Morgunblaðið - 22.08.1982, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR
183. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
„Samstaða
á sér enga
framtíð í
Póllandi“
— segir Rakowski
Varsjá, Póllandi, 21. ágúst. AP.
POLSKI varaforsetinn, Mieczyslaw
K. Kakowski, sagði í viðtali er birtist í
dag að Samstaða „eigi sér enga fram-
tíð í l'óllandi" og hafnaði tillögum
þess eðlis að um leynilegu starfsem-
ina ætti að fara mjúkum höndum.
Rakowski sagði einnig að ekki
hefðu verið gerðar tilraunir til að
brjóta Lech Walesa niður eða hafa
áhrif á skoðanir hans meðan á
fangelsisdvöl hans hefur staðið.
Hann hefur verið í haldi allt frá því
herlögin tóku gildi, þann 13. des-
ember, og vestrænir fréttaskýrend-
ur í Varsjá segjast efast um að hon-
um verði sleppt í bráð.
I dag hófu verkamenn að ryðja
Sigurtorgið í Varsjá, en það hefur
verið sá staður sem Pólverjar hafa
safnast saman á til að eiga saman
bænastundir og sýnt fram á and-
stöðu sína við herlögin. Hins vegar
er ráðgert frá hendi yfirvalda að
reisa girðingu allt í kring um torgið
til að koma í veg fyrir að fjöldi
manns safnist þar saman dag hvern
af ótta við mótmæli.
Jfcj-
Ný getn-
aðarvörn
New York, 20. ágúst. AP.
VÍSINDAMENN í a.m.k. þremur
löndum eru nú að vinna að getnað-
arvörn í formi nefspreys, sem á að
vera jafnt fyrir karlmenn sem kon-
ur. Petta er liður í leit að getnaðar-
vörn sem gæti hentað sem flestum.
Nefspreyið, sem á að taka einu
sinni á dag, er ein af 20 nýjum
getnaðarvörnum sem hugsanlegt
er að verði komnar á markaðinn
innan 20 ára, samkvæmt nýút-
kominni skýrslu í Bandaríkjun-
um.
Vísindamennirnir eru að leita
að hinni „fullkomnu" getnaðar-
vörn, þ.e. þeirri sem kemur í veg
fyrir getnað, hefur engar auka-
verkanir í för með sér og er ódýr,
auðveld í notkun og gagnar jafnt
báðum kynjum.
Nefspreyið sendir smáskammt
af hormónum inn í líkamann í
gegnum lungun og þannig inn í
blóðrásina. Nefsprey þetta hefur
þegar verið reynt í Vestur-
Þýskalandi og er nú í rannsókn í
Svíþjóð, Brasilíu og Chile, sam-
kvæmt upplýsingum frá dr. Nash
sem stendur að rannsókninni.
Yfir 100 þúsund súlur búa í Eldey, en myndina tók Ragnar Axelsson ljósmyndari Morgunblaðsins í Eldeyjarleiðangrinum sl.
föstudag. Það er Þorkell Húnbogason sem er þarna á rölti í súlubyggðinni, en kollur Eldeyjar er hrjúfur með gilskorningum og
hvarvetna er súlubæli við súlubæli. Sjá bls. 2 og baksíðu.
Brottflutníngur skæruliða
hafínn firá Vestur-Beirút
Beirút, 21. ágúst. AP.
BROTTFLUTNINGUR palestínskra
skæruliða frá Líbanon er hafinn og
snemma í dag gengu þeir fyrstu 400
fylktu liði eftir götum Vestur-Beirút
til hafnarinnar, sem nú er í höndum
350 franskra hermanna. A leið sinni
skutu þeir án afláts upp í loftið,
héldu myndum af Arafat, leiðtoga
sínum, hátt á loft og hrópuðu: „Bylt-
ingin heldur áfram uns sigur
vinnst." Grátandi konur vörðuðu
leið þeirra og veifuðu vasaklútum
sínum í kveðjuskyni. 1‘egar þeir
komu til hafnarinnar fóru þeir um
borð í skip, sem mun flytja þá til
borgarinnar Larnaca á Kýpur, en
þaðan fara þeir til íraks og Jórd-
aniu.
