Morgunblaðið - 17.08.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGUST 1982
5
Föst starfsemi
Ríkisútvarpsins
hafin á Akureyri
AKUREYRARDEILD Ríkísútvarpsins hóf formlega starfsemi sína á laugar-
daginn. Af því tilefni var eins og hálfs tíma útvarpsdagskrá með norölenzku
efni frá Hljóöhúsinu við Noröurgötu (Reykhúsinu). Menntamálaráöherra,
Ingvar Gíslason, flutti ávarp í upphafi dagskrárinnar og útvarpsstjóri, Andrés
Björnsson, ávarpaði hlustendur einnig. Aö lokinni dagskránni bauð mennta-
malaraöherra gestum til samsætis.
Hörður Vilhjálmsson, fjármála-
stjóri Ríkisútvarpsins, sagði i
samtali við Morgunblaðið, að til-
efni þessarar dagskrár hefði verið
það, að ráðnir hefðu verið tveir
starfsmenn að Akureyrardeild-
inni, þeir Jónas Jónasson og Björn
Sigmundsson, tæknimaður. Sagði
hann að aðdragandi Akureyrar-
deildarinnar hefði hafizt 1979 er
með miklum eftirgangsmunum
hefði fengizt leyfi til að kaupa
þarna lágmarks aðstöðu eftir að
útvarpsmenn sjálfir höfðu greitt
húsaleigu tveggja mánaða úr eigin
vasa. Þar með hefði fyrsta aðstaða
útvarpsins á Akureyri fengizt og
yrði hún notuð þar til hús út-
varpsins að Fjölnisgötu 3a yrði til-
búið. Það væri 500 fermetra hús
og þyrfti að breyta talsverðu áður
en hægt væri að hefja starfsemi
þar. Stefnt væri að því að Ijúka
þessum breytingum sem fyrst.
Þá sagði Hörður að safnað yrði
og útvarpað dagskrárefni af öllu
tagi frá öllu Norðurlandi. Tekin
yrðu upp leikrit og tónlist þarna
auk almennra dagskrárliða og
frétta.
Myndin er af gömlu umslagi sem fannst fyrir skömmu í Þjóöskjalasafni. Er
það stílað á landfógetann á íslandi.
Sýning á vegum Félags frímerkjasafnara:
Nýfundin þjónustu- og
skildingamerki til sýnis
í TILEFNI 25 ára afmælis Félags frímcrkjasafnara verður haldin sýning á
Kjarvalsstööum dagana 19.—23. ágúst þ.m. Þar veröa m.a. 10 umslög meö
fyrstu islensku frímerkjunum. Hér er um aö ræða skildingamerki sem gefin
voru út 1873. Er það i fyrsta skipti sem þessi umslög koma fyrir sjónir
almennings, en þau fundust sem kunnugt er fyrir skemmstu í Þjóðskjalas-
afni íslands. 4 þessara umslaga eru með almennu fjögurra skildinga merki,
en 6 með fjögurra og átta skildinga þjónustumerki. Að sögn Þórs Þorsteins-
sonar, sem vinnur við flokkun og skrásetningu frímerkjanna, er þessi
fundur einstæður í sinni röð. Það sem yki gildi hans væri m.a. að ár- og
dagsetningar kæmu fram á þessum bréfum. Þannig fengju menn nákvæma
vitneskju um hvenær þau hefðu verið notuð. Þá væri það gleöiefni að
þjónustumerki hefðu fundist sökum þess að þau eru afar sjaldgæf. Hefðu
cinungis 6 bréf af því tagi verið varðveitt fram að þessu. Ennfremur sé
ásigkomulag bréfanna öldungis gott. Mætti mætla að ekki hafi verið hróflað
við þeim um langan aldur.
Það kom m.a. fram á blaða-
mannafundi, sem efnt var til
vegna sýningarinnar, að nokkur
þeirra bréfa sem komu nú í leit-
irnar hafi fylgt peningasending-
um milli landfógeta og embætt-
ismanna úti á landi á ofanverðri
19. öld. Einnig má ráða af þessum
bréfum að póstburðargjald hefur
verið mjög mismunandi eftir árst-
íðum hér á landi. Á fundinum var
greint frá því að nýfundin bréf
með hinum svokölluðu aura-
merkjum, en þau voru í notkun
hér á árunum 1876—1902, verði
líka á afmælissýningunni.
En auk framangreindra bréfa
kennir ýmissa grasa á þessari
sýningu. T.a.m. verður safn ís-
lenskra frímerkja, sem er í eigu
enska kaupmannsins C. Angus
Parker, til sýnis. Einnig verður
hluti úr bréfasafni Tryggva
Gunnarssonar sýndur. Þá má
nefna sænskt frímerkjasafn, sem
hlotið hefur fjölda gullverðlauna
á alþjóðlegum sýningum.
Auk þess verða þar frímerkja-
söfn frá Finnlandi, Tékkóslóva-
kíu, Bandaríkjunum, Englandi,
Hollandi, Þýskalandi, Færeyjum
og Danmörku. Ennfremur verður
hluti trjáviðarsafns Haralds
Ágústssonar og gömul póstkort
frá Reykjavík og ýmsum þorpum
landsins á sýningunni.
Og gömlum póstmunum verður
þar einnig til að dreifa, en þeir
heyra Póst- og símamálastofnun.
Loks má geta þess að kynning fer
fram á Póstmannafélagi Islands
með myndum og menjum á þess-
ari sýningu á Kjarvalsstöðum.
Forsvarar Félags frímerkjasafnara: Þór Þorsteins, Ólafur Elíasson, Páll
Asgeirsson og Jón Aðalsteinn Jónsson.
KOMA
Wrangler
jakki
áöur 495
Nú 250.-
Wrangler
jakki
Áður 449
Nú 220.-
Gaberdine
buxur
Áöur 495,-
Nú 250.-
Gaberdine
jakki
Áður 850,-
Nú 425.-
Ullar
flannel
buxur
Áður 550.
Nú 275.-
Sumarútsalan heldur áfram
og að auki byrjum við með
sértilboöin á ýmsum vörum: