Morgunblaðið - 21.08.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.08.1982, Blaðsíða 1
< 44 SÍÐUR OG LESBOK 182. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Um 306 grindhvölum bjargaö-við Rif Um 300 grindhvölum var bjargað við höfnina á Rifi í gær eftir að á milli 300 og 400 hvala vaða hafði gengið þar á land. Um 30 hvalir drápust í fjöruhorðinu. I>að var rétt fyrir klukkan 8 í gærmorgun að hvalavöð- unnar varð vart við Töskuvita, rétt utan innsiglingarinnar í höfnina á Rifi. Skömmu fyrir hádegið kom svo styggð að hvalnum og æddi hann þá beint upp í fjöruna og þar sem farið var að fjara festist mikill hluti vöð- unnar þar. Imrpsbúar tóku þegar að reyna að bjarga hvalnum á ýmsan hátt en það gekk ekki verulega fyrr en bátar komust milli vöðunnar og lands og tókst þá að reka hana til hafs. Sjá viðtöl og myndir í miðopnu. Ljósmynd Mbl. Kristján Fyrstu friðargæslusveit- irnar til Líbanon í dag W fLshimrton. Beirút. 20. áirÚNt. AP. W aHhinjrton, Beirút, 20. á((Ú8t. AP. „HERMENN okkar munu ekki undir nokkrum kringumstæðum dvelja lengur en í 30 daga í Beirút," tilkynnti Ronald Reagan, Bandaríkjafor- seti, um leið og hann staðfesti, að Bandaríkjamenn myndu senda friðar- gæslusveitir til Líbanon. Reagan sagði ennfremur, að ef svo mikið sem einu skoti yrði skotið á hermennina yrðu þeir kallaðir heim samstundis. Um 800 manna lið í fimm herskipum bíður nú átekta undan strönd Líbanon. Yfirvöld í Póllandi herða aðgerðir: Tveggja metra hátt grind- verk umhverfis Sigurtorgið Varsjá, 20. ágúst. AP. BYGGING tæplega tveggja metra hás grindverks umhverfis Sigur- torgið i miðri Varsjárborg hófst snemma í morgun samkvæmt fyrirmælum pólskra yfirvalda. Torgið hefur til þessa verið helsti samkomustaður friðsamra mót- mælenda, sem safnast hafa saman, sungið sálma og beðist fyrir. Þá hefur verið algengt að fólk hafi lagt blómsveiga á torgið. Mikill lögregluvörður var á torginu þegar framkvæmdir hófust í morgun, en ekki kom til neinna átaka. Þeir leiðtogar Samstöðu, sem hafast við í leyni, hafa hvatt til fjölmennra mótmæla á öðrum afmælisdegi samtakanna þann 31. ágúst. Hafa þeir lagt til að mótmælin verði friðsamleg, en „sérlega áhrifarík". I opinberu málgagni stjórnvalda í morgun var varað við óeirðum og sagði þar ennfremur að þegar mætti sjá steinana í höndum mótmæl endanna. I viðtali við einn leiðtoganna, s;m er í felum, sagðist hann ef- ast um að óeirðirnar yrðu veru- lega fjölmennar. „Minningin um Samstöðu ein sér er ekki nóg til að tugþúsundir flykkist út á göt- urnar." Hann sagði þó ennfrem- ur, að ekki kæmi á óvart þótt fjölmenn mótmæli yrðu hér og þar um landið. „Reyni yfirvöld að berja þessi mótmæli niður með valdi geta mótmælin snúist upp í óeirðir," sagði leiðtoginn einnig. Þrívegis á einni viku hefur óeirðalögregla komið á Sigur- torgið og sprautað vatni á fólk, sem þar kom saman og baðst fyrir. Ennfremur hefur fólkið myndað krossa úr blómum á torginu, en þeim jafnan verið sópað burt að kvöldi. Hópur ítalskra sjálfboðaliða lagði í dag af stað frá hafnarborg- inni Brindisi í átt til Líbanon þar sem hann mun undirbúa komu rúmlega 500 manna herliðs frá It- alíu. Um svipað leyti undirbjó 300 manna hópur frá Frakklandi brottför til Líbanon. Frakkar leggja til um 800 manna lið og er hluti þess þegar kominn til Líban- on, sem hluti af liði Sameinuðu þjóðanna. Fyrstu friðargæslu- sveitirnar eru væntanlegar til Beirút í fyrramálið, laugardag. PLO skilaði í dag tveimur ísra- elskum hermönnum, sem samtök- in höfðu í haldi. Annar var flug- maður, sem náðist eftir að flugvél hans var skotin niður, en hinn var handtekinn í vesturhluta Beirút. Báðir sögðust ísraelarnir hafa notið góðs aðbúnaðar hjá PLO. Þá var líkkistum 9 manna skilað að beiðni ísraela og sá Rauði kross- inn um að koma þeim til skila. Þar með hafa öll skilyrði ísraela fyrir varanlegum friði verið upp- fyllt. Shafik Wazzan, forsætisráð- herra Líbanon, sagði í dag, að ekkert væri því til fyrirstöðu að brottflutningur PLO gæti hafist á morgun. Sagðist hann ennfremur vonast til að ekkert óvænt kæmi upp, sem hindrað gæti brottflutn- inginn. Sprengjufaraldur á Korsíku Ajaccio, Korsíku, 20. áfoíst. AP. Skæruliðahreyfing, sem berst fyrir sjálfstæði Korsíku, lýsti í dag á hendur sér ábyrgð á 70 sprenging- um, sem urðu víðs vegar um eyna snemma í nótt. Sprengingarnar urðu átta klukkustundum áður en vinstri- sinnaður frambjóðandi var kjörinn forseti héraðsþings eyjarinnar. Að sögn lögreglu urðu geysileg- ar skemmdir af völdum spreng- inganna, en ekki var vitað um nema tvö meiðslatilfelli. Þetta er versti sprengjufaraldur, sem gengið hefur yfir Korsíku til þessa. Ekki er nema eitt og hálft ár frá því 56 sprengingar urðu víðs vegar um eyjuna. Stóð sama hreyfingin að baki þeim. í París kembdi lögregla borgina og úthverfi hennar í dögun og handtók 12 menn, sem grunaðir eru um aðild að útlægum skæru- liðasamtökum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.