Morgunblaðið - 28.08.1982, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.08.1982, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982 „ Hvernig $ier\dae c. |?i/í ah hanfl hefur feng- i& bdehi legg og m/iAnti ást er... ... að hringja og óska henni til ham ingju með af- mælið. r* R«0 U S Pal on -»H rlghts rtsarvxl '882 Lcm Ar>0«Ma Tlmss Syndlcate Láttu ekki svona, Lilli skemmtir sér konunglega med frímerkja- safniA þitt. Með morgimkaffinu Bóndinn sást nú aldrei með byss- una sína! HÖGNI HREKKVÍSI Við viljum líka senda vini kveðju og heyra okkar uppáhaldslag í Velvakanda 29. júlí víkur Hersteinn Þórðarson að okkur fullorðna fólkinu, þar sem sagt er orðrétt: „Af hverju má ekki vera eins og einn þáttur fyrir fullorðna fólkið á móti öllum hinum sem unga fólkið hefur, t.d. á mánudagskvöldum, en þá eru tveir þættir í röð fyrir ungt fólk?“ Svo mörg voru þau orð og vissulega í tíma töluð. Ég þakka Hersteini fyrir hans tillag. Þá mætti einnig minnast á barna- tímana sem eru næstum alltaf tveir á dag eins og t.d. á föstu- dögum, en þá byrjar Litli barna- tíminn klukkan 16.30 og klukkan 16 er þáttur fyrir börn og ungl- inga. Á fimmtudögum er barna- tíminn Lagiö mitt og á laugar- dögum er harnatími fyrir hádegi og annar kl. 16.50. Svona mætti lengi telja. Ég held að börnin gætu verið án barnatímans fyrir hádegi á laugardögum, því börn eru þá oftast úti að leika sér og því ekkert frá þeim tekið. Við eldra fólkið förum lítið út og sumt alls ekki yfir vetrartím- ann. Það er ekki til mikils mælst þó við fengjum einn þátt fyrir okkur í útvarpinu. Okkur langar kannski til að senda gömlum vinum kveðju eða til að láta spila okkar uppáhaldslag. Nú er mikið talað um málefni aldraðra og meira að segja höfð sýning fyrir aldraða á höfuðborgarsvæðinu. Það á að gera mikið fyrir aldr- aða fólkið. Þó var það á miðju sumri, í júlímánuði, sem fjöldinn allur af lífeyrisþegum fékk ekki nema helminginn útborgaðan af þeim ellilífeyri sem hann átti að fá. Hvað var að ske á Ári aldr- aðra? Það voru margir hissa á þessum vinnubrögðum. Hvað ætli ráðherrarnir og þingmenn- irnir hefðu sagt ef kaup þeirra hefði allt í einu verið skorið niður í júlímánuði, helmingur- inn tekinn af, en þeir skammta sér jú sjálfir og hafa vel útilátið. En það er heimskra manna háttur að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Mann fer að gruna, að allt þetta skraf um málefni aldraðra sé bara sýndar- mennska sem nokkrir ráðamenn fyrir sunnan nota til að slá um sig og sýnast. En kannski for- maður útvarpsráðs og útvarps- stjóri sjái loks að sér og gefi gamla fólkinu kost á einum þætti í útvarpinu framvegis. Þá væri svolitlum áfanga náð eftir öll þessi ár, sem gamla fólkið hefur verið sett hjá. Ég vona að einhver taki undir þessi orð með mér. Auðbjörg Þessir hringdu . . Sögnin um Engilsvík Jóhanna Rjörnsdóttir hringdi vegna fyrirspurnar Margrétar Bjarnadóttur í Velvakanda 26. ágúst, um erindi á stalli stytt- unnar við Strandarkirkju: „Ég veit ekki eftir hvern, eða hverja erindin eru, en styttan er eftir Gunnfríði Jónsdóttur og er gerð í sambandi við sögnina um Engilsvík, en Strandarkirkja stendur við Engilsvík. Sögur fóru af því, að skip hafi lent í erfiðleikum út af víkinni og bjuggust skipverjar við því að þá ræki upp á land, en þá birtist þeim engilsmynd á ströndinni og hétu þeir því, að ef þeir kæmust úr erfiðleikunum myndu þeir bygfíja þarna kirkju. Styttan við Strandarkirkju á að tákna eng- ilsmyndina sem birtist þeim, en í kirkjunni sjálfri er málverk sem lýsir þeim atburðum, sem þarna áttu að gerast. Erindin, sem skráð eru á stallinn, eru svona: I bæn þeir lyftu huga hátt þá háðu stríð við Ægis mátt, en himinn rétti arm í átt þar ýtar sáu land. Það skip úr dauðans djúpi rann því drottins engill lýsa vann, svo býður hann við boða þann og báti stýrir hjá. Himbrimi en ekki lómur Lómur hringdi: „Ég vil koma á framfæri at- hugasemd við dóm Ólafs M. Jó- hannessonar um myndina „On Golden Pond“ sem hann kallar „Lómagnúp". Það eru ekki lómar sem leika þarna aðalhlutverkið heldur himbrimar. Það er enn- fremur hvimleitt að sjá þetta alltaf þýtt í myndinni sem lóm- ar. í fuglabók Almenna bókafé- lagsins heitir lómurinn reyndar red throated loon, en himbrim- inn common loon. Fólkið í kvikmyndinni talar ætíð um „the loons“ og þýðandinn hefur því strax þýtt þetta sem lóma og aðrir apað upp eftir honum. Ég vil skora á aðstandendur Regn- bogans að láta breyta þessu þannig að rétt verði rétt.“ Lægstu laun á Islandi Rósa Vilhjálmsdóttir hringdi: „Mig langar til þess að vita hver séu lægstu útborguðu laun á Islandi. Ég vinn við heimilis- hjálp, sem er nokkuð erfið vinna, og eru laun mín fyrir átta stund- ir á dag 7.500 krónur á mánuði, en þegar búið er að draga frá launatengd gjöld, eru eftir 7.102 krónur í umslaginu. Mig langar til þess að vita hvort einhver hafi lægri laun en þetta, því mér finnst þetta mjög lítið. Mér finnst að Gunnar Thoroddsen og kompaní ættu að reyna að fram- fleyta sér og sínum á þessum krónum. Þá ættu þingmenn að fara út á hinn almenna vinnu- markað, helst í verkamanna- vinnu, og gera tilraun til þess að lifa af þessum aurum." LANDSYN EFTlft GUNNFRÍOI JÓNSOÓTTUR AFHJi>m> 29. MAÍ 1950 SÖGNIN UM ENGILSVlK i »*« Kll LVfTU HUGA HÁTT »Á HÁO’J 5TAÍ0 V'0 ÁCI5 MÁTT EN HIMIHH 8ÍTTI A«M I ÁTT OAR TTA8 SÁU LAN0 PA0 SKIP Cm 0AU0ANS 0JÚP' RANN »vl osorriNs engill l?sa vann SV0 8Ý0UR HANN VtO 800A 0ANN 06 8ÁTI STÝRIR MJÁ IáUmIKn#VS3KKw

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.