mjög góða sendingu frá Óla Þór og tveim mínútum síðar endurtók hann svo atburðinn. Á 41. mínútu komst Gunnar Gíslason einn og frír inn fyrir vörn Keflvíkinga, en Þorsteinn tafði fyrir honum með mjög góðu úthlaupi, og á meðan komust tveir varnarmenn Keflvík- inga í markið og tókst að bægja hættunni frá. A síðustu mínútu fyrri hálfleiks skoraði svo Óli Þór með góðu skoti frá vítateigslínu, eftir góðan samleik Keflvíkinga frá miðju vallarins, en samleikur er einmitt það sem þetta lið Kefl- víkinga vantar, en einstaklings- framtak og eigingirni virðist hrjá flesta leikmenn liðsins. KA hóf síðari hálfleikinn með mikilli sókn, en Keflvíkingar vörð- ust vel og áttu hættulegar skyndi- sóknir, og á 11. mínútu skoraði svo Ingvar úr einni slíkri, eftir góða sendingu frá Ragnari. Tveim mín- útum síðar bætti svo Ragnar þriðja markinu við. Eftir góða sendingu frá Skúla lék Ragnar á 2 varnarmenn KA og skoraði af ör- yggi. Örfáum mínútum síðar mun- aði engu að Keflvíkingar bættu við Þorsteinn Bjarnason átti góðan leik í marki ÍBK. sínu fjórða marki, er Ingvar skaut fram hjá úr dauðafæri. En nú var eins og Keflvíkingar álitu leiknum lokið, slökuðu verulega á, einkum þó vörnin, sem til þessa hafði ver- ið mjög traust. KA-menn voru hinsvegar á öðru máli og hófu stórsókn, og á 23. mínútu skoraði Gunnar Gíslason eftir góðan sam- leik þeirra KA-manna. Á 32. mín- útu bætti svo Steingrímur Birgis- son öðru marki við með góðum skalla, eftir mikil mistök í vörn Keflvíkinga. Við síðara markið rumskuðu Keflvíkingar og var nokkurt jafnræði með liðunum það sem eftir var leiksins, KA sótti þó mun meir, en fleiri urðu mörkin ekki. Vigdís Jafnt hj'á „þeim gömlu“ UM HELGINA sóttu Víkingar ÍBA heim í íslandsmóti 30 ára og eldri. Leikur þessi þótti nokkuð skemmtilegur á að horfa og lykt- aði með jafntefli 2—2 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 1—1. Mörk ÍBA í leiknum gerðu þeir Benedikt Guðmundsson og Árni Gunnarsson en mörk Víkings gerði Kári Kaaber og var það fyrra úr víti. — re. Einkunnagjdlln I.ið ÍBÍ Hreiðar Sigtryggson 6 Gunnar Guðmundsson 7 Halldór Ólafsson 5 Örnólfur Oddsson 6 Ámundi Sigmundsson 6 Jóhann Torfason 6 Gústaf Baldvinsson 7 Jón Oddsson 6 Gunnar Pétursson 6 Rúnar Vifilsson 5 Kinar Jónsson 5 Guðmundur Jóhannsson 5 Jón Björnsson 5 Lið Vals Brynjar Guðmundsson 6 Grímur Sæmundsen 6 Þorgrímur Þráinsson 7 Magni Pétursson 5 Ingi Björn Albertsson 5 Hilmar Sighvatsson 7 Valur Valsson 7 Þorsteinn Sigurðsson 6 Dýri Guðmundsson 6 Guðmundur Þorbjörnsson 6 Úlfar Hróarsson 6 Jón G. Bergs 5 Úlfar Másson 5 ÍBK Þorsteinn Bjarnason 7 Kristinn Jóhannsson 6 Einar Olafsson 6 Ingiber Óskarsson 6 Gísli Kyjólfsson 7 Sigurður Björgvinsson 7 Rúnar Georgsson 6 Ingvar Guðmundsson 5 Ragnar Margeirsson 6 Óli Þór Magnússon 7 Skúli Rósantsson 5 Kári Gunnlaugsson 5 KA Aðalsteinn Jóhannsson 6 Eyjólfur Ágústsson 5 Guðjón Guðjónsson 6 Haraldur Haraldsson 6 Krlingur Kristjánsson 6 Gunnar Gíslason 7 Steingrímur Birgisson 7 Ormarr Örlygsson 6 Hinrik Þórhallsson 5 Jóhann Jakobsson 6 Ásbjörn Björnsson 6 Lið Fram Guðmundur Baldursson 4 Þorsteinn Þorsteinsson 5 Trausti Haraldsson 4 Sverrir Kinarsson 6 Marteinn Geirsson 5 Gísli Hjálmtýsson meiddist, lék of stutt. Viðar Þorkelsson 5 Lárus Grétarsson 4 Guðmundur Torfason 4 Hafþór Sveinjónsson 5 Valdimar Stefánsson(vm) 5 Olafur Hafsteinsson(vm) 4 Lið ÍA Davíð Kristjánsson 5 Guðjón Þórðarson 5 Sveinbjörn Hákonarsson 6 Sigurður Lárusson 7 Jón Gunnlaugsson 6 Jón Áskelsson 5 Kristján Olgeirsson 7 Júlíus P. Ingólfsson 4 Sigþór Ómarsson 6 Sigurður Jónsson 6 Árni Sveinsson 6 Guðbjörn Tryggvason (vm) lék of stutt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.