Frönsku hermennirnir, 350 tals-
ins, sem ásamt bandarískum, ít-
ölskum og líbönskum hermönnum
munu skipa 2.100 manna eftirlits-
lið með brottflutningi skærulið-
anna, komu til Beirút árla í morg-
un. Gert hafði verið ráð fyrir, að
hafnarsvæðið væri þá í höndum
líbanska hersins en þegar til kom
voru þar aðeins ísraelar fyrir. Til
harðra orðaskipta kom milli for-
ingja Frakkanna og ísraela og
skipuðu þeir fyrrnefndu ísraelsku
hermönnunum að hafa sig á brott
á stundinni. Foringi í líbanska
hernum sagði seinna, að ísraelar
hefðu meinað þeim aðgang að
höfninni.
Fimm klukkustundum eftir
komu Frakkanna hófst brottflutn-
ingur fyrstu skæruliðanna en gert
Auknar ofsóknir gegn
kristnu fólki í Rússlandi
Stokkhólmi, 21. ágÚHt.
OFSÓKNIR á hendur kristnum
mönnum í Sovétrikjunum hafa auk-
ist mjög að undanförnu og er nú
vitað með vissu um fjórfalt fleiri
menn, sem fangelsaðir hafa verið
fyrir trú sína. 1'e.ssar fréttir eru
hafðar eftir útlægum Sovétmönnum
í Svíþjóð og félögum í Slavneska
trúboðssambandinu.
Sovésk yfirvöld hafa einkum
gengið hart fram gegn baptistum
og hvítasunnufólki. Wilgot Frit-
zon, leiðtogi Slavneska trúboðs-
sambandsins, sem hefur mikil
tengsl við kristna trúbræður sína
í Sovétríkjunum, segir, að flestir
séu dæmdir með tilvísan til 190.
greinar hegningarlaganna en þar
er kveðið á um viðurlög við að
„útbreiða lygar um Sovétríkin og
sovéskt samfélag". Sök fólks-
ins er þá oftast sú að hafa haft í
fórum sínum kristileg rit.
Leynilögreglumenn elta oft
kristið fólk á röndum og börn
kristinna foreldra verða tíðum
fyrir aðkasti í skólunum. Þau eru
neydd til að ganga í æskulýðs-
samtök kommúnista en þegar að
því kemur að þau sækja um
skólavist í æðri menntastofnun-
um eru þeim flestar dyr lokaðar.
Þrátt fyrir þetta virðist kristnu
fólki vaxa ásmegin í Sovétríkjun-
um. Stöðugt fleiri kirkjur á veg-
um rússnesku rétttrúnaðarkirkj-
unnar hafa verið opnaðar og
einnig hefur þeim söfnuðum, sem
yfirvöld leggja ekki blessun sína
yfir, fjölgað mjög.
er ráð fyrir, að hann muni sfanda
í tvær vikur. Philip C. Habib,
sendimaður Bandaríkjastjórnar,
sem átti mestan þátt í samkomu-
laginu um brottflutninginn, kann-
aði franska herliðið í Beirút-höfn
stundu áður en skæruliðarnir
stigu um borð og var Shafik Wazz-
an, forsætisráðherra Líbanons, í
fylgd með honum en hann annað-
ist milligöngu milli Habibs og
Arafats.
PLO, frelsisfylking Palestínu-
manna, hefur fagnað samkomu-
laginu og kallar það pólitískan
sigur, sem unnist hafi á ísraelum.
Dagblöð í Vcstur-Beirút birta
myndir af Arafat brosandi og
hafa það eftir Salah Khalaf, hátt-
settum PLO-manni, að skæruliðar
séu aðeins að færa sig úr einni
vígstöðinni í aðra. I Austur-
Beirút, sem er byggð kristnu fólki,
er einnig mikill fögnuður. „Palest-
ínsku martröðinni er lokið, loks-
ins,“ sagði útvarpsstöðin „Rödd
Líbanons", sem líbanskir hægri-
menn reka.
Aætlað er, að nk. fimmtudag og
föstudag verði 800 bandarískir
landgönguliðar, 532 ítalskir her-
menn og 450 franskir hermenn að
auki komnir til borgarinnar til að
fylgjast með brottflutningnum
ásamt deildum úr líbanska hern-
um.