Morgunblaðið - 28.08.1982, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.08.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR<íéCÁGÚ6T 1982 15 Píanóleikur Tónlist Jón Ásgeirsson Ungur píanójeikari, Pauline Martin, Vestur-íslendingur, hélt tónleika að Kjarvalsstöðum sl. þriðjudag. Hún flutti tónlist eft- ir Bach, Schubert, Chopin og Rachmaninoff. ítalski konsert- inn eftir Bach, sem var fyrsta verkið á efnisskránni, var nokk- uð hratt leikinn, svo að hann missti eilítið af þeirri ró, sem fellur svo vel að allri Barokk- tónlist. Annað verkefnið var B- dúr sónatan eftir Schubert. Þar gat ýmislegt fallegt að heyra í leik Pauline Martin, eins t.d. ein- kennilega einsemd, sem er svo sterk í verkum Schuberts. „Það er eins og kvöldkyrrðin setjist að honum, er hann læðist hljóðlega gegnum hægferðuga nóttina, í fylgd með stórum flöktandi skuggum frá daufri skímu kerta- ljóss, einmana skáld, sem þó nýt- ur verndar og leyndra samvista við heilaga Sesseliu." Síðustu verkin, Andante Spinato og pól- ónesan op. 22, eftir Chopin og þrjú smáverk eftir Rachmanin- off, sem öll eru þó þræl erfið í flutningi, voru glæsilega leikin. Pauline Martin er kraftmikill og tekniskur píanóleikar, og í leik hennar er allt skýrlega fram sett, þó á stundum sé framsetn- ingin einum of augljós og með- vituð og túlkunin því nokkuð köld, einkum þar sem kraftur og skapfesta ræður ríkjum. Ein af myndum amerísku kvik- myndavikunnar Kvikmyndir Ólafur M. Jóhannesson Nafn á frummáli: The Return of the Secausus Seven. Sýningarstaður: Tjarnarbíó. Leikstjórn: John Sayles. Ilandrit: John Sayles. Tónlist: Mason Daring. Stjörnubíó: Allt er fertugum fært. („Chapter Two“.) Handrit: Neil Simon, byggt á sam- nefndu leikriti. Leikstjórn: Robert Moore. Tónlist: Marvin Hamlisch. Kvikmyndataka: Richard Kratina. Aðalhlutverk: James Caan, Marsha Mason, Joseph Bologna, Valerie Harper. Banadrisk frá 1980. Columbia. 1 upphafi myndar kynnumst við tveim einmana sálum. Rit- höfundinum, James Caan, sem nýlega hefur misst konu sína, og leikkonunni, Mörshu Mason, sem er nýskilin við mann sinn sökum gjálífis hans, að manni skilst. Eru þau bæði tvö enn í sárum, er þau kynnast fyrir tilviljun. Allt gerist nú á amerískum hraða. Þau fella á fysta degi brennandi ástarhug hvort til annars, og eftir tólf daga sælutíð láta hjúin pússa sig saman. Þó í óþökk bróðurins, Joseph Bol- ogna, sem finnst sem þau hraði sér um of. Úr kirkjunni er haldið til Karabíska hafsins, þar sem hjónakornin njóta lífsins um hríð. Adam er þó ekki lengi í Paradís, þar sem Caan tekur nú að sakna fyrri konu sinnar svo sárt, að haldið er heim til New York í miðri brúðkaupsferð. Þá tekur ekki betra við, því nú leggst skáldið í hugarvíl og sjálfsmeðaumkun sem leiðir til þess að hann heldur vestur til Hollywood í atvinnuleit og skilur konuna örvinglaða eftir heima. En eins og í fallegu ævintýr- unum (og leikritum Neil Simon), fellur allt í ljúfa löð undir leiks- lok. Skáldið hafði semsé gleymt því óbrigðula ráði við geðfýlu, að tölta hana úr sér. En því slær loks niður í huga hans þegar vestur er komið, og hann heldur til baka og allt verður gott og blessað á nýjan leik. Talsvert bragð hlýtur að hafa skolast úr verkinu við umbreyt- ingu þess í kvikmynd, einkum þegar haft er í huga að Allt er Leikstjórinn John Sayles fertugum fært er álitið eitt besta sviðsverk Neil Simons. Enda er það byggt á reynslu höfundar, segir frá því skeiði er hann kynntist seinni konu sinni — sem er engin önnur en Marsha Mason. Maður fær frekar litla tilfinningu fyrir söguper- sónunum og enga samúð með skáldinu í sorgum hans og sút. Hér kemur og berlega í ljós grundvallar mismunur á skoðun- um okkar og Bandaríkjamanna á undirstöðu hjónabandsins. Mis- munur sem við höfum oftsinnis furðað okkur á hér heima. Þær persónur þættu vitsmunalega skertar sem rykju út í hjóna- band án þess að þekkja hvort annað nokkurn skapaðan hlut, að maður tali nú ekki um eftir slika lífsreynslu sem um getur. En þetta er víst alltítt vestra. Af þessum ástæðum þykir mér, og sjálfsagt flestum löndum min- um, efnisþráður Allt er fertug- um fært hálfgerð endaleysa. Hér bólar full sjaldan á hinni velþekktu kímnigáfu Simons, á hann þó nokkra góða spretti, einkum í fyrri hluta myndarinn- ar. Ekki bætir úr, að James Caan, sá annars ágæti leikari, passar engan veginn í hlutverkið, er satt að segja ómögulegur á köfl- um, verstur er hann þegar hann er að tjá hugarvíl sitt sökum konumissisins. Marsha Mason kemst miklu betur frá sínu, enda hæg heimatökin þar sem hún er að leika sjálfa sig. Þá er Joseph Bologna hreint ágætur í hlut- verki hins veraldarvana bróður. Allt yfirbragð Allt er fertugum fært er fallegt og fínpússað, enda undir eftirliti smekk- mannsins framleiðandans Ray Stark. Sýning helgarinnar 28.—29. ágúst í sýningarsalnum viö Rauðageröi. Opiö frá kl. 2—5. / dag sýnum viö hina stórglæsilegu Einnig veröa sýndir: 0 Datsun King Cab, þessi meö konungiega kraft- inn og snerpuna. 0 Subaru jeppinn, sem er ekki aöeins búinn kostum allra bestu jeppa, heldur er hann einnig búinn öllum kostum fólksbílsins. 0 Wartburg, þessi ódýri sem fæst með svo stór- kostlegum greiöslukjörum aö þú veröur aö fá upp- lýsingar um þau frá fyrstu hendi. 0 Stúdentakadilakkinn, (Trabant) þessi sem kostar ekki nema u.þ.b. 47 þúsund kr. splunkunýr, beint úr kassanum. 0 Notaöir, vel meö farnir bílar. Ingvar Helgason Sýningarsalurinn v/ Rauðageröi. Sími 33560. VANTAR ÞIG VINMJ VANTAR ÞIG FÓLK O * wi Al'GLÝSIR l’M ALLT LAND ÞEGAR Þl Al'G- LÝSIR í MORGUNBLAÐINl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.