Morgunblaðið - 18.08.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.08.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1982 5 Jazzúteetning þjóðsöngsins: Menntamálaráðuneytið telur ekki ástæðu til aðgerða að svo stöddu MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur ákveðið að hafaat ekki að, vegna hinnar nvju útaetningar á þjóðsöngnum i kvikmyndinni „Okkar á milli í hita og þunga dagsins". — Upphaf málsins var það að Jón Þórarinsson tónskáld vakti athygli ráðuneytisins á útsetningu tónverksins í kvikmyndinni, að því er ráðuneytið segir í svarbréfi til Jóns. — í bréfi Jóns kemur á hinn bóginn fram, að Jón hafi kynnt sér málið samkvæmt tilmælum ráðuneytisins. Bréf Jóns Þórarinssonar til ráð- uneytisins frá 20. júlí sl. er svohljóð- andi: „Hr. ráðuneytisstjóri Birgir Thor- lacius, Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 4—6, R. Samkvæmt tilmælum ráðuneytis- stjórans hef ég kynnt mér tvær „út- setningar" á þjóðsöng Islendinga, sem Fálkinn hefur gefið út á hljómplötunni „Okkar á milli í hita og þunga dagsins", en á plötunni er sögð vera músík úr kvikmynd með sama nafni, sem boðað hefur verið að frumsýnd verði á næstunni. Önnur „útgáfa“ þjóðsöngsins á þessari plötu ber titilinn „Lofsöng- urinn í hita og þunga“. Á plötumiða og umslagi er höfundur lagsins, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, nafn- greindur, en útsetningin sögð vera eftir „Þursana“, og flytja þeir lagið. Lagið sjálft er hér ekki beinlínis af- lagað. Hljómaval er að mestu hið sama og í frumgerðinni, en radd- skipan er með þeim hætti, að lagið JNNLENTV glatar með öllu eðlilegri reisn sinni. Tónblær rafmagnshljóðfæranna, sem notuð eru, er óviðfelldinn í þessu sambandi, og frá eigin brjósti hafa útsetjarar bætt inn í lagið mjög ósmekklegum og algerlega til- efnislausum „slagverkseffektum". Lokalagió á plötu þessari er kall- að „Lofsöngurinn okkar á milli". Einnig þar er höfundur tilgreindur með sama hætti og áður var sagt, en útsetning sögð vera eftir Guðmund Ingólfsson, og leikur hann lagið á píanó. Hér er um að ræða algera umritun í jazz-stíl, svo gagngera að jafnvel má gera ráð fyrir, að skyld- leiki þessarar tónsmíðar við þjóð- sönginn hefði farið fram hjá ýmsum hlustendum, ef ekki væri gefin bending um hann með titlinum og með því að nefna nafn Sveinbjörns Sveinbjörnssonar í þessu sambandi. Það skal tekið fram, að þessi „para- phrase" er á sinn hátt nokkuð snjall og skörulega leikinn. Slík meðferð á þjóðsöngnum, og verkum látinna tónskálda yfirleitt, er að áliti undirritaðs ákaflega ósmekkleg, að ekki sé meira sagt. Enginn vafi er á því, að menntamálaráðuneytið hefur skv. höfundarlögum (53. gr., sbr. 2. málsgr. 4. gr.) fulla heimild til af- skipta af málum af þessu tagi, og mætti jafnvel segja, þar sem þjóð- söngurinn sjálfur á í hlut, að ráðu- neytinu beri skylda til að láta málið til sín taka, t.d. fyrst um sinn með því að stöðva sölu á umræddri hljómplötu. En hvort sem ástæða verður talin til aðgerða af opinberri hálfu vegna plötu þessarar (og kvikmyndarinnar), tel ég þetta at- vik sýna ótvírætt, að brýn þörf er á sérstakri lagasetningu til verndar þjóðsöngnum (eins og þjóðfánan- um), svo að komið verði í veg fyrir frekari misnotkun á honum og óvirðingu við hann.“ Bréf það er Birgir Thorlacius ráðu- neytisNtjóri, fyrir hönd Ingvars Gísla- sonar menntamálaráðherra, sendi Jóni l*orarinssyni i gær, 17. ágúst er svohljóðandi: „Þér hafið, herra tónskáld, vakið athygli ráðuneytisins á „útsetningu" þjóðsöngsins sem nota á í kvikmynd og einnig hefur lagið verið gefið út á hljómplötu. Að sjálfsögðu er meira en vafa- samt að breyta listaverki sem þjóð- inni er hjartfólgið, en á hitt er að líta að fara verður varlega í að hindra menn í að tjá sig, einnig þá sem hentar þetta tjáningarform. Eðlilegast er að þjóðin sjálf dæmi í slíkum málum. Telur ráðuneytið ekki ástæðu til aðgerða í máli þessu, a.m.k. ekki að svo stöddu, en vera má að nauðsyn- legt reynist að setja ákveðnar reglur um meðferð þjóðsöngsins." Vitni vantar ÞANN II. ágúst síðastliðinn um klukkan 14.00 var bifreið bakkað á mann í Bankastræti á móts við Sam- vinnubankann. Þeir, sem vitni hafa orðið að at- burðinum og gætu gefið upplýs- ingar um hann, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við slysa- rannsóknadeild lögreglunnar. Lírukassaspilararnir leika listir sinar f Austurstræti i gær. Einhver eignast demant á sýn- ingunni Heimilið og fjölskyldan ARNARELUG hefur fengið hingað feðga tvo frá Amsterdam í Hol- landi, í tilefni af sýningunni Ilcim- ilið og fjölskyldan, sem verður í Laugardalshöllinni, en þar hefur Arnarflug bás, þar sem flug þess til Amstcrdam er meðal annars kynnt. Feðgar þessir eru lírukassaspilarar og munu fram að sýningunni, sem hefst 20. ágúst, fara um götur borg- arinnar og leika listir sínar fyrir fólk, spila á lírukassanna og syngja, en eftir að sýningin sem stendur til 5. september, hefst, verða þeir þar í bás Amarflugs og spila fyrir sýningargesti. Þá hefur Arnarflug einnig fengið hingað til lands hollensk- an demantaslípara, til að stunda iðju sína í bás þeirra á meðan á sýningunni stendur, en eins og vitað er stendur sú iðngrein á gömlum merg í Hollandi. Mun einn þeirra demanta, sem hann slípar meðan á sýningunni stend- ur, verða eftir hér á landi, en enn er óráðið með hvaða hætti það verður. Síðast en ekki síst mun Arnar- flug fá, sem lið í Amsterdam- kynningu sinni, hingað Hollend- ing, sem vinnur við það úti að smíða tréskó upp á gamla mát- ann í höndunum og mun hann vinna við það meðan á sýning- unni stendur og koma einhverjir gestanna til með að eignast tréklossa. Blómaval og Goði hafa sam- vinnu við Arnarflug um bás á sýningunni. Eru nú á leiðinni til landsins 15 þúsund túlípanar til að skreyta básinn með og er hugmyndin að hann verði út- búinn sem nokkurs konar úti- garður. Mun Goði standa þar fyrir veitingum. OLLUM HÆÐUM I TORGINU B4TNÆIUR Á AWA FJÖLSKYLDUM4 Austurstræti 10 sími: 27211

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.